Tíminn - 01.05.1993, Síða 21

Tíminn - 01.05.1993, Síða 21
Laugardagur 1. maí 1993 Tíminn 21 Böðuð í eigin blóði Jacqueline Kirkham fæddist í Par- ís og hafði ætíð borið blendnar til- finningar til Los Angeles eftir að hún fluttist til Bandaríkjanna. Hún var 43 ára gömul, hafði unun af sól- böðum og útiverum en þreyttist fljótt á menguðu lofti, ryki og há- vaða næst stærstu borgar Ameríku. Það sem henni þótti þó verst var hin háa glæpatíðni sem Los Ange- les er þekkt fyrir. Jackie hafði búið í París, Austurlöndum og víðar, áður en hún settist að í LA. en verst var ástandið þar. Til að halda sér í jafnvægi reyndi hún að komast sem oftast út úr borginni og hélt þá ýmist upp til fjalla í kyrrláta náttúruskoðun eða á ströndina. Glæpur um há- bjartan dag Þriðjudaginn 28 maí, 1991 var heitt í veðri og mengunarskýin lágu yfir borginni. Um síðdegið stökk Jackie inn í rauða Nissan 240SX sportbílinn sinn og stefndi í átt að ströndinni. Áætlunarstaður- inn var Malibu. Fyrst er keyrt yfir Santa Monica fjöllin og þegar kom- ið er til Malibu er enginn staður betri til seglbrettaiðkana en Jackie var mikill unnandi þeirrar íþróttar. Þennan dag ákvað hún að fara á Zuma ströndina sem er rólegra úti- vistarsvæði en mörg í nágrenninu, örlítið norðar en Malibu. Jackie lagði bfinum í hálfauðum bflastæðum strandarinnar og kom sér fyrir á kyrrlátri ströndinni í yndislegu veðri. Næstu klukkustundimar lá hún ótrufluð í hvítum sandinum til skiptis á milli þess sem hún lét öldufaldinn bera sig á brettinu. Klukkan 4 lokaði hún bókinni sem hún hafði gluggað í og gekk áleiðis til almenningssalemisins þar sem hún hugðist skipta um föt og halda síðan heimleiðis. Stuttu seinna gengu fúllorðin hjón í átt að salerninu. Er þau nálg- uðust, birtist skyndilega alblóðug kona, sem skjögraði út og féll síðan á sandinn fyrir framan þau. Föt hennar voru rifin og sást varla í andlitið fyrir blóði. T\im strand- varðarins var skammt ffá þeim. Hjónin höfðu samstundis samband við hann og hann kom fekmtri sleg- inn hlaupandi á vettvang. Er hann kom að liggjandi konunni hélt hún um síðuna og blóð gusaðist út á milli fingra hennar. Þegar sjúkrabfllinn kom var Jackie enn á lífi. Þeir reyndu að stöðva blóðrásina og báru hana varlega upp í bflinn. Fulltrúi lögregluforingja mætti fljótlega á staðinn ásamt yfirmanni sínum. Þeim bættist síðar liðsauki og baðhúsið var girt af. Hin fymim kyrrláta strönd fylltist af fólki, for- vitnum óbreyttum borgurum, rannsóknarmönnum og blaða- mönnum og öðm fjölmiðlafólki sem sáu glæpinn sem „stórfrétt“. öldruðu hjónin voru yfirheyrð en höfðu lítið að segja. „Hún bara kastaðist út um dymar og hné nið- ur,“ sagði konan og var mjög brugðið. Baðherbergið var ópersónuleg fer- köntuð bygging steynsteypt með sex klefúm. Ein af hurðunum hafði verið brotin upp og við átökin hafði dyrakarmurinn gefið sig. Rann- sóknarmenn lögreglumenn fundu brotna nögl, eymalokk úr vinstra eyra fómarlambsins og blóðbletti á veggnum gegnt klefunum. Jackie var flutt með hraða á nær- liggjandi sjúkrahús og flutt á bráðamóttökudeild. Hún var mjög illa haldin vegna stungusára og blóðleysis þeim sam- fara. Baðvörðurinn sagði að hann kann- aðist ekki við hana og sömu sögu sögðu aðreir sem vom spurðir á ströndinni. Jacqueline hafði átt notalegt síðdegi á ströndinni en dag- urinn breyttist í martröð þegar hún skrapp á salernið til að hafa fataskipti. Þar biðu hennar tveir örvæntingar- fullir unglingar sem ákváðu örlög henn- ar fyrir það eitt að þá vantaði bílfar. Bakgrunnurínn Lögreglan stóð ráðþrota þar sem engar upplýsingar lágu fyrir um nafn eða annað á fómarlambinu, þegar kona kom með miða og sagð- ist hafa séð bfl yfirgefa ströndina á mikilli ferð á svipuðum tíma og ráðist var á Jackie. Hún hafði náð að skrifa niður skráningamúmer biffeiðarinnar og sagði að hann væri rauður að lit Það kom fljótt í ljós í gegnum tölvukerfi bifreiðalögreglunnar að bfllinn tilheyrði Jacqueline Kirk- ham, 43 Northridge, LA Þegar var haldið til heimilis hennar og bank- að upp á kom maður á fimmtugs- aldri til dyra. „Þekkir þú Jacqueline Kirkham," spurði lögreglan. ,dá, það er kærastan mín,“ svaraði maðurinn áhyggjufullur. Jackie vann hjá snyrtiuvömfyrir- tæki. Hún hafði tekið sér frí eftir hádegið til að fara á ströndina sagði kærastinn. „Hvers vegna emð þið að spyrja mig um hana?