Tíminn - 16.10.1993, Blaðsíða 7
Laugardagur 16. október 1993
Tíminn 7
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráös, telur aó heföbundnar atvinnugreinar veiöimannasamféiagsins séu mettaöar og aö skilningur sé aö aukast
á nýsköpun. Tímamynd Árni Bjarna.
með fisk.“
Jón segir að þegar rætt sé við út-
lendinga um fisk og afhverju þeir
hafi mikinn áhuga á að kynnast
því sem íslendingar eru að gera,
þá eru þeir einna hrifnastir af getu
okkar í sölu og markaðssetningu
sjávarafurða á alþjóðlega vísu.
„Við eigum að ætla okkur miklu,
miklu stærri hlut á því sviði og við
erum reyndar byrjaðir á því. M.a.
eru íslenskar sjávarafúrðir hf.
byrjaðar að selja fisk frá Kam-
chatka í Rússlandi til Ameríku,
sem hefur ekkert með ísland að
gera. Ég held að þama séum við að
stíga fyrsta stutta skrefið í þessum
efnum og ég hef trú á því að við
verðum fisksölumenn heimsins."
—Hvar liggja þá sóknarfæri okk-
ar í þessum efnum?
„Við þurfum að átta okkur á því að
hugtakið nýsköpun eins og OECD
skilgreinir það nær alveg eins til
þjónustu, vöru og framleiðslu. fs-
lendingar hafa hinsvegar verið
mjög uppteknir við að hugsa um
nýsköpun sem einhverja breyt-
ingu á vöru. Þannig að nýsköpun
nær alveg eins til ferðaþjónustu,
bankaþjónustu, hugbúnaðargerð-
ar og annarra slíkra þátta.“
—En afhverju þurfa menn yfir-
leitt einhverjar breytingar eða ný-
sköpun í okkar þjóðféiagi?
„Mín skoðun í þeim efnum
grundvallast á því að við höfúm
alltaf byggt okkar éfnahagslíf á
nýtingu auðlinda; hafinu, orkunni
og landinu. Þetta eru hinsvegar
allt afmarkaðar stærðir og við vit-
um t.d. nokkum veginn upp á
tonn hvað við getum veitt af fiski á
næstum ámm. Þá em ekki sjáan-
legar neinar breytingar í stóriðju
eða nýtingu orkunnar á næst-
unnni og hin mikla framleiðni-
aukning sem hefur orðið í land-
búnaði hefur gert það að verkum
að það þarf færri hendur í þeim
geira en áður. Ef við lítum á ferða-
þjónustuna sem einn þátt í nýt-
ingu landsins þá er sú atvinnu-
grein háð skömmum nýtingar-
tíma. Þannig að allir þessir þættir
em mjög takmarkaðir."
Áhersla á sér-
stöðu landsins
Jón segir að mörg teikn séu á lofti
um að ferðaþjónstan sé að verða
sérhæfari og menn séu í ríkari
mæli en áður famir að markaðs-
setja hana og höfða þá um leið til
hópa sem hafa efni á að koma
hingað.
Jöklaferðir hf. á Höfn í Homa-
firði er einmitt lýsandi dæmi um
nýsköpun. Þar em menn að fram-
kvæma hluti sem enginn hefði
trúað að væri hægt fyrir nokkmm
ámm; skipulagðar ferðir með út-
lendinga uppá jökla og út á sjó til
að skoða hvali.“
Framkvæmdastjóri Útflutnings-
ráðs segir að við getum í raun ekki
keppt um hinn almenna ferða-
mann; til þess sé Iandið væntan-
lega of dýrt. Þess í stað eigi að
leggja höfúðáhersluna á sérstöðu
þess sem landið hefur uppá að
bjóða umfram það sem aðrar þjóð-
ir hafa.
í því sambandi nefnir Jón t.d. ís-
lenska hestinn, vatnið og hug-
myndir manna um visthæf mat-
væli.
