Tíminn - 15.05.1993, Qupperneq 10
22 Tíminn
Laugardagur 15. maí 1993
S
AMKVÆMT einni
ágiskun er nú um millj-
arður manns íslamstrú-
ar, eða nálega fimmt-
ungur mannkyns. Utbreiðsla
þeirrar trúar er talin örari en
nokkurrar annarrar, einna helst
vegna hárrar fæðingatölu. ís-
lam hefúr sem kunnugt er aUt
frá upphafi sínu haft mest fylgi
í Asíu og Afríku og frá síðmið-
öldum haft fótfestu nokkra í
Evrópu suðaustanverðri.
Á síðari hluta þessarar aldar
hafa komið til sögunnar fjöl-
mennir íslamskir söfnuðir í
heimshlutum, þar sem íslam
var vart merkjanlegt áður. Það
á við um Vestur-Evrópu og
Norður-Ameríku. Að sögn sýr-
lensks fræðimanns, sérfróðs
um íslam, eru nú um 12 millj-
ónir múslíma í Vestur- Evrópu,
langflestir þeirra innflytjendur
frá íslamslöndum. Það er ná-
lægt sameiginlegum íbúafjölda
Noregs og Svíþjóðar. í Banda-
ríkjunum er talið að þeir séu
þrjár til fjórar milljónir, meiri-
hlutinn innflytjendur frá íslam-
slöndum, en um fjórðungur
innfæddir Bandaríkjamenn,
sem tekið hafa íslamstrú.
Flestir þeirra eru blökkumenn.
Haldi múslímum þarlendis
áfram að fjölga jafn ört og nú
er raunin, verða þeir einhvem-
túna snemma á næstu öld
orðnir fleiri í landinu en gyð-
ingar, sem að sögn New York
Times era þar um sex milljón-
ir.
Músllmar í Cedar Rapids í lowa, þar sem er elsta moska Bandaríkjanna.
íslamskir þrælar?
Tölumar um múslíma í Banda-
ríkjunum eru að vísu ágiskana-
kenndar nokkuð. Innflytjendur til
Bandaríkjanna eru ekki skyldugir
til að gefa upp hvaða trú þeir hafi
og þar að auki er talið að í landinu
séu allmargir ólöglegir innflytj-
endur frá íslamslöndum.
Fyrir aðeins um aldarfjórðungi
var íslam í Bandaríkjunum vart
teljandi, nema þá Svartir múslím-
ar (Black Muslims) svokallaðir,
sem einhver vafi var á hvort telja
ætti til fslams eða ekki. Sumra mál
er þó að saga íslams á því svæði,
sem í rúmlega tvær aldir hefur
heitið Bandaríkin, sé jafngömul
byggð svartra manna þar. Fræði-
menn um þrælaverslunina milli
Afríku og Norður-Ameríku halda
því sumir fram, að sumir Vestur-
Afríkumanna þeirra, sem seldir
voru í þrældóm vestur um haf,
hafi verið múslímar, sem að vísu
hafi fljótlega fallið frá trúnni í nýja
landinu. Einhveijir bandarískir
blökkumenn, þeirra á meðal rit-
höfundurinn Alex Haley, hafa jafn-
vel látið að því liggja að þorri
svörtu þrælanna, sem fluttir voru
til Norður-Ameríku, hafi verið
múslímar. Flest er á huldu um
hvað sé til í þessu. Sumir þræla
þessara voru fluttir langt innan af
meginlandi Afríku og ekki er
ósennilegt að þar á meðal hafi ver-
ið strjálingur af fólki, sem hægt
hafi verið að telja til múslíma. En
mikill meirihluta þræla þeirra afr-
ískra, sem til Norður-Ameríku
voru fluttir, voru úr strandhéruð-
um Vestur-Afríku eða skammt
innan úr landi. Á þeim svæðum
var þá þorri manna heiðinn.
Fyrsta moskan í
Dakota
Miðað við tiltækilegar heimildir
virðist ekki hafa verið vitað um
múslíma í Bandaríkjunum, svo
Abdul Karim Hasan (t.h.), ímam
músllma í South-Central Los Ange-
les. Þar stendur til að byggja mosku
með fjárstuðningi frá Saúdi-Arabíu.
orð sé á gerandi, fyrr en á síðari
hluta 19. aldar. Þá flutti til lands-
ins einhver slæðingur af múslfm-
um frá Austurlöndum nær, einna
helst frá Líbanon og Sýrlandi. Fólk
þaðan ættað byggði fyrstu mosku
Bandaríkjanna í jafri ólíklegum
stað og Ross, smábæ í Norður-Da-
kota, árið 1929. Ástæðan til þess
að íslam festi fyrst rætur í Banda-
ríkjunum í dreifbýli inni á sléttun-
um miklu, en ekki í stórborg við
sjó, var að Sýrlendingar þessir og
Líbanir voru farandsalar, sem leit-
uðu út í dreifbýlið, þar eð þar var
minni samkeppni við aðra versl-
unaraðila en í þéttbýli. Stunduðu
múslímamir í Ross viðskipti við
bændurna í kring. Moska þessi var
rifin fyrir nokkrum árum og elsta
íslamsguðshús, sem enn stendur í
Bandaríkjunum, er í Cedar Rapids
í Iowa. Þangað voru einhverjir
múslímar komnir um miðjan
þriðja áratug yfirstandandi aldar
og um tíu árum síðar breyttu þeir
samkomukomuhúsi sínu í mosku.
Það var ekki fyrr en á sjöunda ára-
tugnum, sem skriður komst á
bandarískt íslam. Þá fór að kveða
þar að trúflokki, sem raunar hafði
verið stofriaður þegar 1930 undir
nafninu fslamsþjóð (Nation of Is-
lam) og var í daglegu tali kallaður
Svartir múslímar. Iþeim trúflokki
voru eingöngu blökkumenn og
gætti af hálfu hans opinskárrar
andúðar og kynþáttahyggju gagn-
vart hvítum mönnum. Héldu
Svartir múslímar því fram að hvít-
ir menn væru komnir af einskonar
Frankensteinskrímslum sem
bijálaður svartur vísindamaður
hefði endur fyrir löngu ræktað á
tilraunastofu sinni. Þekktur félagi
í Nation of Islam var Malcolm
Little, síðar Malcolm X. í píla-
grímsför til Mekka, þar sem hann
hitti hvíta menn m.a., snerist
hann gegn kynþáttahyggju trú-
flokksins. Höfðu og íslamskir guð-
fræðingar í gamla heiminum lýst
því yfir að hún væri ósamrýman-
leg íslam. Urðu við þetta vinslit
með Malcolm og trúbræðrum
hans í Nation of Islam og voru þeir
grunaðir um að hafa ráðið hann af
dögum. (Hann var myrtur í Harl-
em 1965.)
Bókstafssinni fyrír rétti I Kaíró: uggur við hans líka eftir sprenginguna f World
Trade Center.