Tíminn - 10.09.1992, Side 2

Tíminn - 10.09.1992, Side 2
2 Tíminn Fimmtudagur 10. september 1992 Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir að breyta verði lögum um Hagræðingarsjóð sem allra fyrst: Stjórnin neitar að horfa á staðreyndir „Ummæli forsætisráðherra, um aö vandi sjávarútvegs sé tiltölu- lega h'till og það þurfi nánast ekk- ert aö gera, valda miklum áhyggj- um. Ég er undrandi aö fínna slíkt skilningsleysi hjá stjórnvöldum á stööu sjávarútvegsins. Ég held aö það væru mikil mistök af ríkis- stjórninni að senda fiskiskipum gíróseöla núna viö þessar aðstæð- ur. Ég trúi að þaö muni vekja mjög hörð viðbrögð almennt í landinu. Ég satt að segja trúi því varla að stjómin ætliað spila slíka glæfrapólitík," sagði Halldór Ás- grímsson, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra. Eins og Tíminn greindi frá í gær er stjórn Hagræðingarsjóðs í sam- vinnu við sjávarútvegsráðuneytið að undirbúa að innheimta af fiski- skipum gjald vegna kaupa þeirra á aflaheimildum Hagræðingarsjóðs. Eigendum skipa verða sendir gíró- seðlar og þeim gert að borga þá fyrir miðjan október. Halldór hefur ásamt fleiri þing- mönnum Framsóknarflokksins lagt fram frumvarp um að afla- heimildum Hagræðingarsjóðs verði úthlutað til fiskiskipa endur- gjaldslaust. Halldór sagðist vonast Halldór Ásgrímsson. eftir að frumvarpið verði tekið á dagskrá fljótlega í næstu viku. Hann sagði að við umræðu um frumvarpið muni koma í ljós hversu víðtæks stuðnings það njóti. Jafnframt hljóti ríkisstjómin að gefa svör um hvað hún ætlist fyrir með aflaheimildir sjóðsins og á hvern hátt skerðing á þorskveið- um verði jöfnuð milli byggðarlaga. Halldór sagði nauðsynlegt að breyta lögum um Hagræðingar- sjóð og það sé vel hægt að gera fyr- ir miðjan október. ,ddér finnst að í ríkisstjórninni ríki skilningsleysi á vanda sjávar- útvegs og uppgjafartónn. Ég er ekki að segja að það sé auðvelt að ráða við vandann eða að það séu til einhverjar töfralausnir. Fyrsta at- riðið hlýtur hins vegar að vera að viðurkenna ákveðnar staðreyndir. Það gerir ríkisstjórnin ekki. Menn sem neita að horfast í augu við staðreyndir eru ekki líklegir til stórra ákvarðana," sagði Halldór. Halldór sagði að vandinn í sjávar- útvegi og atvinnumálum almennt verði alltaf erfiðari viðfangs eftir því sem lengri tími líði án þess að nokkuð sé gert til að takast á við hann. -EÓ Heimdellingar óánægðir með frammistöðu fjár- málaráðherra: Ganga má miklu lengra í niður- skurði ríkisút- gjalda Stjóm Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að ríkisstjómin eigi að ganga miklu lengra í niðurskurði ríkisútgjalda en gert hefur verið og hvetur hana til frekarí athafna á því sviði. Þá harmar stjómin þau ummæli fjár- málaráðherra að ekki verði komist hjá halla á fjárlögum 1993. Þetta kemur m.a. fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi Heimdallar á dögunum. í ályktun- inni er Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra hvattur til að endurskoða afstöðu sína til komandi fjárlaga- halla. Að mati stjórnar Heimdallar hefur sjaldan verið brýnni þörf en nú til að minnka umsvif hins opin- bera, þegar efnahagur er bágborinn og athafnalífið þarf sárlega á hvatn- ingu að halda. Stjórn Heimdallar telur að það verði helst