Tíminn - 16.10.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. október 1993
Tíminn 3
Gallup spurði Kópavogsbúa og Hafnfirðinga, en tók
þá síðan út úr gögnum sem dreift var:
Mjög hlynntir
sameiningu
— annarra
sveitarfélaga
í kjölfar fréttar Tímans um
sameiningarmál sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu kom í ljós
að Kópavogsbúar og Hafnfírð-
ingar voru eftir allt saman
spurðir álits á tillögum um-
dæmanefndar um sameiningu
sveitarfélaga í sinni heima-
byggð. En svör fólks úr þessum
bæjum voru aftur á móti, af ein-
hverjum ástæðum, tekin út úr
þeim niðurstöðum Gallup-
könnunarinnar sem fjölmiðlar
fengu.
Þau svör gefa til kynna að þótt
Kópavogsbúaar og Hafnfirðingar séu
flestum öðrum hlynntari því að
sveitarfélög séu sameinuð, þá sé
mikill meirihluti þeirra (60%) samt
líka hlynntir tillögum umdæma-
nefndar, þ.e. um að þeirra eigin bæir
sameinist ekki öðrum sveitarfélög-
um.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, var einn þeirra sem sat í
svæðisumdæmanefnd höfúðborgar-
svæðisins og átti því þátt í smíði
sameiningartillagna á því svæði.
Tíminn bar því undir hann hvernig
túlka skuli þessar niðurstöður varð-
andi Kópavog (þar sem 84% lýsa sig
almennt hlynnta sameiningu, en
um 60% samt hlynnta því að sam-
einast engum sjálfir).
„Þetta eru menn sem hugsa eins og
ég. Almennt er ég mjög hlynntur því
að taka á þessum málum þar sem
eru margir og smáir, jafnvel 50 til 60
manna hreppar, og fara minnkandi.
Ég held að það væri leiðin til að
drepa þá endanlega að hafe þá áfram
einangraða. Ég hefði þess vegna hik-
Félag ísl. heimilislækna um
heilsukort:
Athæfi sem ekki
á sér fordæmi
Stjóm Félags íslenskra heimilis-
lækna hefur lýst andstöðu sinni við
hugmynd heilbrigðisráðherra um
heilsukort, sem verið hefúr til um-
ræðu í tengslum við gerð fjárlaga.
í ályktun um málið, sem stjórn fé-
lagsins sendi frá sér í fyrradag, segir
að stjómin líti svo á að greiðslur fyr-
ir heilsukort muni helst þeir, sem
veikir eru, inna af hendi. Kort þessi
séu því aðeins nýr skattur, sem í
þokkabót verði ekki jafnað niður eft-
ir tekjum þegnanna, heldur heilsu
þeirra. Stjómin líti því svo á að hér
sé verið að undirbúa sjúklingaskatt,
sem ekki eigi sér fordæmi í hinu ís-
lenska velferðarríki. Síðan segir:
„Stjórnin Iýsir áhyggjum sínum yf-
ir þróun umræðu um kostnað við
heilbrigðisþjónustu hér á landi og
telur að mannúðarsjónarmið og
umhyggja fyrir hinum sjúku séu
víkjandi í tilraunum stjórnvalda til
að ná tökum á halla ríkissjóðs. Lýsir
stjómin ábyrgð á hendur þeim
stjórnmálamönnum sem virðast
hafa það eitt að leiðarljósi að færa
þjóðinni harðneskjulegri stjómar-
hætti og brjóta niður það þjóðfélag
mannúðar og umburðarlyndis, sem
fólk úr öllum flokkum og stéttum
þjóðfélagsins tók þátt í að byggja.“
—sá
laust svarað því til að almennt væri
ég hlynntur sameiningu sveitarfé-
laga. En ég hefði líka svarað síðari
spumingunni þannig að ég væri
hlynntur tillögum svæðisumdæma-
nefndar á mínu svæði (þ.e. um að
Kópavogur yrði ekki sameinaður
öðmm). Því Kópavogur og Hafnar-
fjörður þurfa ekki að sameinast öðr-
um sveitarfélögum.
En víst er erfitt að taka á þessu máli.
