Tíminn - 11.12.1993, Side 13

Tíminn - 11.12.1993, Side 13
Laugardagur 11. desember 1993 Leoluca Orlando: 75% íbúa mafiuborgar kusu einn helsta andstæðing mafiunnar. Líklegt til að efla traustið á PDS baeði innan lands og utan er og að flokkur þessi tók fremur snemma að sýna lit á því að hrista af sér sovésku handleiðsl- una og kom því endanlega í verk með ,evrópukommún- isma' síniim á áttunda áratugn- um. Hann hefur og á öllu kalda- stríðstímabilinu ráðið miklu í fylkis-, borgar- og sveitarstjóm- um, getið sér sæmilegt orð í þeim sumum og þannig komið sér í nokkurt álit sem „ábyrgur" flokkur, einkum á ítalíu en einnig erlendis. Ætla má að þessi þáttur fortíðar flokksins hafi átt drjúgan þátt í árangri hans í kosningunum um daginn, ásamt með því að nú er kaldastríðs- hræðslan við kommúnismann að mestu hprfin. Messías frá Palermó Keppnin um miðjufylgið heldur efalítið áfram fram að þingkosn- ingum, sem e.t.v. verða þegar í febrúar. Erfitt er að spá ná- kvæmlega um úrslitin, því að mikið af miðjufylginu mun enn vera óákveðið. Fréttaskýrendur segja sumir að það sem einna helst hái PDS (auk kommúni- stafortíðarinnar, sem enn fælir eitthvað af miðjufylgi frá flokkn- um) sé að leiðtogi hans, Achille Occhetto, sé ekki mikill kjós- endasjarmör. Nokkrar líkur eru því á að vinstrimenn yfirleitt sameinist um Leoluca Orlando, leiðtoga La Rete, sem forsætis- ráðherraefni. La Rete eru sam- tök er hafa baráttu gegn mafíun- um sem meginmál. í þeirri bar- áttu, sem er drjúgur liður í bar- áttunni gegn spillingunni, hefur Oriando þótt standa sig vel. í ný- afstöðnum kosningum vann hann einkar glæsilegan sigur, var kjörinn borgarstjóri í mafíu- borginni Palermo með 75% greiddra atkvæða. íbúar Pal- ermo, borgar með 30% atvinnu- leysi og grunnkerfi á þriðja- heimsstigi, kafla Orlando Messí- as. Ekki þykir Ifldega síst til hans koma vegna þess að þrátt fyrir langa viðureign hans og siki- leysku mafíunnar er hann enn lifandi og ekki fer á milli mála að hann kann lagið á að komast í samband við kjósendur. Þrátt fyrir mikið fylgi áfram norðanlands er Norðlendinga- bandalag frekar óhresst yfir úr- slitunum í síðari umferð kosn- inganna, einkum vegna þess að það fór halloka fyrir PDS og bandamönnum þess í tveimur norðlenskum stórborgum, Fen- eyjum og Genúu. Hælist PDS nú um að hafa lokað Norðlendinga- bandalag inni í Langbarðalandi og höfuðborg þess Mflanó. Um- berto Bossi, leiðtogi bandalags- ins, og hans menn eru nú sagðir brjóta heilann um hvort þeir eigi að taka upp samstarf við PDS og aðra vinstriflokka eða herða bar- áttu sína fyrir róttækum breyt- ingum á ítalíu sem ríki, á þá leið að hún verði sambandsrfld með valdalitla miðstjórn. Á bak við það liggur sú skoðun bandalags- ins að Norður-ítah'a verði að fá að stjóma sér að mestu sjálf, þar eð Mið- og sérstaklega Suður- Ítalía séu dragbítur á henni. Nefna má í viðbót einn ítalskan stjómmálamann, sem spáð hef- ur verið að talsvert muni kveða að í náinni framtíð. Sá er Mario nokkur Segni, áður kristilegur demókrati, heiðarlegur þó að sögn og komst í allmikið álit með að eiga dijúgan hlut að því að kosningafyrirkomulaginu var breytt. Sem kristilegur demó- krati taldist hann frekar vinstri- sinnaður og vera kann að hann og fleiri pólitískir heimilisleys- ingjar úr þeim armi gamla rflds- flokksins leiti nú samstarfs við PDS og bandalagsflokka hans, án þess þó endilega að ganga í þá flokka. Vinni vinstrið næstu þingkosningar og eigi síðan erfitt með að koma sér saman um for- sætisráðherra, gæti Segni komið til greina sem málamiðlun. Mörgum í PDS og fylgiflokkum hans kynni að þykja það gott ráð til að tryggja sér áframhald- andi og aukinn stuðning miðju- fylgis. Assistenzialismo Komist Segni á forsætisráð- herrastól, er ekki ósennilegt að honum tækist að koma upp í kringum sig lífvænlegum miðju- flokki, sem gæti kannski komið áður magnaðri en nú lamaðri kosningamaskínu kristilegra demókrata