Tíminn - 19.06.1993, Síða 14
14 Tíminn
Laugardagur 19. júnf 1993
ísmoli hf.:
Traust bjálkahús frá
Finnlandi á kreppuverði
ísmoli hf. er nýtt fýrirtæld,
stofnað í fyrrahaust til þess aft
selja og setja upp bjálkahús,
einlram frá framleiftanda slílcra
húsa í Finnlandi sem heitir Vuo-
katti. Húsin eru í senn hlýleg og
sterk. Auk húsanna býftur fyrir-
tsldft upp á alls konar bjálka-
klæðningar á bæfti fbúðarhús og
sumarbústafti sem þarfnast aft-
hlynningar og andlitslyftingar.
En jafnframt því aft klæfta eldri
hús er hægt aft byggja við þau og
samræma um leift útlit nýbygg-
ingar og eldri hluta hússins.!
Fyrirtækið býður yfir 100 staðl-
aðar útfærslur í byggingu bjálka-
húsa en auk þess geta viðskipta-
vinir lagt fram eigin hugmyndir
um breytingar eða frávik frá hin-
um stöðluðu gerðum sem fag-
menn ísmola yfirfara svo og út-
færa. Fagmenn fyrirtækisins hafa
allir hlotið þjálfun í að setja upp
bjálkahús og að sögn Hans Krist-
jáns Guðmundssonar markaðs-
stjóra er lögð rík áhersla á fagleg
vinnubrögð við uppsetningu og
allan frágang svo komast megi hjá
óþægindum síðar meir. Þá er þeim
sem vilja sjálfir setja upp hús sín
veitt fagleg ráðgjöf.
Gengi finnska marksins er lágt
um þessar mundir og verð á
bjálkahúsunum því mjög hagstætt
að sögn Hans Kristjáns og ekki
hvað síst þegar tekið er tillit til
efnismagns sem f húsin fer, en
þeim er raðað saman úr gegnheil-
um furubjálkum sem vaxið hafa í
norðurhluta Finnlands þar sem
þeir eru seinvaxnir og því mjög
þéttir í sér — fyrsta flokks viður.
Sýningarhúsið sem er á meðfylgj-
Nýsmíði sumarhúsa
Önnumst hverskonar nýsmíði og
breytingar á sumarhúsum.
Smíðum glugga, hurðir, innréttingar
og stiga svo eitthvað sé nefnt.
Jón og Viktor
Tannastöðum Ölfusi (undir Ingólfsfjalli)
Símar: 985-38345, (98) 21413 og (98) 22751
Traustar islenskar vindmyllur
Tólf volta
vindmyllur, byggðar
fyrir íslenskt veðurfar.
Fagleg ráðgjöf um
uppsetningu.
✓
Aralöng reynsla.
Hljóðvirkinn , vindmyllur, verkstæði og framleiðsla.
Höfðatúni 2, sími (91) 13003
Sýningarhús ísmola stendur viö Skúiagötuna gegnt Barónsstlg í Reykjavtk. Framieiöandi húsanna er Vuokatti í
Finnlandi en framkvmdastjóri fyrirtækisins, Paavo Immonen, er staddur hér á landi og hefur veriö á gæöaeftirlits-
ferö um iandiö og skoöaö hús sem hér hafa veriö reist. Hann sést hér á myndinni ásamt Hans Kristjáni Guömunds-
syni, framkvæmdastjóra ísmoia, sem er til hægri. Tímamynd Arni Bjarna
andi mynd kostar óuppsett
1.450.000 krónur en uppsett með
ísettu rafkerfi og eldhúsinnrétt-
ingu 2,2 milljónir. Fjölbreytnin er
mikil, eða allt frá litium 10-15 fer-
metra svefnhúsum upp f 250 fer-
metra einbýlishús með bílskúr. Sé
nefnt verðdæmi þá má nefna að
150 fermetra einbýlishús kostar
óuppsett með gluggum, hurðum,
hurðaskrám og hurðalæsingum,
en fyrir utan þakeinangrun og
járnklæðningu á þakið, aðeins ríf-
lega fjórar milljónir króna sem
ætti að teljast vel sloppið.
Hans Kristján segir aðspurður að
húsin séu hönnuð með það fyrir
augum að standast veðurfar hvar
sem er, líka þar sem rignir lárétt
eins og stundum hér á landi. Séu
húsin rétt sett saman sé ekki
hætta á leka. Framleiðandi hús-
anna hafi selt húsin um allan
heim og til hinna ólíkustu veður-
svæða þar sem miklir vindar blása
og regn og skafbyljir dynji á þeim.
Þannig hefur framleiðandinn Vou-
katti þurft að glíma við aðrar
gerðir loftslags en í skjólgóðum
skógum Finnlands. -sá
FYRIR
SUMR■
BÚSTAOim
IIÝJBNS!
Gasvatnshitari
fyrír potta og
setlaugar.
Tilvalið tyrír
sumarbústaði
KÆLI- OC
FRYSTI
SKÁPAR