Tíminn - 15.05.1993, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. maí 1993
Tíminn 7
anna séu jafnframt fremstu varnir
Vesturlanda. Bent hefur verið á að
ekki sé einvörðungu haetta á her-
hlaupi, heldur ef til vill stjórnlaus-
um flótta margra milljóna Rússa, ef
efnahagslegar eða pólitískar að-
stæður versna. Þess vegna sé það
ekki síst í þágu Vesturlanda að her-
lið og landamæragæsla Eystrasalts-
ríkjanna sé starfi sínu vaxin.
„Við þörfnumst aðstoðar, bæði
efnahagslegrar og hertæknilegrar.
Við höfum leitað til þeirra landa,
sem við teljum að standi okkur
næst: Norðurlanda, öðrum fremur
Svíþjóðar og Finnlands — en einn-
ig til Þýskalands, Frakklands, Bret-
lands og Bandaríkjanna. Vissulega
njótum við nokkurrar aðstoðar á
þessu sviði. Við höfum fengið ýmis
flutnings- og samgöngutæki, bún-
inga og námskeið, að ógleymdum
hljóðfærum fyrir herlúðrasveit. En
engin vopn.“
Norðmenn gáfu skíðaskó, sem
notaðir eru sem gönguskór. Frakk-
ar gáfu eyðimerkurbúninga út-
lendingahersveitarinnar, Svíar
óvopnaðan strandgæslubát. Síðast-
liðið sumar bjó eistneski herinn
einungis yfir 250 skotvopnum."
Ásælist aldargömul
vopn
„Ég hef til dæmis boðist til að losa
sænska herinn við ýmsar umfram-
birgðir af herbúnaði, svo sem riffla
frá því fyrir fyrri heimsstyrjöld,
sem væru upplagðir til skotæfínga.
Fyrir seinna stríð voru Eistlending-
ar margfaldir heimsmeistarar í
skotfimi. Sá hæfileiki er varla fyrir
hendi lengur. Nú á að méla þessi
vopn í Svíþjóð.
Svíar gætu auðveldlega gefið af
miklum umframbirgðum sínum al-
búnað fyrir heilt fótgöngulið og
þrjár eða fjórar herdeildarstöðvar,
án þess að muna um það sjálfa. En
sænsk stjórnvöld eru ekki til við-
ræðu um slíkt.“
Á meðan Vesturlönd veigra sér við
að hjálpa Eistlendingum að búa her
sinn vopnum, neyðast þeir til að
klípa af fátæklegum þjóðartekjum
sínum til kaupa á dýrum hergögn-
um.
„Að sjálfsögðu vildum við heldur
verja þessu fé til skóla, sjúkrastofn-
ana og ellilífeyris — ef við bara
þyrðum...
Á meðan skáka alþjóðlegir her-
mangarar og hreinræktaðir glæpa-
flokkar í því skjóli."
„Við fáum samt vopn mjög bráð-
lega,“ segir Rebas, en vill ekki gefa
upplýsingar um hvaðan þau berast.
^Allt of margir myndu vilja spilla
því.“
Hann staðfestir að hafa rætt við
stjómir ísraels, Kína, Suður- Afr-
íku, Póllands og Ungverjalands.
„Við setjum ekkert fyrir okkur í
þessum efnum.“
Við skulum verja
landið
— Hvemig verða varairaar
skipulagðar? Mun lítill eistneskur
her nokkura tímann geta varið
landið?
„Við ætlum okkur að verja það.
Vitaskuld vonumst við eftir aðstoð
Vesturlanda, ekki aðeins í orði
heldur einnig á borði. Við reiknum
heldur ekki með allsherjarárás frá
stórri grannþjóð.
Ætlunin er að vígbúa fjögur her-
fylki með alls 2000 hermönnum.
Við munum útvega þeim létt og
meðfærileg, en engu að síður öflug
vopn og vígskeyti. Þeir eiga að vera
reiðubúnir að ráðast á óvinina í fá-
mennum hópum og hrista ærlega
upp í þeim. Auk þess verða 2000
manna vopnuð gæslusveit á landa-
mærunum og 6000 manns í heima-
vamarliðinu, sem læra skæruhem-
að. Við verðum að taka mið af því
að þetta er lítið land.“
Lítið land, sem í hálfa öld hefur
orðið að lúta sovéskri stjórn og ber
þess merki á flestum sviðum. Ekki
er óalgengt að mæta sovéskum
hermönnum á götu. Um það bil
7000 eru enn eftir í landinu, auk
rúmlega 9000 yfirmanna úr hem-
um, sem em á eftirlaunum og eist-
Hain Rebas, umdeildur varnarmálaráðherra Eistlands.
