Tíminn - 30.07.1993, Qupperneq 22
22 Tíminn
Föstudagur 30. júlí 1993
DAGBÓK
Elín Anna ísaksdóttír, Krístín Cuömundsdóttir og Trístan Cardew.
Þriðjudagstóiileikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Á þriðjudagstónleikunum f Listasafni Sigurjóns Óla/ssonar þann 3. ágúst kl. 20.30
koma fram eftirtaldir hljóðfæraleikarar: Kristín Guðmundsdóttir flautuleikari, Tristan
Cardew flautuleikari og Elín Anna ísaksdóttir píanóleikari. Á efnisskrá eru verk eftir
G.F. Hándel, A.F. Doppler, G.Ph. Telemann og J. MouqueL
Kristín Guðmundsdóttir lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið
1988. Að því loknu fór hún til Frakklands og stundaði framhaldsnám við Conservato-
ire National de Bourg-la-Reine í París. Samhliða því var hún í einkatímum hjá Manu-
elu Wiesler í Vínarborg.
TVistan Cardew stundaði nám í heimalandi sínu, Englandi, en flutti til Parísar þar sem
hann nam fyrst í tvö ár við Conservatoire National de Bourg-la-Reine, en síðar í Con-
servatoire d’Hector Berlioz og var Raymond Guiot aðalkennari hans þar. Auk þess sótti
hann einkatfma hjá Pierre-Yves Artaud, sem kennir við Parísartónlistarháskólann.
Elín Anna ísaksdóttir lauk einleikaraprófl frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún
stundaði síðan nám hjá Jiri Hlinka, prófessor við Tónlistarháskólann í Bergen, og sæk-
ir nú tíma hjá önnu Þorgrímsdóttur. Elín starfar við píanókennslu samhliða tónlistar-
iðkun sinni.
Ensk orgettónlist á tónleikum
í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 1. ágúst leikur Friðrik
Walker, organisti við sóknarkirkjuna í
Horsham f Sussex á Englandi, á fimmtu
orgeltónleikum Hallgrímskirícju „Sum-
arkvöld við orgelið" og hefjast tónleik-
amir kl. 20.30. Á tónleikunum leikur
Friðrik eingöngu orgeltónlist og aðai-
lega frá 19. og 20. öld. Þeir höfúndar,
sem eiga verk á tónleikunum, eru
Clarke, Blow og Stanley sem voru uppi á
17. öld og Hollins, Brewer, Thalben-Ball,
Elgar, Bairstow, Chappell, Vaughan-
Williams og Fletcher, sem flestir voru
virkastir á fyrri hluta þessarar aldar.
Friðrik Walker fæddist á íslandi árið
1963, en ólst upp og hlaut alla menntun
sína í Bretlandi. Frá 1977 hefur hann
starfað sem aðstoðarorganisti þar sem
hann hefur verið við nám, m.a. hjá kenn-
ara sínum í Paisley Abbey og í St. Mary’s
Episcopal Cathedral í Glasgow. Þessum
störfum fylgdi yfirleitt þjálfun kóra
kirknanna. Árið 1985 var hann ráðinn
tenór- forsöngvari við dómkirkju heilags
Andrésar í Wells og frá 1989 hefur hann
verið organisti og kórstjóri við sóknar-
kirkjuna í Horsham f Sussex. Á sama
tíma hefur hann verið tónlistarstjóri
Pennthorpe-skólans í Rudgwick í Sus-
sex.
Frá Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlag-
að molakaffi.
Hafliöahelgi í Skálhotti
Texti, myndir og tónar fléttast saman á
Sumartónleikum í Skálholtskirkju um
þessa helgi. Höfundur flestra verkanna
og þátttakandi í flutningi þeirra er Haf-
liði Hallgrímsson tónskáld frá Edinborg
og verðlaunahafl Norðurlandaráðs frá
1986. Þrjár tónsmíðar verða frumfluttar
að þessu sinni. í Skálholtsskóla er sam-
tímis opin sýning á grafíkmyndum Haf-
liða.
Hafliði Hallgrímsson var velþekktur
sellóleikari áður en hann sneri sér veru-
lega að tónsmíðum. Á laugardaginn kl.
15 leikur hann á selló á móti Bimi Stein-
ari Sólbergssyni orgelleikara í nýju verki
sem hann kallar „Predikun á vatni“. Á
sömu tónleikum flytur sönghópurinn
Hljómeyki tvö ný kórverk eftir Hafliða
undir stjóm höfundarins, „Myrtuskóg"
og „Níundu stund", við latínutexta frá
miðöldum og ljóð Baldurs Óskarssonar.
Ennfremur leikur Guðný Guðmunds-
dóttir „Offerto" fyrir einleiksfiðlu frá
1991, sem samið er í minningu Karls
Kvarans listmálara.
Á laugardaginn kl. 17 er tónlistin í
höndum Kolbeins Bjamasonar, Sigurðar
Halldórssonar og Péturs Jónassonar.
Þeir flytja tvö verk eftir Hafliða Hall-
grímsson, „Tristiu“ fyrir selló og gítar
og „Flug fkarusar" fyrir einleiksflautu.
Auk þess hljóma tvö einleiksverk í við-
bót, sem hafa texta og frásögn að bak-
gmnni, líkt og algengt er hjá Hafliða.
