Tíminn - 19.06.1993, Page 10
lOTfminn
Laugardagur 19. júní 1993
sas*!
Sveinn Jónsson, annar veitingamannanna í Lindinni á Laugarvatni ásamt Ingibjörgu Helgadóttur þjóni.
Lindin, fyrrverandi Ibúöarhús Ragnars Ásgeirssonar og skólahús Húsmæöra-
skóla Suöurlands, hefur nú veriö gerö upp og breytt I fyrsta flokks veitingahús.
Veitingahús í nýuppgerðri Lindinni á
Laugarvatni:
Gamli
„Húsó“
í nýju
hlutverki
í gær var opnað nýtt veitingahús að
Laugarvatni. Veitingahúsið er við
sjálft vatnið í hinu gamla húsnæði
Húsmæðraskóla Suðurlands sem
þaráður var íbúðarhús Ragnars Ás-
geirssonar, þáverandi garðyrkju-
manns að Laugarvatni, örskammt
frá gufubaðinu aiþekkta.
Laugardalshreppur á húsnæðið
sem nú hefur verið gert myndarlega
og fallega upp. Tveir veitingasalir
eru í húsinu, báðir með útsýni yfir
vatnið, en auk þess er þar stór ver-
önd þar sem hægt verður að sitja úti
og njóta veitinga þegar veður er
gott. Eldhús veitingahússins er búið
fullkomnustu tækjum og búnaði.
Laugardalshreppur leigir veitinga-
Kjörvari og Þekjukjörvari
- kjörin viðarvöm utanhúss
Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða
grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áferð þú óskar eftir. Sé ætlunin að halda
viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvörn og til í mismunandi
litum. Ein til þrjár umferðir nægja, allt eftir ástandi viðar.
Kjósir þú aftur á móti hálfhyljandi áferð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið
glatist, mælum við með Þekjukjör-
vara sem einnig fæst í mörgum litum.
Tvær unrferðir eru í flestum tilvikum
nóg. Sé viðurinn mjög gljúpur skal
grunna hann fyrst með þynntum glær-
um Kjörvara og mála síðan yfir með
Þekjukjörvara.
mjsasasossffsh'
málning'f
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
- það segir sig sjálft -
—