Tíminn - 17.04.1993, Side 19
Laugardagur 17. apríl 1993
Tíminn 19
Ida G. Þorgeirsdóttir
Fædd 15. febrúar 1929
Dáin 10. apríl 1993
Stundum kemur dauðinn sem
líknsamur gjafari, leysir frá þraut-
um og þjáning, þegar lífsþróttur er
þorrinn og hörð örlög hafa lengi
hrjáð.
Nú hefur hann lokað brám okkar
kæru og mætu vinkonu, Idu Þor-
geirsdóttur, sem hafði undangengin
ár átt við þann óvin að stríða, er við
Alzheimer er kenndur og enginn
fær þar vömum við komið. Það er
hart og sárt til þess að hugsa, þegar
svo skjótt sól bregður sumri í lífi
fólks og enginn mannlegur máttur
fær rönd við reist.
Þessi harðduglega, lífsglaða kona
hlaut þessi örlög enn á besta aldri í
fullu lífsstarfi erils og anna á sínu
mikla myndarheimili. Hjá henni
fóru saman þeir mannkostir, er
mætastir teljast: Bjartsýni vongleð-
innar, hlýja umhyggjunnar og elja
lífsorkunnar ásamt afar góðri greind
og skarpskyggni á menn og málefni.
Okkur hjónum er hún minnisstæð-
ust fyrir þann gefandi hlýleika, sem
umvafði okkur allt frá íyrstu kynn-
um, þá einlægni alúðarinnar sem
allt einkenndi, ekki síst annasöm
störf hennar, glettnin góð og hlý,
hláturinn geislandi léttur.
Að leiðarlokum er svo vörm vinátta
dýrmæt í bjartri endurminning um
góða og sanna konu.
Kynni okkar spanna hálfan annan
áratug, aldur sonardóttur okkar, Jó-
hönnu, og dótturdóttur Idu. Við
komum fyrst að Laxárbakka, heimili
þeirra Idu og Áma manns hennar,
við skím Jóhönnu og fengum þar
hinar elskulegustu móttökur hjá
heimilisfólkinu öllu, en Idu þó allra
helst. Það var eins og við væmm að
gista góðvini kæra um árafjöld og
nafnið á sonardótturinni gladdi
ömmuna alveg sérstaklega.
Sú nafngift var í góðu samræmi við
þann hlýja hug er okkur mætti og
við nutum svo vel og njótum hjá
þessu mæta vinafólki okkar.
Sonur okkar og dóttir Idu áttu
þessa litlu stúlku saman, en síðan
ekki meir varðandi samband þeirra.
En mikil og góð vinátta hefur verið
á milli þeirra og fjölskyldna þeirra.
Jóhanna — eða Hanna, svo sem
hún er jafnan kölluð — ólst svo upp
á Laxárbakka hjá ömmu sinni og afa
og varð þeim lýsandi sólargeisli sem
lífið snerist um, bæði hjá þeim og
Gísla, móðurbróður hennar.
Uppeldi Hönnu bar mannkostum
Idu og kærleiksríkri fómarlund
hennar fagurt vitni.
Aldrei höfum við kynnst konu sem
gladdist svo gestakomum, ekki síst
góðs frændfólks og vina, enda þótt
um hreina gestanauð væri oft að
ræða.
Tekið var í mót öllum af einlægni
hjartans og ekki voru veitingamar
við nögl skomar. Þar giltu rausn og
reisn hinna samvöldu hjóna og þess
nutum við og okkar fólk ríkulega.
Laxárbakki er í þjóðbraut og þegar
samdráttur hefðbundins búskapar
bitnaði á þeim hjónum sem öðmm,
var brugðið á ráð bændagistingar,
enda húsakynni góð og hjartarúm
ekki síðra.
í miðjum þeim önnum veiktist Ida
og varð frá að hverfa sínum daglegu
störfum og gefandi lífsorku og á
sjúkrahúsinu á Húsavfk dvaldi hún
hin síðustu ár.
Ida verður okkur afar minnisstæð
og um hana ljómar og lýsir í mer-
landi minning mikillar sæmdar-
konu.
