Tíminn - 16.10.1993, Blaðsíða 11

Tíminn - 16.10.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 16. október 1993 Tíminn 11 Á FJÓRUM HJOLUM Hér kemur þriðjl og síðasti hluti umfjöllunar Tímans um 1994- ár- gerðirnar, sem nú tínast ein af annarri inn á markaðinn. í sumum til- fellum er um nokkrar breytingar að ræða, en hjá öðrum hafa þær þeg- ar átt sér stað, sbr. Mercedes-Benz og hinn nýja Fiat Punto. Sums staðar liggja verð á 1994- árgerðunum ekki fyrir og a.m.k. einn bíll, sem ekki er fluttur inn, fær að fljóta hér með, en það er gamli góði Moskóvítinn, en gaman væri að vita hvað hann kostar núna kominn á götuna. Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf. Hvundai Pony Hyundai-bflarnir frá Kóreu hafa náð góðri fótfestu hér á landi, enda er um talsvert vandaða bfla að ræða, sem eru á góðu verði. Pony er þeirra minnstur. Vélarnar eru frá 59-83 hö. og eru 1,3-1,5 lítra. Verð frá 853 þúsund. Elantra Vandaðir bflar af millistærð með 86-126 hestafla vélar. Aukabúnað- ur eins og ABS-hemlar, iíknar- belgur auk margs annars er fáan- legur. Verðið er hagstætt eða frá 1.350 þúsund fyrir 126 ha. bflinn. Sonata Flaggskip Hyundai-bflanna. Stór og vandaður bfll og verulega breyttur frá árgerð 1993. Vélar- stærðir eru 135-146 hö. og hægt að velja milli margs konar inn- réttingagerða og aukabúnaðar. Lada Safír Gamalkunnur og gamalreyndur vinnuhestur. Ódýrasti bfllinn á ís- Ienska markaðnum og bfll sem ailtaf hefur haldið góðu endur- söluverði og verið auðseljanlegur. Upphaflega hannaður hjá Fiat í kringum 1960 og framleiddur þar undir nafninu Fiat 124, en hefur gengist undir ýmsar breytingar og endurbætur síðan hjá Rússunum austur í Togliatti við Volgu. Vélar- stærðir eru frá 1,21 upp í 1,61,53- 73 hö. Verðið er frá 558 þúsund. Moskvich Moskóvítinn hefur ekki verið fluttur til íslands síðan skömmu eftir 1970 og sárafáir því enn gangfærir. Hann er þó framleidd- ur lítið breyttur frá því sem var þá. Vélin er enn 1,5 1, 78 ha. Langar einhvern í hann nú? Ræsir hf. Mazda Mazda 121 Smábfllinn frá Mazda hefur teg- undarnúmerið 121 og var einn fyrstu smábflanna með mjög ával- ar línur. Vélarstærðir eru frá 54- 88 hö. Bfllinn er fernra dyra og furðu rúmgóður að innan, miðað við hversu lítill hann er að utan, og skottið rúmar nokkra inn- kaupapoka. Hann fæst fimm gíra eða sjálfskiptur. Mazda 323 Þetta er e.t.v. Mazdan sem passar flestum og fæst líka í fjórum höf- uðútgáfum. Algengastur hér er stationbfllinn með eða án fjór- hjóladrifs. Vélar eru 56-210 hö. Verð frá 950 þúsund. Mazda 626 Bfll af millistærð, rúmgóður og þægilegur. Sá bfll, sem Mazda framleiðir mest af og selur þar af leiðandi best. Hann fæst í þremur höfuðútgáfum, eða sem hlaðbak- ur, skottbfll og afturbyggður. Vél- ar eru frá 75-165 hö. Verð frá tæpl. 1.900 þúsund. Mazda Xedos Xedos er byggður á 626 og er svona smærri lúxusbfll með sex strokka tveggja lítra vél, 144 ha. og fjögurra hraða sjálfskiptingu. Nýjasti Xedos-bfllinn kallast Xed- os 9. Enn meira er í hann lagt en þann „venjulega" og verður m.a. hægt að fá hann með 165 ha. vél. Mercedes-Benz C-línan Nú síðsumars kynntu Mercedes- Benz framleiðendurnir nýja C- línu, sem er nýhönnuð og hefur vakið mikla hrifningu bflaáhuga- manna. C-Benzar þykja mjög vel hannaðir, bæði hvað varðar nota- gildi og aksturseiginleika. Vélar- stærðir eru 75-193 hö. og er um að ræða bæði bensín- og dísilvélar. Ný dísilvél fæst í C-Benz. Hún er fimm strokka og 20 ventla. C- Benz kostar frá tæplega 3 milljón- um króna. Benz E-lína Þetta er sá Benz, sem algengastur er á íslandi og einkum er hann vinsæll hjá leigubílstjórum. Vélar fást í hann frá 75-320 hö., bæði bensín og dísil. Þær þykja allar tæknilega fullkomnar og spar- neytnar. Benz E kostar frá rúm- lega 3,4 milljónum króna. Honda-umboöiö Honda Civic Honda Civic fæst í fimm megin- gerðum, en mismunandi aftur- endar skilja einkum í milli þeirra. Vélar eru frá 75-170 hö. Hondabfl- ar hafa lengi þótt skera sig úr hvað varðar útlit, en þeir eru yfirleitt mjög fallega hannaðir. Honda Civ- ic kostar frá 1.120 þúsund. Honda Accord Honda Accord er bfll af millistærð og vinsælasta útgáfa hans er 1994 árgerðirnar SEINASTI HLUTI venjuleg fólksbifreið með skotti. Hann fæst einnig í stationútgáfu og sem hlaðbakur. Vélar eru frá 115-150 hö. Verð frá 2.090 þús- und. ítalska bílaumboðið með öflugt rafkerfi og geymi. Vélin er 1100 rúmsm, 50 hestafla. Uno fæst bæði tvennra og fjögurra dyra og er ágætlega rúmgóður. Verðið er ágætt eða frá 730 þúsund. Fiat Uno Punto Hinn ágæti Fiat Uno er nú að renna sitt skeið á enda, en hann fæst nú á íslandi í sérstakri heimskautaútgáfu Fiat Punto er arftaki hins velþekkta Fiat Uno. Punto þykir vel hannaður bfll, með gott innanrými og er að koma á markað í Evrópu þessa dag- ana. Vélar eru 55-136 hö. og gír- kassar sex gíra eða stiglausar sjálf- skiptingar. Bíllinn verður fáanlegur f 36 gerðum og meðal útbúnaðar eru ABS-hemlar, líknarbelgur og svo alls konar mismunandi raf- magnsfiff. Vélarnar eru frá 1100 rúmsm upp í 1700. Verð liggur ekki fyrir. B FÉLAGSFUNDUR í Félagi bókageröarmanna verður hald- inn mánudaginn 18. október 1993 kl. 17.00 aö Hótel Holiday Inn viö Sigtún. Dagskrá: 1. Félagsmál (breytingar á stjórn — útgáfumál) 2. Önnur mál Reykjavík, 12. okt. 1993. Stjórn og trúnaðarmannaráð FBM Ökuskóli íslands hf. Námskeið til undirbúnings aukinna ökuréttinda (leigubif- reiða, vörubifreiða, hópbifreiða) verða haldin í Reykjavík og annars staðar á landinu þar sem næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 22. október n.k. Verð kr. 100.000 staðgr. ÖKUSKÓLI ÍSLANDS HF. Dugguvogi 2, Reykjavík sími683841 Lada Sport Ódýrasti jeppinn á markaðnum, en þó ekki sá sem skemmst fer í torfærum. Hefur verið framleidd- ur óbreyttur um árabil. Vélin er 1,6 1, 73 hö. Verð um 900 þúsund. Lada Station Duglegur vinnubfll, burðamikill og sérlega góður á vondum malar- vegum. Vél 1,5 I, 67 hö. Verð frá 520 þús. Vsk. bfll. íslenskir vildir þú vera án þeirra? íslenskir bændur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.