gert með skattalækkunum, en forsenda þeirra sé lækkun ríkisútgjalda. -grh Þungt hljóð í sumum sóknarprestum: Krefjast aðskilnaðar rikis og kirkju Söfnunin „Hjálpum þeim“: FRAMLOG ÞOKKUÐ Sumir prestar vilja aðskönað ríkis og káiju. Biskup segist ekki ganga í slíkt og álítur að óánægja meö kjaramál vegi þungt í þessari um- ræðu. Það er þungt hijóðið í mörgum prestum þessa dagana út af kjara- málum og frumvarpi um að launa- kjör þeirra eigi að heyra undir kjara- nefnd fjármálaráðuneytisins en ekki kjaradóm. Þeir viðra þá skoðun sína m.a. að krefjast aðskilnaðar ríkis og kirkju. Nýlega lét séra SigurðurÆg- isson, sóknarprestur í Bolungarvík, þessa skoðun sína í ljós í blaðagrein og sagði að tilvist kirkjunnar í land- inu væri undir því komin að skilið verði á milli hennar og ríkisins. Jafn- framt segir Sigurður: „Furðuleg yrði sú uppákoma og reyndar einsdæmi ef prestar fyndu þá sig knúna til að boða söfnuðunum þau tíðindi að einu ráðin til bjargar væru að koma þessari ríkisstjóm frá.“ „Það er naumast. Ég mun ekki ganga í slíkt," varð herra Ólafi Skúla- syni biskupi að orði þegar þessi um- mæli voru borin undir hann. „Ég tel það enga allsherjarlausn á vanda presta að skilja á milli ríkis og kirkju. Ég get ekki séð að kirkjan geti komið betur til móts við þarfir íslenskrar þjóðar með því að skera á þetta fyrirkomulag," segir Ólafúr. Hann telur sig þurfa að vita mjög glöggt hvað þeir sem eru að mót- mæla sambandi ríkis og kirkju vilji fá í staðinn. „Það fer ekkert á milli mála að bráðabirgðalögin á kjaradóm urðu prestum mikil vonbrigði," segir Ól- afur. Hann segir að gremja hafi svo magnast þegar frumvarp var lagt fram um kjaradóm og kjaranefnd. „Ég hef aftur á móti ekki heyrt radd- Biskupinn yfir islandi sr. Ólafur Skúlason. ir sem krefjast aðskilnaðar ríkis og kirkju í alvöru," segir Ólafúr. Hann segir að það hafi verið bent á að kirkjan þurfi að athuga sinn gang. „Prestar hafa kvartað mjög undan af- komu sinni og kjörum en þeir eru svo sem ekkert einir um það í land- inu. Þeir verða að horfast í augu við raunveruleikann eins og allir aðrir," bætir Ólafur við. „Ég hef mótmælt því mjög ákveðið að prestar séu teknir undan kjara- dómi og settir undir kjaranefnd. Kirkjumálaráðherra kom með mála- miðlun um að prestar fengju að til- nefna einn mann í kjaranefnd. Mér þykir það skárri kostur en að fjár- málaráðherra skipi tvo án tilnefning- ar,“ sagði Ólafur að lokum. -HÞ Rauði kross íslands og Hjálparstofn- un kirkjunnar hafa sent frá sér til- kynningu þar sem landsmönnum öll- um eru þökkuð rausnarleg framlög í söfnunina „Hjálpum þeim“ hinn 3. sept sl. Alls hafa borist loforð fyrir um 23 milljónum króna sem koma hinum bágstöddu í Sómalíu og á Balkan- skaga til hjálpar á neyðarstundu. Af þessum íjármunum eru 9 milljón- ir þegar komnar inn á söfnunarreikn- inga en gíróseðlar eru að fara í póst um þessar mundir og endanlegt upp- gjör ætti að liggja fyrir strax eftir næstu mánaðamót. Ákveðið verður næstu daga hvemig söfnunarfénu verður endanlega skipt á einstök verkefni í löndunum. Verða keypt hjálpargögn og komið upp að- stöðu fyrir flóttamenn. Hluta söfnun- arfjárins verður hægt að senda strax í þessari viku en afganginn þegar greidd hafa verið framlög með gíró- seðlum eða