í gang á ný, sér til stuðnings. ítölsk vinstristjóm, komist hún á fót og hvemig sem hún verður samansett, kemur varla til með að eiga sjö dagana sæla. Hún fær trúlega á móti sér harða stjóm- arandstöðu nýfasista og e.t.v. Norðlendingabandalags, og efnahagur landsins er að sögn fréttaskýrenda þannig að ekki verður hjá því komist að skera stórlega niður útgjöld á fjárlög- um og greiða niður skuldir er- lendis. Hætt er við að þær ráð- stafanir leiði til versnandi lífs- kjara fyrir marga. Velferðarkerfi hefur ítalía eins og önnur Vest- urlandaríki, en um það hefur einn fréttaskýrandi sagt að óhjá- kvæmilegt sé að leysa það upp eins og það sé nú, sökum þess hve undirlagt það sé af spillingu. Kerfi þetta, sem á landsins tungu er kallað assistenzialismo, kváðu stjómmálamenn og emb- ættismenn lengi hafa notað til að útvega fólki aukatekjur að launum fyrir stuðning. Þar af leiðandi séu nú milljónir lands- manna, sem séu við góða eða sæmilega heilsu, eigi að síður á örorkubótum. Sem dæmi um ástandið í þeim efnum er nefnt að á Sikiley beri það við að menn, sem séu opinberlega blindir, keyri rútur og iðki knattspymu. Ekki eru allir þeirrar skoðunar að hmn ítölsku stjómmálamiðj- unnar. og flokkakerfisins (í þess hefðbundnu mynd) stafi ein- göngu af reiði almennings út af spillingu og mafíum. Hér valdi einnig miklu minnkandi áht al- mennings á Vesturlöndum á stjómmálamönnum og því hefð- bundna í stjómmálum yfirleitt. Til dæmis um það er minnt á þingkosningamar í Kanada fyrir skömmu, en þá varð álíka hrun í hefðbundnu flokkakerfi þar og nú síðast á Ítalíu, enda þótt ekki færi tiltakanlegt spillingarorð — miðað við það sem gerist — af þeim flokkum kanadískum sem þá urðu verst úti. Á bak við þennan trúnaðarbrest em ýmsar ástæður, og að skoðun Carlos de Benedetti, forstjóra tölvu- og skrifstofuvélafyrirtækisins OIi- vetti sem er eitt stærstu fyrir- tækja ítalíu, er atvinnuleysið sú þungvægasta. „Efnahagskerfi, sem ekki getur útvegað fólki sínu atvinnu, glat- ar löghelgun sinni í augum borgaranna," sagði hann eftir fyrri umferð nýafstaðinna og sögulegra ítalskra kosninga. 13 IVleð sínu nefl Samkvæmt venju ætti fyrsti jólasveinninn nú að vera að koma til byggða færandi hendi. Jólalögin em enn efst á vinsældalista þáttarins og að þessu sinni verður fyrra lagið „Ég sá mömmu kyssa jólasvein', lagið er erient en íslenskan texta gerði Hinrik Bjamason. Seinna lagið er „Babbi segir', ljóð Benedikts Þ. Grön- dal við rússneskt þjóðlag. Góða söngskemmtun! ÉG SÁ MÖMMU KYSSA JÓLASVEIN C Em Am Ég sá mömmu kyssa jólasvein C G7 við jólatréð í stofunni í gær. Ég læddist létt á tá C til að líta gjafir á, D7 hún hélt ég væri steinsofandi Dm G7 Stínu dúkku hjá, C Em Am og ég sá mömmu kitla jólasvein C F og jólasveinninn út um skeggið hlær. H7 Já, sá hefði hlegið með, C A7 Dm hann pabbi minn hefð' ann séð G7 C Am Dm G7 C mömmu kyssa jólasvein í gær. BABBI SEGIR c Babbi segir, babbi segir: Dm G7 C „Bráðum koma dýrleg jól." C Mamma segir, mamma segir: Dm G7 C „Magga fær þá nýjan kjól." C F Hæ, hæ, ég hlakka til G7 C hann að fá og gjafimar, C F bjart ljós og bamaspil, G7 C borða sætu lummurnar. Babbi segir, babbi segir: „Blessuð Magga ef stafar vel, henni gef ég, henni gef ég hörpudisk og gimburskel.' Hæ, hæ, ég hlakka til hugljúf eignast gullin mín. Nú mig ég vanda vil verða góða telpan þín. c 0 2 3 0 0 0 Am F > 4 < > 1 > ( > X 3 4 2 1 1 G7 4 > < > 4 > 4 X 0 1 1 1 3 Mamma segir, mamma segir: „Magga litla verður góð, henni gef ég, henni gef ég haus á snoturt brúðufljóð.' Hæ, hæ, ég hlakka til, hugnæm verður brúðan fín. Hæ, hæ, ég hlakka til himnesk verða jólin mín Nú ég hátta, nú ég hátta niður í, babbi, rúmið þitt, ekkert þrátta, ekkert þrátta, allt les „Faðirvorið' mitt. Bíaðu, mamma, mér, mild og góð er höndin þín. Góða nótt gefi þér Guð, sem býr til jólin mín. H7 X 2 1 3 0 4 Dm X 0 0 2 3 1

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.