Tíminn - 30.07.1993, Síða 16

Tíminn - 30.07.1993, Síða 16
16 Tfminn Föstudagur 30. júlí 1993 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Njáluslóðir—Þórsmörk Arieg sumarferö framsóknarfélaganna I Reykjavik veröur farin laugardaginn 14. ágúst 1993. Að þessu sinni verðurfarið á söguslóðir Njálu og inn I Þórsmörk. Aðalleiðsögumaður ferðarinnar verður Jón Böðvarsson. Ferðaáætlunin er þessi: KJ. 8:00 Frá BSl. Kl. 10:00 Frá Hvolsvelli. Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli. Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma. Kl. 17:00 Úr Þórsmörk. Kl. 18:45 Frá Hllðarenda. Kl. 20:00 Frá Keldum. Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini. Kl. 22:00 Frá Hellu. Aætlað er að vera i Reykjavlk kl. 23:30. Skráning I ferðina er á skrifstofu Framsóknarflokksins I slma 624480 frá 9.-13. ágúst. Verð fyrir fullorðna 2.900 kr., böm yngri en 12 ára 1.500 kr. Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1993 Drætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til 9. ágúst n.k. Velunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til að greiða heims- enda giróseðla fyrir þann tima. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91- 624480. Framsóknarfhkkurínn HÓPFERÐABIFREIÐAR 6UDMUNDAR 6UDNAS0NAR ÞVERHOLTI 5 - 270 MOSFELLSBÆ Símar 667565 - ó verkstæbi 673810 Bílsímar (985) 23139 - 28150 - 36004 ALLAR STÆRÐIR HÓPFERÐA- BIFREIÐA TIL LEIGU í LENGRI OG SKEMMRI FERÐIR. HAFIÐ SAMBAND OG KYNNIÐ YKKUR KJÖRIN HJÁ OKKUR. Bújörð óskast Óskum eftir að taka sem allra fyrst á leigu bújörð til lengri eða skemmri tíma, með eða án kvóta. Upplýsingar í sima 91-10232. Til sölu Massey-Ferguson með ámoksturstækjum. Upplýsingar í síma 98-65538. PÓSTFAX TÍMANS Páll Sigbjömsson Fæddur 25. júní 1920 Dáinn 6. júlí 1993 Það var á kyrrlátu júlíkvöldi í Brekkuskógi. Börnin sofnuð eftir skemmtilegan dag, lognið algert, birkikjarrið ilmaði í kvöldsólinni, loftið ómaði af fuglasöng og yndis- legt að vera til. Þá var okkur færð sú harmafregn að Páll tengdafaðir minn hafi orðið bráðkvaddur þá fyrr um daginn. Maðurinn sem aldrei hafði kennt sér meins og lif- að lífinu lifandi var skyndilega all- ur. í kyrrðinni í skóginum skynj- uðum við vel hve lífið er fallvalt og hvernig hamingja getur breyst á augabragði í óhamingju. Af hverju? Hver er tilgangurinn með að rífa hann á brott frá ástvinum sínum og hugðarefnum? Því er erfitt að svara og eftir stöndum við hnípin og tóm. Tengdaföður mínum kynntist ég fyrst fyrir fimmtán árum, þegar ástin dreif mig austur á land til fundar við son hans. Ég gleymi aldrei þeim degi. Það rigndi mikið í Reykjavík, en þegar nálgaðist Austurlandið rofaði til. Sól skein í heiði og Héraðið skartaði sínu feg- ursta. Regnblautum Reykvíkingn- um fannst ekki ónýtt að koma í þvfiíka veðurparadís. Ekki spillti heldur viðmót verðandi tengdafor- eldra minna. Inga stóð á hlaðinu á Skriðu með bros á vör og bauð mig velkomna. Páll var að venju niðursokkinn í vinnu sína við gróðurrannsóknir. Þegar verkinu lauk kom hann með sínu hlýja og ljúfa viðmóti og bauð mig vel- komna á þann hátt að ekki var hægt að efast um að hugur fylgdi máli. Ekki hefur skugga borið á samskipti okkar síðan. Oft hefur vík verið á milli vina, en alltaf var jafn gaman að hittast. Minnist ég sérstaklega heimsóknar þeirra til okkar þegar við vorum búsett í Danmörku. Þar var hann í essinu sínu, skoðaði fögur beykitré og vildi helst taka allan skóg Dana- veldis með sér heim. Þessi tími er okkur fjársjóður nú. Páll var einstakur maður, ljúf- lingur, glettinn, hlýr, pólitískur og var þar fastur fyrir sem félags- hyggjumaður. Stundum