Fréttablaðið - 02.03.2009, Side 8
8 2. mars 2009 MÁNUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Hægt hefur gríðar-
lega á uppbyggingu í Úlfarsárdal,
hverfi 1. Alls eru 120 íbúar fluttir
inn í hverfið, sumir þeirra í hálf-
kláruð hús. Snemmsumars árið
2007 voru 115 lóðir boðnar upp
fyrir 388 íbúðir. Í dag er aðeins
búið í 32 húsum. Gríðarlega mikl-
um fjármunum hefur verið varið í
framkvæmdir í hverfinu.
Reykjavíkurborg sér um gatna-
gerð, holræsi og götulýsingar í
hverfum borgarinnar. Áfallinn
kostnaður á borgina vegna Úlf-
ars árdals, hverfis 1, eru 548 millj-
ónir króna á árunum 2005 til
2008.
Fréttablaðið greindi frá því á
dögunum að Orkuveita Reykja-
víkur hefði tekið saman kostnað
sem lægi í ó- og vannýttum lögn-
um fyrirtækisins. Á öllu veitu-
svæðinu nemur þessi upphæð 2,6
milljörðum króna. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Orkuveitunni er um
hálfur milljarður af því í Úlfarsár-
dalnum.
Ómögulegt er að giska á þær
upphæðir sem verktakar hafa
sett í uppbygginguna, en óhætt
er að segja að þær hlaupi á millj-
örðum. Ekki er, eða var í góðær-
inu, óalgengt að menn byggðu sér
einbýlis-hús fyrir 50 til 150 millj-
ónir, til að mynda.
Menn innan Orkuveitunnar
hafa talað um að skipulagsleysi
hafi einkennt uppbyggingu á höf-
uðborgarsvæðinu. Gríðarleg upp-
bygging hafi átt sér stað sem fyr-
irtækið hafi þurft að bregðast við
og leggja allar lagnir. Tekjur skili
sér hins vegar seint.
Hjálmar Sveinsson útvarps-
maður hefur fjallað mikið um
skipulagsmál. Hann segir sam-
keppni hafa einkennt uppbygging-
una. „Það voru miklir peningar í
umferð og það skapaðist mikill
þrýstingur. Sveitarstjórnarmenn
voru ekki nógu tilbúnir til að stýra
uppbyggingunni og það fór af stað
samkeppni en ekki samráð eins
og þó var gert ráð fyrir í Svæðis-
skipulagi höfuðborgarsvæðisins.“
Hjálmar segir bæjarstjórnir,
sérstaklega í Reykjavík og Hafnar-
firði, strax hafa farið að sækja um
undanþágur. „Þannig að í raun
varð Svæðisskipulagið strax mark-
laust plagg, líkt og skipulagsstjóri
sagði við mig í viðtali eitt sinn.“
kolbeinn@frettabladid.is
Það voru miklir peningar
í umferð og það skapaðist
mikill þrýstingur.
HJÁLMAR SVEINSSON
ÚTVARPSMAÐUR
Basarinn
Nytjamarkaður Kristniboðssambandsins
Grensásvegi 7, 2. hæð
Tilboðsvika – 20 % afsláttur
Vikuna 2.-7. mars
Frábært tækifæri til að gera góð kaup á bæði nýjum og notuðum
hlutum. Mikið úrval af notuðum vörum s.s. fötum, málverkum,
húsbúnaði, skrautmunum, gardínum, dúkum, lömpum, töskum,
bókum, vídeóspólum, spilum, púslum, leikföngum og fl eiru. Einnig
nýjar vörur, kristilegar bækur, geisladiskar, silfurkrossar, handun-
nar hálsfestar og tækifæriskort frá Keníu, sjöl, diskamottur, englar,
ilmolíur og margt fl eira.
Sjón er sögu ríkari
Verið velkomin í heimsókn!
Opið virka daga frá kl. 12-17 og fyrsta laugardag í mánuði kl. 11-14.
Á sama tíma er tekið á móti vörum ef einhver vill gefa. Einnig eru
umslög, frímerki og gömul mynt vel þegin. Látum ekki verðmæti
fara til spillis!
Sími 533 4900
Munum eftir að hlúa
að hjónabandinu!
Frábær bók um sambúð og hjóna-
band. Bókin er skemmtileg afl estrar
og gefur einföld og auðveld ráð til að
viðhalda ástinni. Galdurinn er að kunna
ástartáknmál makans. Vill maki þinn að
þú gefi r honum tíma eða vill hann hel-
dur að þú eldir góðan mat? Ertu leið/ur
á nöldri yfi r því að þú gerir aldrei neitt
af því sem þarf að gera á heimilinu?
