Tíminn - 30.07.1993, Page 8

Tíminn - 30.07.1993, Page 8
8 Tíminn Föstudagur 30. júlí 1993 Eitt síðasta verk Ceaus- escus Rúm- eníuforingja, áður en hann lét völd og líf í desember 1989, var að reyna að tala þjóð sína til með sjónvarpsræðu í Búkarest. Eitt það síðasta sem frá honum heyrðist áð- ur en alþýðan hróp- aði hann niður var að hann varaði þjóðina við ýmsum meintum pólitískum óvættum, þ.á m. „irredentismanum.“ Áheyrendurn vest- ur og norður í lönd- um kann að hafa komið þessi síð- asta viðvörun hins heillum horfna vald- hafa ókunnuglega fyrir eyru, en öðru máli gegndi um fólk í Rúmeníu og sum- um grannlanda hennar. Hiö óendurheimta Ungverjaland Hugtak þetta spratt úr ítalskri þjóð- emishyggju á síðari hluta 19. aldar. Þjóðemissinnar þar kölluðu þá hér- uð, sem þeir töldu að væm með réttu ítölsk en heyrðu öðmm ríkj- um til, Italia irredenta, þ.e. ftalíu hina óendurheimtu. Kröfur ítölsku irredentistanna beindust einkum gegn Austurríki-Ungverjalandi. Eftir fyrra heimsstríð var farið að kalla þjóðemissinna af ýmsum öðr- um þjóðum irredentista, ef þeir létu í ljós svipuð markmið og þeir ítölsku áður. Ekki síst var löngun Ungverja til að endurheimta þau lönd, sem þeir misstu með ósigri sínum í neftidum ófriði, látin heita irredentismi. í lok þess stríðs var Ungverjaland (að Króatíu-Slavóníu frátalinni) rúmlega 280.000 ferkfló- metrar; með friðnum í Trianon við Bandamenn varð það að láta af hendi yfir 190.000 ferkflómetra af því svæði. Ungverjar litu almennt svo á að löndin er þeir misstu þá væru með réttu ungversk og að réttur og skylda Ungverja væri að endur- heimta þau. Vera má að ófáir Ung- verjar hugsi svo enn. Frá upplausn Dagur Þorleifsson skrifar Búkarestbúar í biöröö viö matsöiustaö — aftur spurt eftir leiötoga meö Járnhönd Samskipti Ungverja og Rúmena að verða „júgóslavíuleg": sovétblakkarinnar hefúr ungverski irredentisminn aftur komist á dag- skrá eins og fleira sem kommúnism- inn hélt niðri. í Slóvakíu, Serbíu og Rúmeníu eru ungverskir þjóðem- isminnihlutar, sem óhressir em með yfirráð þessara ríkja. Viðkvæmast virðist það mál eins og sakir standa vera í TVanssylvaníu, svæði því í Rúmeníu sem það ríki fékk frá Ungverjalandi með TYianon- friði. Til ungversks þjóðernis í Rúm- eníu teljast 1,6 milljónir manna (7% landsmanna), sumir segja tvær milljónir, og flestir þeirra em í TVanssylvaníu. Þegar á síðustu ámm kommúnismans í löndum þessum var farið að gæta megnrar óánægju meðal þessa ungversku þjóðemism- innihluta með rúmensku yfirráðin, margt fólk flýði til Ungverjalands og af þeim málum jókst þykkja milli Ungverjalands og Rúmeníu. Sú þykkja hefur aukist frá því að kommúnisminn var aflagður og nú em fréttaskýrendur farnir að líkja stemmningunni milli áminnstra tveggja ríkja við samlyndi þjóða í fyrrverandi Júgóslavíu og samlynd- inu milli þjóða í TVanssylvaníu við það sem er milli Albana og Serba í Kosovo. ,JMiðevrópsk“ upp- reisn gegn „balkönsk- um“ einræðisherra? Ceausescu hefur efalítið talið sig hafa gilda ástæðu til að vara við irre- dentismanum. Hann hafði áður sagt ungverska þjóðernisminnihlutann vera „fimmtu herdeild". Samanbor- ið við Rúmena bjuggu Ungverjar við góðan hag undir „gúllaskommún- isma“ Janosar Kadars, höfðu betri lífskjör, meira frelsi. Það fór ekki framhjá Rúmeníu-Ungverjum. Öllu meira en hugsanlegan mótþróa af hálfu þeirra mun Ceausescu þó hafa óttast að þeir yrðu farvegur sem fréttir af tiltölulega góðum lífskjör- um í Ungverjalandi bærust eftir til Rúmena sjáífra, sem bjuggu við verri lífskjör og meiri harðstjóm en flestar aðrar Evrópuþjóðir þá. Að þessu athuguðu er athyglisvert að uppreisnin gegn Ceausescu hófst í Timisoara, helstu borginni í Banat- héraði, og var í byrjun uppreisn Ungverja þar, sprottin af reiði út af hrottameðferð yfirvalda á ungversk- ættuðum presti, Laszlo Tokes. í Timisoara búa einnig margir Rúm- enar og Þjóðverjar og áður en varði höfðu margir þeirra gengið í lið með ungverskættuðum samborgurum sínum. Það má sem sé færa rök að því að uppreisnin sem kollvarpaði harðstjórn Ceausescus hafi upphaf- lega verið fjölþjóðlegt fyrirtæki fólks í þeim hluta Rúmeníu, sem áður hafði heyrt til Austurríki-Ungverja- landi. Með hliðsjón af því má minna á, að þrátt fyrir að íbúar Transsyl- vaníu og Banats tali ýmsar tungur og hafi ýmsan átrúnað, eru þeir eftir aldaraðir í ríkjum Ungverja og Aust- urríkismanna mótaðir af miðevr- ópskri menningu, einnig Rúmenar þar. Rúmenar í hinni upphaflegu Rúmeníu, sunnan og austan Trans- sylvaníu-Alpa og Karpatafjalla, mundu hinsvegar menningarlega séð frekar skilgreinast sem Balkan- búar eða Austur-Evrópumenn. Þeir voru og öldum saman undir tyrk- neskum yfirráðum. Þessi munur á „balkönskum" og „miðevrópskum" íbúum Rúmeníu er að líkindum áhugaverður hluti baksviðs uppreisnarinnar gegn Ce- ausescu, sem stundum var sagt um að stjómaði í anda Drakúla og Týrkjasoldána. Drjúgur liöur í stefnu Ceausescus var hörð rúmensk þjóðernishyggja og svo er að heyra að hennar gæti allmjög meðal Rúmena áfram. Ým- islegt bendir raunar til þess að sum- ir flokksmanna Ceausescus hafi eftir hans dag spanað þjóðemisöfgar upp í sínu fólki með það fyrir augum að sameina „miðevrópska" Rúmena „balkönskum" Rúmenum og draga úr samstöðu Transsylvana yfir þjóð- ernis- og trúarmarkalínur. í þeim tilgangi kann að vera að reynt sé að Ceausescu „geröi Rúmenlu óháöa'.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.