Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 6
6 2. mars 2009 MÁNUDAGUR
Nýr tölvuleikur Killzone 2
„lenti“ í Elko á þriðjudaginn. Í
heilsíðuauglýsingu mátti lesa
hvatninguna: „Sendu SMS
EST KZL á númerið 1900 og
þú gætir unnið! Vinningar eru
Killzone 2, aðrir tölvuleik-
ir, gos, dvd myndir og fleira.
Níundi hver vinnur.“ Með
minnstu stöfunum í auglýsing-
unni stóð: „Með því að taka
þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/
skeytið.“
Guðrún hafði samband og vill vara for-
eldra við auglýsingum sem þessum. „Sonur
minn 14 ára fær eina þúsund króna áfyll-
ingu á gsm-númerið sitt í mánuði. Venju-
lega fær hann viðvörun þegar tvöhundruð
krónur eru eftir af innlegginu. Þegar hann
sá auglýsinguna datt hann í græðgiskast
því leikurinn freistaði hans svo. Hann stóð
í þeirri meiningu að hann gæti sent fimm
skilaboð fyrir þúsund kallinn. Hann fékk
enga viðvörun og þegar hann var búinn að
senda fjölmörg sms fór samviskan að segja
til sín og hann kom og sagði mér
frá öllu saman.“
Guðrún kannaði þá málið og
komst að því að símareikning-
urinn var kominn í 16.915 krón-
ur, sonur hennar hafði sent 85
sms. „Ekki vann hann leikinn
eftirsótta, en fékk tvo gamla
PC-leiki og 21 litla dós af Pepsí
Max! Auðvitað væri hægt að
kaupa þennan Killzone 2 leik
tvisvar sinnum fyrir upphæðina sem hann
var búinn að eyða út í loftið. Ég hringdi í
símafyrirtækið og þar var mér tjáð að við
fyrsta sms-ið fer maður í einhvern sms-
klúbb, sem í þessu tilfelli var á vegum fyr-
irtækisins D3. Eftir það virðist vera hægt
að senda sms út í hið óendanlega og safna
skuldum. Stúlkan sagði mér að það dyndi
á henni símtöl frá svekktum foreldrum.
Hún sagði mér líka að það væri hægt að
láta loka fyrir símtöl á svona númer. Þess
þarf þó ekki í mínu tilfelli. Strákurinn
hefur lært sína lexíu og verður að borga
þetta fram á sumar.“
Neytendur: Móðir varar við stórvarasömum SMS-leikjum
Unglingur dettur í græðgiskast
STÓRVARASAMT Unglingar
geta safnað skuldum með
sms-leikjum.
ALÞINGI „Fyrst vil ég minna á að
upphafleg lagasetning um Seðla-
bankann og allar veigamikl-
ar breytingar á lögunum síðan
hafa verið rækilega undirbúnar
og um þær hefur því ætið náðst
þverpólitísk samstaða á þingi,“
sagði Jóhannes Nordal, fyrrver-
andi seðlabankastjóri, í áliti sínu
til viðskiptanefndar Alþingis um
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
bankann. Jóhannes varð seðla-
bankastjóri við stofnun bankans
1961 og gegndi embætti til 1993.
Jóhannes sagði að sér virt-
ist sérstaklega mikilvægt að fá
umsögn Seðlabanka Evrópu um
frumvarpið en meirihluti við-
skiptanefndar hafnaði boði um
slíkt. Þá sagði hann margt mæla
með að tveir aðstoðarbankastjór-
ar yrðu við bankann og varaði við
að peningastefnunefnd yrði stofn-
uð áður en sem víðtækastra gagna
um reynslu annarra þjóða af slíku
fyrirkomulagi yrði aflað. Til hvor-
ugs var tekið tillit við lagasetn-
inguna.
Margháttaðar breytingar urðu
á frumvarpinu þar til það varð að
lögum. Á þriðja tug gesta komu
fyrir viðskiptanefnd þingsins og
henni bárust um tuttugu umsagn-
ir.
Samtök atvinnulífsins voru
harðorð í sinni umsögn og sögðu
frumvarpið lagt fram án þess
vandaða undirbúnings og sam-
ráðs sem mælt væri fyrir um í
leiðbeiningum forsætisráðuneyt-
isins. Þá sagði: „Í ljósi þess að
peningamálastefna Seðlabank-
ans hefur beðið skipbrot og Seðla-
bankinn er rúinn trausti og varð
gjaldþrota er mikilvægt að allar
breytingar stuðli að endurvakn-
ingu trausts á Seðlabankanum og
efnahagsstefnu stjórnvalda.“ Því
lögðu samtökin til að fram færi
ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi
bankans. Þá vildu þau að banka-
ráð eða sérstök ráðninganefnd
réði í stöðu bankastjóra en ekki
forsætisráðherra.
