Tíminn - 17.04.1993, Page 14
14 Tíminn
Laugardagur 17. apríl 1993
Innkaupastofnun ríkisins fýrir hönd tæknideildar Rikisspítala
óskar eftir tilboðum I verkið „Kópavogshæli, klæðningu utan-
húss á sambýli A, B, C og D“.
Helstu magntölur eru:
Klæðning á flötum 740 m2
Málun þaks 517 m2
Þakrennur 68 m
Háþrýstiþvottur 100 m2
Málun glugga 719 m2
Málun veggja 100 m2
Verktími er frá 25. mal '93 til 23. ágúst ‘93. Útboðsgögn verða
seld hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík,
frá og með mánudeginum 19. apríl ‘93, á kr. 12.450,- m/vsk., og
verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 4. maf ‘93 kl. 11:00 að
viöstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg-
arverkfræöings, óskar eftir tilboðum I viögerðir og viðhald á
steinsteypu, ásamt endursteiningu og viðgerðum á gluggum og
pappalögn á þök stigahúsa Langholtsskóla.
Helstu magntölur eru:
Endursteypa 100 m2
Endursteining 460 m2
Endumýjun glers 180 m2
Pappalagnir 30 m2
Verktími: 1. júní-15. ágúst 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, gegn
kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 20. apríl 1993,
kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
HA kynntur í dag
Háskólinn á Akureyri verður með
sérstaka kynningardaga í dag,
laugardag, á milli kl. 13 og 17.
Forstöðumenn hinna ýmsu deilda
munu flytja fyrirlestra þar sem
deildimar verða kynntar, en á
næsta hausti verða starfandi fjórar
deildir við skólann.
Að sögn Haraldar Bessasonar,
rektors HA, er margt nýtt sem
kynnt verður á kynningardögun-
um, en það nýjasta sé vitaskuld
kennaradeildin. Hann segir að í
týrra hafi að vísu verið byrjað með
nokkur námskeið, sem muni síðan
fást metin í hinni nýju deild.
„Þannig má e.tv. segja að deildin sé
þegar tekin til starfa,“ segir Harald-
ur, „og við erum mjög bjartsýnir
með framhaldið, því sýnilegur er
gríðarlegur áhugi fýrir þessari
deild.“
Það vekur athygli að á kynningar-
dögum Háskólans eru sérstaklega
kynntir Myndlistarskólinn á Akur-
eyri og Tónlistarskólinn á Akureyri.
Aðspurður um þetta mál sagði Har-
aldur að fyrirhugað væri samstarf
þessara skóla við kennaradeildina,
en þó væri ekki afráðið hvemig út-
færslan á því máli yrði. Umræður
væm þó hafnar milli aðila.
Haraldur Bessason segir að í Há-
skólanum á Akureyri sé boðið upp á
margar nýjar námsgreinar, sem
ekki séu almennt vel þekktar meðal
námsmanna. Nefhir hann í því
sambandi t.d. sjávarútvegsfræði og
gæðastjómun. Aðsóknin í þessar
greinar hefur verið minni en í þær
greinar, sem betur em þekktar, en
það á að dómi Haraldar eftir að
breytast. Hann segir að það fólk,
sem úr skólanum komi, eigi á
næstu ámm eftir að verða mjög
verðmæt kynning fýrir einmitt þær
nýjungar sem í boði em.
Kynningardagamir í HA verða
m.a. haldnir í aðalbyggingu skólans
við Þingvallastræti og hefjast eins
og áður sagði kl. 13:00.
Stórmeistaramót Mjólkursamsölunnar:
Polgar teflir
á Islandi
Næstkomandi sunnudag verður
haldið stórmeistaramót Mjólkur-
samsölunnar í atskák og verður sýnt
beint frá mótinu í Ríkissjónvarpinu.
Ráðhústónleikar í dag:
Lúðrasveit
Reykjavíkur
Lúðrasveit Reykjavíkur býður borg-
arbúum á fjölsl^ldutónleika í Ráð-
húsinu í dag, laugardag 17. apríl, kl.
14.
Sveitin mun leika nokkur létt lög
við allra hæfi. Stjórnandi hennar er
Helgi Þ. Svavarsson. Aðgangur er
ókeypis.
Meðal keppenda er Judit Polgar, hin
16 ára gamla ungverska skákdrottn-
ing, sem er yngsti stórmeistari skák-
sögunnar.
