Tíminn - 19.06.1993, Side 18
18 Tfminn
Laugardagur 19. júní 1993
Frá vinstrí: Einar Þorsteinsson, Guömundur Ingimarsson (hann tók viö verölaununum fyrir hðnd móöur sinnar, Guörúnar Dagbjartsdóttur), Vigdfs Fmnbogadóttir for-
seti, Sveinn Runólfsson, Ragnar Borg frá Lionsklúbbnum Baldrí, og Gunnar Kristinsson, framkvæmdastjórí Hitaveitu Reykjavíkur.
Fjórir
hlutu
land-
græðslu-
verð-
laun
Nýlega afhenti Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, landgræöslu-
verölaun fyrir árið 1993. Verðlaun-
in eru veitt aöilum sem unniö hafa
dyggilegt og eftirbreytnisvert starf
aö landgræðslumálum. Verðlaunin
voru veitt austur í Gunnarsholti í
aöalstöövum Landgræðslu ríkisins.
Við þetta tækifæri var opnuð ný
bygging í Gunnarsholti sem ber
heitið Litla-Hekla.
Guðrún Dagbjartsdóttir frá Brekku
í Öxarfjarðarhreppi í N-Þingeyjar-
sýslu fékk verðlaun fyrir það mikla
og góða starf, sem hún hefur unnið
að gróðurverndarmálum á heima-
slóð sinni. Áður en hún hófst handa
mynduðust stundum stórir sand-
skaflar á túnum heima við bæinn.
Nú tilheyrir þetta liðinni tíð og
auðnin er orðin gróskumikið gróð-
urlendi. Einar Þorsteinsson, bóndi
og búnaðarráðunautur í Sólheima-
hjáleigu, fékk verðlaunin fyrir
hvatningu sem hann hefur veitt
mörgum bændum til ræktunar
landsins, ekki síst við uppgræðslu
rofabarða og annarra jarðvegssára.
Hitaveita Reykjavíkur fékk land-
græðsluverðlaun fyrir hið mikla
uppgræðslustarf sem hún hefur
unnið á Nesjavöllum og í Grafningi.
Þá fékk Lionsklúbburinn Baldur
verðlaun fyrir uppgræðslustörf við
suðaustanvert Hvítárvatn á Biskups-
tungnaafrétti, en klúbburinn hefur
unnið að uppgræðslu þar frá árinu
1967. Félagar í Baldri hafa hand-
dreift miklu magni af áburði og fræi
og lagt loðnunet í rofabörð. Hafa
þessar aðgerðir valdið stakkaskipt-
um á landinu.
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
yUMFERÐAR
RÁO
Ö T E R BEST Á GRILLIÐ
kótilettur beint
ið með a.m.k.
ásrilHðn
B%eri
griDafebetti
I næstu verslun færðu nú lambakjöt á afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið.