Tíminn - 17.04.1993, Síða 11
Laugardagur 17. apríl 1993
Tíminn 11
Vinir Péturs
Peter’s Friends ★★★
Handrit: Rita Rudner og Martin Berg-
man.
Framleiðandi og lelkstjóri: Kenneth
Branagh.
Aðalhlutverk: Kenneth Branagh, Emma
Thompson, Stephen Fry, Hugh Laurie,
Rita Rudner, Tony Slattery, Alphonsia
Emmanuel, Phyllida Law, Imelda Staun-
ton og Alex Lowe.
Háskólabió.
Öllum leyfð.
Það liggur beinast við að hugsa til
hinnar bandarísku The Big Chill,
þegar efnið er skoðað í Vinum Pét-
urs. í þeim báðum er það gamall
vinahópur frá háskólaárunum,
sem hittist aftur eftir langan að-
skilnað, en mismunurinn liggur í
að á meðan vinimir í The Big Chill
voru fyrrum hippar þá eru vinimir
í Vinum Péturs fyrrum skólafélag-
ar úr Cambridge, sem léku þar
saman í revíu. Það er hinn ungi
snillingur Kenneth Branagh
(Henry V og Dead Again) sem leik-
stýrir hér sinni þriðju mynd og
honum tekst vel upp líkt og áður.
Myndin gerist á sveitasetri sem
Peter (Fry) hefur nýlega erft eftir
föður sinn. Hann býður vinum sín-
um að dvelja hjá sér um áramót,
en þeir em mishamingjusamt fólk,
öll með sinn djöful að draga.
Andrew (Branagh) er vel stæður en
ósáttur handritshöfundur í Holly-
wood sem skrifar fyrir sjónvarps-
þætti, sem bandarísk eiginkona
hans, hin léttklikkaða Carol
(Rudner), leikur aðalhlutverkið í.
Maggie (Thompson) býr ein með
kettinum sínum og fátt getur
komið í veg fyrir að hún pipri, en
hún huggar sig með því að lesa
sjálfshjálparbækur sem hún starf-
innvuvuniD
skwiwksn ¥ 8v SIBBt
ar við að gefa út. Hjónin Roger
(Laurie) og Mary (Staunton) hafa
komið sér nokkuð vel fyrir í lífinu,
en dauðsfall f fjölskyldunni er að
eyðileggja hjónabandið. Þegar
hópurinn hittist rifjast upp gömul
ástarævintýri þeirra í millum og
sum hver fara að hugsa til stórra
drauma sem þau áttu á háskólaár-
unum.
í handriti Ritu Rudner og Martins
Bergman er nokkuð bróðurleg
skipting milli gamans og alvöru,
en gamanþátturinn hefur þó tekist
sýnu betur. Það kemur stundum
fyrir að vandamálin verða einum of
yfirdrifin líkt og í íslenskum sjón-
varpsleikritum. Glensið er hins
vegar frábært og Branagh kemur
skemmtilega á óvart í gamanleikn-
um, en það er dálítið skrítið að þeir
leikarar í myndinni, sem þekktast-
ir eru fyrir gamanleik, Stephen Fry
og Hugh Laurie (Jeeves og Woost-
er), eru í raun í alvarlegustu rull-
unum og gera þeim mjög góð skil.
Hollywood fær sinn skammt af
háðsglósum sem kemur fram í
persónu Carol, sem er skrítið ein-
tak af konu, að minnsta kosti í
augum þeirra sem ekki búa í kvik-
myndaborginni.
í breskum myndum eru leikar-
amir yfirleitt alltaf mjög góðir og
þeir valda engum vonbrigðum hér.
Kenneth Branagh er frábær leikari
og eiginkona hans Emma Thomp-
son, nýkrýndur Óskarsverðlauna-
hafi, er ekki síðri. En það er eng-
inn sem skarar fram úr í góðum
leikarahópi; allir koma sínum per-
sónum vel til skila. Branagh hefur
hér gert ágætt verk og tryggir sig
fyllilega í sessi sem afbragðs kvik-
myndagerðarmaður og saman-
burðurinn við The Big Chill er
myndinni síður en svo í óhag.
