Tíminn - 10.07.1993, Page 9
Laugardagur 10. júlí 1993
Tíminn 9
Hun Sen: andstæðingar hans fengu fleirí atkvæði, en hann hefur herínn sín
megin.
og höfuðs á „landráðaliði Hun Sen-
stjómarinnar". Menn Huns Sen
skelfdust. Þeir höfðu ástæðu til að
ætla að fleiri landsmönnum en Rauð-
um kmerum væri meira en lítið í nöp
við þá. Valdið í stjómmálum landsins
höfðu þeir ekki lengur sér til hlífðar,
svo að helsti skjöldur þeirra var nú
kambódíski stjómarherinn, sem er
um 150.000 manns, enn að mestu sá
sami og á stjómartíð Huns Sen og
honum enn hollur.
Allt innan fjölskyldunnar
Chakrapong prins, annar sonur Si-
hanouks, sem er í flokki með Hun Sen
(gömu! hefð er fyrir því í Kambódíu að
konungsættin þar, jafnan íjölmenn, sé
ekki öll í einni fylkingu í stjómmál-
um, án þess að það þurfi að þýða djúp-
stæðan ágreining innan hennar), lýsti
því þá yfir að hann hefði tekið austur-
hémð landsins undir sína stjóm og
þar með undan yfirráðum stjómvalda
í höfuðborginni Pnompenh. í fáeina
daga vom flestir Kambódíumenn og
Untac einnig á nálum um að borgara-
stríðið væri að brjótast út á ný af fullri
grimmd, á milli Kambódíuhers undir
handleiðslu Huns Sen og Chakrap-
ongs annarsvegar og Rauðra kmera
hinsvegar, með Funcinpec, sem er
herlaus, í vonlausri klemmu þar á
milli.
Þá reis Sihanouk upp af sjúkrabeði
og var maður heill. Skundaði hann á
hið nýkjöma þing og tilkynnti „hátt-
virtri og heittelskaðri" þjóð sinni að
hann hefði með fortölum fengið
Funcinpec og Sósíalistaflokk alþýðu
til að leggja öll ágreiningsefni sín á
hilluna og mynda ríkisstjóm saman.
Jafnframt mæltist hann til þess af
þinginu að það kysi hann ríkisleiðtoga
með „víðtæku umboði". Þingið sam-
þykkti hvorttveggja, samsteypustjóm-
ina og völdin til handa Sihanouk,
mótatkvæðalaust.
Almælt er að Sihanouk hafi komið
þessu öllu í kring, meðan hann lá á
sjúkrabeði og margir töldu hann úr
leik í bráðina. Tveir nefndir synir
hans, annar leiðtogi þess flokksins
sem hefur mest fylgi og hinn háttsett-
ur í flokknum sem hefur herinn á sínu
bandi, munu hafa orðið honum að
góðu liði við það. Chakrapong heim-
sótti föður sinn daginn áður en hann
framdi valdaránið í austurhéruðunum
og aftur daginn eftir að hann aflýsti
því.
Eins og sakir standa virðist Sihanouk
hafa haft betur en allir hans óvinir og
andstæðingar. Untac, sem fyrir
skemmstu hafði ygglt sig gagnvart til-
lögunni um samsteypustjóm, tók
þingsamþykktinni með feginsand-
varpi. Hefði borgarastríðið brotist út
af fullum ofsa á ný, hefði Untac að lík-
indum orðið að hafa sig á brott úr
landinu og allt hið kostnaðarsama
starf S.þ. þar hefði þar með orðið til
einskis. Það hefði orðið S.þ. gífurlegur
álitshnekkir.
Víetnam af svarta
listanum
Vera má og að Sihanouk þyki eins og
sakir standa betra en ekki að Banda-
ríkjastjóm virðist vera að skipta um
stefnu að einhverju leyti í málefnum
Suðaustur-Asíu. Frá Hvíta húsinu
fréttist að Clinton forseti ætli að af-
nema einangrun þá í fjár- og við-
skiptamálum, sem Bandaríkin hafa
haldið Víetnam í frá lokum Indókína-
stríðsins síðara. Á bak við það munu
standa áhrifamiklir aðilar í fjár- og
viðskiptamálum í Bandaríkjunum. Ví-
etnam er á leiðinni með að tengjast
sumum hinna Suðaustur-Asíuríkj-
anna allnáið með viðskiptum við þau
og fjárfestingum þeirra í Vfetnam.
Hlutar Austur- og Suðaustur-Asíu em
nú það svæði heims þar sem uppgang-
ur í efnahagsmálum er mestur. Með
það í huga þykir ófáum bandarískum
fyrirtækjum óþolandi að standa utan
fjárfestinga í Víetnam. Með því að
losna úr áminnstri einangrun er lík-
legt að Víetnam eflist og öðlist þar
með aukna möguleika á að spyma
gegn Taílandi í Kambódíu, þar sem
Ttiíland hefur síðustu árin haft betur í
taflensk-víetnömsku valdastreitunni
um smárfki þetta.
Gæfan virðist eins og sakir standa
brosa við Sihanouk og langhrjáðri
þjóð hans með meira móti eftir því
sem verið hefur í rúma tvo áratugi. En
Kambódíu er enn ærinn vandi á hönd-
um eigi að síður. Rauðir kmerar eru
áfram undir vopnum í vesturhéruðun-
um og þótt stuðningur Bandaríkjanna
bregðist þeim, má vera að þeir fái
áfram einhverja hjálp frá Kína og ekki
síður frá Taflendingum, sem kunna að
óttast um ítök sín í landinu, efnahags-
leg og í stjómmálum, fyrir stjóm með
þátttöku Huns Sen og með Víetnam-
sinnaðan her að baki. Og fari Rauðir
kmerar og Taflendingar halloka í tog-
streitunni um Kambódíu, em tals-
verðar líkur á að Víetnam eflist þar að
áhrifum að sama skapi. Sihanouk
mun áreiðanlega ekki veita af allri
sinni kænsku og þolinmæði, ef sú
stefna hans að tefla Víetnam fram
gegn Táílandi og öfugt og hafa um leið
vináttu beggja á að bera tilætlaðan ár-
angur. En ætt hans á að baki langa
reynslu af slíkri jafnvægispólitík gagn-
vart þessum tveimur grönnum Kamb-
ódíu.
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræðings, óskar eftir tilboðum I sjúkrakallkerfi I þjónustufbúöir aldraðra
við Fumgerði 1.
Verkið felst I uppsetningu kerfis og árlegu viðhaldi.
Verklok em 30. október 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 29. júlf 1993, kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Til sölu
Fiskveiðasjóður Islands auglýsir til sölu fasteignina Hafn-
arbraut 1 í Njarðvík, ásamt tilheyrandi búnaði til meltu-
framleiðslu (áður eign Valfóðurs hf.).
Tilboð í eignina óskast send á skrifstofu sjóðsins fýrir 28.
júlí n.k., merkt „Hafnarbraut 1“.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins, Suð-
uriandsbraut 4, Reykjavík, í síma 679100 og hjá Valdimar
Einarssyni í síma 33954 eða 985-23355.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Fiskveiðasjóður íslands.
ÚTBOÐ
Hvalsá 1993
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum I lagningu
0,5 km kafla á Hólmavlkurvegi (61) viö Hvalsá i
Steingrímsfirði.
Helstu magntölur: Fyllingar og fiáafleygar 5.000
m3, neðra buröarlag 2.000 m3, rofvarnir 300
m3, stálplöturæsi, þvermál 3 m, lengd 22 m.
Verkinu skal lokið 1. október 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkisins
á Isafirði og i Borgartúni 5, Reykjavik (aöalgjald-
kera), frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboöum á
sömu stööum fyrir kl. 14:00 þann 26. júli 1993.
Vegamálastjóri
________________________________________/
íbúð óskast
Skemmtileg 3ja herbergja íbúð óskast til leigu
frá 1. ágúst nk. fyrir starfsmann á Tímanum,
helst í Norðurmýri eða annars staðar á 105-
svæðinu.
Upplýsingar í síma 686300, innanhússími 46;
á kvöldin í síma 23233.
Veiðimenn, athugið!
Stórir og sprækir laxa- og silungamaðkar til sölu.
Upplýsingar í síma 91-673212 og 91-672822.
ÖKUMENN
Athugið að til þess að við komumst ferða okkar þurfum við að losna
við bifreiðar af gangstéttum. Kærar þakkir.
Blindir og sjónskertir.