Aðrir keppendur em íslensku stór-
meistararnir Jóhann Hjartarson,
Margeir Pétursson og Helgi Ólafs-
son. Tefld verður einföld umferð og
teflir Judit við alla okkar menn. Um-
hugsunartími verður 25 mínútur
fýrir hvem keppanda. Jón L. Áma-
son stórmeistari mun skýra allar
skákimar fyrir áhorfendum. Her-
mann Gunnarsson verður umsjón-
annaður mótsins.
Útsending frá mótinu hefst klukkan
12.35 og lýkur 15.50. Þetta er fýrsta
stórmeistaramótið í atskák sem er í
beinni sjónvarpsútsendingu.
-EÓ
Samtök fjárfesta:
Mótmæla
vaxta-
skatti
Samtök fjárfesta hafa sent frá
sér ályktun þar sem skorað er á
verkalýðshreyfinguna að láta af
kröfum sínum um skatt á fjár-
magnstekjur. Samtökin telja
að slíkur skattur muni leiða til
hærri vaxta og þar með íþyngja
frekar skuldsettum heimilum
og fyrirtækjum í landinu.
Samtökin benda á að í skýrslu
nefndar til samræmingar skatt-
lagningar eigna og eignatekna,
sem út kom í mars 1992, sé sér-
staklega varað við nafnvaxta-
sköttun eins og samningsaðilar
hafa haft uppi kröfur um í yfir-
standandi kjarasamningum. í
skýrslunni kemur fram að
skattlagning nafnvaxta geti
hæglega leitt til neikvæðra
raunvaxta við vaxandi verð-
bólgu. -EÓ
Bridge
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON
Páskaþraut 1
NORÐUR
4 G6
V 74
♦ Á632
♦ K6542
SUÐUR
4 K94
V ÁKD
♦ 854
+ ÁD97
Svör við páskaþrautum
Suður opnar á einu grandi, norð-
ur hækkar í tvö og suður segir 3
grönd. Vestur spilar út tígulkóngi.
Hvernig er best að spila?
Þetta er auðsjáanlega spuming
um samgang. „Litlu laufin“ á hendi
sagnhafa eru erfið viðfangs. Ef lauf-
in skiptast 3-1 og tígulásinn farinn
þá nást ekki nema fjórir slagir á
lauf sem þýðir að einn öruggan
slag vantar. Leiðin til að forðast
stífluna er að dúkka tígulásinn og
ef vestur skiptir um lit er eftirleik-
urinn auðveldur en væntanlega
spilar hann áfram tígli sem er aftur
dúkkaður og í þriðja skiptið einnig.
Segjum að vestur skipti nú í hjarta.
Þá rennir suður niður þremur
hæstu laufunum, fer inn í blindan
á kónginn og kastar laufsjöunni í
tígulásinn. 9 slagir og öðruvísi
vinnst spilið ekki eins og það ligg-
ur. Spaðaásinn liggur öfugu megin
og útspilið bendir til þess að vestur
eigi röðina niðir úr þannig að lítil
sem engin hætta er á að austur
komist inn til að spila spaða í gegn
um sagnhafa. Allar hendur:
4
V
♦
*
NORÐUR
G6
74
Á632
K6542
VESTUR AUSTUR
4 Á83 4 DT752
¥ G652 ¥ T983
♦ KDGT9 ♦ 7
* G * T83
SUÐUR
4 K94
¥ ÁKD
♦ 854
* ÁD97
Páskaþraut 2
NORÐUR
+ 83
¥ 954
♦ 86543
+ T54
SUÐUR
4 ÁDGT9
¥ G3
♦ Á
♦ ÁKDG2
Suður er sagnhafi í 4 spöðum án
þess að andstæðingamir skipti sér
af sögnum. Vestur spilar út hjarta-
kóng og hjarta í tvígang eftir það.
Hvaða áætlun er best til að vinna
spilið? Vísbending: spaðakóngur-
inn er fjórði hjá austri.
Þetta spil kom fyrir í sveitakeppni
á írlandi lýrir nokkrum ámm. Á
öðm borðinu stakk sagnhafi hjart-
að með spaðaníu, fór inn í blindan
á lauftíu og svínaði spaða með
ágætum árangri. Allir fylgdu lit í
spaðaásinn en vestur sýndi eyðu
þegar þriðja spaðanum var spilað.
Austur tók á spaðakónginn sinn,
spilaði hjarta sem suður trompaði
með síðasta trompinu sínu og þar
með fékk austur annan spaðaslag.
Einn niður.