þjóða okkar."
Rússneski herinn hefur að mikl-
um hluta verið fluttur á brott, en
hann hefur skilið eftir sig gríðar-
mikinn búnað, sem ekkert eftirlit
er haft með. í úthverfum Tállin er
að finna 7500 tonn af sprengikúl-
um fyrir stórskotalið, en þær eru
fyrir hlaupvídd, sem ekki hentar
eistneska hernum. Þá má nefna
ómældar birgðir af baneitruðu eld-
flaugaeldsneyti og 2000 tundurdufl
á eynni Naissar norður af höfuð-
borginni.
„Rússarnir skildu við þetta í al-
gerri óreiðu. í skógunum lágu
vopn og skotfæri eins og hráviði. í
þessu fólst ákveðin ögrun. Ég varð
að heimila 164 rússneskum her-
mönnum að koma til landsins og
flytja sumt af þessum búnaði burt,
en þá kviknaði heldur betur í and-
stæðingum mínum á þinginu."
Svæsnar deilur
Óhætt er að útnefna Hain Rebas
einhvern umdeildasta ráðherra rík-
isstjórnarinnar. Hann á í stöðugum
útistöðum við „gömlu skarfana",
sem láta einskis ófreistað til að
gagnrýna hann og „níða af mér
skóinn".
„Ég komst ekki sérlega hátt á vin-
sældalistanum í síðustu skoðana-
könnun." seöir hann oö hlær. En á
hitt ber að líta, að þeir menn, sem
koma best út, eru ekki virkir þátt-
takendur í stjómmálunum. Það
segir ýmislegt um þá, sem spurðir
eru álits."
Grimmasti andstæðingur Rebas á
þinginu er sennilega gamall ofursti
úr bandaríska hernum, sem heitir
Toompuu, stríðskempa frá Víet-
nam, sem hefur m.a. sakað Rebas
um „þjófnað á almannafé“; hann
hafi, að dómi ofurstans, ekki greitt
fyrir morgunverðinn á hóteli ríkis-
stjórnarinnar.
Rebas svaraði fyrir sig í blöðunum
og kvað ásakanir ofurstans lygar og
klykkti út með að hann kynni ekki
skil á öðru en að sprauta napalmi
yfir varnarlaus þorp í Víetnam.
Deilurnar geta orðið svæsnar í
Eistlandi....
„Hann sækist eftir lýðhylli," segir
Rebas um Toompuu.
Rebas sækist samt sem áður eftir
kunnáttumönnum í hermennsku
frá Vesturlöndum.
„Ég hef verið að reka þá yfirmenn
sem voru í Rauða hernum,“ segir
hann. „Yfirmaður eistneska hersins
verður hins vegar ofursti frá Atl-
antshafsbandalaginu að nafni Ein-
seln, en hann er einnig af eistnesku
bergi brotinn. Ég treysti því að
hann skipuleggi nýtískulegar og
umfram allt vestrænar hervarnir."
neska stjórnin hefur leyft að vera
um kyrrt.
„Margir eru þó ekkert ýkja gamlir
og eiga vopn heima hjá sér. Það má
búast við að þeir séu hollir ráða-
mönnum í Moskvu. Þar á ofan býr
hér enn hópur úr GRU og KGB.“
Rebas segir að „nóg sé til af slíku“,
hann hafi njósn um að stöðvarnar
geti hlerað öll sím- og senditæki í
landinu og raunar víðar.
Eistneskir njósnarar hafa aflað
upplýsinga um hlerunarstöðvar
Rússa og ljósmyndað þær að innan.
í skýrslu þeirra segir að mörg loft-
net séu skammt frá aðalbygging-
unni og „800 til 1000 metrum frá
séu enn fleiri byggingar og skógur
af loftnetum".
Ríkisstjórn Edgars Savisaar, sem
féll um mitt ár í fyrra, gaf Rússun-
um heimild til að reka þessar
stöðvar áfram með undirrituðum
samningi. Þó er Savisaar meðal
þeirra, sem ákafast gagnrýnir Hain
Rebas á ríkisþinginu og ásakar
hann um „Rússadekur".
„Þetta er gríðarmikil stöð, sem
getur hlerað allar sendingar í allt
að 5000 kílómetra fjarlægð," segir
Rebas. Hún nær alla leið til Sví-
þjóðar. Og við getum ekkert að gert
nema leitað leiða til að fá samn-
ingnum hans Savisaars rift.“
Á ráðherranum er að skilja sem
hægara sé að rjúfa strauminn til
stöðvarinnar eða útvega sér tæki,
sem trufli hlerunarbúnaðinn, held-
ur en að komast að nýju samkomu-
lagi við Rússa.