greiðslukortum. Aðstandendur söfnunarinnar þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn til að gera hana mögulega, ekki síst fjöl- miðlunum sem studdu hana sérstak- lega. Fullorðinsfræðsla um kristindóminn Leikmannaskóli kirkjunnar er að hefja sitt annað skólaár þann 23. september og stendur innritun yfír á Biskupsstofu. Helstu kennslugreinar skólans eru Biblíufræði, eða inngangsfræði gamla og nýja testamentisins, helgi- siðafræði og táknmál krikjunnar, trúfræði, siðfræði, sálgæsla og þjón- usta leikmanna. Skólinn starfar í samvinnu við guðfræðideild Há- skólans og fer kennslan fram í húsa- kynnum hennar á miðvikudags- kvöldum. —sá Kostnaður við að ná kvótanum hefur hækkað um tjórðung að mati ÚA: Verðmæti fiskimiðanna hefur rýrnað Afli á hvern úthaldsdag hjá togurum Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri hefur minnkað úr 18 tonn árið 1988 í aðeins 12 tonn á fyrri helmingi þessa árs. Að mati forráðamanna fyrirtækisins hefur kostnaðurinn við ná kvótanum hækkað um fjórðung og því telja þeir að fiskimiðin séu fjórðungi verðminni auðlind en þau voru fyrir fjórum árum. Þetta kemur ffam í fréttabréfi fyrir- tæksins frá síðasta mánuði. Eins og hjá öðrum sjávarútvegsfyrir- tækjum kemur kvótaskerðingin hart niður á fyrirtækinu en aflaheimildir þess í þorski minnka um rúmlega 1900 tonn. Til að milda þennan skell hefur félagið fengið auknar veiði- heimildir úr öðrum fiskistofnum, s.s. ýsu, ufsa, karfa, grálúðu og skarkola. Samtals er hér um að ræða 1955 tonn eða 1300 þorskígildistonn. Skerðingin er því um 600 þorskígild- istonn sem samsvarar um 60 miljón- um í framleiðsluverðmæti. Hins veg- ar er það mat forráðamanna fyrir- tæksins að þessar auknu veiðiheim- ildir í öðrum fiskistofnum séu sýnd veiði en ekki gefin. Af þeim sökum líta þeir á þær sem fræðilega stærð sem reynslan verði að skera úr um hvemig til tekst Samtals munu afla- heimildir fyrirtæksins á nýbyijuðu fiskiveiðiári verða um 21.500 tonn og er þá reiknað með að flutt hafi verið rúmlega eitt þúsund tonn af þorsk- veiðiheimildum frá síðasta ári, sem ekki náðist að veiða, yfir á núverandi fiskveiðiár. Á fyrri helmingi þessa árs nam hagn- aður fyrirtæksins af reglulegri starf- semi 24 milljónum króna samanbor- ið við 74,8 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári. FVrstu sex mán- uði þessa árs numu heildartekjur fé- lagsins 1.187,7 milljónum króna á móti 1214,8 milljónum á sama tíma- bili sl. árs. Rekstrargjöld námu 950,9 milljónum en þau voru 983,9 millj- ónir í fyrra. Rekstrartekjur fyrirtæks- ins hafa því minnkað um 2,2% en rekstrargjöld um 3,4%. Þá hafa af- skriftir hækkað úr 110,6 milljónum á sl. ári í 145,2 miljónir króna auk þess sem fjármagnskostnaður nettó hefúr hækkað úr 44,5 milljónum króna í 68 milljónir. Þetta stafar m.a. af fjárfest- ingum í skipum og aflaheimildum á síðustu misserum. Aftur á móti hefúr eigið fé Útgerðarfélagsins aukist um 7,7% frá áramótum sem er um 6,6% raunaukning og er nú eigið fé nú 45,6% af heildareignum. Nettóskuld- ir, það er heildarskuldir að frádregnu veltufé, er 1.123,5 milljónir en voru 1239,1 milljónir um síðustu áramóL Nettóskuldir hafa því lækkað um 115,6 milljónir króna. -grh

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.