sló í brýnu út af pólitíkinni og eru það einu skiptin sem ég hef séð hann argan og reiðan. I honum voru skemmtilegar andstæður. Annars- vegar var hann skarpgreindur og einbeittur, hinsvegar gat hann ver- ið „alger prófessor" sem skeytti lít- ið um daglega smámuni og amst- ur þessa lífs. Af honum lifa margar spaugilegar sögur sökum þessa. Hann var svo lánsamur að geta stundað vinnu sem jafnframt var hans áhugamál og var alltaf á ferð og flugi um Austurland til að þjóna bændum. Hann stundaði vinnuna af ástríðu, svo og allt sem hann tók sér fyrir hendur. Verald- leg gæði og auður skipti hann litlu. Hugur hans var stöðugt að glíma við ný og spennandi verk- efni og hann gaf sig allan í þau. Hugðarefni hans voru mörg, m.a. andleg mál, pólitík, skógrækt, ætt- fræði og landbúnaðarmál. Þegar hann komst á eftirlaun fékk hann tíma til að sinna hugð- arefnum sínum. Hann helgaði líf sitt skógrækt og fræðimennsku á sviði ættfræði. Hann kom sér upp tveimur gróðurhúsum þar sem hann sáði til trjáa og uppfóstraði. Þau skipta orðið þúsundum trén sem hann hefur plantað og orðið að skógi. Þetta er hans framlag til Héraðsins síns. Bömin löðuðust að honum og hann hafði einstakt lag á þeim. Barnabömin dáðu afa sinn og hann hafði trúnað þeirra. Það var heldur en ekki upphefð að fá að taka þátt í því sem afi gerði og hjálpa honum, hvort sem það var að ná í jarðarber eða fá afa til að spila Olsen Olsen. héraðsráðunautur Hann dó einn við gróðursetningu í lundinum sínum á ættarbóli þeirra systkina frá Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá. Þar fæddist hann og þar dó hann. Hugur hans dvaldist þar mörgum stundum. Friðsælla og betra andlát er vart hægt að hugsa sér. Hann fór bara allt of fljótt frá okkur. Við mann- anna börn erum svo eigingjörn. Eftir á finnst okkur við hafa átt eft- ir að upplifa svo margt saman með honum, en þar hafði fjarlægðin sitt að segja. Hann á Egilsstöðum, en við í Reykjavík. Ég mun alltaf minnast hans þegar ég lít trén í garðinum mínum. Þar á hann drjúgan skerf. Við munum eftir mætti reyna að miðla dætrum okkar af andblæ og hugsjónum afa þeirra. Elsku Inga mín. Guð gefi þér styrk til að lifa áfram lífinu lifandi og milda missinn sem þú hefur orðið íyrir. Guð blessi minningu ljúflingsins og eldhugans með þökk fyrir allt. Minning hans verður ljós í lífi okk- ar. Bergrún Þann 6. júlí s.l. varð bráðkvaddur Páll Sigbjörnsson héraðsráðu- nautur og vil ég hér minnast hans nokkrum orðum. Það var fyllilega í samræmi við og táknrænt fyrir ævistarf hans, að hann skyldi vera að vinna að gróðursetningu trjá- plantna, þegar kallið kom, því að hann unni og bar mikla virðingu fyrir öllu lífi, hvort sem það til- heyrði jurtum eða dýrum, hvað þá mannlífinu sjálfu. Páll var fæddur f Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá á Úthéraði þ. 25. júní 1920 og var hann næst elstur barna þeirra hjóna Sig- björns Sigurðssonar og Jórunnar Önnu Guttormsdóttur. Alls urðu börn þeirra átta og auk þess ólu þau upp fósturdóttur. Öll voru þau systkini enn á lífi, svo að fyrsta skarðið myndaðist í þann hóp við fráfall Páls. Páll ólst því upp í fjöl- mennum systkinahóp við leik og störf, eins og þau gerðust á fjöl- mennu sveitaheimili. Oftast ríkti þar gáski og gleði þrátt fyrir að efnin væru stundum af skornum skammti. Tók Páll drjúgan þátt í glaðværðinni og stofnaði þar að auki oft til hennar sjálfur. Þessi eiginleiki fylgdi honum alla ævi og var hann því gleðigjafi fyrir sam- ferðafólk sitt og hvatti það til bjartsýni og dáða. Menntunar- og fróðleiksþrá var Páli ríkulega í blóð borin og var hann ávallt mjög bókhneigður