Tíminn - 01.05.1993, Side 16
16 Tfminn
Laugardagur 1. maí 1993
Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki
árnaðaróskir á hátíðardegi verkalýðsins
WRE VFILL
LANDSVIRKJUN
Verkfræðistofan
FJARHITUN
Borgartúni 17
Bón og þvottastöðin
Sigtúni 3
68 55 22
Landssamband íslenskra
verslunarmanna
Hverfisgötu 105
SMURSTÖÐ
Stórahjalla 2 — Kópavogi
Félag íslenskra
hljómlistarmanna
Rauöageröi 27
MJÓLKURBÚ
FLÓAMANNA
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
VINNUEFTIRLiT RÍKISINS
Admlnlstratlon of occupatlonal aafaty and haalth
M PAGBÓK 1
Kvenfélag Óháöa safnaðarins
heldur fund n.k. þriðjudag kl. 20.30 f
Kirkjubæ. Gestir kvöldsins verða kvenfé-
lagskonur úr Langholtssókn.
Félag eldri borgara
Sunnudag: Bridskeppni, tvfmenningur,
kl. 13. Félagsvist kl. 14 í Risinu. Dansað í
Goðheimum kl. 20. Mánudag: Opið hús
kl. 13-17. Frjáls spilamennska.
Félag bókagerðarmanna:
Kvennaráöstefna
Kvennaráðstefna á vegum Félags bóka-
gerðarmanna verður haldin laugardag-
inn 8. maí kl. 14-17 f húsi FBM, Hverfis-
götu 21.
Á ráðstefnunni verða málefni, sem kon-
ur varða, s.s.: Staða kvenna innan FBM
— Konur í tíð atvinnuleysis — ímynd
kvenna á vinnumarkaði — Vinnan og
bömin okkar.
Gestir fúndarins verða Anna Jeppesen
kennari og Ingibjörg Guðmundsdóttir
uppeldisfraeðingur.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
Ath. að ráðstefnan er aðeins ætluð kon-
um.
Þar sem pláss er takmarkað, verður að
tilkynna þátttöku á skrifstofu félagsins
fyrir 6. maí.
Kjartan Guðjónsson
sýnir í Fold
Kjartan Guðjónsson sýnir teikningar og
gvassmyndir í Gallerí Fold dagana 1.-16.
maí.
Kjartan er fæddur árið 1921. Hann
stundaði myndlistamám við Art Insti-
tute of Chicago og telst til Septemhóps-
ins, sem ávallt hefúr vakið mikla athygli
hér á landi. Kjartan kenndi við Mynd-
lista- og handfðaskóla íslands f 25 ár.
Hann hefur haldið einkasýningar og tek-
ið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og
erlendis. Þá hefur hann myndskreytt
fjölda bóka og blaða og teiknað frímerki.
Opið er f Fold daglega 10-18, laugardag-
inn 1. maí kl. 10-17 og sunnudaginn 2.
maf kl. 13-17. Allar myndimar eru til
sölu.
Ráðstefna á Hvolsvelli:
Græöum ísland
Umhverfisnefnd Rótarý, Rotaryklúbbur
Rangæinga og Landgræðsla ríkisins
boða til ráðstefnu um landgræðslumál í
dag, laugardaginn 1. maí, í félagsheimil-
inu Hvoli á Hvolsvelli. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er „Grceðum ísland— Hvað
get ég gert?“.
Ráðstefnan hefst kl. 9.50. Meðal þeirra
sem flytja munu ávörp og framsöguræð-
ur eru Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra, Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri, Ómar Ragnarsson fréttamaður,
Andrés Amalds gróðuvemdarfulltrúi,
Hulda Valtýsdóttir blaðamaður, Jón R.
Hjálmarsson skólastjóri og Höskuldur
Jónsson, forseti Ferðafélags íslands.
Ráðstefnustjóri verður Friðjón Guðröð-
arson sýslumaður.
Ráðstefnunni lýkur um kl. 17.
Ráðstefhan er öllum opin.
Bandalag kvenna í Reykjavík:
Málþing á Hétel Loftleiöum
Bandalag kvenna í Reykjavík gengst fyrir
málþingi miðvikudaginn 5. maí n.k. að
Höfða, Hótel Loftleiðum. Umræðuefni
þingsins verður Atvinnusköpun kvenna.
Sjöfn Sigurbjömsdóttir, formaður BKR,
mun setja þingið og því næst flytur
Markús öm Antonsson borgarstjóri
ávarp. Stuttar framsögur munu hafa
þær Erla Þórðardóttir, Hansfna Einars-
dóttir, Lilja Mósesdóttir, Sigurbjörg Sig-
urgeirsdóttir, Ingveldur Ingólfsdóttir,
Margrét Pálmadóttir, Helga Thoroddsen
og Margrét S. Bjömsdóttir.
Fundarstjórar verða Ragna Bergmann
og Þórunn Sveinbjömsdóttir.
Léttur kvöldverður verður borinn fram.
Að honum loknum verður umræða í
hópum og niðurstöður úr henni því næst
kynntar.
Ráðstefnugjald er 1200 kr.
Nýmæli í starfi
Þjóðminjasafns íslands
Þjóðminjasafn íslands vekur athygli á því
að sýningartími á Þjóðminjasafninu við
Suðurgötu hefúr verið lengdur um eina
klukkustund hvem dag sem það er opið.
Verður safnið framvegis opið til kl. 17, en
ekki 16 eins og verið hefur.
Þá hefur verið tekin upp sú nýbreytni að
bjóða gestum að kaupa einn aðgöngu-
miða á söfnin þrjú sem Þjóðminjasafn ís-
lands rekun Þjóðminjasafnið við Suður-
götu, Lækningaminjasafhið í Nesstofu á
Seltjamamesi og Sjóminjasafn fslands í
Hafnarfirði. Aðgangur að hverju safni er
kr. 200 (ókeypis þó fyrir böm og ellilíf-
eyrisþega), en nú er einnig hægt að
kaupa einn miða á söfnin þrjú fyrir 300
kr.