Örn Markússon
Umsóknir
um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö 1993.
Umsóknir á þar til geröum eyöublööum sem fást á skrifstofu V.R. þurfa aö berast skrifstofu
V.R., Húsi verslunarinnar 8. hæö, í síðasta lagi föstudaginn 30. apríl 1993.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stööum:
Akureyri
Bifröst í Borgarfirði
Einarstöðum, Suður-Múlasýslu
Flúðum, Hrunamannahreppi
Húsafelli í Borgarfirði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Kirkjubæjarklaustri
Miöhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Ölfusborgum við Hveragerði
Húsin eru laus til umsóknar á tímabilinu 28. maí til og meö 10. september 1993, nema Bifröst
í Borgarfirði sem leigist frá 18. júní til og meö 13. ágúst 1993.
Nýjung:
Tjaldvagnar veröa nú leigðirtil félagsmanna í fyrsta sinn og leigutíminn erfrá 28. maítil og með
13. ágúst 1993.
Úthlutunarregiur:
Viö þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar á félagsaldri í V.R. aö frádregnum fyrri
úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á skrifstofu V.R. og er
reglunum dreift meö umsóknareyöublaöinu.
Leigugjald: kr. 9.000.- til kr. 10.000.- á viku í orlofshúsi.
kr. 6.000.- í tjaldvagni.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu V.R. í síöasta lagi
30. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutaö munu liggja fyrir 10. maí n.k..
Umsóknareyöublöö ásamt reglum um úthlutun eru afhent áskrifstofu V.R., Húsi verslunarinnar
8. hæö. Ekki verðurtekið á móti umsóknum símleiðis, en senda má útfyllt umsóknareyðublöö
í myndrita nr. 678356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
J
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Framkvæmdastjóri
Staöa framkvæmdastjóra við Fjóröungssjúkrahúsið á Isafirði er
laus til umsóknar með umsóknarffesti til 30. apríl nk. Viðskipta-
fræði eöa sambæríleg menntun æskileg ásamt þekkingu á rekstrí
sjúkrastofríana.
Umsóknir berist fomnanni stjómar, Fylki Ágústssyni, Fjarðarstræti
15, 400 ísafirði, sem einnig veitir nánari upplýsingar, sími 94-
3745.
A
if&A
KÓPAV OGSBÆR
Útboð —
frágangur lóðar
Húsnæðisnefnd Kópavogs óskar hér með eftir tilboðum í
frágang lóðar vegna 50 íbúða við Lautasmára 25-41,
Kópavogi.
Verkið felst í að grófjafna lóð, malbika bílastæði og gang-
stíga, steypa kantsteina, helluleggja gangstiga og ganga
frá tyrfðum svæðum og gróðurbeðum.
Verklok eru 15. júlí 1993.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu Guðmundar
Magnússonar, Hamraborg 7, Kópavogi, 3. hæð, gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
T!,‘joð verða opnuð fimmtudaginn 29. apríl 1993 kl. 15.00 i
. élagsheimili Kópavogs, 2. hæð.
&JEPSWW/ VerkfræÓistofa
WXJMtwt/Guðmundar Magnússonar
j Vofktrmdiráögiatar Hamraborg 7,200Kópavogi. S. (91) 42200.
Eigum fyrirliggjandi mykjudæludreifara
4000 og 5000 lítra á mjög hagstæðu verði.
fslensk framleiðsla.
Einnig hina sívinsælu 5 tonna sturtuvagna.
Eigum keðjukastdreifara í framleiðslu.
Verða til afgreiðslu eftir páska.
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA
BIFREIÐASMIÐJUR
S ga-asooo
Heyhleðsluvagn óskast
Óska eftir að kaupa nýlegan vel með farinn heyhleðsluvagn.
Upplýsingar i síma 96-61437 eftir kl. 20 og i hádegi.
Tökum að Komum,
okkur að skoðum'og.
slá garða gerum
verðtilboð
Kantklippum
og Upplýsingar
fjarlægjum í síma
heyið 41224
eftir kl. 18
Vanirmenn - Geymið auglýsinguna