Tíminn - 08.01.1993, Blaðsíða 12
AIIAI VCIMftACIMAD
Lb ■ wI iMI MAn
686300
Áskríftarsím
Tímans er
686300
NYTTOG
FERSKT
DAGLEGA
88
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
Bílasala Kópavogs
Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
642190
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Ií llli llll
FÖSTUDAGUR 8. JANUAR 1993
Grunnskólalog i fullu gildi
Snúið að
breyta
kerfinu
í vetur
Tvær greinar laga um grunnskóla,
sem frestað var á síðasta ári, tóku
að fullu gildi um áramót. Þær fjalla
um að nemendur skuli eiga kost á
skólamáltíðum, lengingu kennslu-
tíma og fækkun nemenda í bekkj-
um. „Eg hygg að það væri snúið að
breyta nokkuð kerfinu í vetur,“ seg-
ir Helgi Jónasson fræðslustjóri á
Reykjanesi.
„Það er aldrei brotin upp stunda-
skrá um áramót og ætli þetta breyti
nokkrum sköpuðum hlut. Við höf-
um ekki gert ráðstafanir til að gera
neinar breytingar og ég á ekki von á
því að þær verði gerðar," segir Helgi.
Á síðasta ári frestaði menntamála-
ráðherra, með sérstöku frumvarpi,
gildistöku tveggja greina grunn-
skólafrumvarpsins í eitt ár í sparnað-
arskyni. Ráðherra lagði þetta frum-
varp aftur fram fyrir jólaleyfi þingsins
en það náði ekki afgreiðslu og öðlast
því lagagreinamar gildi á ný.
í umsögn með frumvarpinu stendur
að með því að fresta gildistöku grein-
anna sé ætlunin að spara 100 milljón-
ir króna. Sagt er að ógerlegt sé að
segja til um hugsanlegan kostnað viö
málsverði í skólunum. Þá er gert ráð
fyrir að með því að fresta fjölgun á
vikustundum um fimm, sparist 45
milljónir króna á þessu ári. Með því að
fresta að fækka nemendum í 18 í 1.
bekk og 22 í 3. bekk á að spara 55
milljónir kr.
ASÍ, VSÍ og þjóðkirkjan undirbúa aðstoð við atvinnulausa:
Mun aðallega felast
í ýmiskonar ráðgiöf
Að fhimkvæði Þjóðkirkjunnar og í samvinnu við aðila vinnumark-
aðarins, er verið að undirbúa aðstoð við atvinnulausa á höfuðborg-
arsvæðinu. Stefnt er að, að undirbúningsvinnu verði að mestu lok-
ið um helgina en rætt hefur verið um að ráðgjöf atvinnulausra hafí
aðsetur í safnaðarheimili Dómkirkjunnar.
Undanfarnar sex vikur hefur
nefnd, skipuð fulltrúum ASÍ, VSÍ
og kirkjunnar, unnið að þessu
máli og hefur hún m.a. leitað lið-
sinnis sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu.
Þórunn Sveinbjömsdóttir, for-
maður Starfsmannafélagsins
Sóknar, segir að aðstoð við at-
vinnulausa verði aðallega í formi
ýmiskonar ráðgjafar, svo sem á
sviði sálarfræði, fjármála-, félags-
og fjölsky'duráðgjafar svo nokkuð
sé nefnt. Hún segir að atvinnu-
leysið sé orðið það umfangsmikið
að stéttarfélög almennt ráði ekki
við að sinna þeim ljölmörgu sem
leita þar aðstoðar og ráðgjafar til
lausnar á sínum vandamálum,
nema kannski stærstu félög launa-
fólks.
Formaður Sóknar segir að vanda-
mál heimila og einstaklinga vegna
atvinnuleysis, séu fjölmörg og
dæmi em um að fyrirvinnur
heimila séu samtíms án atvinnu.
Sýnu verst sé það þegar fólk dettur
út af atvinnuleysiskrá og er án
bóta í nokkrar vikur. Þá er í mörg-
um tilfellum ekki um annað að
ræða en að leita ásjár félagsmála-
stofnunar en þar getur biðtími eft-
ir viðtali orðið allt að þrjár vikur
auk þess sem margir eiga erfitt
með að sætta sig við það hlutskipti
að þurfa að leita opinberrar að-
stoðar.
Hugmyndin UM aðstoð við at-
vinnulausa með ýmiskonar ráð-
gjöf, kom fyrst fram meðal presta í
Reykjavíkurprófastdæmi í haust
og var fyrirmyndin sótt til Finn-
lands. Atvinnuleysið var síðan
rætt ítarlega á Kirkjuþingi í haust.
Þar var m.a. samþykkt tillaga þar
sem þingið hvetur presta og söfn-
uði þjóðkirkjunnar til að leita
leiða til að veita atvinnulausum
aukna sálgæslu og leiðsögn. Jafn-
framt hvatti þingið héraðsnefndir
og kirkjuyfirvöld til að hefja við-
ræður við samtök atvinnurek-
enda, launafólks og stjórnvalda
um leiðir til úrlausna, aðstoðar,
fræðslu og handleiðslu.
