Tíminn - 11.02.1993, Side 9
Fimmtudagur 11. febrúar 1993
Tíminn 9
: :DAGBÓK
Stefán Höröur Grímsson.
Ljóöasýning á Kjarvalsstöðum:
Stefán Höröur Grímsson
Laugardaginn 13. janúar n.k. opnar í
miörými Kjarvalsstaöa sýning á ljóðum
eftir Stefán Hörð Grímsson.
Stefán Hörður Grímsson er fæddur
1919, en í ár eru 50 ár síðan fyrsta ljóð
hans, „Gamall fiskimaður", birtist á
prenti f tímaritinu Helgafelli. Sjálfur var
Stefán sjómaður framan af ævi og má sjá
þess glögg merki í fyrstu ljóðabók hans,
„Glugginn snýr í norður", sem út kom
1946.
Með ljóðabókinni „Svartálfadans"
(1951) varð Stefán eitt af mikilhæfustu
skáldum eftirstríðsáranna; hann var í
hópi atómskáldanna ungu sem inn-
leiddu nýjan stfl í íslenska ljóðagerð um
miðja öldina og mikill styrr stóð um á
sínum tíma.
Stefán Hörður hefur sent frá sér sex
ljóðabækur, nú síðast „Yfir heiðan morg-
un“, en fyrir hana hlaut hann íslensku
bókmenntaverðlaunin í fyrsta sinn sem
þau voru veitt Á ferli sínum hefúr Stefán
Hörður gjaman ort með ádeilubrag um
rangindi og rányrkju mannsins á jörð-
inni, en þó hefur hann fyrst og fremst ort
um dýrmæti lífsins og mannlegra sam-
skipta, varðveislu náttúruverðmæta og
um ástina.
Ljóðstfll hans einkennist af knöppu
formi, hnitmiðuðu orðfæri og mikilli
myndvísi, einkum sérkennilegum mynd-
hverfmgum.
Ljóðasýningar Kjarvalsstaða, sem unn-
ar eru í samvinnu við Ríkisútvarpið —
Rás 1, hafa verið fastir liðir á dagskrá
safnsins og vakið mikla athygli. Með
þeim hafa opnast nýir möguleikar fyrir
íslensk skáld í rými sem áður var helgað
myndlistinni, en jafnframt vekja sýning-
amar spumingar um stöðu ljóðlistar-
innarídag.
Félag eldri borgara
í Reykja vík
Bridgekeppni kl. 1230. Opið hús í Ris-
inu kl. 13-17.
Skaítfellingafélagið í Reykjavík
er með árshátíð sína í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178, laugardaginn 13. febrúar
kl. 19.30. Upplýsingar gefur Jóm'na, sími
641771.
Skráning í Freestylekeppni
unglinga
Nú stendur yfir skráning í „íslands-
meistarakeppni unglinga í frjálsum
dönsum" (Freestyie). Þetta er f 12. sinn
sem keppnin er haldin og er það Félags-
miðstöðin Tónabær og f.T.R. sem standa
fyrir keppninni. Allir krakkar á landinu
fædd ‘76- ‘79 mega taka þátL Keppnin er
kjördæmaskipt og em undankeppnir
haldnar á 7 stöðum á Iandinu. Undan-
keppni fyrir Reykjavík og Reykjanes
verður haldin 26. febrúar. Úrslitakeppnin
fyrir allt landið verður 5. mars. Dans-
keppnin fyrir 10-12 áraverður 13. mars.
Skráning stendur yfir í Tónabæ alla
daga í s. 35935.
Stöður fangavarða
við fangelsin á höfuðborgarsvæðinu og við
fangelsið á Litla-Hrauni.
Fjórar stöður fangavarða eru lausar til umsóknar.
Aðallega er um að ræða starf við fangaflutninga en jafn-
framt við fangavörslu.
Tvær stöður verða við fangelsin á höfuðborgarsvæðinu
og tvær við fangelsið á Litla-Hrauni. Umsækjendur þurfa
að vera á aldrinum 20-40 ára.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fýrri störf,
sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borgartúni 7,150
Reykjavík, fýrir 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins
4. febrúar 1993.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVlKUR
STJÓRNUNARSVIÐ
Lausar eru stöður
aðstoðaryfirlæknis og hjúkrunardeildarstjóra
við lungna- og berklavarnadeild og aðstoðar-
deildarstjóra við mæðradeild Heiisuverndar-
stöðvar Reykjavíkur
Staða aðstoðaryfiriæknis við lungna- og berklavamadeild
veitist frá 1. mars nk. Til greina kemur tímabundin ráðning.
Nánari upplýsingar gefur yfiriæknir í síma 22400.
Staða hjúkrunardeildarstjóra við lungna- og berklavama-
deild veitist frá 1. júlí nk. Umsóknarfrestur er til 7. mars nk.
Staða aðstoðardeiidarstjóra við mæðradeild er laus nú
þegar.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
Umsóknir, ásamt ítariegum upplýsingum um menntun og
störf, sendist starfsmannastjóra á þar til gerðum eyðublöð-
um, sem fást hjá starfsmannahaldi á Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur, Barónsstíg 47.
Heilsugæslan í Reykjavík,
stjórnsýsla.
Kraftatröll
á Bora
Bora
Sú var tíðin að varla var opnað
svo blað að ekki bæri fyrir augu
sænska kraftajötuninn Dolph
Lundgren, sem vann sér það til
frægðar að leika erkióvin Rockys í
Rocky IV. Reyndar gerði það
frægð Dolphs ekki minni að um
tíma var hann sterklega bendlað-
ur við þá skrautlegu Grace Jones.
Dolph Lundgren fæst enn við
Kókosmjólkin er góö eins og
hún kemur fyrir, beint úr hnot-
inni. Þaö þykir a.m.k. Dolph
Lundgren og kærustunni hans.
kvikmyndaleik og er þar í félagi
við margar aðrar velþekktar
stjömur. Það er þess vegna fylgst
með ferðum hans og kæmstunn-
ar, Annette Quiberg. Ekki alls fyr-
ir löngu fóm þau í frí til Tríhiti og
þótti ljósmyndara ástæða til að
gera eilíft augnablikið þegar þau
drukku kókosmjólk beint úr
hnotinni á rómantísku eyjunni
Bora Bora.
Fædd enn
ein stjarnan
í Redgrave-
ættinni
Natasha Richardson er 28 ára gömul dóttir bresku
leikkonunnar Vanessu Redgrave. í Redgrave-ættinni
er slíkur aragrúi af leikstjömum að það er næstum
óhjákvæmilegt til að falla inn í hópinn að gera leik-
sviðið að starfsvettvangi. Og nú er það sem sagt Nat-
asha, sem er komin á góðan skrið með að halda ætt-
arhefðinni á loft.
Um þessar mundir leikur Natasha í leikriti Eugenes
O’Neill, Anna Christie, á Broadway og tekst svo vel að
iafnvel nöldursamasti gagnrýnandinn þar á bæ,
Frank Rich, sem er ekki þekktur að því að grípa til
hrósyrða, talar um hana sem „þá undraverðu Natas-
ha Richardson". Aðrir gagnrýnendur geta varla vatni
haldið af hrifningu.
Mótleikari Natöshu í þessari vel heppnuðu sýningu
er írinn Liam Neeson, sem þykir ekkert blávatn held-
ur.
Natasha Richardson á ekki langt aö sækja leik-
hæfileikana. Hún leikur nú á móti Liam Neeson í
leikriti Eugenes O’Neill, Anna Christie, á Broad-
way og fær frábæra dóma.