“ „Það er eitthvað mikið að, eitthvað mikið að,“ svaraði lögreglumaður- inn. Á meðan þessu fór fram hafði Jackie fallið í dá. Um tíuleytið um kvöldið lést hún af völdum sára sinna, án þess að komast til meðvit- undar. Dánarorsök var gífurlegt blóðtap vegna fjölmargra stungus- ára á líkama hennar. Að þessi hræðilegi glæpur skyldi framinn á opinberum vettvangi um hábjartan dag kom mjög illa við lögreglu og íbúa borgarinnar. Þrátt fyrir glæpatíðnina höfðu menn tal- ið sig óhulta yfir hábjartan daginn ekki síst á kyrrlátum baðströndum, Qarri ys og þys miðborgarinnar. Síðar varð saga Jacqueline Kirk- ham tákn á meðal íbúa um allt það sem væri að í samfélagi nútímans. Þegar vinnustaður Jackies var heimsóttur kom í ljós að hún hafði verið annað og meira en nafn á launaskrá fyrirtækisins. Hún var harðdugleg og áhugasöm, var vel launuð í samræmi við það og hafði ætíð vakið athygli, hvort sem var á meðal kúnna eða samstarfsmanna fyrir fágaða en hressilega ffarn- komu og vandaðan klæðaburð. Ekki vissi starfsfólkið til að hún hefði átt nokkra óvini. Sambýlismaðirinn hennar tjáði lögreglunnni að hann hefði kynnst henni fyrir fjórum árum í Ástralíu, þar sem Jackie starfaði tímabundið. Hann var rithöfundur og samband þeirra hafði verið gott frá fyrstu stundu. Hann skýrði lögregluunni ffá að í Jackie hefði heilbrigð sál í hraustum líkama þrifist, útivera og íþróttir hefðu verið megináhuga- málið og strandferðirnar nauðsyn- legar á dögum sem þessum. Hún hafði sagt honum að á ströndinni liði henni eins og allt væri hægt og þá kom á kaldhæðinn máta á dag- inn að allt getur gerst á ströndinni. „Ógeöfelldir náungar" Lögreglan hafði ekki á mörgu að byggja í upphafi rannsóknarinnar. Þrjár konur frá Kansas sem voru í heimsókn í Norður Hollywood sögðu lögreglunni þó að þær hefðu verið á Zuma ströndinni þennan dag og tekið eftir tveim ungum, „verulega ógeðfelldum náungum." Þeir höfðu hengslast um svæðið og atyrt þær m.a. og þeim hafði staðið stuggur af návist þeirra. Þær lýstu þeim sem dökkhærðum drengjum á táningsaldri, stuttklipptum í „baggíbuxum" og hvítum stutt- erma bolum. Þeir voru illa til fara og þeim virtist lfldegast að þeir svæfú á ströndinni. Lögreglan fékk um svipað leyti Jacqueline Kirkham. ábendingar í kjölfar gífúrlega sterkrar íjölmiðladreifingar frá fólki sem einnig hafði tekið eftir þessum tveimur drengjum og lýs- ingin passaði í meginatriðum. Eig- andi pizzustaðar í nágrenninu sagði að hann hefðu séð til þeirra sama morgun og Jackie var drepin og þá hefðu þeir skolfið eins og þeir hefðu ekki fengið neitt að borða og væru jafnvel með fráhvarfseinkenni eftir áfengis- eða lyfjaneyslu. Er hann gaf sig af vorkunnarsemi á tal við þá hafði annar sagt að þeir hefðu ekki borðað neitt í þrjá daga. Hann hafði séð aumur á þeim og gefið þeim rótarbjór og pizzusneið. Maturinn hafði losað um málbein- ið á drengjunum. Þeir sögðust vera frá Arizona og hefðust við á nótt- inni í almenningssalernum sem stæðu opin yfir nóttina. Bíllinn finnst Eftir lýsingu veitingamannsins var teiknuð mynd af unglingspiltunum tveimur og þeir eftirlýstir. 