Ida Guðríður, eins og hún hét fullu
nafni, var austfirskrar ættar. Hún
fæddist á Vopnafirði 15. febr. 1929,
dóttir hjónanna Ingiríðar Sigurðar-
dóttur og Þorgeirs Lúðvíkssonar
smiðs. Móðir hennar dó er Ida var á
öðm ári og ólst hún upp hjá móður-
systur sinni á Vopnafirði, Margréti
Sigurðardóttur, fram til 17 ára ald-
urs, en þá dó Margrét. Þá fer Ida
norður til Húsavíkur og er þar í
Laxárbakka
vinnu og í Mývatnssveit næstu árin.
Á Húsmæðraskólanum á Laugum er
hún svo veturinn 1949-50, en svo
liggur leiðin aftur í Mývatnssveitina.
Þáttaskil urðu þar í lífi hennar þeg-
ar hún kynntist þeim mikla sæmd-
ardreng, Áma Gíslasyni frá Hellu-
vaði í Mývatnssveit.
Þau gengu í hjónaband 26. okt.
1950, bjuggu fyrstu árin á Hellu-
vaði, en reistu sér svo nýbýlið Laxár-
bakka í landi Helluvaðs og bjuggu
þar góðu búi og heimilið annálað
fyrir gestrisni og myndarskap. Þau
hjónin eignuðust tvö börn: Gísla,
sem býr með föður sínum að Laxár-
bakka og er starfsmaður sparisjóðs-
ins í sveitinni, og Ingu Margréti
bókasafnsfræðing, sem býr nú að
Þórisstöðum á Svalbarðsströnd með
manni sínum, Stefáni Tryggvasyni
frá Skrauthólum á Kjalamesi, og
eiga þau þrjá syni, en áður átti Inga
Margrét Jóhönnu með Þóroddi syni
okkar.
Barnalán þeirra Idu og Áma er því
ótvírætt, svo ágætlega gerð sem þau
systkin em bæði tvö.
Komið er að kveðjustund og svo
ótalmargt sem okkur ber að þakka á
þeirri samleið, sem þó var alltof
stutt. Kvödd er mikil höfðingskona í
sjón og raun, sem veitti hlýju hjarta
síns óspart til samferðafólksins, sem
gaf af kærleik sínum allt sem hún
mátti.
Við hinstu lífshvörf er í huga mikill
söknuður.
Við hjónin sendum þeim góðu vin-
um okkar, Árna, Gísla, Ingu Margr-
éti og hennar fólki og ekki síst
Hönnu okkar, sem elskaði ömmu
sína svo undurheitt, okkar hlýjustu
samúðarkveðjur. Við vonum að hin-
ar björtu, fögm minningar um svo
góða konu eigi eftir að létta þeim
öllum sáran harm.
í einlægni hjartans er hún Ida
kvödd með alúðarþökk fyrir ógleym-
anleg kynni, sem bregða skærri
birtu á brautina fram.
Megi hún yndis njóta á því ódáins-
landi eilífðarinnar sem hún trúði
svo staðfastlega á.
Blessuð sé mæt minning Idu Þor-
geirsdóttur.
Jóhanna Þóroddsdóttir,
Helgi Seljan
^JRARIK
lllfoi RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 93003
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja
aðveitustöðvarhús á Neskaupstað.
Útboðsgögn verða afhent á umdæmisskrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Þverklettum 2, Egilsstöðum, og
Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með þriöjudeginum 20.
apríl 1993, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Egilsstöðum, fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 5. maí 1993 og
verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem
þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi merktu: RARIK-93003 Nes-
kaupstaður — aðveitustöð.
Raffnagnsveitur ríkisins
Laugavegi118,
105 Reykjavík
Vamarliðið:
Tölvunarfræðingur/
kerfisfræðingur
Stofnun verklegra framkvæmda Varnarliðsins á Kefiavík-
urflugvelli óskar að ráða tölvunar- eða kerfisfræðing til
starfa.
Starfið felst í viðbótaruppsetningu tölvubúnaðar, gerð til-
lagna um breytingar ásamt því að annast daglegan rekst-
ur þeirra tölvukerfa er undir starfið heyra. Um er að ræða
Novell-nettengd kerfi. Einnig að annast kennslu og þjón-
ustu við starfsfólk eftir því sem við á. Forritun og greining
er einnig hluti starfsins.