Viðskipta- og raunvísindadeild
Háskólans á Akureyri lagði til að
staða seðlabankastjóra yrði aug-
lýst á alþjóðlegum vettvangi.
Starfsmenn Viðskiptadeildar
Háskólans í Reykjavík vildu að
í lögunum yrði tiltekið í bráða-
birgðaákvæði að peningastefn-
an yrði endurskoðuð. Þeir töldu
jafnframt óheppilegt – í ljósi
reynslunnar – að ekki væri upp-
sagnarákvæði um bankastjóra í
lögunum.
Þá gerðu margir umsegjendur
athugasemdir við hvernig standa
ætti að skipan í peningastefnu-
nefnd bankans og var í megin-
atriðum tekið undir sjónarmið
þeirra. bjorn@frettabladid.is
Nefndin hlustaði á
sumt en annað ekki
Frumvarpið um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans tók miklum breytingum
áður en það var samþykkt sem lög. Tekið var undir margháttaðar athugasemd-
ir. Ekki var tekið tillit til breytinga og vinnulags sem Jóhannes Nordal lagði til.
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
■ Skipa ber aðstoðarseðlabanka-
stjóra.
■ Bankastjórar skulu skipaðir til
fimm ára en ekki sjö.
■ Hæfniskröfur bankastjóra eru
rýmri en fyrst var gert ráð fyrir.
■ Sérstök nefnd á að meta hæfni
umsækjenda um bankastjóra-
stöðurnar.
■ Aðferðum við skipan í peninga-
stefnunefnd var breytt.
■ Peningastefnunefnd var falin
viðvörunarskylda.
HELSTU BREYTINGAR SEM ÞINGIÐ GERÐI
SEÐLABANKINN OG ALÞINGI Viðskiptanefnd fjallaði um seðlabankafrumvarpið á
níu fundum og fékk á þá hátt í 30 gesti auk fjölda skriflegra umsagna. Umræður í
þinginu stóðu í átján klukkustundir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍRLAND, AP Starfsmaður hjá Bank
of Ireland í Dublin stal milljón-
um evra úr bankanum til þess að
bjarga fjölskyldu sinni úr klóm
mannræningja.
Ræningjarnir höfðu hótað því
að drepa fjölskylduna ef mað-
urinn yrði ekki samvinnuþýður.
Fjölskyldan losnaði úr gísling-
unni á föstudag, eftir að maður-
inn hafði afhent ræningjunum
peningana, sem írskir fjölmiðlar
segja að nemi sjö milljónum evra.
Nokkuð algengt mun vera að
fjölskyldum bankastarfsmanna á
Írlandi sé rænt, en yfirleitt hefur
lausnargjaldið verið mun lægra
en nú. - gb
Bankarán á Írlandi:
Starfsmaður
stal milljónum
EFNAHAGSMÁL Leiðtogar ríkja Evr-
ópusambandsins vilja forðast að
gripið sé til verndarstefnu sem
úrræðis gegn efnahagskrepp-
unni. Þetta var ein af niðurstöð-
um neyðarfundar Evrópuleiðtog-
anna sem haldinn var í Brussel í
Belgíu í gær.
Boðað var til fundarins í kjölfar
þess að Nicolas Sarkozy Frakk-
landsforseti hét því að veita frönsk-
um bílaframleiðendum neyðarlán
ef þeir lofuðu að flytja störf ekki
úr landi. Heit Frakklandsforseta
vakti ugg í brjósti Evrópuleið-
toga sem óttuðust að með þessu
væri stigið fyrsta skrefið í átt að
verndarstefnu, sem gæti orðið til
að eyða von um almennan efna-
hagsbata á ESB-svæðinu.
Á fundinum var einnig rætt um
hvernig nota mætti sameiginlegt
markaðssvæði Evrópusambands-
ins til að styðja við hagvöxt hjá
ríkjum ESB og skapa störf til að
draga úr áhrifum kreppunnar.
Ekki var tilkynnt um sérstaka
aðgerðaáætlun vegna bágrar efna-
hagsstöðu þjóða Austur-Evrópu, en
sá vilji kom fram hjá ráðamönnum
þeirra þjóða að hafa hana í heild-
stæðri aðgerðaáætlun sambands-
ins í efnahagsmálum. Þá var til-
kynnt að Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, myndi funda með
leiðtogum Evrópusambandsríkja
hinn 5. apríl næstkomandi á ráð-
stefnu í Prag í Tékklandi. Á þeim
fundi verða efnahagsmál á döfinni.
- kg
Evrópuleiðtogar héldu neyðarfund um efnahagsmál í Brussel í gær:
Vilja forðast verndarstefnu
FRAKKLANDSFORSETI Hefur heitið því
að veita bílaframleiðendum neyðarlán
ef þeir fara ekki úr landi. NORDICPHOTOS/AP
Var rétt að fá Norðmann í
Seðlabankann?
Já 78,2%
Nei 21,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ferð þú á árshátíð?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN