Tíminn - 18.03.1993, Qupperneq 5
Fimmtudagur 18. mars 1993
Tíminn 5
r
Oskar Bergsson:
Pressan: Vakandi fj öl-
miðill eða ódýr mella?
Það er viss hátíðleiki hjá mér á fimmtudögum þegar ég opna póstkassann.
Síðastliðinn fimmtudagur var engin undantekning. Ég kom heim í hádeg-
inu, fór beint í póstkassann og hrifsaði blöðin út með græðgi.
Svört forsíða Pressunnar með and-
liti forstjóra Eimskipafélagsins
ásamt magnþrungnum texta vakti
strax athygli mína. Ég stóð stjarfur
af spenningi, með Pressuna í ann-
arri hendi og Tímann í hinni. Af
meðfæddri tryggð við Tímann les ég
hann fyrstan blaða, en nú stóðst ég
ekki mátið.
Ég henti úlpunni á stól, byrjaði að
hella uppá könnuna meðan ég
drakk í mig fróðleikinn um forstjóra
Eimskipafélagsins.
Kaffið var tilbúið um það leyti sem
ég var búinn að lesa greinina.
Mér leið eins og ég væri lasinn. Því-
lík slepja. Önnur eins lofræða og
þessi sést nú ekki nema í Moggan-
um daginn fyrir kosningar, um for-
mann Sjálfstæðisflokksins.
Með þessu er ég samt ekki að gefa í
skyn að Hörður sé ekki þess verður,
að vel um hann sé skrifað. Heldur
hitt, hvemig málið er sett upp. Og
líka þá skemmtilegu eða óskemmti-
legu tilviljun að greinin skuli birtast
á sömu stundu og aðalfundur Eim-
skipafélagsins stendur yfir. Og líka
þá skemmtilegu eða óskemmtilegu
tilviljun að greinin skuli birtast í því
sama blaði og Eimskip auglýsir
heilsfðuauglýsingu á einum dýrasta
stað í blaðinu.
Um Pressuna
Vikublaðið Pressan hefúr markaðs-
sett sig sem vakandi fjölmiðil, sem
tekur á málum sem aðrir fjölmiðlar
þora eða vilja ekki. Blaðið er uppsett
með stórum, umbúðalausum yfir-
skriftum, sem ráðast að meginmál-
inu og láta sig hefðir litlu varða.
Ekki vantaði heldur gffúryrðin í for-
síðufréttinni um forstjóra Eim-
skipafélagsins. En í greininni sjálfri
var það svo vandlega leiðrétt án þess
þó að farið væri nokkum tíma eftiis-
lega í málið, sem samt var gert að
forsíðugrein. Greinin var sett þann-
ig upp, að nú áttu Iesendur Press-
unnar að fé það beint í æð hvaða
mann forstjóri Eimskipafélagsins
hafði að geyma.
Tilvitnanir
Hér fara á eftir tilvitnanir úr grein-
inni. Tilvitnanir em skáletraðar.
Innskot ÓB em með hefðbundnu
letri.
FVrirsögn: Hörður Sigurgestsson
forstjóri Eimskipafélagsins GUÐ-
FAÐIR KOLKRABBANS EÐA ELD-
KLÁR BISNESSMAÐUR?
Undirfyrirsögn: Hörður Sigurgests-
sorv Einokunarumræðan ómerki-
leg og illa ígrunduð
Hér á eftir koma fyrstu setningar í
einstaka undirgreinum:
Það er sagt um Hörð Sigurgests-
son, forstjóra Eimskipafélagsins, að
þar fari eldklár náungi, sem á auð-
velt með að gera flókna hluti ein-
falda og setja mál sitt skýrt fram.
Þegar litið er til fortíðar Harðar og
upplags gegnirþað í raun furðu að
hann skuli vera þarsem hann er.
Á háskólaárum sínum fékk Hörð-
ur fyrstu reynsluna af fyrirtækja-
rekstri.
Hinn fullmermtaði rekstrarhag-
frœðingur og samgöngusérfrœð-
ingur hóf raunverulegan virmuferil
sinn sem opinber starfsmaður í
Fjárlaga- og hagsýslustofhun, sér-
stakri undirdeild fjármálaráðu-
neytis Magnúsar Jónssonar frá Mel.
Hörður yfirgaf hið opinbera hálf-
fertugur, þegar harm þáði starf
framkvæmdastjóra fjármálasviðs
Flugleiða vorið 1974.
Hörður tók við félaginu 1979 í
bullandi taprekstri, sem hélst 1980
og 1981.
Á því er ekki nokkur vafí að um-
fang Eimskipafélagsins og áhrif
þess hafa vaxið mjög síðustu árin.
En hvaða persónu hefur Hörður
Sigurgestsson að geyma? ,£g hef
mikirm áhuga á mínu félagslega
umhverfí, hvað gerist í þróun þessa
þjóðfélags, hv.að_.gerist_ Lsfíóm-
málaþróun oq á því að taka þátt í
bví að vissu marki.
Undirstrikun er athugasemd ÓB.
Samantekt og niðurstaða blaða-
mannanna: Fátt benti til þess að
Hörður Sigurgestsson yrði forstjór-
inn meðal forstjóranna. Hann lauk
sínum námsferli þrítugur og varrn
fímm ár í fjármálaráðuneytinu, hjá
sjálfu kerfínu. Er þar uppgötvuðu
Flugleiðamenn hann og ekki leið á
löngu þar til Hörður var kallaður
heim til stjómarformanns Eim-
skipafélagsins. Þar hefur hann ríkt
í nær 14 ár og hefur ekki mirmsta
hug á því að fara út í pólitík.
Kolkrabbinn hvað?
Pressan spyr forstjórann á einum
stað í greininni: Þzi kannast ekki við
að Eimskipafélagið sé heilirm í svo-
kölluðum kolkrabba?
Jdenn sjá alls konar kvikindi og
ófreskjur á lofti þegarþessi mál ber
á góma. Mér fínnst eðlilegt að
menn meti og skoði hver árangur
hefur orðið af okkar starfsemi og
mér fínnst eðlilegt að við séum ekki
dæmdir fyrirfram. “
Hann svarar ekki einu sinni spum-
ingunni, sem er borin fram af svo
mikilli hógværð, að ætla mætti að
blaðamennimir hefðu verið með
kúkinn í buxunum þegar þeir tóku
viðtalið. Maðurinn fær tveggja blað-
síðna prívat og persónulega auglýs-
ingu í mest lesna vikublaði landsins.
Virðir að vettugi spumingu blaða-
manna, sem er samt sem áður gerð
að útgangspunkti á forsíðunni.
Greinin öll er ein lofrulla tileinkuð
Herði Sigurgestssyni forstjóra, sem
þakkar fyrir sig með því að auglýsa
með menningarlegri auglýsingu á
blaðsíðu 3. Eða það er að minnsta
kosti það sem lesendur fá að sjá.
Spurt var: GUÐFAÐIR KOL-
KRABBANS EÐA ELDKLÁR BIS-
NESSMAÐUR?
Niðurstaða Pressunnar er alveg
skýr. Henni finnst Hörður vera eld-
klár bisnessmaður. Um annað er
ekki fjallað í greininni.
Niðurstaða ÓB er spumingar-
merki. Ýmsar vangaveltur skjóta
upp kollinum.
Er Hörður Sigurgestsson búinn að
kaupa hlutabréf í Pressunni?
Er Pressan að fara á hausinn og
ætlar Eimskip að bjarga henni með
því að auglýsa með heilsíðuauglýs-
ingum í blaðinu og kannski ein-
hverju meiru, með því skilyrði að
hún vandi sig í umfjöllun um Eim-
skip, forstjóra þess og aðra þá sem
tilheyra hirðinni?
Er Friðrik Þór Guðmundsson fyrir
hönd Almenna bókafélagsins að
þakka fyrir sig?
Er staða forstjóra Eimskipafélags-
ins að veikjast nú í kjölfar tæpra 800
milljóna samdráttar á síðasta ári?
Og er hann með þessari grein að
undirstrika hversu góður og vel-
menntaður forstjóri hann er?
Eitt er vísL Ef tveggja blaðsíðna
lofgrein um forstjóra Eimskipafé-
lagsins hefur ekki kostað meira en
það, að forstjórinn láti það fyrirtæki,
sem hann er í forsvari fyrir, kaupa
auglýsingu á blaðsíðu þrjú í því
sama tölublaði og greinin birtist í,
þá selur Pressan sig ódýrt
Reykjavík, 5.3.1993
Höfundur er húsasmiöur.
r
Hafsteinn Olafsson:
Fréttabréf um hús
framtíðarinnar
Á undanfömum ámm hefúr verið feng-
ist við breytingar á uppbyggingu húsa,
beinlínis með það í huga hvort hægt sé
að ná fram verulegri verðlækkun á bygg-
ingakostnaði stórra og smárra húsa. Til
þess hefúr verið beitt nýrri tækni f húsa-
gerð og fram kemur umtalsverður ár-
angur.
Það er ljóst hvað það þýðir að koma
fram með slíkar lausnir nú á tímum,
mitt í atvinnuleysi nútímans sem mun
vaxa með hverju árinu sem líður. í raun
eru möguleikamir horfnir að finna
vinnu í staðinn fyrir þá vinnu sem tapast
hefur. Þetta sýnist staðreynd og hér
koma atriði málinu til stuðnings.
Við höfum enn ekki áttað okkur á þeim
breytingum sem skollið hafa yfir hinn
vestræna heim hin síðari ár eða þau áhrif
sem munu leiða okkur að síðustu. Breyt-
ingamar em svo miklar að við verðum
að beygja okkur fyrir þeim fyrr eða síðar.
Náttúran er alltaf söm við sig og það er
Þaö hlýtur því að veröa
okkar hlutverk aö koma
upp verksmiöjum til aö
framleiöa hús eöa hús-
hluta úr íslenskum efn-
um ( stórum stíl.
tæknin sem stjómar þessu öllu saman.
Það er tæknin sem stjómar því að við
getum sent mannlaust skip heimshom-
anna á milli. Tæknin hefur gert land-
búnaðinum kleift að framleiða svo mikið
að bitist er um markaðinn. Sjávarútveg-
urinn er líka kominn inn á slíkar brautir.
Þar mun ekki fást meiri vinna þrátt fyrir
að rnikið sé reynt Og nú eru byggingar
að komast í sama farið. Það er óhjá-
kvæmilegt Við beitingu nefndrar tækni
mun ekki þurfa að nota slíka vinnu eins
og við þekkjum til að eignast þak yfir
höfuðið í framtíðinni. Efnin em önnur
sem notuð em til bygginga. Steinsteypa
er ekki notuð nema að litlu leytí og timb-
ur mun ekki verða notað lengur, mi
fyrir hvað timbur er þýðingarmikill hlut-
ur í lífi á jörðinni. Húsin verða umhverf-
isvæn, bæði í framleiðslu og notkun.
Ástæðan liggur f því hvað við höldum
fast um hinar gömlu byggingaaðferðir,
en auðvitað af skiljanlegum ástæðum.
Okkur er ríkt í huga ástandið í bygginga-
málum sem skapar kvíða fyrir framtíð-
inni.
Því er haldið ffam að óþarfi sé að kvíða
framtíðinni. Það gerir málið erfiðara en
efni standa til. Það er því nauðsynlegt að
skýra frá málinu nánar en verður gert
hér og nú. En eitt er ljóst Við verðum að
fara að hugsa öðruvísi en hingað til.
Okkur er nærri lífsspursmál að taka þátt
í uppbyggingu heimsins sem nú er að
verða brýn. Málið er komið til að vera.
Það hlýtur því að verða okkar hlutverk
að koma upp verksmiðjum til að fram-
leiða hús eða húshluta úr íslenskum efn-
um í stórum stíl. Ef við gerum það ekki,
hlýtur hrein vá að verða fyrir dyrum hjá
okkur í náinni framtíð. Við erum ekíd
fleiri en svo að að hægt sé að líkja því við
eitt hverfi f stórborgum erlendis. At-
vinnuleysið á að vera óþekktur hlutur.
Höfundur er byggingameistart
Lítil áhrif
Ég er bóndakona og hef alltaf átt
heima í blessaðri sveitinni. Ég eins
og aðrir hef áhyggjur af ráðslagi rík-
isstjómarinnar, hún er alltaf að
þjarma að okkur eins og öðrum.
Það eru ekki bara við sem búum á
sveitabæjunum sem missum vinn-
una, það er ansi margt fólk sem
vinnur við afurðir okkar sem missir
sína vinnu ef við bændur neyðumst
til að hætta búskap.
Við héldum lengi að forsetinn okk-
ar hefði það vald að geta neitað að
skrifa undir EES-samninginn, svo
þetta mál myndi þá fara undir þjóð-
aratkvæðagreiðslu, en það vita allir
hvernig það fór. Ég bara spyr: Hefur
forsetinn okkar bara ekkert vald? Er
þetta bara nafnið?
Ég held að það hljóti að vera fáir
sem treysta þessari stjóm til að
stjórna landinu okkar. Ég hef alltaf
haft þá skoðun að það ætti að kjósa
einstaklinga sem maður treystir, en
ekki flokkinn eða flokkana. Það var
nú sagt við mig þegar ég var ung-
lingur að ég væri pólitískt viðrini,
því ég hafði svo gaman af að stríða
fólki sem var mjög pólitískt. Ég held
að það sé margur maðurinn sem
hefur bara barnaskólapróf sem er
mun færari að stjóma landinu okkar
heldur en þeir sem stjórna því nú.
Ekki svo að skilja að ég hafi á móti
langri skólagöngu.Ég gæti skrifað
mikið lengri grein, en því miður
hefur það víst lítil áhrif.
Ónafngreind sveitakona
Lesendixr skrifa
V________________________>