Tíminn - 15.05.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.05.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. maí 1993 Tfminn 3 Lifir ríkisstjórnin af ný átök um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál í haust? Þreyta í stjórnarsamstarfinu Vonbrígði - deilur - þreyta. Þetta eru þau orð sem margir telja að lýsi best stöðu ríkisstjómar Davíðs Óddssonar sem nýlega varð tveggja ára. Vonbrígðin lýsa sór f þvf að henni hefur mistekist í þeim þremur málum sem ríkisstjómin var mynduð um þ.e. flár- Íagahallanum, EES og álversmáli. Deilur milli ráðherra í ríkisstjóm- Inni verða sífellt háværarí og djúpstæðarí. Almennt má segja að það ríki þreyta á stjómarheimiiinu. Þjóöin virðist einnlg vera þreytt á ríkisstjóminni ef marka má skoðanakannanir. Nú þegar ljóst er að þessi ríkis- stjóm nær ekki að skila hallalausum fjárlögum, nær ekki að semja um ál- ver og fullkomin óvissa er um hvort EES-samningurinn tekur giidi á stjómartíma hennar, spyrja menn sig hvað hefur áunnisL Fátt er um svör. Hrafn Gunnlaugsson er að vísu orðinn framkvæmdastjóri Sjón- varpsins en atvinnuleysi hefur auk- isL skattar hafa hækkað og staða at- vinnulífsins veiksL Almenn þreyta virðist hafa gripið um sig innan stjómarliðsins og því telja margir að gott væri fyrir ríkis- stjómina að hún fengi nýja ásýnd með breytingum á ráðherraskipan- inni. Fátt bendir tii að það verði nið- urstaðan. Karl Steinar Guðnason mun að vísu verða ráðherra í stað- inn fyrir Jón Sigurðsson eftir fáeinar vikur. Tilraunir Jóns Baldvins Hannibalssonar til að koma fram einhveijum meiriháttar breytingum á stjóminni hafa mistekist og raun- ar aðeins orðið til þess að veikja rík- isstjómina að því er Þorsteinn Páls- son segir. Þorsteinn segir tilraunir Jóns Baldvins til að ná til sín sjávar- útvegsráðuneytinu broslegar. Ráðherrar deila og samheldni minnkar Þessi þreyta í ríkisstjóminni birtist ekki einungis með þeim hætti að mál hennar nái ekki fram að ganga eins og nú síðast frumvarp um stjóm fiskveiða og breyting á bú- vömlögum. Samskiptin milli ein- stakra ráðherra em einnig stirð. Samstarf Davíðs Oddssonar og Þor- steins Pálssonar hefur verið erfitt allt frá því þeir tókust á um for- mannssætið í Sjálfstæðisfiokknum. Samskipti Jóns Baldvins Hannibals- sonar og Þorsteins em einnig ekki eins og best er á kosið og kemur þar bæði til efnislegur ágreiningur um stefnuna í sjávarútvegsmálum og sárindi frá því ríkisstjóm Þorsteins féll haustið 1988. Stirt er einnig á milli Jóns Baldvins og Halldórs Blöndals út af ágreiningi um land- búnaðarmál. Heimildarmenn Tímans segja að þessi stirðu persónulegu samskipti geti orðið ríkisstjóminni erfið ekki síst ef samskiptin haldi áfram að versna. Ríkisstjómarsamstarf bygg- ist ekki síst á trausti milli forystu- manna hennar. Hér reynir að sjálf- sögðu mikið á hæfileika forsætisráð- herrans til að leiða ríkisstjómina og sætta málefnalegan og persónuleg- an ágreining innan hennar. Á þenn- an hæfileika mun reyna síðar á ár- inu þegar ný tilraun verður gerð til að ná sáttum um tvö ágreiningsmál sem hátt hefur borið síðustu vikum- ar, landbúnaðar- og sjávarútvegs- mál. Reynt að mynda nýj- an meirihluta á Al- þingi í landbúnaðar- málum Ágreiningsmálin milli stjómar- flokkanna og í þeim innbyrðis eru mörg. Síðasta stóra deilumálið er landbúnaðarstefnan. Jón Baldvin hefur sagt að um tíma hafi litið út fyrir að málið leiddi til stjómarslita. Hann hefúr jafnframt sagt að málið sé í reynd smámál og snúist um inn- flutning á nokkrum blómategund- um. Halldór Blöndal landbúnaðar- ráðherra er ekki sömu skoðunar og bendir á að verið sé að marka stefnu sem komi til með að ráða þegar GATT-samningamir takasL Eðlilegt sé að landbúnaðarráðherra hafi eitt- hvað um það að segja hvort jöfnun- argjöld verði Iögð á innfluttar land- búnaðarvömr. Þessari deilu var sem kunnugt er slegið á ffest til hausts. Fátt bendir til að meiri líkur séu á samkomulagi þá. Egill Jónsson, formaður land- búnaðamefndar, hefur sagt að hann hyggist flytja