Tíminn - 18.03.1993, Qupperneq 9
Fimmtudagur 18. mars 1993
Tíminn 9
llDAGBÓK
Aöatfundur Kvenfélags
Óháöa safnaöarins
verður haldinn í kvöld kl. 20 í Kirkjubæ.
Gestur verður Sigríður Hannesdóttir
leikarí.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Opið hús f Risinu kl. 13-17. Bridge-
keppni kl. 13. Lögfræðingurinn er til
viðtals á þriðjudaginn. Panta þarf tíma á
skrifstofu félagsins, sími 28812.
Þrír góöir á LA. Café
í kvöld, fimmtudag, koma fram í fyrsta
skipti saman þeir Bjami Ara, Sverrir
Stormsker og Diddi fiðla á LA Café,
Laugavegi 45. Koma þeir til með að
skemmta gestum til kl. 01 eftir mið-
nætti. Kvöldverður framreiddur frá kl.
18 til 22.30. Aðgangur ókeypis. Borða-
pantanir í síma 626120. Húsið opnað kl.
18.
Námskeið um starf
meö fötluðum
Námskeið um starf með fötluðum verð-
ur haldið að Borgartúni 6, Reykjavík, í
dag og á morgun (18. og 19. mars), og
hefjast kl. 09 f.h. báða dagana. Á nám-
skeiðinu verður lögð áhersla á fræðslu
og skoðanaskipti um starf með fótluð-
um, sérkenni þess og áhrif. Ýmsir sál-
fræðingar og félagsráðgjafar munu hafa
framsögu, en fundarstjóri báða dagana
verður Ásgeir Sigurgestsson sálfr.
Fyrirlestur í Lögbergi
Næsti fyrirlestur Líffræðifélags fslands
verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn
18. mars, í stofu 101 í Lögbergi, húsi
lagadeildar háskólans, og hefst hann kl.
20.30. Fyrirlesari verður Jóhann Sigur-
jónsson frá Hafrannsóknastofnun og
nefnir hann fyrirlesturinn: „Um stofri-
stærðir hvala við íslandsstrendur og mat
á fæðunámi þeirra". FVrirlesturinn er
öllum opinn.
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
REYKJANES
Opnir stjómmálafundir með
Steingrími Hermannssyni og
nokkrum þingmönnum
Framsóknarflokksins
Steingrímur
Garður — Hafnir — Keflavík — Njarðvík
Sandgerði — Vogar
Opinn stjómmálafundur meö alþingismönnunum Steingrimi Hermannssyni og Guö-
mundi Bjamasyni veröur ( Framsóknartiúsinu, Hafnargötu 62, Keflavlk, fimmtudaginn
18. mars n.k. kl. 20.30.
Kópavogur
Opinn stjómmálafundur meö alþingismönnunum Steingrimi Hermannssyni og Finni
Ingólfssyni veröur i Framsóknarhúsinu, Digranesvegi 12, Kópavogi, mánudaginn 22.
mars kl. 20.00.
Grindavík
Opinn sljómmálafundur með alþingismönnunum Steingrlmi Hermannssyni og Halldóri
Ásgrlmssyni veröur I Framsóknarbúsinu, Vlkurbraut 8, Grindavlk, miövikudaginn 24.
mars n.k. kl. 20.30.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús aö Hverfisgötu 25 alla þriöjudaga kl. 20.30.
Komið og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö.
Framsóknarfélögln
Guðmundur
Jón Helgason
Laugarvatn
Guðnl Ágústsson
Unnur Stofánsdóttlr
Almennur fundur um stjómmálaviöhorfiö í bamaskólanum á Laugarvatni fimmtu-
daginn 18. mars n.k. kl. 21.00.
Reykjavík - Framsóknarvist
Framsóknarvist veröur spiluö n.k. sunnudag 21. mars 1 Hót-
el Lind, Rauöarárstig 18, og hefst kl. 14.00.
Veitt veröa þrenn verölaun karia og kvenna.
Alfreö Þorsteinsson varaborgarfulltrúi flytur stutt ávarp I
kaffihléi.
Aögangseyrir kr. 500,-. Kaffiveitingar inn'ifaldar.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Borgarnes —
Félagsbær
Opinn fundur um heilbrigöismál verður I Félagsbæ þriöjudaginn 23. mars kl.
21.00.
„Hverju er verið að breyta I heilbrigöismálum?" Þvi svara: Ingibjörg Pálmadóttir al-
þingismaöur, Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir upplýsingafúlltrúi Tryggingastofn-
unar rikisins, og Halldór Jónsson héraöslæknir.
Framsóknarfélögin
Ný
tengda-
dóttir
Breta-
drottn-
ingar?
Þrátt fyrir þær hörmungar sem
tengdadætur Elísabetar Breta-
drottningar hafa orðið að þola,
og leitt yfír fjölskylduna að
sumra mati, eru Englendingar
ekki búnir að gefast upp við að
fmna konuefni handa yngsta
prinsinum, Játvarði. Og nú ber
vel í veiði; hann hefur stöku
sinnum sést í fylgd með ungri og
efnilegri leikkonu, Ruthie Hens-
hall, og auðvitað er strax farið að
gera því skóna að fundið sé brúð-
arefni prinsins.
Ruthie er vissulega mörgum
góðum kostum búin. Hún er 25
ára og fer um þessar mundir með
stjörnuhlutverk í nýja söng-
leiknum „Crazy For You“, sem
verið er að sýna í Prince Edward
Theatre í West End í London.
Hún hefur áður farið með hlut-
verk í öðrum vinsælum söng-
leikjum. Og það er sameiginleg-
ur áhugi þeirra Ruthie og Ját-
varðar á leikhúsinu sem leiddi
þau saman fyrir þrem árum. Hún
vill reyndar frekar ræða um leik-
húsið en prinsinn.
Það var sameiginlegur áhugi
Koo Stark og Andrésar, núver-
andi hertoga af York, á ljósmynd-
un sem leiddi þau saman á sín-
um tíma. Um samband þeirra fór
sem fór, en Koo, sem nú er 37
ára, hefur haslað sér völl sem
ljósmyndari. Hún var reyndar að
taka myndir af Ruthie, þegar hún
steig afturábak niður af gang-
stéttinni fyrir utan Prince Ed-
ward leikhúsið og lenti beint fyr-
ir leigubfí með þeim afleiðingum
að hún var flutt með sjúkrabfl á
spítala þar sem hún eyddi nótt-
inni.
Það er ekki ótrúlegt að Koo geti
miðlað Ruthie af reynslu sinni í
sambandi við fjölskyldu drottn-
ingar, þó að hún sé kannski ekki
eins lausmál og tengdadæturnar
hafa reynst vera.
i spegli
Timans
Koo Stark var vlðfræg vinkona
Andrésar hertoga af York um tlma
og það haföi óafmáanleg áhrifá líf
hennar. Ruthie hefur þá sögu alla
á bak viö eyraö, enda þekkir hún
Koo.
Ruthie Henshall er falleg, ung og efnileg leikkona.
„ Viö erum bara vinir, “ svarar Ruthie aöspurö um félagsskapinn viö Ját-
varö prins.