Tíminn - 18.03.1993, Síða 3
Fimmtudagur 18. mars 1993
Tíminn 3
Atvinnuleysistryggingasjóður lækkar umsýsluþóknun til stéttarfélaga vegna greiðslu atvinnuleysisbóta úr 5% í 3-4,5%
Megn óánægja innan verkalýðshreyfingarinnar. Formaður VMSÍ:
Gæti leitt til þess að félögin
hættu að sinna þessari þjónustu
Stjóm Atvinnuleysistryggingasjóös hefur ákveðiö að lækka umsýsluþókn-
un til stéttarfélaga sem þau hafa fengið vegna vinnu við greiðslu atvinnu-
Ieysisbóta til sinna félagsmanna, eöa úr því vera 5% í 3- 4,5%.
Grétar Sveinsson formaður VMSÍ
segir þessa breytingu vera útí hött
og hún gæti leitt til þess að viðkom-
andi stéttarfélög hreinlega hættu að
sinna þessari þjónustu. Pétur Sig-
urðsson, formaður Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, lætur að því liggja
að ef stjómin hefði ekki haft frum-
kvæði að þessari breytingu hefði
tryggingaráðuneytið haft það í stað-
inn.
Þessi umsýsluþóknun var föst
stærð, fimm af hundraði en hefur
verið breytt þannig að þau félög sem
greiða fimm milljónir eða minna í
atvinnuleysisbætur fá 4,5% um-
sýsluþóknun, 4% fyrir 5-10 milljón-
ir og 3,5% fýrir 10-20 milljónir. Þau
sem greiða 20 milljónir í bætur eða
meira fa aðeins 3% fyrir sinn snúð
eða um 600 þúsund krónur.
Pétur Sigurðsson, formaður
stjómar Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs, varaþingmaður heilbrigðis-
og tryggingaráðherra og formaður
Alþýðusambands Vestfjarða segir
það vera mat stjómarinnar að mesta
vinna stéttarfélaganna vegna at-
vinnuleysis sé sú gmnnvinna sem
unnin er í upphafi, öll gagnavinna
og úrskurðir um bætur.
„Síðan þarf ekki að ýta nema á einn
takka í tölvu til að fá út útreikning-
inn hjá viðkomandi. 5% umsýslu-
þóknun var hámark en það var til-
hneiging til þess að allir sendu
reikning fyrir þessum 5% og það
segir ákveðna sögu. Það getur ekki
verið sama vinnan hjá öllum."
Hinsvegar telur hann hvorki sig né
stjóm Atvinnuleysistryggingasjóðs
þess umkomin að meta til fjár eftir-
litshlutverk úthlutunamefndanna
og þá staðar- og félagslegu þekkingu
sem sé til staðar á skrifstofum stétt-
arfélaganna.
„Þannig að það getur vel verið að
þessi ákvörðun gangi á hagsmuni
þeirra sem hafa tekið þetta að sér.
En þá verða menn að gera það upp-
við sig hvort þeir vilja halda þessu
starfi áfram innan félaganna og því
sambandi sem myndast við þá sem
leita til skrifstofu viðkomandi stétt-
arfélags vegna atvinnuleysis."
Á síðasta ári námu þessar greiðslur
til stéttarfélaganna vegna vinnu við
greiðslu atvinnuleysisbóta, eftirlit
o.fl. alls 80-90 milljónum króna.
Þessar greiðslur hafa verið gagn-
rýndar af hálfu atvinnurekenda og
m.a. hafa þeir haldið því fram að
þessar greiðslur séu orðnar að föst-
um tekjustofni hjá þeim stéttarfé-
lögum sem hafa marga á atvinnu-
leysiskrá. Á móti hafa viðkomandi
stéttarfélög eins og VR sýnt fram á
að það hefur þurft að greiða tvær
milljónir úr eigin vasa þrátt fyrir að
hafa fengið rúmar níu miljónir úr
Atvinnuleysistryggingasjóði á síð-
asta ári
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands, segir
að þessi breyting sé útí hött og gæti
orðið til þess að stéttarfélögin hrein-
lega hættu greiðslu atvinnuleysis-
bóta og þeirri vinnu sem fylgir.
Hann segir jafnframt að lækkun á
umsýsluþóknunni geti einnig haft
áhrif á fjárhagsstöðu félaganna og
um leið á þá almennu þjónustu sem
þau veiti sínu félagsfólki.
Hann segir að mikil óánægja sé
með þessa breytingu stjórnar At-
vinnuleysistryggingasjóðs og mikið
hafi verið hringt og spurt um þessa
ákvörðun á skrifstofú VMSÍ. -grh
Hvar á verkakonan að finna hagnaðinn af hinni frjálsu samkeppni og
frjálsa verði?:
VERKAKONAN NÚ KLUKKU-
STUND LENGUR AÐ VINNA
FYRIR KLIPPINGU EN1989
Reykvísk verkakona þarf nú að
vinna heilum klukkutíma lengur
til að eiga fyrir klippingu en hún
þurfti fyrir fjórum árum. Upp-
lýsingar sem Hagstofan birtir
árlega um verð á ýmsum vörum
og þjónustu á höfuðborgarsvæð-
inu benda til þess að lækkun
verðbólgu og stöðugt verðlag
hafi farið framhjá sumum selj-
endum vöru og þjónustu, meðal
annars hárgreiðslustofum. Eða
hvernig má það annars vera að í
nóvember sl. hafði gjald fyrir
klippingu kvenna hækkað um
ellefu af hundraði á einu ári — á
því sama ári og minna en 1%
hækkun varð á bæði launa- og
framfærsluvísitölu? Árið þar áð-
ur hækkaði klippingin nærri
tvöfalt meira en framfærsluvísi-
talan.
Til að athuga þetta nánar var litið á
gjald fyrir „klippingu kvenna (efni
innifalið)" eins og það hefur verið í
nóvembermánuði síðustu fimm árin
samkvæmt Hagtíðindum. Gjaldið
var síðan borið saman við meðaltal
greidds tímakaups verkakvenna á
hverjum tíma samkvæmt tölum
kjararannsóknamefndar. í Ijós kem-
ur að verkakonunni dugðu rúmlega
þriggja klukkustunda laun til að
borga fyrir klippinguna árin 1988 og
1989. í nóvember sl. þurfti hún orð-
ið meira en fjögurra klukkustunda
vinnu (rúmlega hálfan vinnudag) til
að eiga fyrir klippingu.
Klipping og tímakaup verkakvenna
Nóv. Klipping Tímak. =KlsLmm.
1989 1.032 kr. 330 kr. 3,08 st.
1990 1.294 kr. 350 kr. 3,42 st.
1991 1.483 kr. 393 kr. 3,46 st.
1992 1.644 kr. 400 kr. 4,07 st.
Hækkun 59% 21% 32%
Greiðsla fyrir klippingu kvenna
hefur þannig hækkað um nærri
60% á sama tíma og tímakaup
verkakvenna hefur bara hækkað um
rúmlega 20%. Verkakonan þurfti því
að vinna þriðjungi lengri tíma til að
eiga fyrir klippingu sl. haust en hún
þurfti þrem til fjórum árum áður.
Hækka ekki allir hlutir alltaf langt-
um meira en kaupið? Þannig spyrja
kannski ýmsir. En þannig er því
samt ekki varið sem betur fer. Fram-
færsluvísitalan í heild hækkaði t.d.
heldur minna en tímakaup verka-
konunnar, eða um tæplega 19% frá
nóvember 1989 til sama mánaðar
1992.
Það er líka fróðlegt að bera aðrar
verðhækkanir saman við hækkun á
klippingu þessi sömu ár. Þegar leit-
að var að einhverju sem kostaði því
sem næst það sama og klippingin
haustið 1989 kom í ljós að það var
kíló af lærissneiðum og mánaðar-
áskrift að dagblaði (Tímanum og
Mogganum) sem næst komust í
verði.
Klipping, lambalæri og Tíminn
Nóv. KlioDÍng Læri Tíminn
Ar. kr. kr.
1989 1.032 1.043 1.000
1990 1.294 1.034 1.100
1991 1.483 1.028 1.200
1992 1.644 1.148 1.200
Hækkun: 59% 10% 20%
Hófleg hækkun á lærissneiðunum er
langt ffá að vera einsdæmi því mat-
vöruliður framfærsluvísitölunnar
hækkaði raunar ekki nema um tæp-
lega 9% á runum 1989-92. Verðhækk-
un dagblaðanna er hins vegar nokkuð
svipuð og hækkun greidds tímakaups
verkakvenna.