málið sjálfur f haust því að ríkisstjómin hafi sýnt að hún sé ófær um að leiða það til lykta. Samkvæmt heimildum Tímans em fjármálaráðherra og ráðherrar Al- þýðuflokks mjög óánægðir með þessar yfirlýsingar Egils og benda á að hann sé með þessu að mynda meirihluta á Alþingi með stjómar- andstöðunni í málinu, eins og reyndar hann og landbúnaðarráð- herra hafi gert skömmu fyrir þing- lok þegar fulltrúar stjómar og stjómarandstöðu í landbúnaðar- nefnd lögðu fram sameiginlega breytingartillögu við búvömlaga- fmmvarpið. Tímasprengja tifar í sjávarútvegsmálum Annað deilumál er ágreiningurinn SÆ NGURFATAVERSLUN NÝ SENDING AF SILKIDAMASK- OG SATÍNRÚMFATNAÐI T1LVAUÐ TIL BRÚÐAR- OG TÆKIFÆRISGJAFA Mikið úrval af vöggusettum og bamarúmfatnaði í fallegum mynstrum. Einnig sængur, koddar, teygjulök, handklæði o.m.fL Saumum teygjulök eftir máli. Merkjum stafi (rúmföt og handklæði. PÓSTSENDINGAÞJÓNUSTA Oplð vfrka daga frá Id. 10-18 og laugardaga frá Id. 10-14. NJALSGATA 86 - SÍMI 20978 Þafl mun reyna mlklð á Davfð Odds- son forsætlsráðherra f sumar og haust í sjávarútvegsmálum. Fýrirsjáanleg em hörð átök innan nidsstjómar- innar í sumar um hvað eigi að leyfa mikinn þorskkvóta á næsta fisk- veiðiári. Hörð átök urðu um þetta í fyrrasumar, ekki síst milli Þorsteins Pálssonar og Davíðs Oddssonar. Davíð hefúr þegar lýst því yfir að hann telji útilokað að draga meira úr þorskveiði en orðið sé, en Þor- steinn hefur sagst vilja fara eftir til- lögum fiskifræðinga. í loftinu liggur að fiskifræðingar leggi til að þorsk- veiðin verði minnkuð úr 205 þús- und Iestum f 170-180 þúsund lestir. Ríkisstjómin neyddist til að leggja frumvarp um stjóm fiskveiða til hliðar í vor vegna ágreinings. Sá ágreiningur er óleystur og í sjálfu sér er ekki margt sem bendir til að ágreiningurinn verði minni í haust en hann var í vor. Það mál sem gæti þó orðið ríkis- stjóminni einna erfiðast er halla- rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna vítt og breitt um Iandið. Staða fyrir- tækjanna í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar var slæm á síðasta ári eins og ársuppgjör þeirra gefa til kynna. Flest bendir til að staðan sé að versna og eigi eftir að versna enn þegar líður á áríð. Fátt bendir til að ríkisstjómin ætli að bregðast við þessu á næstunni. Davíð hefur raun- ar sagt að stjómin muni skoða þessi mál í haust þegar búið sé að taka ákvörðun um veiðiheimildir á næsta fiskveiðiári. Innan stjómarliðsins heyrast þær raddir að ríkisstjómin geri aðeins vandann erfiðari með því að fresta að taka á honum. Sífellt fleiri forystumenn í atvinnu- lífi kalla eftir aðgerðum af einhverj- um toga. Margir búast við að þessar kröfur verði enn háværari síðar á ár- inu þegar fyrirtækin hafa lokið gerð sex og níu mánaða uppgjörs yfir rekstur sinn. óvíst er hvort sam- staða verður innan ríkisstjómarinn- ar í haust um hvemig eigi að svara þessum kröfum eða hvort hún kemst upp með það að svara þeim ekki. Eins og sjá má af því sem að fram- an er rakið em mörg erfið mál fram- undan hjá ríkisstjóminni. Skoðanir manna em eðlilega skiptar um það hvort henni muni takast að leysa þessi mál. Spurningin um hvort rík- isstjómin muni springa snýst ekki einvörðungu um hvort hún nær samkomulagi um að leyfa veiðar á 180 þúsund tonnum af þorski eða 200 eða hvort hún nær samkomu- lagi um búvömlögin. Spumingin snýst ekki síður um hvort traustið og samheldnin innan hennar bilar í þeim átökum sem framundan em. Lindab Þakkiæöningar, rennur Og nÍÖUrfÖII. Leiti6 Hlboða! BLIKKSMIÐJAN ffl-KNIOfcll.D tUffh SMIÐSHÖFÐA9 112 REYK4AVÍK SÍMI68 56 99 Með hverjum nýjum Subaru fylgir 10 daga spennandi sumarfrí fyrir tvo á íslandi ■iiotéi Tilboðið giidir því aðeins að Subaru Legacy 2,0 4WD sé keyptur fyrir 17. júní 1993. Hafið samband við sölumenn okkar Sýningar um helgina frá kl. 14-17 Sig. Valdimarssyni Akureyri Bílakringlunni Keflavík Sævarhöfða 2 Reykjavík i»gvar ^ HeípaKKMi iSt, Sævarhöföi 2,112 Reykjavik Síml 674000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.