Tíminn - 17.04.1993, Qupperneq 4

Tíminn - 17.04.1993, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 17. apríl 1993 Tíminn MÁLSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóran Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavfk Sfml: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldslmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og iimbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Gmnnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Jöfnuður og siðferði Eitt af þeim málum sem liggja fyrir Alþingi um þess- ar mundir er frumvarp um breytingu á lögum um verslun ríkisins með tóbak. Þetta frumvarp er einn þátturinn í því að framkvæma einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar, og afnema einkarétt ríkisins á verslun með tóbak. Greinargerð frumvarpsins er eink- ar athyglisverð en þar kemur í ljós hugarheimur frjáls- hyggjunnar. Þar segir meðal annars: „Eins og kunnungt er þá á sér stað verðjöfnun á tóbaki. Verði frumvarp þetta að lög- um fellur hún að mestu niður, enda verður ekki séð hvaða sjónarmið það eru sem réttlæta verðjöfnun á tóbaki umfram aðrar vörur.“ Þar segir einnig: „Loks er rétt að hafa í huga að landlæknir fullyrðir að árlega deyi hundruð íslendinga af völdum tóbaksreykinga. í ljósi þessa má því áætla að það sé í raun siðferðislega ámælisvert af ríkinu að stunda verslun með tóbak.“ Afnám verðjöfnunar á tóbaki er einn þátturinn í þeirri stefnu ríkisstjómarinnar og stuðningsmanna hennar að afnema jöfnuð á öllum sviðum. Tilhlaup var gert á síðasta ári til að að afnema jöfnuð á bensínverði en það náði ekki fram að ganga. Hins vegar er gengið hart fram í því að afnema allan jöfnuð milli þjóðfélagsþegn- anna hvar sem því verður við komið, og er afnám verð- jöfnunar á tóbaki einn þátturinn í þeirri viðleitni að viðhalda misjöfnu vöruverði eftir byggðarlögum og landshlutum. Vangaveltur í greinargerð þessa stjómarfrumvarps um siðferðislegar skyldur ríkisvaldsins em einkar at- hyglisverðar. Ekki verður annað lesið út úr greinar- gerðinni og fmmvarpinu en það að ríkisvaldið eigi að uppfylla vissar siðferðiskröfur í sínum athöfnum sem einkareksturinn er undanþeginn. Fmmvarpið fjallar um að auka frelsi til þess að selja og auglýsa fíkniefni að nafni tóbak, sem ályktað er að sé siðferðislega rangt af ríkinu að selja. Það er útilokað að álykta annað en það sé réttlætanlegt fyrir einkaaðila að selja eitur sem leiðir hundmð íslendinga til dauða á ári ef hægt er að græða á því. Þetta er nú mórall í lagi, og þessi stutta setning sýnir betur en mörg orð inn í hugarheim frjálshyggjunnar. Þegar markaðsöflin og einkarekstur er annars vegar á ekki að gera siðferðiskröfur. Með öðmm orðum, það er í verkahring ríkisvaldsins að uppfylla kröfur um siðferði og jöfnuð, en það á ekki að koma nálægt rekstri nema sem allra minnst. Einkavæðingarstefna ríkisstjórnarinnar birtist í mörgum myndum, m.a. í áformum um að bjóða út rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Sá rekstur gengur mjög vel og skilaði fríhöfnin 510 milljónum króna í ríkissjóð á síðasta ári, eða 50 milljón krónum meira en fjárlög gerðu ráð fyrir. Það verður áreiðan- lega tekið vel eftir því hverjum verður afhentur þessi gullmoli. Þama er selt áfengi og tóbak sem talið er sið- ferðislega rangt af ríkinu að selja. Einkaframtakið þarf ekki að hafa áhyggjur af þeirri hlið málsins. Með þenn- an stórfenglega siðferðismóral í farteskinu er auðvitað hægt að ganga í það verk að einkavæða áfengissöluna í landinu, bæði í fríhöfninni