-grh
Samband-
ið seiur 3
deildir
Jötuns
Stjórn Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga hefur lýst sig fylgjandi
áformum stjórnar Jötuns hf. um
sölu á þremur deildum Jötuns.
Samningar eru að komast á loka-
stig um sölu á bíladeild og búvéla-
deild til Ingvars Helgasonar hf.
Einnig er gert ráð fyrir að fljótlega
verði gengið frá sölu raftækjadeild-
ar til Fálkans hf. Fyrirhugað er að
Úr sýningarsal bíladeildar Jötuns viö Höfðabakka. Timamynd Ami Bjama.
fóðurvörudeild verði starfrækt aðilar að rekstri hennar. Gert er ráð fyrir að meirihluti
áfram á vegum Jötuns, en til tals Starfsfólki Jötuns var sagt upp frá starfsmanna verði endurráðinn hjá
hefur komið að kaupfélög gerist og með 1. desember síðastliðnum. nýjum rekstraraðila. -EO
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BAGDAD
írak vísar úrslitakostum á
bug
Irakar vísuöu á bug I gær úrslitakost-
um vestrænna bandamanna um aö
fjarlægja eldflaugar frá flugbann-
svæöi I suöurhluta Iraks. Þeir sögð-
ust hafa rétt til aö setja niöur gagn-
flugvélaflugskeyti hvar sem er I land-
inu. I LONDON héldu bresk stjórn-
völd áfram aö beita Iraka þrýstingi og
kölluöu Iraskan stjórnarerindreka á
sinn fund til aö vara viö alvarlegum
afleiöingum þess aö úrslitakostirnir
vegna flugbannssvæöisins væru ekki
virtir.
MOGADISHU
Kanar tóku vopn í árás
Bandarískir landgönguliöar réöust á
tvennar búöir stríösherra I Mogadishu
I dagrenningu I gærmorgun meö eld-
sprengjum og náöu á sitt vald miklu
magni skriödreka, brynvaröra farar-
tækja og stórskotavopna.
ADDIS ABABA
II stríðsherrar vilja af-
vopnun
Ellefu strlöandi fylkingar I Sómaliu
fóru fram á aö hermenn undir forystu
Bandarikjamanna, afvopnuöu allar
vopnaöar sveitir I sveltandi landi
þeirra.
SUMBURGH, Skotlandi
12 mílna olíubrák færist
norðar
Háar öldur af völdum ofsaroks og úr-
hellisrigningar lömdust á flaki oliu-
skipsins Braer I gær, ráku 12 mílna
oliuflekk noröur eftir strönd Hjalt-
landseyja og geröu björgunaraögeröir
erfiöar. Ásakanir gengu á víxl um
hverjum væri um aö kenna ollumeng-
unin, þar sem bálreiöir Hjaltlandsey-
ingar sögöu aö afstýra heföi mátt
þessu stórslysi I náttúrunni.
SARAJEVO
Stórárás á Serba
Talsmenn serbnesks herliös umhverf-
is Sarajevo, sögöu í gær aö menn
þess heföu legiö undir stööugum
árásum I fymnótt og snemma aö
morgni gærdagsins — jóladags rétt-
trúaöra Serba.
GENF
Sáttasemjarar vilja Mi-
losevic á fund
Alþjóölegir sáttasemjarar hófu I gær
tilraun til aö fá Slobodan Milosevic
Serbíuforseta, sem leikur eitt aöal-
hlutverkiö I júgóslavneska harmleikn-
um, til aö koma til úrslitaviðræöna um
helgina um frið I striöshrjáöri Bosníu.
LÚANDA
Yfir 1000 fallnir
Meira en 1.000 manns hafa veriö drepn-
ir I orrustum um borgina Benguela I An-
góla. Stjómarliöar viröast hafa náö vigi
UNITA uppreisnarmanna i Lobito á sitt
vald, aö sögn stjómarerindreka í gær.
SOPORE, Indlandi
Hefndaraðgerðir indverskra
Indversk lögregluyfirvöld viöurkenndu
I gær aö vopnaöar öryggissveitir
heföu drepiö 53 og kveikt I fjölmörg-
um byggingum I bænum Sopore I
Kashmír I hefndarskyni fyrir árás her-
skárra aöskilnaöarsinna.
JERÚSALEM
ísraelar leyfa heimsókn R.k.
Israelar, sem eru undir þrýstingi Sam-
einuöu þjóöanna um aö flytja aftur
heim 415 Palestinumenn sem þeir
ráku til Líbanon, sögöust I gær ætla
aö leyfa tveim starfsmönnum Rauöa
krossins aö heimsækja þá I vosbúö-
inni á einskismannslandi.
MARJ AZ-ZOHOUR, Líbanon
Palestínumennirnir vilja heim
Palestinumennirnir sem Israelar ráku
úr landi gera lítiö úr ákvöröun Israela
um aö leyfa tveim Rauða kross
starfsmönnum aö heimsækja þá, og
sögöu aö þaö gæti dregiö athyglina
frá kröfu þeirra um aö komast heim.
D E N N I D Æ M ALAUSl
„Skrýtið að fólk skuli hafa áhyggjur af hvar maður ætlar
að grafa næstu holu. “