Tíminn - 01.05.1993, Qupperneq 3
Laugardagur 1. maí 1993
Tíminn 3
Formaður nefndar heilbrigðisráðherra:
Skoðanir skipt-
ar um rekstrar-
lega ábyrgð
„Það hafa verið skiptar skoðanir um rekstrariega ábyrgð innan
hellbrígðiskerfisins. Þaö hefur hins vegar aldrei komið til umræðu
í þessari nefnd að setja aðra yflr hjúkrun en hjúkrunarfræöinga,"
segir Ingimar Sigurðsson, formaður nefndar sem vinnur aö endur-
skoðun laga um heilbrígöisþjónustu. Hann segir að nefndinni hafl
veríð fengið það hlutverk að kanna ákveðin mál. „Þar á ég Ld. við
verkaskiptingu milli framkvæmdastjóra, yfiríækna og hjúkrunar-
framkvæmdastjóra varðandi reksturinn," segir Inglmar.
Eins og kunnugt er telja hjúkrun-
arfræðingar tillögumar vera van-
virðingu við stöðu sína. Fram hefur
komið að í frumvarpsdrögum heil-
brigðisráðherra sé gert ráð fyrir því
að yfirlæknir hafi yfirumsjón með
starfssemi deildar og eigi að stuðla
að því að hún starfi á hagkvæman og
markvissan hátt. Þá skal forstöðu-
læknir vera yfirlæknir stofnunar-
innar allrar.
Ingimar segir nefndina hafa undir
höndum ýmiss konar vinnuplögg og
það sé greinilegt að eitthvað af því
hafi lekið út „Það er eitthvað sem
ekki er hægt að hrópa húrra fyrir,"
bætir hann við.
„Það hefur ekki komið til tals að
læknar fari að skipa fyrir um hvem-
ig eigi að framkvæma hjúkmn.
Abyrgð lækna og hjúkmnarfræð-
inga er annars vegar bundin f
læknalögum og hins vegar í hjúkr-
unarlögum. Við emm ekki að leggja
til neinar breytingar á þeim. Við er-
um eingöngu að fjalla um fram-
kvæmd heilbrigðisþjónustunnar
sjálfrar," segir Ingimar.
Um misjöfn völd heilbrigðisstétta
segir Ingimar: „Það er spuming
hvert sé vald læknis, framkvæmda-
stjóra, og hjúkmnarffamkvæmda-
stjóra. Þessir þættir mættu vera
miklu skýrari; það gefur auga leið.
Okkur er ætlað að taka á þessum
hlutum í lögunum og höfum fengið
fyrirmæli um að draga skýrar
markalínur. Það er ekki þar með
sagt að okkur sé ætlað, né heldur
munum við gera tillögur um, að
gera lækna eða einhverja aðra að yf-
irmönnum hjúkmnarfræðinga,"
segir Ingimar.
Því hefúr verið fleygt að það sé fyr-
ir áhrif lækna að hugað sé að skýrari
markalfnum milli heilbrigðisstétta.
„Ég hef ekki minnstu ástæðu til að
ætla það. Það var nauðsynlegt að lfta
á heilbrigðisþjónustulögin bæði út
af verkaskiptingunni og ýmiss konar
starfssemi," segir Ingimar og vísar
m.a. til flutnings á heilsugæslu frá
sveitarfélögum til ríkisins árið 1990.
Að lokum vill Ingimar ítreka að
þama sé eingöngu um skoðanir
nefndarinnar að ræða. „Það er mjög
sjaldgæft að ráðherra fari algerlega f
einu og öllu að tillögum nefnda,"
segir Ingimar.
-HÞ
Sigrún hvorki
æpti né orgaði
Allir
vorlaukar
með
afslætti meðan
birgðir endast
Fíkus 90 cm kr. 1.090,-
Fíkus 50 cm kr. 670,-
Drekatré 3 í potti kr. 990,-
Burknar kr. 398,-
Þykkblöðungar kr. 198,-
Tímanum hefúr borist eftirfarandi
yfiriýsing frá fulltrúum þriggja
starfsmannafélaga hjá Rfldsútvarpi
og Sjónvarpi:
„Kær og virtur starfsfélagi, Sigrún
Stefánsdóttir fréttamaður, hefur
verið borinn sökum um ósæmilega
framkomu á áhorfendapöllum Al-
þingis.
Undirritaðir sem vorum þar í stór-
um hópi vinnufélaga stóðum nærri
Sigrúnu. Hún hvorki stappaði, æpti
né orgaði. Hvorki í eitt skipti né
annað.
Meint lófatak hennar hefði ekki náð
að rjúfa kyrrð í hljóðum sal.“
Undir yfirlýsingu þessa rita:
Slgrún Stefánsdóttlr fróttamaður
Hákon Már Oddson SFS, Baldur Þ.
Jónasson SRÚ og Páll Sigurbjöms-
son RSÍ.
ÞÖRUNGAMJÖL
BÆTIR GARÐINN
• Umhverfisvænn áburður
• Ríkur af bætiefnum sjávar
%Bætir frjómagn jarðvegs
• Flýtir vexti plantna
QNotist með öðrum áburði
TILVALIÐ Í GARÐINN
ÞAR SEM GÆÐIN SITJA í FYRIRRÚMI
ÞÖRUNGAVERKSMIÐJAN
380 Reykhólum
Sími: 93-47740
SOLUADILAR
Blómaval
Gróðurvörur
ESSO bensínstöðvar
Olís bensínstöðvar
BYKO
Húsasmiðjan
Jórn og skip
Kaupfélag Arnesinga
Kaupfélag Borgfirðinga
KEA
Kaupfélag Skagfirðinga
og fleiri
HEILDSALA
Frjó hf. Heildverslun
Sími: 677860