Tíminn - 10.07.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.07.1993, Blaðsíða 3
Trúnaðarmaður skal að öðru jöfnu halda vinnunni þegar atvinnurekandi fækkar við sig starfsmönnum. Félagsdómur: Uppsögn trúnaðarmanns ólögmæt Félagsdómur hefur komist að þeini niðurstöðu að uppsögn Prentsmiðj- unnar Eddu hf. á starfi Baldurs Aspars, prentara og trúnaðarmanns, sé bret á 2. málslið 11. gr. laga um stéttarféiög og vinnudeilur ftá árinu 1938 og því sé uppsögnin ólögmæt Að mati dómsins og samkvæmt áðumefndum lögum nýtur trún- aðarmaður þess réttar að hann skal að öðm jöftiu sitja fyrir um að halda vinnunni þegar atvinnurek- andi þarf að fækka við sig starfs- mönnum. Dómurinn telur að f ofana- greindu ákvæði felist sú aðalregla að trúnaðarmanni eigi ekki að segja upp störfum við fækkun starfsmanna, nema atvinnurek- andinn sýni fram á ríkar ástæður til þeirrar ráðabreytni. Það þótti dómurum í Félagsdómi Prent- smiðjan Edda hf. ekki hafa gert. Forsaga málsins var sú að Baldur Aspar var kosinn trúnaðarmaður þann 27. október 1992 og daginn eftir tilnefndi Félag bókagerðar- manna hann til að gegna starfi trúnaðarmanns fyrir félagsmenn FBM í Prentsmiðjunni Eddu hf. til Smjörlíkis- tollur 120 kr. á kflóið Fjármálaráðuneytið hefur heimilað innflutning á smjöriíki og um leið ákveðið jöfnunartolla af því. Tollur- inn er föst krónutala, 120 kr. á hvert kQó ef smjörlíkinu er pakkað í 2ja kg. umbúðir eða minni, þ.e. smjöriíki sem fer í almennar versl- anir. Sé um stærri pakkningar að ræða er tollurinn hins vegar 30 kr. á kíló á smjörlíki sem inniheldur minna en 10% mjólkurfitu, en 40 kr. á hvert kíló sé mjólkurfituhlutfallið 10% eða meira. Með þessum aðgerðum á verð innflutts smjörlíkis að vera hliðstætt verði þess sem framleitt er hér á landi, samkvæmt upplýsing- um FÍI. Tollar eiga síðan að lækka í þrepum ár frá ári. - HEI ársloka 1994, nema annað yrði til- kynnt, eins og segir í bréfi stéttar- félagsins frá 28. október 1992. En forveri Baldurs sem trúnaðarmað- ur prentara hætti störfúm hjá fyr- irtækinu sama dag þar sem hann kvaðst hafa átt ótekið orlof, en uppsagnarfrestur hans rann út þann 31. október 1992. Nýkjörinn trúnaðarmaður af- henti svo framkvæmdastjóra Eddu hf. bréf stéttarfélagsins þann 29. október 1992 en daginn eftir, eða 30. október var Baldri sagt upp störfum með sex mánaða fyrirvara. Þessari ákvörðun forráðamanna Prentsmiðjunnar Eddu hf. mót- mælti Félag bókagerðarmanna og taldi hana óheimila þar sem Bald- ur væri trúnaðarmaður í fyrirtæk- inu og nyti af þeim sökum sér- stakrar vemdar trúnaðarmanns samkvæmt 11. gr. laga um stéttar- félög og vinnudeilur. Félagið höfð- aði því mál fyrir Félagsdómi á hendur VSÍ fyrir hönd Félags ís- lenska prentiðnaðarins og Prent- smiðiunnar Eddu hf. VSI krafðist hinsvegar sýknu og mótmælti því að áðurnefnd laga- grein um sérstaka vemd trúnaðar- manns ætti við f þessu tilfelli þar sem Baldur Aspar prentari hafði ekki starfað sem trúnaðarmaður í fyrirtækinu áður en honum var sagt upp. Af þeim sökum væru engin rök fyrir því að skýra lagagreinina á þann hátt að nýlega tilnefndir trúnaðarmenn ættu að öðru jöfnu að njóta sérstakrar vemdar gegn M7 TIL MHnmfí! —sííiBii: T-.m ELFA-LVI Einfaidireða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. ELFA-OSO Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir 30- 300 lítra, útvegum aðrarstærðir frá 400-10.000 lítra. ELFA-VARMEBARONEN Hitatúba / rafketill 12kw, 230v. 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt að 1200kw. ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut- reyndurvið íslenskaraðstæður. HAGSTÆTT VERÐ OG ■ /mf GREIÐSLUSKILMÁLAR. 8/f/" Einar Farestveit &Co.hf. Borgartúni 28 - S 622901 og 622900 uppsögn umfram aðra starfsmenn. í áliti VSÍ var því uppsögn Bald- urs lögmæt, enda hafi hún ekkert haft með tilnefningu hans í starf trúnaðarmanns að gera og hafi verið framkvæmd vegna samdrátt- ar hjá Prentsmiðjunni Eddu hf. I dómsorði Félagsdóms var Prentsmiðjan Edda hf. sýknuð af kröfu um greiðslu sektar en gert að greiða Félagi bókagerðamanna 70 þúsund krónur í málskostnað. Dóminn kváðu upp þau Auður Þorbergsdóttir, Bjöm Helgason, Gunnar Guðmundsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón Þorsteins- son. -grh /pTRlMAJ Skilaboð til bænda r Bújöfur hf. flytur inn Trima moksturstæki og vökva kúplingar á ýmsar gerðir dráttarvéla, t.d. Zetor og Fiat, á mjög samkeppnis- hæfu verði. Kynnió ykkur veröiö BUlJÖFöR KEILUrELLI 47 SÍMI 751-60 FAX 670290 á mann miðað við 4 í bíl og 32.200 kr. á mann miðað við tvo í bíl. Innifalið í verði: Flug, bíll í A flokki í eina viku, ótakmarkaður kílómetrafjöldi, kaskótrygging, flugvallaskattur, forfallagjald og innritunargjald í Keflavík. Barnaafsláttur 2-11 ára 4000 kr. Samviiwiifepúir Lanilsj/n Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Halnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 - 511 55 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbréf 92 -13 490 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 - 1 10 35 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 - 1 12 71 • Símbréf 98 - 1 27 92 QATIAS/* EUnOCARD Laugardagur 10. júlí 1993 Tíminn 3 Flug og bíll á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.