Kröfur
Umsækjandi sé tölvunar- eða kerfisfræðingur með sem
víðtækasta reynslu á sviði vél- og hugbúnaðar.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og eiga gott með samskipti
við annað fólk.
Góðrar enskukunnáttu er krafist, bæði á talað mál og
skrifaö.
Umsóknir skulu berast til ráðningardeildar vamarmála-
skrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími: 92-11973, ekki
síðar en 29. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað.
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Steingrímur Guðmundur Valgerður Jóhannes
Almennur stjómmálafundur
verður haldinn I Alþýðuhúsinu við Skipagötu, Akureyri, þriðjudaginn 20. april.
Fundurinn hefst klukkan 20.30.
Fnjmmælandi: Steingrimur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Átak til endurreisnar
er heitið á tillögum flokksins I efnahags- og atvinnumálum. Þessar tillögur verða
ræddar á fundinum, en sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikil þörf á að fjalla um
málefni lands og þjóðar.
Sýnum samstöðu og mætum I Alþýðuhúsið. Þingmenn Framsóknarflokksins I
kjördæminu sitja fyrir svörum ásamt frummælanda.
Framsóknarfíokkurinn
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30.
Komiö og fáið ykkur kaffisopa og spjallið.
Framsóknarfélögin
Guðni Jóhannes
Þjórsárver
Verðum til viðtals og ræðum þjóðmálin I Þjórsárveri mánudaginn 19. april kl.
21.00.
Gestur fundarins veröur Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Sumarfagnaður Framsóknar-
félaganna í Keflavík
verður haldinn I Félagsheimilinu miövikudaginn 21. april og hefst kl. 20.30.
Framsóknarf&ögin
Sumarfagnaður framsóknar-
manna í Reykjavík
verður haldinn ( hinum glæsilegu húsakynnum á Hótel Borg
miövikudaginn 21. april (siðasta vetrardag) og hefst kl.
19.30.
Gimilegur kvöldverður, skemmtidagskrá og dansleikur á eftir.
Miðaverð kr. 3000.
Miðapantanir og sala fer fram á skrifstofu Framsóknarflokks-
ins, Hafnarstræti 18, slmi 624480.
Hátföarræða: Steingrimur Hermannsson.
Veislustjóri: Það er hið skemmtilega leyndarmál.
Góðir framsóknarmenn, kveðjum vetur með kurt og pi og
fögnum sumri í góðra vina hópi. Og hana núl
Skemmtilega nefndin
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Keflavík Guörlöur Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarövik Katrín Sigurðardóttir Hóiagata 7 92-12169
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-14261
Borgames Soffia Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642
StykWshóImur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfiörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Heflissandur Lilja Guömundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búðardalur Siguriaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
fsafjörður Petrlna Georgsdóttir Hrannargötu 2 94-3543
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangi Hólmfriður Guömundsd. Fifusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjamason Uröarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauöárknókur Guöain Kristófersdóttir Barmahllö 13 95-35311
SigluQöröur Guörtin Auöunsdóttir Hverfisgötu 28 96-71841
Akureyri Baldur Hauksson Drekagili 19 96-27494
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavik Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559
Ólafsflörður Helga Jónsdóttir Hrannarbvoaö 8 96-62308
Raufarhöfn Erla Guömundsdóttir Aöalbraut 60 96-51258
Vopnafjöröur Svanborg Viglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egllsstaölr Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Bryndfs Helgadóttir Blómsturvellir 46 97-71682
Reyðarfjörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
Eskifjörður Björg Siguröardóttir Strandgötu 3B 97-61336
Fáskrúðsfjönður Ásdls Jóhannesdóttir. Skólavegi 8 97-51339
Djúprvogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgariandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vlkurbraut 11 97-81274
Setfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Þóröur Snæbjamarson Heiðmörk 61 98-34191
Þoriákshöfri Halldóra S. Sveinsdóttir Egiisbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Bjami Þór Eriingsson Túngötu 28 98-31198
Laugarvatn Margrét Lárusdóttir Miöey 98-61236
Hvolsvöllur Lárus og Ottó Jónssynir Króktúni 18 98-78399
Vfk Sigurbjörg Bjömsdóttir Mánabraut 4 98-71133
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192