Lestu bókina og fáðu góð ráð. Bókin
er einnig góð til gjafa. Salt ehf. gefur
bókina út. Fæst í bókabúðum en er
með 20% afslætti vikuna 2.-7. mars á
Basarnum, Grensásvegi 7.
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir til 15.03. 2009
20% verðlækkun
OTRIVIN nefúði.
741 kr. 593 kr.
20% verðlækkun
VECTAVIR frunsuáburður.
1.387 kr. 1.110 kr.
20% verðlækkun
STREPSILS munnsogstöflur 24 stk.
890 kr. 712 kr.
Auglýsingasími
– Mest lesið
200m
Staða byggingamála í
Úlfarsárdal hverfi 1,
18. 02. 2009
Fullbyggð hús
Uppsteypt hús
Botnplata, grunnur
eða hola
Ekki byrjað
115 húsum var úthlutað í
maí og júní 2007.
32 hús hefur verið flutt inn í.
548 milljónir hafa farið í
lagnir, götur og lýsingar frá
Reykjavík.
500 milljónir hafa farið í
lagnir frá Orkuveitunni.
•
•
•
•
Milljarður frá því op-
inbera í Úlfarsárdal
Úlfarsárdalur er eitt hálfbyggðu hverfanna á höfuðborgarsvæðinu. Hægt hefur
á framkvæmdum og flutt hefur verið inn í 32 hús af 115. Ríflega milljarður ligg-
ur í hverfinu frá OR og Reykjavíkurborg og þá er kostnaður verktaka ótalinn.
MENNING Vefbókasafnið Snara býður
almenningi upp á ókeypis aðgang að
72 verkum í þessari viku, frá og með
deginum í dag.
Meðal uppflettirita eru tólf orða-
bækur, fjórtán verk Halldórs Lax-
ness og Íslendingasögurnar. Þá má
nálgast Nöfn Íslendinga, sem inni-
heldur öll nöfn skráð í manntal frá
1703 til 1990. Kortabók Íslands er
aðgengileg og Samtíðarmenn frá
2003, sem er uppflettirit um þekkta
Íslendinga. Síðast en ekki síst ber að
telja Matarást Nönnu Rögnvaldar-
dóttur.
Um 1.500 áskrifendur eru að
Snöru, en Marinó Njálsson vefstjóri
segir að á bak við þá séu oft stórar
stofnanir svo sem Háskóli Íslands.
Heimsóknir séu því um 10.000 á
viku.
Sögu vefbókanna má rekja til
2001, þegar hluti af Íslenskri orða-
bók var settur á vefinn. Síðan hefur
bæst við jafnt og þétt í safnið, sem
er tengt útgáfu Forlagsins. Markmið
Snöru mun þó vera að hafa vefinn
opinn sem flestum útgefendum.
Ekki er annað að heyra á Marinó
en að reksturinn gangi vel, en hann
segist binda vonir við lagafrum-
varp sem liggur fyrir Alþingi. Með
því yrði virðisaukaskattur rafbóka
færður í sama þrep og af öðrum
bókum, úr 24,5 prósentum í sjö.
- kóþ
Um tíu þúsund manns nýta sér nú vefbækurnar á Snara.is:
Ókeypis bækur í þessari viku
VEFSÍÐAN SNARA.IS Sé nafninu „Grettir“
flett upp í Nöfnum Íslendinga kemur í
ljós að það þýðir frekar „slanga“ eða „sá
sem hvæsir“, heldur en „hinn grettni“.
NOREGUR, AP Norsk yfirvöld
greindu frá því fyrir helgina að
eitt af nýjustu herskipum norska
flotans muni slást í lið með her-
skipum Evrópusambandslanda á
„sjóræningjavakt“ undan strönd-
um lögleysulandsins Sómalíu.
Freigátan mun að sögn varnar-
málaráðuneytis verða tilbúin í
ágúst til þátttöku í þessum ESB-
gæsluflota, sem verður samsett-
ur úr herskipum frá Hollandi,
Frakklandi, Grikklandi, Bret-
landi, Ítalíu og Þýskalandi.
Norðmenn eru ekki í ESB en
hafa, sem umsvifamikil siglinga-
þjóð, mikilla hagsmuna að gæta í
að tryggja öryggi siglinga. - aa
Sjóránavarnir við Sómalíu:
Norskir til liðs
við ESB-flota
1 Hvaða stjórnmálahreyfing
hefur samþykkt að óska eftir
því að gerast aðildarfélag að
Samfylkingunni?
2 Hvenær lauk bjórbanninu á
Íslandi?
3 Hver skrifar ævisögu Magn-
úsar Eiríkssonar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22
Hús sem búið er í
27. 01. 2009
VEISTU SVARIÐ?