Tíminn - 15.05.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.05.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 15. maí 1993 --------------------------------\ ÚTBOÐ Norðurlandsvegur í Langadal 1993 Vegagerö ríkisins óskar eflir tilboðum I lagningu 2,0 km kafla á Noröurfandsvegi f Langadal. Magn: 8.000 m3. Verki skal lokiö 5. júlf 1993. Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins á Sauöárkróki og f Borgartúni 5, Reykjavfk (aö- algjaldkera), frá og meö 17. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrír kl. 14:00 þann l.júnf 1993. Vegamálastjóri Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. borgarverkfræðingsins f Reykjavík, óskar eftir tilboðum í 100.000 birkiplöntur til afhend- ingar á næsta ári. Útboðslýsing verður afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík. Varnarmálaráðherrann vill leggja niður hlerunarstöðvar Rússa, en þeir hafa heimild fyrri ríkisstjórnar og geta hier- að alla síma. Eistneskur njósnari náði þessari mynd af hlerunartækjunum inni I njósnamiðstöðinni. (RC/Pressens Biid) Vamarmálaráðherra Eistlands heitir á vestræn ríki um aðstoð í varnarmálum. Telur Eystrasaltsríkjum ógnað af ofstækisfullum stríðsherrum í austri: Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 2. júní 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í byggingu millibyggingar við leikskólann að Suðurhólum — Hólaborg. Um er að ræða að fjarlægja eldri millibyggingu og byggja aðra stærri. Eldri millibyggingin er með steyptu þaki og timburveggj- um og er um 14,2 m2. Nýja byggingin er öll úr timbri og er um 60,0 m2 og um 165,6 m\ Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík, frá hádegi þriöjudaginn 18. maí gegn 20.000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1. júnf 1993 kl. 11.00. AVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðhald á Skúlagötu 64- 80. Helstu verkliðir eru endursteypa á svölum og endursteining á suöurhliö, 2.100 m2. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavfk, frá og með þriðjudeginum 18. maí gegn 15.000 króna skilatryggingu. Tllboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. júnf 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðhald pfpulagna f tíu skólum og dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík gegn 5000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 9. júní 1993 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Lýðræðisþróun í Rússlandi forsenda þess að við lifum „Ég hef fengið upphringingu heim til mín um miðja nóttfrá leppi rússneskra hermanna sem falbauð fjögur Stinger-flugskeyti, en þeim höfðu þeir stolið. Okkur er á móti skapi að ala slíkan söfn- uð, en við eigum ekki annarra kosta völ, því að flaugarnar voru boðnar á vildarkjörum, og ef við kaupum þær ekki, eiga glæpa- hringir í Eistlandi kost á að eignast þær. Með slík flugskeyti í höndunum gætu þeir auðveldlega gert ríkisstjórn Eistlands ým- iss konar tilboð, sem ekki er unnt að hafna.“ Varnarmálaráðherra Eistlands, Hain Rebas, 50 ára, hefur orðið. Hann er fæddur í Tallinborg árið 1943, meðan á hernámi nasista stóð, en hefur búið nær alla ævi sína f Svíþjóð. Þangað flúði fjöl- skylda hans undan rússnesku inn- rásarliði í lok ársins 1944. Rebas er prófessor í norrænni sagnfræði við háskólann í Kiel. Doktorsritgerð hans fjallaði um verslunarleiðir um Eystrasalt. Hann er auk þess höfuðsmaður í merkjasendingarsveitum sænska varnarliðsins. Áður tók hann þátt í starfi eist- neskra útlaga í Svíþjóð; í fyrra gerðist hann æðsti yfirmaður varn- armála í réttkjörinni ríkisstjórn hins sjálfstæða Eistlands. Fjöl- skylda hans býr þó enn í Gauta- borg. ísland ruddi brautina „Stuðningur íslands við sjálfstæð- isbaráttu okkar mun ekki gleym- ast,“ segir Hain Rebas. „Ríkisstjórn íslands ruddi brautina. Önnur vest- ræn ríki fylgdu á eftir.“ Varnarmálaráðuneytið er í hrör- legu húsi í gamla borgarhlutanum í Tallin, skammt frá þeim stað þar sem KGB hafði höfuðstöðvar sínar áður. „Ráðuneytið var endurreist í fyrrasumar. Því er ætlað að mynda nýjar hervarnir. Hugmyndin er að vel menntaðir og stefnufastir her- menn fæli hugsanlegt frávillt hern- aðarfólk í Moskvu frá því að eggja hryðjuverkahópa sína til árásar." — Ykkur stafar auðvitað ógn af Rússlandi... „Þannig orða ég það aldrei." Rebas svarar skyndilega og með þunga. „Ógnin felst f ofstækisfullum stríðsherrum, sem ættu það til að hlaupa út undan sér, hvort sem þeir eru rússneskir þjóðernissinnar eða kommúnistar. Við höfum ekkert á móti lýðræðislegu Rússlandi undir stjórn Jeltsíns í þeirri mynd, sem hann vill hafa á því. Við aðhyllumst sjálfir vestrænar lýðræðisreglur og markaðskerfi og stöndum í sífelldu þrasi við gömlu afturhaldsskarfana. Viðtal Þór Jónsson, Svíþjóð En við höfum verið fullir kvíða vegna þróunarinnar í Rússlandi og lítum alvarlegum augum á ávinn- inga öfgafullra hópa þar í landi. Sovétfræðingar telja að andlýð- ræðisleg öfl í Rússlandi losni fljót- lega úr læðingi, ef Jeltsín tapar völdum. Otto von Habsburg spáir að í kjölfarið kæmi stríð milli fýlk- inga Rússa og Múhameðstrúar- manna í suðri og ný innrás í Eystrasaltsríkin. Ógnin við lýðræð- ið í þessum löndum er sannarlega áþreifanleg. Áhrifamenn á Vesturlöndum og í Eystrasaltsríkjunum verða að taka höndum saman við rússneska lýð- ræðissinna og aðlaga Rússland að evrópskum háttum. Að öðrum kosti er úti um Eystrasaltsríkin." Innrás að nóttu Rebas færir frekari rök fyrir máli sínu. Honum hefur tekist að verða sér úti um nákvæma áætlun um hvernig ráðist yrði á Tállin. Það eru áform, sem sett voru á blað í tengslum við valdaránstilraunina í Sovétríkjunum sumarið 1991. „Spetsnazsveitirnar, sem nú eru staðsettar í Pskov, rúmum kíló- metra utan landamæra Eistlands, ráðast inn í höfuðborgina að nóttu og myrða nokkra tugi eistneskra stjórnmálamanna. Lífi einhvers þeirra verður þyrmt, svo að unnt sé að leiða hann fyrir sjónvarpsvélarn- ar. Svo streymir innrásarliðið inn í landið.“ Varnarmálaráðherrann leggur áherslu á að varnir Eystrasaltsríkj-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.