Tíminn - 17.04.1993, Side 24
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
NÝTTOG
FERSKT
DAGLEGA 98
reiðholtsbakarí ^'VÖLVUFELL113- SÍMI73655
HOGG-
jy DEYFAR
erslid hjá fagmönnum
varahlut
Hamarsbofda l - s. 67-67
1
TVÖFALDUR1. vinningur
Iíniinn
LA’JGARDAGUR 17. APRÍL 1993
Frá ársfundi LandsvirKjunar sem var haldinn i gær. Jóhannes Nordal, stjómarformaður Landsvirkjunar, er í ræðustól. Hmamynd Ámi Bjama
Árið 1992 var versta rekstrarár í sögu Landsvirkjunar:
Tap Landsvirkjunar
tveir milljarðar
Landsvirkjun var rekin með um 2,2 milljarða kr. halla á síðasta árí. Þetta er
versta afkoma í sögu fýrirtækisins, en reksturínn skilaði hagnaði síöustu
átta ár á undan. Ástæðan er óhagstæð gengisþróun og viðbótarútgjöld
vegna rekstrar Blönduvirkjunar. Áætlanir fyrir áríð 1993 gera einnig ráð fýr-
ir halla, en vonast er efb'r aö hann veröi ekki meiri en 250 milljónir.
Eru vegir Borgarskipu-
lagsins órannsakanlegir?
Fjörugt
næturlíf í
nágrenni
við aldraða
Stærsta bflasjoppa landsins
mun rísa í nágrenni við íbúða-
byggð aldraðra við Skúlagötu í
Reykjavík. íbúarair eru
áhyggjufullir vegna ónæðis
sem kann að stafa frá sjopp-
unni en þar verður nætursala
um helgar. í götunni er þegar
vinsæll skemmtistaður ungs
fólks.
Bygginganefnd borgarinnar
samþykkti nýlega teikningar af
220 ftn veitingahúsnæði aust-
an við bensínstöð Olís á miili
Skúlagötu og Sæbrautar. Þar
er gert ráð fýrir fjórum lúgum
fyrir bflasölu ásamt inniað-
stöðu fyrir allt að 40 manns í
sæti. Fyrir utan er gert ráð fyr-
ir um 20 bflastæðum og er
áætlað að opna staðinn um
miðjan ágúst n.k.
Fjölmenn íbúðabyggð aldr-
aðra hefur verið að rísa við
Skúlagötu að undanfömu. íbú-
ar, sem rætt var við og búa á
austast í götunni, eru áhyggju-
fullir vegna þess ónæðis sem
þeir telja að fylgja muni þess-
um rekstri. Þá er ekki víst að 94
íbúðir aldraðra við Lindargötu
á vegum borgarinnar verði jafn
eftirsóttar og búist var við.
Hætt er við að mörgum öldr-
uðum íbúum á þessum slóðum
verði lítt svefnsamt um helgar
því fyrir er skemmtistaður í
götunni sem margir hafa oft
kvartað yfir. -HÞ
Ekkert lífsmark með for-
sætisráðherra í þyrlu-
kaupamálinu:
Ekkert
bólar á
efndunum
„Ég hef ekki orðið var við
nokkurt lífsmark með forsæt-
isráðherra í þessu máli,“ segir
Ingi Björa Albertsson viðvíkj-
andi „þyrlukaupamálinu" svo-
kölluðu.
Eins og kunnugt er óskaði
Ingi Bjöm eftir frestun á at-
kvæðagreiðslu um kaup á
björgunarþyrlu. Með því vildi
hann láta reyna á orð forsætis-
ráðherra um að ákvörðun um
kaup á björgunarþyrlu yrði
tekin innan nokkurra vikna.
Þetta var í febrúarmánuði.
„Mér sýnist að það sé farið að
líða vel á þær vikur og sá tími
sem gefinn var sé í raun úti.
Það fer að líða að því að at-
kvæði verði greidd um frum-
varpið. Ég býst við að það verði
eftir næstu viku,“ segir Ingi
Bjöm.
Hann bendir á að nú sé farið
að styttast í þinglok og því
verði atkvæðagreiðsla að fara
fram í tæka tíð. -HÞ
Rekstrartekjur Landsvirkjunar í
fyrra námu 5.966 milljónum og
rekstrarútgjöld 8.085 milljónum.
Vextir og afskriftir voru sem fyrr
stærstu gjaldaliðimir, alls 6.162
milljónir.
Þó að árið 1992 hafi verið Lands-
virkjun erfitt eru þó ljósir puríktar.
Rafmagnssala jókst þannig um
2,8% í fyrra miðað við árið 1991,
en rafmagnssala hafði minnkaði
árið 1990 og 1991. Söluaukningin
varð einungis hjá almenningsraf-
veitum, en sala til stóriðju dróst
eilítið saman. Landsvirkjun seldi
1.889 GWst til almenningsraf-
veitna fyrir 4.383 milljónir króna
og 2.125 GWst til stóriðju fyrir
1.544 milljónir.
Árið 1991 var hagnaður af rekstri
Landsvirkjunar 484 milljónir og
1.020 milljónir árið 1990. í fyrra
varð hins vegar 2.119 milljóna kr.
tap á rekstrinum. Ástæðan fyrir
verri afkomu er tvíþætt. Blöndu-
virkjun var að fullu tekin í rekstur
á árinu og voru heildarútgjöld
vegna hennar rúmlega 1.000
milljónir án þess að tekjuaukning
hafi komið á móti. Gengisþróun
var fyrirtækinu afar óhagstæð á
árinu.
Við 6% gengisfellingu í lok nóv-
ember jókst rekstrarkostnaður
Landsvirkjunar um 740 milljónir.
Gengisþróunin leiddi til þess að
Landsvirkjun þurfti að greiða
8,6% vexti í fyrra, en vextirnir
voru 3% árið 1991 og 5% að með-
altali á tímabilinu 1988-1992. Þá
er verð á rafmagni til stóriðju lágt
um þessar mundir vegna lágs verð
á áli og kísiljámi á heimsmarkaði.
Skuldir Landsvirkjunar vom
tæpir 47 milljarðar í árslok og
hækkuðu um 3,5 milljarða á ár-
inu. í árslok 1990 vom skuldir fyr-
irtækisins rúmar 39 milljarðar á
verðlagi þess árs.
Eigið fé Landsvirkjunar var rúm-
ar 27 milljarðar sem er 36,7% af
heildareign. Skuldir og eigið fé
vom samtals 74 milljarðar.
-EÓ
LÉST í SLYSI
Á JÖKULDAL
Maður um fertugt lést í fyrradag en ökumaður og annar farþegi
er jeppi valt niður í gil á Jökul- slösuðust lítillega. Óvíst er um
dal. tildrög slyssins en maðurinn
Maðurinn var farþegi í bflnum mun hafa kastast út úr bflnum.
DENNI DÆMALAUSI
\n
l j _ 1(q © NAS/Dislr. BULLS
„Kálfskinnshanskar? Væri ekki nær að kálfurinn fengi
sjáifur aö vera í sínu eigin skinni?“