Tíminn - 18.03.1993, Síða 1
Fimmtudagur
18. mars 1993
53. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir að engir peningar séu til í ríkis-
sjóði til að greiða fyrir kjarasamningum:
Landsbankinn notaður
til að slá á kiarakröfur
„Þetta þýöir þegar lauslega er litið
tíl ríkissjóðs að gera má ráð fyrir
því að reikningslegur halli á ríkis-
sjóði verði talsverður á þessu ári
og talsvert meiri en á síðasta ári,
a.m.k. tíu milljarðar og hugsan-
lega hærri. Þetta sýnir að ríkis-
sjóður hefur minna svigrúm en
áður til að auka útgjöld, til að
mynda að fara af stað með fram-
kvæmdir eða í öðru skyni.
Á þetta vil ég leggja áherslu vegna
þess að nú er eins og menn vita
nokkuð lagt að ríkissjóði að auka
framkvæmdir, draga úr tekjum
hans eða auka útgjöld á öðrum
sviðum,“ sagði Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra í umræðum á Al-
þingi um frumvarp um styrkingu
eiginíjárstöðu Landsbanka.
Harðar umræður urðu um málið
á Alþingi í gær. Þar kom fram að
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
sagði bankastjórum Landsbankans
fyrir hádegi á þriðjudag að engin
ákvörðun yrði tekin um bætta eig-
infjárstöðu bankans á næstu dög-
um. í hádeginu ákvað forsætisráð-
herra hins vegar að boða til
skyndifundar í ríkisstjórninni og
óska eftir þvf að hlé yrði gert á
þingfundum Alþingis. -EÓ
Sjá nánar ítarlega umfjöliun
á blaðsíðu 2.
Sjóslys við Akranes í gær. Tveir smá-
bátar farast:
Tveir fórust og
eins er saknað
Tveir menn fórust og eins er sakn-
að eftír að tvær trillur fórust í
vonskuveðri í innsiglingunni við
Akranes í hádeginu í gær. Björg-
unarþyrla Varnarliðsins tók þátt í
leitinni í gær og gengnar voru fjör-
ur. Er síðast fréttíst hafði leitín
engan árangur borið.
Tálið er að brot hafi riðið yfir bát-
Lands-
banka-
skark-
a|inn
Þórður Ólafsson, forstöðumað-
ur bankaeftírlits Seðlabankans,
ana og þeim hafi hvolft eins og
hendi væri veifað skammt frá inn-
siglingunni í höfnina á Akranesi.
Tveir menn voru á öðrum bátnum,
Markúsi, 6 tonna trillu, og lentu
báðir í sjónum. Trillan Ásrún kom í
humátt á eftir Markúsi í innsigling-
una og tókst að ná bátsverjum
hennar um borð skömmu síðar en
þeir voru látnir er komið var með
þá í land.
Einn maður var á trillunni Akurey
sem er 5 tonn að stærð. Gúmmíbát-
ur var fastur við bátinn er að var
komið en maðurinn var ekki í hon-
um. Hann mun ekki hafa verið í
flotbúningi. Fjörur voru gengnar í
gær og hafði hindist hluti af stýris-
húsi bátsins er síðast fréttist.
Mjög kröpp og óvænt lægð með
hríðarveðri gekk yfir Suðvestur-
land í gær og til marks um það
mældust níu vindstig í Reykjavík.
Mun veðrið hafa verið jafnvel enn
verra á grunnmiðum og á Faxaflóa.
Forseti Litháens, Algirdas Mykolas Brazauskas, kom í opinbera heimsókn til íslands í
gær. Hann kom hingað til lands með flugvél Flugleiða frá Kaupmannahöfn sem einnig flutti for-
seta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Forseti Litháens mun í dag eiga viðræður við ýmsa
áhugamenn um viðskipti við Litháen, kynna sér íslenskt heilbrigðiskerfi og nýtingu jarðvarma
og eiga viðræður við embættis- og stjórnmálamenn. Á myndinni er forsetinn ásamt Davíð
Oddssyni forsætisráðherra. Á milli þeirra er túlkur forsetans. Tfmamynd gtk.
Aðgerð stjórnvalda til að tryggja eiginljárstöðu Landsbankans og umgjörð verknaðarins af
hálfu ríkisstjórnarinnar. Formaður VMSI:
Pappírstígrisdýrið hefur öskrað
„Ég tel nú að í þessu máli hafi pappírstígrisdýrið öskrað vegna þess
að þessi aðgerð ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsbankans er
fyrst og fremst vegna breytinga á reglum um eiginfjárstöðu.
baðst í gær afsökunar gagnvart
forsætís- og viðskiptaráðherra á
ummælum sem eftir honum
voru höfð I frétt í forsíðu Tím-
ans í gær og í DV, ummælum
sem hugsanlega gætu talist
ógætileg og ekki nægjanlega
skýr.
ffirétt Tímans gagnrýndi Þórð-
ur þá aðferð sem ritósstjómin
beíttí við meðferð málefna
Landsbankans og þann fjöl-
miðlahávaða sem afþeirri aðferð
hlaust og alkunna er. Þingmenn
sfjómarandstööunnar gagn-
rýndu harkalega t gær málsmeð-
ferð ríkissljómarinnar f Lands-
bankamálinu á Alþingi og töldu
að aðgerðiraar í gær befðu stór-
skaðað orðspor bankans bæð)
helma og erlendis. —sá
Blaftsíða 2
-HÞ
Að sjálfsögðu mun þetta hafa ein-
hver áhrif og m.a. styrkja stöðu
bankans varðandi atvinnumálin og
þá vonandi til sóknar í þeim efn-
um. En ég vona þó að þetta sé ekki
eina framlag ríkisstjórnarinnar til
atvinnumála," segir Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambands íslands.
Nokkuð er um liðið síðan aðilar
vinnumarkaðarins gengu á fund
ríkisstjórnarinnar með tillögur
sfnar til aðgerða í atvinnumálum.
Enn sem komið er hefur hvorki
stuna né hósti heyrst frá stjórn-
völdum sem sögðust þurfa nokkra
daga til að líta yfir tillögurnar áður
en þeim yrði formlega svarað.
Kunn er sú umgjörð sem ríkis-
stjórnin valdi sér til að kynna
áform sín um að tryggja eiginfjár-
stöðu Landsbankans. Hún boðaði
til sérstaks aukafundar í ríkis-
stjórn, stuttu eftir reglulegan rík-
isstjórnarfund þar sem málefni
bankans voru ekki einu sinni
rædd. Menn hafa leitt að því getum
að þetta hafi m.a. verið gert til þess
að stuða og hræða aðila vinnu-
markaðarins í yfirstandandi samn-
ingaviðræðum með þeim skilaboð-
um að það væri nánast allt að fara
til fjandans.
„Þetta hefur verið kennt við
ákveðna óperu, Finnlandíu, og
þarna hafi verið skrifað sérstakt
handrit.. En ég trúi ekki öðru en að
stjórnmálamennirnir sýni þá
ábyrgð að vera ekki með svoleiðis
blekkingaleiki. En ef svo er þá sést
svo sannarlega í gegnum þá og það
hræðir okkur ekkert frá því sem
við erum að vinna að til tekjujöfn-
unar og sóknar í atvinnumálun-
um,“ segir Björn Grétar Sveins-
son, formaður Verkamannasam-
bands íslands. -grh