og annars staðar. Oddur Ólafsson skrifar: „Frjálslyndið“ reynir skoðana- kúgun Málfrelsið er skrýtin skepna sem tryggast er að umgangast með gát. Sá sem eina stundina þykist vera boðberi sannleikans er kannski allt í einu orðinn dæmdur óbótamað- ur og er rukkaður um stórar upp- hæðir fyrir ærumeiðingar. Suma menn má svrvirða ljóst og leynt án þess að það teljist saknæmt en um aðra má ekki segja sannleikskorn því þá eru það taldar ærumeiðing- ar og jafnvel sitthvað þaðan af verra. Fræg er klásúlan um að ekki megi láta í sér heyra niðrandi ummæli um opinberan starfsmanna þótt sönn séu, því það er brot á Iands- lögum. Dæmi er um harða dóma þegar út af var brugðið. Einnig er dæmi um að Ieitað hafi verið til fjölþjóðlegs mannrétt- indadómstóls til að hnekkja ís- lenskum úrskurði um bann á slíku málfrelsi. Hömlur Margir vilja afnema allar hömlur á prentfrelsi og hvers konar fjöl- miðlun. Þeir telja sig frjálslynda og skáka með nokkrum rétti í því skjólinu, að fólki sér frjálst að velja hvaða prentefni það vill lesa og skoða eða hlusta og horfa á í loft- miðlum. En frjálslyndið getur sem best snúist í andhverfu sína á svip- stundu ef „íhaldssamar" skoðanir á frjálslyndinu eru settar fram. Það skeði um nýliðna bænadaga þegar kristilega þenkjandi prédikari taldi texta og myndbirtingar tímaritsins Bleikt og blátt vera í klúrara lagi og slæman páskaboðskap. Sama var að segja um annað tímarit sem helgað er duldum heimum og djöfladýrkun að dómi prédikara. Skylt er að geta þess að ritin voru auglýst sem gott lesefni um páska. Prédikarinn bað útgefendur þess efnis sem hann taldi klám og sat- ansdýrkun hvergi þrífast enda væri boðskapurinn kominn úr neðra og útgefendur þar með á bandi æð- stráðanda þar. Nú brá svo við að formælendur prentfrelsisins hóta málssókn til að ógilda skoðanir prédikarans, sem þýðir að hann hefur ekkert leyfi til að koma sínum skoðunum á framfæri þar sem þær brjóta í bága við tjáningarfrelsi annarra. Fleiri söfriuðir stóðu að samkomu þeirri sem prédikarinn var svo djarfur að segja sína skoðun á til- greindu málefni og voru fyrstu við- brögð tjáningarstofu ríkisins að reyna að fá dómkirkjuprest til að fordæma skelegga framsetningu prédikara á eigin sannfæringu. Eins hefur verið reynt að fá bisk- upinn yfir íslandi til að afheita kristilegri samstarfsnefnd vegna ræðu Snorra kalda úr Eyjum, sem segir það sem hann meinar. Hafi einhver reynt að bera í bæti- fláka fyrir prédikarann og sann- færingu hans er það ekki gert á áberandi hátt. Dæmdar skoðanir Útgefendur þeirra rita sem Snorri segir útbreiða klám og guðlast brugðu þegar í stað fýrir sig lands- frægum lögmanni, sem væntan- lega verður ekki skotaskuld úr því að sanna að ritstjórn tímaritanna taki ekki við beinum fyrirmælum úr undirheimum um efnistökin í Bleiku og bláu eða málgagni djöfladýrkenda. Sá hefur þegar gert lýðnum ljóst að hann ætlar að fá prédikara dæmdan. Allir þeir sem um málið fjalla á opinberum vettvangi eru frjáls- lyndir með afbrigðum og þykir sjálfsagt að menn fái að prenta og selja hvað sem þeim sýnist. Vel og gott. En þegar að því kemur að einhverjum þyki ekki sjálfsagt að auglýst sé klámfengið efni og svartar messur sem sérstök páska- lesning og lætur þá skoðun í ljósi er heimtað að hann svari til saka fyrir meiðyrði og atvinnuróg. Hvar er frjálslyndið og hvar er virðingin fyrir skoðunum annarra? Hverjir mega segja það sem þeim býr í brjósti og hverjir ekki? Leyfist aðeins hinum „frjáls- lyndu“ að láta skoðanir sínar uppi og á að hefta tjáningarfrelsi