Tíminn - 10.07.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.07.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76"48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn..Frétta-síminn...68-76-48 Laugardagur 10. júlí 1993 128. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Engir Danir munu leysa okkarvanda Sjá helgarviðtalið við Frið- rik Sophusson fjármála- ráðherra. • Blaösíða 6-7 Náttúruðflun■ um storkað • Blaðsíða 11 Andblær liðins tíma • Blaðsíða 17 Frumkvöðlar austur á Síðu • Blaðsíða 18 Veitt í tilbúnu vatni • Blaðsíða 14 Ferðalög um Suður- land Tímanum í dag fylgir sérstak- ur blaðauki um brot af þeim ferða- og afþreyingarmögu- leikum sem fyrirfinnast á Suð- urlandi. Rætt er við fjölmarga f bæjum og sveitum sem þjóna ferðafólki á för um Suðurland. Niðurskurður aflaheimilda og hugmyndir um lokun Halamiða í allt að tvo mánuði í sumar. Form. ASV: Ekki hægt að láta suma fitna og aðra drepast „Menn geta ekki brugðist við niðurskurði á aflaheimildum né öðr- um þrengingum f sjávarútvegi á þann hátt að láta allt hráefnið á einhverja fáa staði og lofa fólki þar aö fitna en hinir eigi að drepast. Ef menn ætla að fara að hagræöa þá hlýtur það að verða gert í byggðunum; að flytja fólkið til. En ég held að það sé enginn f þeim hugleiðingum," segir Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusam- bands Vestfjarða. Niðurskurður aflaheimilda og hug- myndir um lokun stórra veiðisvæða úti fyrir Vestíjörðum í friðunarskyni er meðal þeirra þátta sem ógna byggð á Vestfjörðum. Enn sem komið er hafa engar ákvarðanir verið teknar um lok- un veiðisvæða, en samkvæmt fram- komnum hugmyndum kann svo að fara að Halamiðin verði jafnvel lokuð fyrir fiskveiðum í tvo mánuði í sumar. Hins vegar hafa þegar verið teknar ákvarðanir um aflaheimildir næsta fiskveiðiárs sem hafa í fór með sér verulegar skerðingar fyrir fjórðung- inn og íbúa þess og raunar alla lands- menn. f þessari stöðu hafa íbúamir horft til þess ávinnings sem tvöföldun línuveiða hefur gefið auk þess sem steinbíturinn er enn utan kvóta. Aftur á móti kann þetta að breytast með haustinu ef línutvöföldunin verður af- numin og kvóti verður settur á stein- bítsveiðar með lögum frá alþingi. í Ijósi niðurskurðarins er viðbúið að hráefni verði ekki nægjanlegt til að hægt sé að reka vinnslustöð í hverju plássi, eins og verið hefur. Til að mæta þessum hráefnisskorti hafa menn m.a. rætt um þann möguleika að kaupa hráefhi eríendis frá og fullvinna það hérlendis. Auk þess hefur í mörg ár verið talað fjálglega um nauðsyn full- vinnslu á innlendum afla og að allur afli sem veiðist við ísland verði seldur á fiskmörkuðum, svo nokkuð sé nefnt af þeim möguleikum sem nefndir hafa verið til sóknar. „Þetta er hreinlega eins og með nátt- úruhamfarir. Menn hafa ekki mörg ráð og verða bara að vona að þetta verði ekki eins háskalegt og útlitið virðist benda til. Við eigum engar vamir eða milljónir til að kaupa kvóta. Ef við hefðum peningana þá værum við að einungis að kaupa lífsbjörgina frá öðrnrn," segir formaður Alþýðu- sambands Vestfjarða. -grh Grillveisla fyrir manns í einum poka af lambakjöd. Fæst í næstu verslun. BESTU KAUPIN í LAM TI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.