Tíminn - 30.07.1993, Page 12
12 Tíminn
Föstudagur 30. júlí 1993
Landgræðsla ríkisins dreifði 440 tonnum af áburði á
Blönduvirkjunarsvæðinu í sumar:
Flugbraut í smíðum
við virkjunina
Landsvirkjun vinnur nú aö gerð flugbrautar á miöju uppgræöslusvæðinu á
hálendinu í kringum Blönduvirkjun. Þetta er gert til þess aö hægt sá í
framtíðinni að dreifa áburöi á uppgræöslusvæðin með minni flugvél Land-
græðslunnar og draga þannig úr kostnaði. Hingað til hefur verið flogið með
áburðinn um 50 km. leið frá Sauðárkróki að uppgræðslusvæðunum.
Landgræðsla ríkisins dreifði úr
lofti 440 tonnum af áburði á heið-
unum í kringum Blönduvirkjun í
sumar með stærri flugvélinni.
Þetta uppgræðslustarf er kostað af
Landsvirkjun samkvæmt samn-
ingi á milíi bænda og sveitarfélaga
annars vegar og Landsvirkjunnar
hins vegar, til að bæta fyrir land-
spjöll af völdum virkjunarlónsins
við Blöndu. Sú gagnrýni hefur
komið fram að ekki sé unnt að
græða upp umrætt landssvæði;
það standi einfaldlega of hátt og
jarðvegurinn haldi ekki nógu
miklum raka í sér. Davíð Pálsson
hjá Landgræðslunni vísar því á
bug að verið sé að vinna þarna
vonlaust verk.
„Það þarf náttúrlega mikinn
áburð til þess að halda beitargild-
inu,“ segir hann. „Þó að sáðgresið
deyi út eftir að áburðargjöf er hætt
koma í staðinn aðrar tegundir,
harðgerðari en ekki uppskeru-
miklar. Við sjáum auðvitað árang-
ur af þessu. Uppgræðslan á Auð-
kúluheiði og Eyvindarstaðaheiði
hefur einmitt gengið mjög vel.“
Stærri flugvél Landgræöslunnar, Páll Sveinsson TF-NPK, f flugtaki. Ráögert er aö spara fé viö uppgræöslu á Auökúlu- og
Eyvindarstaöaheiöi meö lagningu flugbrautar fyrir minni vél Landgræöslunnar á miöju uppgræöslusvæöinu.
*
Vinnum saman Grœðum Island
LANDGRÆÐSLUFRÆ
Efþú þarft að græða upp mela og rofabörð eða rækta
fallega grasflöt eigum við fræið handa þér.
Hagstætt verð.
Ráðgjöf um val á fræi fyrir mismunandi aðstæður.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 850 Hella
Sími 98-75500. Símbréf 98-75510
Úrvals frœ íslensk framleiðsla
Áttatíu og tveggja ára gamall maður á Dvalarheimil-
inu í Stykkishólmi:
Gaf eina milljón kr.
til landgræðslu
Það eru ekki einungis stór fyrirtæki eins og Oh'uverslun íslands hf. sem
styðja landgræðslu með peningagjöfum, þótt hlutur þeirra sé stærstur og
mikið í umræðunni. Fyrir nokkru gaf 82 ára gamall maður á Dvalarheim-
ili aldraðra í Stykkishólmi eina milljón króna til Landgræðslu ríkisins.
Gamli maðurinn, Jón Jónsson
frá Innri Kóngsbakka í Helgafells-
sveit á Snæfellsnesi, lét þau orð
fylgja með gjöfinni að hann vildi
með þessu láta „smáræði af hendi
rakna" til uppgræðslu og fegrunar
lands.
Jón er fæddur og uppalinn á Innri
Kóngsbakka, einn af tólf systkin-
um, en af þeim komust níu upp.
Hann bjó þar ásamt systkinum
sínum í 72 ár, eða þar til hann
flutti á Dvalarheimilið í Stykkis-
hólmi.
„Þá vorum við eftir þrír karlar.
Bræður mínir voru nú eldri en ég,
þeir voru komnir á níræðisaldur
og þá urðum við að hætta að búa.
Við fengum pláss á dvalarheimil-
inu og fórum þangað.“
Jón er maður lítillátur og ætlað-
ist reyndar ekki til að þessi rausn-
arlega gjöf kæmist í hámæli. Að-
spurður sagðist hann í samtali við
Tímann ekki vita hvort hægt væri
að líta á þetta sem neina stórgjöf.
En gerði hann þetta af einhverju
sérstöku tilfefni?
„Nei, nei, mig langar bara til þess
að hjálpa þeim til að græða upp
landið þó að í litlu sé,“ segir hann.