5 júní fann lögreglan bfl fómarlambsins. Hann fannst í nágrenni Santa Fe og hafði sýnilega verið keyrt út af hraðbraut á mikilli ferð. Ökumaður virtist hafa misst stjóm á bflnum með þeim afleiðingum að hann kastaðist á tré og valt síðan eina veltu. Enginn var í bflnum þegar hann fannst og engin vitni að slys- inu. Teikningarnar af drengjunum voru samstundis birtar á því svæði sem bflliin fannst og ekki leið á löngu uns fyrsta ábendingin kom. Maður hringdi og hóf símtalið við lögregluna á þeim orðum að hann héldi sig vita hverjir morðingjamir væru. Á fundi hans og lögreglunnar kom fljós að bflstjórinn hét Tony Dominguez, 18 ára gamall. Hann þekkti til fortíðar hans og vissi að Tony ætti ekki einu sinni peninga til að kaupa sér „taco“ þannig að hann hefði fljótt ályktað að bfllinn væri illa fenginn. Hann hafði hins vegar ekkert ætlað að skipta sér af málinu þangað til hann heyrði að maðurinn á teikningunni sem svip- aði mjög til Tonys, væri eftirlýstur fyrir morð. „Bflþjófnaður er bara þjófnaður, en morð er annar hand- leggur," sagði heimildarmaðurinn síðan. Hann sagði ennfremur að Tony væri vandræðagripur en góð- ur drengur innst inn við beinið. Hann vissi til að hann hafði nokkr- um sinnum komist í kast við lögin en þar var aðeins um smáglæpi að ræða. Félaga hans þekkti hann eki með nafni en sagði að þeir tveir væru saman flestum stundum og hefðu miður góð áhrif hvor á ann- an. Óvænt játning Löggreglan fékk aðsetur Tonys og viti menn þar sat hann ásamt félaga sínum reykjandi jónu. Lögreglan hafði ekki neinar beinar sannanir til að byggja á og varla nóg til að krefjast gæsluvarðhalds yfir félög- unum en félagi Tonys, Bustos 16 ára gamall, viðurkenndi þegar að hafa framið glæpinn ásamt Tony. Þeir höfði farið til LA í leit að tækifærum. Erfiðlega gekk að fá vinnu og eftir nokkra daga voru þeir aðframkomnir af næringar- skorti og svefnleysi. Þá ákváðu þeir að fara til Zuma Beach. Þar höfðu þeir dvalist í þrjá sólarhringa áður en hinn örlagaríki dagur rann upp. Þá var þeim orðið Ijóst að engin framtíð biði þeirra þar og ákváðu að fara til Kaliforníu. Til þess þurftu þeir bifreið þar sem þeir áttu engan pening fyrir rútufargjaldi og nötur- legt ástand þeirra var ekki hvetj- andi fyrir þá sem taka puttalinga. Þeir voru að ræða hvemig þeir gætu stolið bfl til að komast til Kalifomíu þegar Jacqueline Kirk- ham renndi upp að bflastæðinu á Zuma Beach. Samstundis var fóm- arlambið ákveðið. Þeir eltu hana inn á salemið þegar stundin rann upp og ætluðu að yfirbuga hana og stela veskinu hennar og bfllyklun- um. En hún kom þeim á óvart með kröftugri mótspymu. Bustos hafði ætlað að hörfa frá þegar Tony dró upp hníf sem hann hafði í slíðri og stakk konuna f hægra nýrað. Hún öskraði og féll í keng og þá dró hann hnífinn út og stakk hana aft- ur. Bustos sagði að áður en hann hefði staðar numið hefði hann alla vega verið búinn að veita henni 5 stungusár. Eftir þetta hlupu þeir út og tóku bílinn hennar traustataki. í u.þ.b. 100 km fjarlægð frá Zuma fóm þeir í skartgripaverslun og reyndu að skipta skartgripum fórnarlambsins fyrir reiðufé. Þar var þeim vísað frá vegna þess hve ungir þeir vom. Þegar leið á gengu peningamir til þurrðar og þegar Tony keyrði út af f nágrenni við Santa Fe var lítið bensín á bílnum og skotsilfur þeirra uppurið. Þar höfðu þeir hafst við nokkra stund er þeir vom hand- teknir. Dómurínn Piltamir tveir vom báðir ákærðir fyrir morð af 1. gráðu en enn hafði ekkert morðvopn fundist Tony við- urkenndi ekkert og sagðist vera saklaus. Það var ekki fyrr en mörgum vik- um seinna sem hnífúrinn fannst hjá félaga Tonys og það sem merki- legra var að hann hafði ekki verið þveginn frá því að morðið átti sér stað og enn mátti greina fingraför Tonys á skeftinu. Þrátt fyrir samvinnu við lögregl- una og og líkurnar á því að Bustos hefði aldrei ætlað sér að ffarnja morð, fékk hann lífstíðarfangelsi en með þokkalegan möguleika á náð- un eftir 15 ár. Tony hins vegar var heppinn að sleppa við dauðarefsinguna og ljóst er að hann mun ekki finna sér fleiri fómarlömb. Tony Dominguez var 18 ára gamall þegar Bustos var fundinn meösekur fyrir moröiö hann breytti sólríkri sandströnd í blóðugan vígvöll. á Jackie.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.