Tíminn - 18.03.1993, Side 7
Fimmtudagur 18. mars 1993
Ríkisstjórnin stefnir að því að gera (sland að hreinasta landi
hins vestræna heims og ímynd hreinleika og sjálfbærrar
þróunar fyrir næstu aldamót:
Háleit mark-
mið á þyrnum
stráðri braut
Um næstu aldamót, eða eftir sjö ár, verður ísland hreinasta land
hins vestnena heims og ímynd hreinleika og sjálfbærrar þróunar,
samkvæmt því sem segir í stefnuyfíriýsingu ríkisstjórnarinnar í
umhverfísmálum. Til að svo geti orðið þarf ýmislegt að breytast til
betri vegar í samskiptum þjóðar og lands og auðlinda þess.
Meðal þess sem ætlunin er að taka á
og færa til betri vegar eru vemdun
andrúmslofts og sjávar, nýting nátt-
úruauðlinda, vemdun kjörlenda,
dýra og jurta, förgun sorps og
fráveitna, varðveisla sögulegra
minja og menningarverðmæta og
markviss þátttaka í alþjóðlegri sam-
vinnu ríkja um vemdun umhverfis-
ins og að þróunaraðstoð nemi
a.m.k. 0,4% af vergri landsfram-
leiðslu fyrir aldamót.
Aftur á móti eru þessi verkefni ær-
in miðað við núverandi ástand.
Landgæði gróðurs og jarövegs hafa
rýmað um 80% frá upphafi land-
náms, veiðiþol þorskstofnsins hefur
farið minnkandi, 47% af afla
vinnsluskipa er hent í sjóinn og 15%
af afla ísfiskskipa, auk þess sem 60%
af skelfiskafla er hent í fjörur og á
víðavang. Mikilvægum náttúru-
minjum stafar hætta af ágangi
ferðamanna, votlendissvæðum á
láglendi hefur fækkað til muna, 14
af483 háplöntutegundum eru taldar
vera í hættu og þar af eru 11 friðlýst-
ar. Af 72 fuglategundum sem verpa
reglulega hérlendis eru 14 taldar í
hættu.
Þá er áætlað að 40% alls heimilis-
og framleiðsluúrgangs sé fargað á
óviðunandi hátt, ástand frárennslis-
mála er víða óviðunandi og losun
eitur- og spilliefna í fráveitur algeng.
Mikilvægum grunnvatnslindum
stafar hætta af mengun frá vaxandi
þéttbýli, vaxandi neysluvatnsþörf
m.a. í matvælaiðnaði og útflutningi
vatns kann að leiða til röskunar á
mikilvægum náttúmminjum.
Síðast en ekki síst er hérlendis tals-
vert útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda af manna völdum, eða 5,2 tonn
kolefna á íbúa.
Sýnu mest þó af útstreymi koltvíox-
íðs, eða 2,4 tonn kolefna á mann
sem svarar 46% af heildarútstreymi
gróðurhúsalofttegunda hér á landi.
Þar vegur hlutur fiskiskipastólsins
og samgangna mest í útstreymi kol-
tvíoxíðs, eða um 61%. Hvað aðrar
gróðurhúslofttegundir varðar, þá
koma þær mest frá iðnaði, eða 74%.
-grh
Havnar Homorkestur frá Þórshöfn í Færeyjum fagnar 90 ára afmæli um þessar mundir, en sveitin
var stofnuð í febrúar árið 1903 og hefur starfað óslitið síðan. Á tímum síðari heimsstyrjaldar var
stíl hennar breytt til þess horfs sem nú er, eöa í lúðrasveit — brass band — að enskri fyrirmynd
og hafa enskir hljómsveitarstjórar stýrt sveitinni um lengrí og skemmri tíma æ síðan og svo er
einnig nú. Havnar Homorkestur lék í Krínglunni fyrr í vikunni og vakti athygli fyrír góöan leik og
skemmtilega efnisskrá. Tfmamynd Ami BJama
Lífeyrissjóður Iðju gefur afmælisgjöf:
FORSTÖÐUMAÐUR
FÉKK FARMIÐA
Handtekn-
irmeð
fíkniefni
Karimaður, 25 ára gamall, var
handtekinn á flugvellinum á ísa-
flrði í fyrradag með um 20 gr af
fíkniefnum í fórum sínum.