Úti á landi segja menn: „Þið viljið
endilega að við sameinumst. En af
hverju sameinist þið ekki sjálfir?",
sem í sjálfu sér kemur málinu ekkert
við,“ sagði Sigurður. Af svörum í
Gallupkönnuninni mætti kannski
ráða að þrátt fyrir að yfirgnæfandi
meirihluti Kópavogsbúa telji affæra-
sælast að þeir haldi áfram stjóm eig-
in mála, þá sýnist þeim samt hið
besta mál að Seltjamames og Kjós-
arsýsla öll sameinist Reykjavík í eina
110 þúsund manna borg.
Sigurður sagði að í nefndinni hafi
menn sett niður fyrir sér hvað þeir
teldu raunhæft. Vegna þess hvemig
bæjarmörk skarast, hefði öllum
sýnst það liggja mjög vel við Garða-
bæ og Bessastaðahrepp að nýta hluti
saman. Að Hafnarfjörður yrði einnig
með hafi líka verið nefnt, en smám
saman einhvem veginn lognast útaf.
Mönnum hafi líka þótt það liggja vel
við að Seltjamames sameinaðist
Reykjavík.
„Ég fór í frí í september og veit því
ekki hvar, hvenær eða hvernig þessi
hugmynd um sameiningu Mosfells-
bæjar, Kjalarness og Kjósar við
Reykjavík kom upp. En ég var ekki
mjög hrifinn af því að hugmyndim-
ar skyldu breytast þannig, meðan ég
var í burtu.
Að Seltjamames sameinist Reykja-
vík sýnist mér eðlilegt. Upp á fram-
tíðina væri það mikil hagræðing fyr-
ir Garðabæ og Bessastaðahrepp að
nýta margt í sameiningu. Og eins
væri eðlilegt að Mosfellssveit, Kjal-
ames og Kjós sameinuðust í eitt
sveitarfélag. En að bæta öllum þess-
um þrem sveitarfélögum í Kjósar-
sýslu við Reykjavík — ég er ekki
hrifinn af þeirri hugmynd.
Einhvemveginn þykir heldur ekk-
ert knýja Kópavog til sameiningar,
nema þá ef það væri við Reykjavík.
En nú er Kópavogur orðinn 17 þús-
und manna bær og vex hraðast af
öllum þessum byggðum hér á svæð-
inu. Og svona almennt séð hef ég
verið þeirrar skoðunar, að meðan
þessi uppbygging er svona ör á þess-
um svæðum, þá séu þessi sveitarfé-
lög út af fyrir sig svona aflrænni ein-
ingar heldur en með einni lummu
yfir svæðinu öllu saman.“
Sigurður segir þá menn líka til,
sem sjá þetta svæði allt sem eina
stóra borg einhvemtíma. Slíkt
mundi þá væntanlega gerast í
nokkrum áföngum. Og sameining
Bessastaðahrepps og Garðabæjar
gæti þá verið raunhæft skref í þá átt.
Á höfuðborgarsvæðinu búa nú
kringum 150 þúsund manns og þá
rúmlega 110 þúsund á öllum öðrum
svæðum landsins.
„Ég gæti trúað að fjölgunin haldi
áfram hér, upp í kringum 200 þús-
und manns og nái þá nokkru jafn-
vægi — í 200 þús. hér og 100 þús-
und annars staðar á landinu. Ég held
að þessi þróun fari nú ekki miklu
lengra en svo," segir Sigurður. - HEI
Einmitt mjolkin
sem vantaði
0
>
samræmi við nýjan lífsstíl. Fjörmjólkin y
er næringarrík, r<§) létt og frískandi og
því kjördrykkur þeirra sem æ hugsa vel
um heilsu sína og útlit.
Fjörmjólk líkist léttmjólk hvað
varðar lit og bragð og hún er fitulítil
eins og undanrenna. Fjörmjólk er ríkari af
próteini og kalki en önnur ^^mjólk og
í hana er sett'^-vítamín sem hjálpar
* *
líkamanum að vinna kalkið úr fæðunni.
Fjörmjólk verður án efa drykkur dagsins
^^^^^^phjá fjölmörgum - bæði vegna
bragðsins og innihaldsins.
Fjörmjólk - drykkur dagsins
nmr