Rússneska herinn
burt
Kremlverjar heyktust á að flytja
alla hermenn sína til Rússlands,
eins og um var samið, og bera fyrir
sig að herinn verði að vernda
mannréttindi rússneska minni-
hlutans í Eistlandi. Gildir einu þótt
hlutlausar sendinefndir frá m.a.
Evrópuráðinu og Sameinuðu þjón-
unum, sem hafa rannsakað hvort
eitthvað sé til í ásökunum Rússa,
hafni þessum röksemdum. Vissu-
lega er Rússahatur í landinu, en
ekki hefur verið sýnt fram á að
mannréttindi Rússa séu skert.
„Þó eru þetta einu rökin fyrir því
að kalla ekki hermennina heim,“
segir varnarmálaráðherrann, ber-
sýnilega þreyttur á þessu umræðu-
efni. „Því verður að linna. En nú er
ekkert rek á málinu."
Eistneska utanríkisráðuneytið var
heldur ekki að skafa af hlutunum í
nýlegri yfirlýsingu: .Aðferð Rússa
við að tefja brottflutning á her-
sveitum frá Eystrasaltsríkjunum er
tilraun til að seilast aftur til valda í
þessum löndum. (...) Ríkisstjórn
Eistlands hyggst ekki sætta sig við
veru erlendra hersveita, sem ógna
bæði Eistlandi og öryggi grann-
Húsbréf
Fyrsti útdráttur
í 2. flokki húsbréfa 1992.
Innlausnardagur 15. júlí 1993
5.000.000 kr. bréf
92210024
1.000.000 kr. bréf
92220081
92220118
92220261
92220323
92220532
92220631
92220663
92220693
92220708
92220792
92220827
92220875
92220919
92221027
92221099
92221127
92221150
92221184
92221195
92221354
92221372
92221389
92221390
92221529
92221538
92221541
92221634
92221697
92221708
92221711
92221722
92221760
92221803
92221834
92221981
92222005
92222021
92222152
92222174
92222183
92222215
92222328
92222385
92222484
92222623
92222651
92222659
92222693
92222777
92222815
92222869
92222921
92222976
92222983
100.000 kr. bréf
10.000 kr. bréf
92223095
92223108
92223168
92223247
92223268
92223356
92223365
92223399
92223400
92250131 92250893 92252552 92254294 92255623 92256646 92258327
92250232 92251027 92252645 92254346 92255777 92256672 92258343
92250345 92251185 92252647 92254453 92255815 92256714 92258370
92250346 92251264 92252663 92254460 92255860 92256858 92258506
92250375 92251269 92252671 92254521 92255897 92256951 92258633
92250386 92251289 92252714 92254671 92255898 92257470 92258638
92250392 92251347 92252763 92254709 92255914 92257610 92258803
92250541 92251735 92252786 92255091 92255978 92257720 92258865
92250558 92251837 92253047 92255115 92256082 92257813
92250616 92251887 92253381 92255146 92256219 92257834
92250803 92252137 92253471 92255178 92256292 92257896
92250807 92252140 92253729 92255242 92256299 92258017
92250891 92252174 92254212 92255303 92256362 92258199
92270043 92271495 92272570 92274285 92274857 92276168 92277579
92270127 92271535 92272755 92274294 92274859 92276184 92277640
92270162 92271553 92272761 92274332 92274941 92276219 92278212
92270187 92271660 92273083 92274358 92275103 92276426 92278238
92270220 92271821 92273320 92274447 92275224 92276503 92278266
92270229 92272078 92273652 92274449 92275545 92276521 92278323
92270350 92272205 92273687 92274524 92275558 92276560
92270388 92272269 92273728 92274597 92275605 92276564
92270448 92272371 92273923 92274675 92275635 92276933
92270530 92272386 92273932 92274705 92275694 92276964
92270611 92272452 92274041 92274747 92275976 92277286
92270666 92272483 92274053 92274781 92275988 92277470
92270760 92272500 92274115 92274788 92276018 92277494
92271353 92272529 92274214 92274813 92276033 92277495
Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti nó veröbætur frá innlausnardegi.
Því er áriöandi fyrir eigendur þeirra aö innleysa þau nú þegar, og koma andviröi þeirra I
aröbæra
ávöxtun. Húsbréf eru innleyst I veödeild Landsbanka Islands, Suðurlandsbraut 24 I Reykjavík.
dp HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-696900