Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 25
Laugardagur 25. júlí 1992
Tíminn 25
Lögreglan var fljót á vettvang.
RÁÐNING Á
KROSSGÁTU
sínum snæaim í klefa með honum í
fangelsinu og sá fékk að heyra eftir-
farandi sögu.
Eric vissi sem var að bílskúr Ho-
opes fjölskyldunnar var ávallt opinn.
Hann læddist því þar í gegn og inn í
húsið og upp á efri hæðina.
Hann fór fyrst inn í herbergi Lou-
ise. Þar tók hann kodda og setti fyrir
andlit sofandi konunnar í þeim til-
gangi að kæfa hana. En hann komst
fljótt að því að það er hægara sagt en
gert að kæfa fullorðna konu. Þegar
hann tók koddann frá andliti hennar
byrjaði hún að æpa. Hann tók þá exi
sem hann hafði verið svo forsjáll að
hafa með sér og sló hana sjö sinnum
í höfuðið.
Naut þess að myrða
vini sína
Þótt undarlegt megi virðast and-
aði Louise enn að því loknu. Hann
greip því til þess ráðs að skera hana
Til vinstri er gömul mynd af Eric
Motis úr safni lögreglunnar. Sú aö
ofan var tekin viö réttarhöldin.
á háls. Hann sagði að enn hefðu
heyrst í henni hryglur þegar hann
fór út herbergi hennar.
Eric sagði klefafélaga sínum að
hinn 14 ára gamli Danny hefði verið
steinsofandi þegar hann læddist inn
til hans. Hann kvaðst ekki muna
hvort hann hefði skorið Danny á
háls líka.
„Það var erfitt að drepa Danny,“
sagði hann og bætti því að Danny
hefði einnig öskrað.
Þá var aðeins Doug eftir. Þegar
Eric kom að herbergi hans, sá hann
Doug setjast upp í rúminu, kveikja á
útvarpinu og leggjast síðan út af aft-
ur.
Eric faldi sig og beið þess að Doug
sofnaði aftur. Þegar hann hélt svo
vera lagðist hann á fjóra fætur og
skreið inn í herbergið.
Skyndilega settist Doug upp í
rúminu, hallaði sér fram og greip
um úlnlið Erics. Sá greip þá til ham-
arsins og sló Doug þar til hann
sleppti takinu.
Á leiðinni út leit hann inn til
Dannys og sá að hann hafði skriðið
fram úr rúminu og niður á gólfið, en
hann var örugglega dáinn.
Þegar hann kom að herbergi Lou-
ise brá honum í brún. Konan andaði
enn. Honum gramdist þessi þrjóska
og réðst á deyjandi konuna og
nauðgaði henni.
„Af hverju þurftirðu að drepa
þau?“ spurði klefafélaginn.
„Hvernig átti ég að geta gengið
um húsið og tekið það sem ég vildi
annars?" spurði Eric á móti.
„Hvernig leið þér eiginlega?"
spurði klefafélaginn aftur.
„Ég leit bara á þau og brosti og
hló,“ svaraði Eric. „Ég naut hverrar
mínútu út í ystu æsar.“
Morðinginn játar allt
fyrir rétti
Nú var allt fengið sem þurfti til að
ákæra Eric fyrir morðið. Bfll fjöl-
skyldunnar var í hans höndum
ásamt öðrum verðmætum sem
hann hafði stolið í húsinu. Og játn-
ingin sem hann Iét lokka út úr sér í
fangaklefanum tók af allan vafa.
Þegar hann kom fyrir rétt játaði
hann strax á sig allar sakir. Hann ját-
aði hiklaust að hafa myrt þau Lou-
ise, Daniel og Douglas Hoopes, hafa
nauðgað Louise og rænt fjölskyld-
una að því loknu.
Dómarinn kvaðst ekki geta skilið
hvernig á því stæði að vel gefinn
piltur úr miðstéttarfjölskyldu hefði
framið slíkan verknað.
„Það er nær alltaf hægt að finna
einhverja ástæðu," sagði hann. „En í
þessu tilfeili er engin útskýring,
engin ástæða, enginn tilgangur.
Það er eflaust eitthvað að gerast í
huga hans. Svona gerist ekki bara.
Við komumst til tunglsins og getum
hringsólað umhverfis Mars, en við
getum ekki fundið hvaða sálsýki
liggur að baki verknaði sem þess-
um,“ sagði dómarinn að lokum.
Eric Motis hlaut þrjá dóma upp á
ævilangt fangelsi sem hann skyldi
afplána hvern á eftir öðrum, án
nokkurra möguleika á reynslulausn.
Sökum þess hversu ungur hann
var er hann framdi morðin og einn-
ig sökum þess að dómarinn var þess
fullviss að honum hefði ekki verið
sjálfrátt ákvað hann að dæma hann
ekki til dauða.
HJÓLHÝSI TIL SÖLU
Upplýsingar í síma 91-46457.
Varanleg lausn
á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfri.
Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur.
Einnig sólbekkir og borðplötur í mörgum litum.
Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum.
Sterkt og fallegt.
Marmaraiðjan, Höfðatúni 12.
Sími 629955. Fax 629956.
Tónlistarskólakennarar
Athugið að atkvæðagreiðsla um nýgerða kjara-
samninga fer fram vikuna 23.-29. júlí.
Kjörgögn hafa verið send til félagsmanna. Kjör-
skrá liggur frammi á skrifstofu Kennarasam-
bands íslands, Grettisgötu 89. Takið afstöðu.
Stjórn Félags tónlistarskólakennara.
Bændur — Verktakar
Til sölu gott eintak af MF 70 vélgröfu árg. ‘74. Skipti
á pallbíl eða seljanlegum bíl koma til greina.
Upplýsingar í síma 97-31416 — 985- 28216.
Heimasími á kvöldin 97- 31216.
SONDUNÆRING, NÆRINGARDRYKKIR OG
INNRENNSLISLEGGIR
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Ríkisspítala óskar eftir tilboðum i
Sondunæringu, næringardrykki, innrennslisleggi (katetera) og aðra
fylgihluti.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 28. ágúst 1992 kl.
11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
Útboð
Norðurlandsvegur um Öxna-
dalsheiði 1992
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum i lagn-
ingu 3,6 km kafla á Norðuriandsvegi á Öxna-
dalsheiði.
Magn 112.000 m3. Þar af bergskeringar
20.000 m3.
Verki skal lokið 1. ágúst 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki og í Borgartúni 5, Reykjavík
(aðalgjaldkera), frá og með 28. þ.m.
Tilboðum skal skila á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 10. ágúst 1992.
Vegamálastjóri
________________________________________J
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœr þurfa að vera vélritaðar.