Rétt er að geta þess að af einhverjum
óskýrðum ástæðum hafa rakarar und-
anfarin ár verið miklum mun hófsam-
ari í hækkun á gjaldi fyrir herraklipp-
ingu. T.d. hækkaði meðalverð fyrir
herraklippingu aðeins um 50 krónur á
síðasta ári þótt dömuklipping hækk-
aði um 161 krónu.
Þeir voru hins vegar ekki eins heppn-
ir karlamir sem þurftu að kaupa sér
algengustu klæðisplögg. Sokkar (úr
ullarblöndu) hækkuðu Ld. úr 442 kr. í
642 eða um 45% á árinu. Herraskyrta
hækkaði úr 3.331 kr. í 3.990 eða um
20% og nærföt úr 1.708 kr. í 1.886 kr.
sem er 10% hækkun.
Virðast þetta ekki ríflegar verðhækk-
anir á einu ári, sama ári og verð er-
lends gjaldeyris stendur í stað og verð-
bólga er minna en 1% á ári?
-HEl
Greiðsluáskorun
Bæjarsjóður Húsavíkur skorar hér með á þá sem ekki hafa
staðið skil á aðstöðugjaldi og kirkjugarðsgjaldi, sem voru álögð
1992 og féllu I gjalddaga 1. desember 1992, einnig þá sem eiga
ógreidd leikskólagjöld til fallin 1990, 1991 og 1992 og sem féllu í
gjalddaga fyrir 1. janúar 1993, að greiða skuldir þessar nú þeg-
ar og eigi síðar en 15 dögum eftir birtingu þessarar áskorunar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara til tryggingar van-
goldnum eftirstöðvum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostn-
aði sem af gerðinni leiðir.
Bæjarsjóður Húsavíkur.
^2222^ Heilsugæslusamlag
Hvammstangaumdæmis
Útboð 2
Endurinnrétting
Sjúkrahúss Hvammstanga
Forval verktaka.
Heilsugæslusamlag Hvammstangaumdæmis auglýsir hér
með forval verktaka til að bjóða í endurinnréttingu Sjúkra-
húss Hvammstanga, sem er tveggja hæða hús, samtals
709 m2.
Lýsing:
Vegna skipulagsbreytinga er nánast allt tréverk fjarlægt
úr byggingunni, söguð ný göt í steypta eða hlaðna veggi,
þar sem þess þarf með, en hlaðið upp í óþörf eldri göt og
síðan innréttað upp á nýtt. Raflögn og lágspennulagnir
eru mikið til endurnýjaðar, svo og frárennslislagnir, hita-
kerfi er lagfært og nýtt loftræstikerfi er sett í húsið. Húsið
er allt málað upp á nýtt, öll gólfefni endurnýjuð svo og
innréttingar og innihurðir.
Tillit skal tekiö til þess við framkvæmd verksins að húsið
verður í fullum rekstri og skal verkið unnið á virkum dög-
um á tímabilinu frá kl. 8.00 til 19.00.
Fjöldi bjóðenda.
Fjöldi bjóðenda verður takmarkaður við fjóra.
Greiðslur.
Þeir verktakar sem valdir verða til að taka þátt í útboðinu
eftir forval, en hljóta ekki verkið, fá greitt fyrir tilboðsgerð
sína kr. 50.000,-.
Eftirfarandi uppiýsinga er óskað um væntaniega
bjóðendur.
1. Nafn, heimilisfang og kennitala verktaka.
2. Nafn, heimilisfang og kennitala undirverktaka.
3. Lýsing starfsferils verktaka og undirverktaka.
4. Ársuppgjör fyrir starfsemi verktaka og undirverktaka sl.
þrjú ár.
5. Aðrar upplýsingar sem verktaki telur að gagni koma við
val á verktaka.
Frestur til að skila forvalsgögnum.
Forvalsgögnum skal skila á skrifstofu framkvæmdastjóra
Sjúkrahúss Hvammstanga, Spitalastíg 2, 530 Hvamms-
tanga, fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 24. mars
1993.
Á sama stað eru allar nánari upplýsingar veittar í síma
(95) 12348, en á kvöldin hjá Guðmundi H. Sigurðssyni í
síma (95) 12393.
Hvammstanga 15. mars 1993.
F.h. framkvæmdanefndar,
Guðmundur H. Sigurðsson.