„Mér finnst að það ætti að gefa
því meiri gaum. Það em til mark-
aðir erlendis fyrir visthæfar mat-
vömr þar sem neytendur em til-
búnir að greiða það verð sem þarf
til. Auk þess þurfúm við almennt
að komast með okkar vömr nær
neytandanum en verið hefur. Til
dæmis er mikið af okkar fiski selt á
erlendum mörkuðum án þess að
þar komi fram hvaðan hann sé
ættaður.“
Hann segir að við þurfum líka að
huga að hvemig við eigum að skil-
greina okkur.
„Hugsanlega emm við bara mat-
vælaframleiðendur. En til að ná
okkur út úr þessari lægð sem ein-
kennt hefur efnahagslífið þá þurf-
um við að einbeita okkur að út-
flutningi, eins og aðrar þjóðir svo
sem Danir, Japanar og Hollend-
ingar. Allt þeirra kerfi miðast við
útflutning og sölu á vamingi."
Hlédrægni ríksins
—En er einstaklingum og fyrir-
tækjum sköpuð einhver skilyrði
til að standa að nýsköpun. Hvað
með þátt hins opinbera í þeim
efnum og hvar kemur ríkið þar
inn?
„Ég held að ríkisvaldið hafi dreg-
ið sig alltof mikið í hlé í því og þar
hafi menn verið of hlédrægir í
stuðningi sínum við einstaklinga
og fyrirtæki í þessum efnum.“
Jón segir að honum hafi fúndist
það sláandi í haust þegar ríkis-
stjórnin ákvað að veita 50 milljón-
ir króna í styrki til markaðssetn-
ingar vegna EES-samningsins.
Þessi ákvörðun stjómvalda var
auglýst í sumar og viðbrögðin
vom mikil, eða 101 umsókn.
„Menn voru að biðja um styrki
upp á tæpan hálfan milljarð. En ef
það var lagt saman sem fyrirtækin
vildu sjálf leggja fram og það sem
þau báðu um, þá var þetta um einn
milljarður króna. Ég hafði mjög
gaman af því að sjá hvað margt af
þessu vom góðar hugmyndir og
hvað mikið er að gerast í raun og
vem. Auðvitað vom margar um-
sóknimar þess eðlis að þær ná
kannski ekki fram að ganga en það
vantar ekki viljann né hugmynda-
auðgina. Það vantar peningana.“
Jón segir að menn séu oft búnir
að vinna sjálfa hugmyndina og
jafnvel viðkomandi vöm en þá
komist menn í þrot, vegna þess að
þeir hafa ekki bolmagn til að fylgja
þessu eftir síðasta spölinn og hefja
sjálfa markaðssetninguna.
„Varðandi þessar umsóknir
fannst mér það sérstaklega áhuga-
vert hvað komu fram sterkar um-
sóknir frá hugbúnaðarfyrirtækj-
um. Ég dreg þá ályktun að það sé
ákveðið færi í þeim iðnaði hérna á
landi. Við höfum t.d. menntað fólk
og höfúm einnig tiltölulega einfalt
þjóðfélag og meiri nálægð en í
stærri þjóðfélögum. Innlendir að-
ilar á sviði hugbúnaðar geta fengið
verkefni, m.a. frá ítölum og fleir-
um. Þótt þessi hugbúnaðarfýrir-
tæki séu að framleiða vöm sem á
vissum tímapunkti er á undan því
sem gerist erlendis, þá vantar oft á
tíðum peninga til að klára dæmið.
Ég tel því að það þurfi að vera til
áhættufé sem þessi iðnaður geti
gengið í.“
—En er eitthvað í farvatninu
sem bendir til þess að meiri skiln-
ingur sé fyrir nýsöpun og mikil-
vægi úflutnings en áður?
„Ég veit ekki hvort hann er þegar
fyrir hendi. En ég held þó að skiln-
ingur manna sé mjög víða að opn-
ast fyrir því að við emm komin að
mettunarmarki í hinum hefð-
bundnu atvinnugreinum veiði-
mannasamfélagsins. Á móti þurf-
um við að skapa rúmlega þúsund
ný störf á hverju ári fyrir unga
fólkið sem einatt er mun mennt-
aðra en það fólk sem er að hverfa
af vinnumarkaðnum. Þannig að ef
við ætlum að halda þessu fólki þá
þarf að koma til einhver nýsköpun
í atvinnulífinu sem fullnægir
metnaði þess.“
-GRH