hinna „þröngsýnu“? Ærsl Það er eins og allar spaugstofur landsins hafi sameinast um að skrifa handrit að ærslaleiknum sem yfirstjóm útvarps og mennta- mála tryllast í þessa daganna. Flestir eru búnir að gleyma upp- hafinu, ef það hefúr nokkru sinni verið á almanna vitorði hvað hleypti allri aurskriðunni af stað. Það voru ummæli þáverandi dag- skrárstjóra sjónvarps um undir- menn sína. Hann efaðist um hæfrii þeirra til að sinna störfum sínum og allt varð sjóðvitlaust. Enginn spyr um hvort hann hafði rétt fyrir sér eða ekki. Staðreyndin er sú að hann mátti ekki tjá sig um málið og var rekinn. Eftirleikurinn tilheyrir öðrum þætti og er ekki til umræðu hér. Tjáningarfrelsið og hömlur á því fara eftir vissum reglum sem hvergi eru skráðar og geta verið breytilegar eftir tímabilum og samfélagshópum. Þeir sem skrifa í blöð eða segja hug sinn opinber- lega vita oftast nær hvað má og hvað ekki án þess að nokkur segi þeim það eða að það sé neins stað- ar skráð, nema auðvitað það sem hegningarlögin ná yfir. Tabúin eru mörg og er eins gott að þekkja þau ef maður á ekki að Ienda í vandræðum. Karlar mega ekki segja nema gott eitt um kon- ur hvorki einstaklinga né kven- þjóðina yfirleitt Konum leyfist aft- ur á móti að segja hvaðeina sem þeim býr í brjósti um karla og ekk- ert er athugavert um alhæfingar þeirra um efnið. Sama er uppi á teningnum þegar fjallað er um kynþætti eða þjóðir. Þar er allt umtal bannað nema Iofsvert og allt annað kallað kyn- þáttahatur. Undantekningin er ef fjallað er um karla sem hafa til- hneigingu til að vera íreknóttir. Þeim má úthúða að vild og kenna allar vammir og skammir mann- kyns frá upphafi vega og þykir lofs- vert. Kjósendum leyfist að kalla stjóm- málamenn öllum illum nöfnum og bera upp á þá nánast hvaða sakir sem þeim dettur í hug. Þetta þykir öllum sjálfsagt og enginn hreyfir mótmælum. En vei þeim pólitík- usi sem ekki talar af tilhlýðanlegri virðingu og jafnvel undirlægju- hætti um háttvirta kjósendur. Ef einhver brygði út af þeirri reglu þyrfti sá hinn sami ekki að kemba hærurnar sem kjörinn fulltrúi. Útlendingar mega aðeins hafa eina skoðun á íslandi og þjóðinni sem það byggir og höfðingja henn- ar. Ef út af er brugðið em það for- dómar og yfirlæti og ekki er hlust- að á rövl. Margt mætti fleira upp telja sem bannað er að fjalla um nema á einn veg að viðlögðum mannorðsmissi. Óskráð lög Óskráðar siðareglur tabúanna bera oft keim af dulbúinni ritskoð- un, sem sannast að segja er álita- mál hvort er holl þegar til lengdar lætur. Umræðan staðnar og skoð- anakúgunin nær yfirhöndinni. Rétt skoðun drepur niður gagn- rýna hugsun því stóri bróðir og stóra systir vita alltaf betur hvað manni finnst heldur en manni sjálfum. Þegar „frjálslyndið" er farið að kúga „þröngsýnina" og meina henni að tjá sig um prentfrelsi þeirra sem leyfist allt, þá fer skörin að færast upp á bekkinn og er tími til kominn að fara að staldra við og athuga okkar gang. Margþvæld er tilvitnunin í Vol- taire þar sem hann segir um and- stæðing sinn, að hann sé á móti öllum hans skoðunum en að hann væri reiðubúinn að láta lífið til að verja frelsi hans til að láta þær í ljósi. Þessa hugsun þekkja ekki þeir sem skilja ekki að Snorri prédikari hefur ekkert síður rétt á að viðra sínar skoðanir eins og útgefendur umdeildra rita eiga að njóta prent- frelsis. Tabúin í nútímanum og skoðana- kúgunin er yfrið nóg þótt frjáls- lyndið fari eldíi að meina kristnum prédikurum að segja meiningu sína.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.