maður. Hann sótti skólamenntun sína í Alþýðuskólann á Eiðum og síðar í Bændaskólann á Hvann- eyri, bæði bænda- og framhalds- deild, og hlaut hann þannig sína starfsmenntun. Auk þessa var hann allar götur mjög iðinn við að auka þekkingu sína með því að sækja fræðslunámskeið og fundi, auk bóklestrar. Við, sem gerst þekktum Pál, vissum vel, að hugur hans stóð lengi til enn frekara langskólanáms, þó að örlögin leyfðu það ekki. Þrátt fyrir það var hann mjög sáttur við sitt hlut- skipti. Páll var mjög iðinn og samvisku- samur starfsmaður og réttlætis- kenndin var sterkur þáttur í allri skaphöfn hans. í hverju máli myndaði hann sér sína eigin skoð- un og fylgdi henni fast eftir, hvort sem hún var líkleg til lýðhylli eður ei. Sannleiksleitin mun þó senni- lega hafa verið ríkasti þátturinn í fari hans. í hverju máli í starfi og í leik leitaði hann ávallt sannleikans eftir því sem nokkur tök voru á. Snemma tók hugur hans að fást við hinstu rök lífs og dauða og var það allar götur síðan sérstakt hugðarefni hans. Gerðist hann fljótt víðlesinn um þau málefni og varð fljótt virkur félagi í ýmsum félagsskap um sálarrannsóknir. Hann var þaullesinn í ritum dr. Helga Pjeturss og margra annarra heimspekinga. Hann starfaði með og aðstoðaði marga þekkta miðla og huglækna og var í nánum tengslum við þá. Allt var þetta þáttur í sannleiksleit hans. Hugur hans stóð stöðugt opinn gagnvart nýjum sannindum og hugmynd- um. Hann bast þó aldrei neinum einum hugmyndasmið og kenn- ingum hans, heldur hlustaði hann og myndaði sér sínar eigin skoð- anir í hverju máli. Það var mér mikill fengur og lffsnautn að hitta Pál og ræða við hann um nýjustu hugmyndir og kenningar. Víssu- lega rækti hann starí sitt af sömu sannleiksást og önnur hugðarefni, þó að þar gætu stundum orðið árekstrar á milli. Eitt sinn sagði Páll mér frá því, þegar hann fór að ræða sauðfjárkynbætur við einn bóndann, sem svaraði því til, að hann vonaðist til að mannkynið kæmist fljótlega á það menningar- stig, að það hætti að rækta dýr til kjötneyslu og kynbætur því ónauðsynlegar. Þarna hitti bóndi mjög viðkvæman streng í brjósti Páls, það er mótsögnina í ást á líf- inu og þörfinni á lífverum til við- urværis, en það var einmitt þáttur í hans huglægu viðfangsefnum. Páll og Ingunn kona hans áttu mjög hlýlegt og fagurt heimili all- an sinn búskap. Ingunn fylgdi manni sfnum mjög í andlegum málefnum svo sem í starfi. Þau voru sérlega gestrisin heim að sækja og nutum við hjónin þess í ríkum mæli að gista hjá þeim og ræða við þau, sem við þökkum nú af alhug. í þessu umhverfi ólust upp og döfnuðu synir þeirra þrír. Við hjónin vottum Ingu, sonum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guttormur Sigbjamarson Hinn 6. júlí s.l. varð Páll Sig- bjömsson, fyrrverandi ráðunautur á Egilsstöðum, bráðkvaddur. Hann var við áhugastarf sitt, að planta trjám í minningarlund foreldra sinna í Rauðholti, er hann lést. Það var e.t.v. táknrænt fyrir hans líf og starf, að fegra og bæta land- ið. Páll og systkini hans hafa kom- ið upp trjálundi í Rauðholti til minningar um foreldra sfna. Auk þess hafði hann tekið þar frá og girt 10 ha af landi, sem hann hugðist klæða skógi. Páll Sigbjörnsson fæddist 25. júní 1920 í Rauðholti í Hjaltastaða- þinghá. Foreldrar hans voru hjón- in Sigbjörn Sigurðsson, bóndi og oddviti, og Jórunn Anna Gutt- ormsdóttir. Þau voru bæði af traustum austfirskum ættum, en Sigbjöm rakti einnig ættir í Hornafjörð og Eyjafjörð. í Rauðholti ólst Páll upp í stómm systkinahópi. Hann stundaði nám á Eiðum og lauk þaðan prófi árið

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.