Á hinu borðinu fann sagnhafi
vinningsleiðina með einfaldri ör-
yggisspilamennsku. Eftir þrjá
fýrstu slagina spilaði hann spaða-
drottningu að heiman. Ef hún
hefði verið drepin, stöðvaði spaða-
áttan í blindum hjartað. Austur
varðist vel og dúkkaði en þá fór
suður inn í borð á lauftíu og svín-
aði spaða. Þá spilaði hann ásnum
og þótt spaðakóngurinn félli ekki í
gat sagnhafi nú spilað laufi.
NORÐUR
83
954
86543
T54
4
¥
♦
4
VESTUR
64
ÁKD7
DT72
863
AUSTUR
+ K752
T T862
T KG9
97
SUÐUR
4 ÁDGT9
¥ G3
♦ Á
* ÁKDG2
Páskaþraut 3
NORÐUR
4 763
¥ G75
♦ ÁKG82
* Á9
SUÐUR
4 ÁKD54
¥ Á8
♦ D5
* KDG7
Allir; norður gefur
Suður spilar 7 grönd eftir einfald-
ar sagnir (lt, 4gr. 51 7gr.)
Vestur spilar út hjartakóng. NB
þetta lítur út fýrir að vera auðvelt
og 15 slagir mögulegir á góðum
degi en góður spilari gerir ráð fýrir
slæmri legu.
Þrátt fýrir öll þessi spil er Ijóst að
með verstu legu getur kastþröngin
orðið haldreipið. Fjórða laufið er
líklegt til að vera lykilspil. Þar með
er nauðsynlegt að varðveita inn-
komurnar í blindan og því er óráð-
legt að spila tíglunum. Best er að
spila spaða tvisvar og ef austur er
ren í seinna skiptið er komin upp
einföld kastþröng fyrir vestur í há-
litunum.
Hins vegar liggur spilið þannig að
það er vestur sem á aðeins einn
spaða og kastar laufi. Það þýðir
ógnun gagnvart vestri í hjarta og
spaðaógnun fýrir austur. Því er
þriðji spaðinn tekinn og allir laufs-
lagimir. Málið leyst. Fræðilega er
hér ekki um tvöfalda kastþröng að
ræða þar sem hvoruhur
andstæðingurinn getur í upphafi
varið tígulinn. Formið er hins
vegar svipað.
Allt er spilið svona:
NORÐUR
4 763
¥ G75
♦ ÁKG82
* Á9
VESTUR AUSTUR
4 T 4 G982
¥ KDT3 ¥ 9642
♦ T9743 ♦ 6
+ 652 * T843
SUÐUR
4 ÁKD54
¥ Á8
♦ D5
* KDG7
Siglfirðingar komu,
sáu og sigruðu
í fýrsta skipti frá því að fýrst var
haldið íslandsmót í bridge, árið
1949, fara landsbyggðarmenn með
sigur af hólmi. Það gerðist nú um
síðustu helgi að sveit Ásgríms Sig-
urbjörnssonar varð íslandsmeistari
í sveitakeppni 1993. Sveit Siglfirð-
inganna var eina landsbyggðasveit-
in sem komst í úrslitin og var
reyndar mjótt á mununum að
sveitin kæmist alls ekki áfram. Það
var hins vegar enginn heppnis-
bragur á spilamennsku þeirra Ás-
gríms og Jóns Sigurbjörnssona og
Steinars og Ólafs, sona Jóns. Sam-
hæfingin var góð, þeir spila allir
sama kerfi og kunna það eins og
sést best á þeirri óvenjulegu taktík
að sveitin skipti innbyrðis um mak-
kera í hverjum hálfleik! Siglfirð-
ingarnir leiddu úrslitakeppnina frá
upphafi og ekkert gat komið í veg
fýrir sigurinn annað en 12-18 tap
fýrir Landsbréfum í síðustu umferð
en sú sveit var næstefst að stigum
fyrir lokaumferðina. Siglfirðing-
arnir létu heimsmeistarana og
norðurlandameistarana finna fýrir
tevatninu og unnu leikinn örugg-
lega.
Sagt var á sínum tíma að þegar
heimsmeistaratitillinn í bridge
hafnaði hjá íslendingum, sællar
minningar, væru úrslitin sigur og
lyftistong fyrir bridgeíþróttina. Hið
sama má segja um þessi úrslit Þau
ættu að örva landsbyggðamenn til
dáða.
Lokastaðan
1. Ásgrímur Sigurbjörnsson ..134
2. Landsbréf................123
3. VÍB......................109
4. Hjólbarðahöllin..........106
5. Tryggingamiðstöðin.......100
6. Glitnir ..................95
7. DV.......................82
8. Roche....................80