Það er „Elegia“ eftir Finnann Aulis Sal-
linen og „Septuplum" eftir þýska tón-
skáldið Konrad Lechner.
Á undan laugardagstónleikunum ræðir
Hafliði Hallgrímsson um tónlist sína og
myndverk í húsakynnum Skálholtsskóla.
Hefst erindið kl. 14.
Sunnudaginn 1. ágúst em fyrri tónleik-
ar laugardagsins endurteknir kl. 15 og í
messunni kl. 17 verður tónlistarflutn-
ingur af efnisskrám helgarinnar. Prestur
er sr. Guðmundur Óli Ólafsson.
Eins og ævinlega er aðgangur ókeypis
að Sumartónleikum í Skálholtskirkju.
Bamagæsla er í skólanum og áætlunar-
ferðir frá Umferðarmiðstöðinni í Reykja-
vík.
80 ára afmæli
í gær, fimmtudaginn 29. júlí, varð átt-
ræður Einar Jónsson, fyrmrn gjaldkeri f
fjármáladeild SÍS, Fumgmnd 30, Kópa-
vogi. Kona hans er Jóhanna Ámadóttir.
Tilkynningin átti að birtast í blaðinu í
gær, en gleymdist og er beðist velvirð-
ingar.
i m
i i L_„ )/ m jf ||asHW'
K U B B U R
S/CJMVBÖMRERM
emqÆimRW
SEMÞARRAÐÞMRRM
ARRWV/
ts
6509.
Lárétt
1) Möndlugraut. 6) Maður. 7) Nes. 9)
Drykkur. 10) Ráðningin. 11) Korn.
12) Ónefndur. 13) Stofnun Samein-
uðu þjóðanna. 15) Áræðnir.
Lóðrétt
1) Danskur skagi. 2) Féll. 3) Svörun.
4) 1001. 5) Tvær. 8) Afar. 9) Málm.
13) Tónn. 14) Bjó til klæði.
Ráðning á gátu no. 6508
Lárétt
1) Indland. 6> Ein. 7) MM. 9) Ar. 10)
Játuðum. 11) UT. 12) Ra. 13) Mal.
15) Tignaði.
Lóðrétt
1) Ilmjurt. 2) DE. 3) Liðugan. 4) An.
5) Dormaði. 8) Mát. 9) Aur. 13) MG.
14) La.
Skákþraut
8 p w w
7 mm & m
6 i
5 ■ ■!i ut
4 H! !É li
3 Mft$ & 1±B
2 &mm m m
1 Mi # §
abcdefgh
Boris vien- úininy e.urevich
Bandanska nieistaramótið.
Svartnr lciku o« vinnur.
1....D.\gjí. 2. Iv.vgi,15e5 mál.
Li 1. Khi, getur svartur unnio
meó2......He2 eða 2......Be5.
Kvóld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i
Reykjavík frá 30. júli til 5. ágúst er i Árbæjar
apóteki og Laugames apóteki. Paó apótek sem
fym er nefnt annast eitt vórsluna frá kl. 22.00 að
kvöldi til kl. 9.00 aó morgni virka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og
lyflaþjónustu eru gefnar i sima 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stðrhátiðum. Simsvari 681041.
Hafnarfjorður: Hafnarfjaröar apðtek og Norðurtræjar apð-
tek eru opin á virkum dögum frá Id. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apötek og Stjömu apótek enj opin
virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og heigidagavörslu. A
kvóidin er opið i þvi apðteki sem sér um þessa vötslu. til kl.
19.00. A heigidögum er opið frá k). 11.00- 12.00 og 20.00-
21.00. A öðrum timum er lyQafræðingur á bakvakt Upplýs-
ingar eru gefnar i sima 22445.
Apðtek Kefíavikur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard, helgidaga og almenna fridaga M. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað i hádeginu mili kl. 12.30-14.00.
Selfbss: Selfoss apótek er opið til Id. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga ti Id. 18.30. A
laugard. ki. 10.00-13.00 ogsunnud. Id. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga id. 9.00-18.30,
en laugardaga k). 11.00-14.00.
29. Júlí 1993 kl. 10.52
Oplnb. vlðm.gengl Gengl
Kaup Sala •kr.fundar
Bandaríkjadollar... ....71,87 72,03 71,95
Sterlingspund „107,48 107,72 107,60
Kanadadollar ....55,91 56,03 55,97
Dönsk króna „10,755 10,779 10,767
Norsk króna ....9,791 9,813 9,802
Sænsk króna ....8,923 8,943 8,933
Finnskt mark „12,339 12,367 12,353
Franskur franki „12,280 12,308 12,294
Belgiskur franki.... „2,0184 2,0230 2,0207
Svissneskur franki „„47,50 47,60 47,55
Hollenskt gyilinl.... „..37,19 37,27 37,23
Þýskt mark ....41,80 41,90 41,85
Itölsk líra 0,04499 0,04509 0,04504
Austurrískur sch... ....5,939 5,953 5,946
Portúg. escudo „0,4132 0,4142 0,4137
Spánskur peseti.... „0,5155 0,5167 0,5161
Japansktyen „0,6764 0,6780 0,6772
Irskt pund „100,92 101,14 101,03
SérsL dráttarr „100,11 100,33 100,22
ECU-Evrópumynt.. „„81,21 81,39 81,30
Grísk drakma „0,3038 0,3044 0,3041