í kjölfarið fylgdi handtaka þriggja
manna, sem hafa viðurkennt að hafa
átt efnin.
Þar var um hass, amfetamín og
marijuana að ræða. Að sögn lögregl-
unnar á ísafirði er málið að fullu
upplýst og mennimir lausir úr
haldi. -HÞ
í tilefni af sjötugsafmæli eins for-
svarsmanns h'feyrissjóðs Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks, og fleiri h'f-
eyrissjóða færðu forystumenn Iðju
honum tvo farmiða að eigin vali til
hvers sem vera skyldi af áfanga-
stöðum Flugleiða sem hann kysi
sér. Afhendingin fór fram í afmæl-
isveislu að viðstöddum fjölda gesta.
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, var spurður um þetta mál.
Hann staðfesti að gjöfin hefði verið
afhent. Hann vildi ekki tjá sig um
málið efnislega og kvaðst ekki óttast
að umbjóðendur hans, eigendur
sjóðsins, myndu fetta fingur út í
þetta. Maðurinn væri búinn að vera í
starfi fyrir sjóðinn í 35 ár og honum
aldrei verið gefin gjöf fyrr. Ákveðið
hefði verið að gera það nú eftir þessa
löngu þjónustu. —sá
Aðalfundur
ÍSLAN DSBAN Kl
Aðalfundur íslandsbanka hf. árið 1993
verður haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 29. mars 1993
og hefst kl. 16:30.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
19. gr. samþykkta bankans.
2. Tillögur til breytinga á
samþykktum bankans.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
■ Hluthafar sem vilja fá ákveðið mál tekið til
meðferðar á aðalfundinum skulu í samræmi við
ákvæði 16. greinar samþykkta bankans gera
skriflega kröfu um það til bankaráðs, Kringlunni 7
(3. hæð), í síðasta lagi 22. mars 1993.
■ Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í íslandsbanka, Ármúla 7 (3. hæð),
Reykjavík, 24., 25. og 26. mars kl. 9:15 -16:00 sem
og á fundardegi kl. 9:15 - 12:00.
■ Ársreikningur félagsins fyrir árið 1992 sem og
tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða
hluthöfum til sýnis á sama stað og tíma.
■ Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja
atkvæðaseðla og aðgöngumiða sinna fyrir kl. 12:00
á fundardegi.
Reykjavík, 3. mars 1993
s
Bankaráð Islandsbanka hf.
Nýsköpun
í smáiðnaði
Iðnaðarráöuneytiö áformar f samstarfi við Iðntæknistofnun Islands,
Byggðastofnun og atvinnuráögjafa út um land að veita styrki þeim, sem
hyggjast efna til nýjunga I smáiönaöi eða stofna ný iönfyrírtæki, einkum á
landsbyggðinni.
Styrkimir eru fyrst og fremst ætlaðir til þess að greiöa fyrir tæknilegum
undirbúningi, hönnun, stofnsetningu nýrrar framleiðslu svo og markaðs-
setningu. Þeir eru ætlaöir þeim, sem hafa þegar skýrt mótuö áform um
slíka starfsemi og leggja I hana eigiö áhættufé.
Umsækjendur snúi sér til iðn- og atvinnuráðgjafa eöa Iðntæknistofnunar
Islands, fyrir 23. aprll n.k.
VELKOMIN TIL U.S.A.
Sértilboð frá bandarísk-
um stjórnvöldum
Bandarisk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öðlast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1.
Dregið veröur úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að i Bandarikjunum og stunda þar vinnu.
(orðiö handhafi „græna kortsins*). Umsóknarfrestur um dval-
arieyfi rennur út 31. mars nk. og því nauösynlegt að bregð-
ast við strax, svo umsókn þín nái fram í tima.
Allir þeir, sem eru fæddir á Islandi, Bretlandi eða Iriandi
og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa
rétt til aö sækja um þetta leyfi.
Sendiö 45 Bandarikjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæöingar-
stað, nafrii hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra bama undir 21 árs aldri.
Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.