Tíminn - 08.08.1992, Blaðsíða 10

Tíminn - 08.08.1992, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 8. ágúst 1992 Bretar rifja upp sögu tveggja óhamingju- samra drottninga sinna Stöðugt er rætt um hjóna- bandsmálin innan bresku konungsfjölskyldunnar og velt upp nýjum og nýjum hlið- um á þeim. Þar á meðal hafa menn bent á að það er ekki nýtt að sitthvað hafí gengið á innan hallarveggjanna og að lafði Diana prinsessa af Wales sé ekki sú fyrsta í þeirri stöðu sem lifað hafí í óhamingju- samri sambúð. Alexandra prinsessa Því er nú rifjuð upp saga dönsku prinsessunnar Alexöndru sem var eiginkona Játvarðar prins af Wales sem síðar varð Játvarður VII. Hún giftist prinsinum árið 1863 og var hún þá aðeins 18 ára gömul, orð- lögð íyrir fágun sína, siðprýði og ekki síst fegurð. En maður hennar var útsláttarsamur og kunni vel að meta hið ljúfa líf—vín, spil og ekki síst fagrar konur. Svo var komið árið 1867 að móðir Ját- varðar, Viktoría drottning, harð- bannaði að hann tæki þátt í nokk- urri opinberri athöfn. Það bann var við lýði uns hún lést 1901 og Játvarður varð konungur, þá orð- inn roskinn. En 1867 ritaði drottningin forsætisráðherra sín- um á þessa leið. „Drottningin væntir að Derby lávarður geri bæði prinsinum og prinsessunni af Wales það ljóst að þau mega undir engum kringumstæðum láta persónuleg málefni bitna á opinberum skyldum... Drottning- in mun vaka náið yfir þessu fram- vegis.“ Samtímaskopmynd af Georg IV. er hann rís úr rekkju frú Fitzhebert eftir hiö leynilega brúökaup þeirra. Diana ekki eina ein- mana prinsessan einni þeirra, Mary Anne Fitzhe- bert, á laun árið 1784. Þau Karo- lína af Brunswick og Georg eign- uðust þó eina dóttur, en hún dó ung. Skömmu eftir brúðkaupið skildu þau að borði og sæng og bjó drottningin með hirð um sig á Ítalíu í mörg ár eftir það. Kvittur kom upp um að hún héldi ekki hjúskaparheitið sem best þar syðra og var efnt til réttarhalda í London yfir henni af þeim sökum. Hún var þó sýknuð og fagnaði borgarlýðurinn í London því óspart, því hann studdi drottning- una en fyrirleit konung. Það atvik er geymt í sögu Eng- lands að þegar Georg IV. var krýndur árið 1820 var sjálfri drottningunni ekki hleypt inn í Westminster Abbey þar sem krýn- ingin fór fram. Slík var andúð konungsins á henni að hann bannaði það. Var henni snúið við af vörðunum við dymar. Nei, víst hefur margt farið úr- skeiðis í konunglegum hjóna- böndum á Englandi fyrr en nú. V-'TT' : Glaumgosinn Játvarður lifði hinu ljúfa lífi sínu alla tíð og var viðriðinn ýmis hneyksli —varð meðal annars tví- vegis að mæta fyrir rétti vegna skilnaðarmála vina hans. Skilnuð- um þessum tengdist það hneyksl- anlega líferni sem viðgekkst í höllum þeim þar sem prinsinn hélt samkvæmi sín. Sjálfur átti hann sér eftirlætishjákonu, Alice Keppel. En Alexandra sat ein heima og gætti hinnar konunglegu siðprýði og virðingar alveg uns hún lést ár- ið 1925, þá orðin 81 árs gömul. Karólína af Brunswick Fyrr á 19. öldinni bjuggu Bretar við það að hjónaband konungs þeirra var hneykslisefni um heim allan. Konungurinn var Georg IV. sem kvæntist þýskri prinsessu, Karolínu af Brunswick, árið 1795. Hún hafði ekki fegurð Alexöndru til að bera, var ófríð, lítil og feit- lagin. Átti Georg, sem þá var prins af Wales, að hafa sagt skelfingu lostinn er hann sá konuefni sitt fyrst: „Gefið mér glas af koníaki!" Georg IV. var mikill glaumgosi að ekki sé sagt saurlífisseggur. Hann hélt ýmsar hjákonur og giftist Karólína af Brunswick: Ófríö og feitlagin og ástundaöi frjálsar ástir, rétt eins og konungurinn, maöur hennar. Alexandra er efst til vinstri á myndinni, en fyrir neöan hjákona Ját- varöar VII, Alice Keppel. Til hægri má svo líta konunginn sjálfan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.