Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 15
Laugardagur 11. desember 1993
Kristján Guðnason
húsvörður
t MINNING
Pú lifir enn, þitt dæmið dyggðarríka
það dvínar ei, þð helið byrgi láð.
Þú áttir hjá oss harlafáa líka
að hjartans auði og fólskvalausri dáð.
(MJ.)
I>etta erindi séra Matthíasar
fannst mér eiga vel við er ég
minnist vinar míns, Kristjáns
Guðnasonar, á útfarardegi hans,
en hann varð bráðkvaddur að
heimili sínu að morgni 3. des. s.l.
Kristjáni kynntist ég fyrst haustið
1972 er ég hóf störf hjá Kaupfélagi
Árnesinga. Þau falla ekki í
gleymskudá aðvörunarorðin, sem
hann lét falla er hann afhenti mér
lykla að dyrum ka,upfélagsins.
Ábyrgðin væri mikil, sem því fylg-
di að hafa undir höndum slíka
hluti. Að glata þeim gæti haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar. Til þess að
staðfesta hvatningarorð sín festi
hann á lyklakippuna plötu með
upphafsstöfum sínum. Umhyggja
hans fyrir Kaupfélagi Árnesinga
var engu lík, og raunar öllu er
honum var trúað fyrir, enda mað-
urinn grandvar og trúr í hvívetna.
Trygglyndi og manngæsku bar
hann í ríkum mæli.
Kaupfélagsstjórar Kaupfélags Ár-
nesinga og fjölskyldur þeirra fóru
ekki varhluta af umhyggju Krist-
jáns Guðnasonar. Allt, bæði inn-
an- og utandyra á Sigtúnum, var
honum ekki óviðkomandi. Hann
hlaut mikið traust húsbænda
sinna og velvild, sem seint verður
virt að verðleikum. Þótt Kristján
væri hvorki hár í lofti né þéttur á
velli, var hið innra, sem með hon-
um bjó, þeim mun hærra og gild-
ara. f allri framkomu var hann
prúður og hógvær. Hann var hvat-
ur í hreyfingum og hljóp oftast við
fót. Kímni átti hann ríka og sögur
hans voru hrein snilld, sem unun
var að hlusta á. Sumar þeirra
munu lifa lengi meðal vina hans
og kunningja. Dulrænn var hann
og engu líkara en hann byggi yfir
æðra skilningarviti; þessu höfðu
margir veitt athygli, sem umgeng-
ust hann. Aldrei féll honum verk
úr hendi. Hann virtist geta allan
vanda leyst á hinu verklega sviði,
enda hafði hann ráð undir rifi
hveiju.
Þegar aldur færðist yfir og starfs-
lok urðu, stytti hann sér stundim-
ar við að skera út fagra muni, sem
prýða heimili vina og kunningja.
Útskorna klukkan, sem hann
færði okkur hjónum, er dýrmæt,
ekki síst fyrir það hver gefandinn
var.
Það væri hægt að skrifa langt mál
um Kristján Guðnason, sem hér er
kvaddur. Til þeirra hluta er nægur
efniviður. Við leiðarlok flytjum við
hjónin honum hinstu kveðju og
þakklæti fyrir samfylgd og
ógleymanlegar samverustundir.
Þessum orðum mínum lýk ég með
tilvitnun í ljóðlínur Matthíasar
Jochumssonar:
Elsku bróðir, þessi trú varþín,
þinna rauna kvöldmáltíðar vín.
Göfugmenni gekkstu hraun og hjam,
hetja lifir, sofnaðirsem bam.
, Guðni B. Guðnason
í dag, laugardaginn 11. des., verð-
ur til moldar borinn frá Selfoss-
kirkju Kristján Guðnason, hús-
vörður hjá Kaupfélagi Árnesinga,
sem andaðist 86 ára að aldri að
heimili sínu, Grænumörk 1 á Sel-
fossi, hinn 3. des. Mér er bæði ljúft
og skylt að minnast þessa heiðurs-
manns og þakka fyrir þau 11 ár,
sem leiðir mínar, minnar fjöl-
skyldu og Kristjáns lágu saman.
Frá árinu 1944 hefur Kristján nær
óslitið verið starfsmaður kaupfé-
lagsins, fyrst sem flutningabílstjóri
og síðan sem húsvörður þar til fyr-
ir nokkrum árum að Kristján lét af
því starfi. Það gefur nokkuð auga
leið hvernig stjórn kaupfélagsins
leit á starfsferil Kristjáns, þar sem
tekin var sú einstæða ákvörðun að
greiða Kristjáni heiðurslaun til
dauðadags. Raunin varð sú að
Kristján átti eftir að verða áfram
sívinnandi alla tíð og kaupfélagið
fór ekki varhluta af þessari vinnu-
semi og ber Sigtúnahús og garður-
inn þar því vitni. Dugnaður og
trúmennska einkenndi líf og starf
Kristjáns og það var Kaupfélagi
Árnesinga ómetanlegur stuðning-
ur að hafa slíkan mann til umsjón-
ar og eftirlits í afar fjölbreyttum og
mikilvægum störfum.
Kristján Guðnason var Dalamað-
ur, fæddur á Valþúfu á Fellsströnd
hinn 16. apríl 1907. Gárungar
hafa sagt að eitt merkið um sam-
stillingu með kaupfélagsstjórum
K.Á. hafi verið það að núverandi
kaupfélagsstjóri og hann áttu sama
afmælisdag. Ekki hefur Kristján
væntanlega náð þeirri samræm-
ingu með öðrum forverum mín-
um, Agli Thorarensen, Grími
Thorarensen eða Oddi Sigurbergs-
syni, og það hafa verið mér tals-
verð forréttindi að drekka þetta
tvöfalda afmæliskaffi með vini
mínum. Foreldrar Kristjáns bjuggu
á Valþúfu, en þau voru Guðni
Jónasson frá Skógum á Fellsströnd
og Petrína Gerður Kristjánsdóttir
frá Skoravík. Kristján var einn sjö
systkina. Hann kvaddi Dalasýsluna
um 24 ára aldur og fór suður og
vann á ýmsum stöðum í Reykjavik
og nágrenni og ekki er vafi á því
að hæfileikar hans hafa þá þegar
aflað honum álits. Starfsreynslan
varð fjölbreytt og þar voru engir
meðalstaðir sem komu við sögu.
Hér má nefna ráðsmennsku hjá
Björgúlfi Ólafssyni lækni á Bessa-
stöðum, bústörf á Korpúlfsstöðum
hjá Thor Jensen og að lokum bú-
stjóm hjá Valgerði Þórðardóttur á
Kolviðarhóli.
Kristján hafði frá mörgu eftir-
minnilegu að segja frá þessum ár-
um sínum, áður en hann settist að
á Selfossi, og raunar einnig frá síð-
ari tímum. Hann naut þess að
segja frá, enda bæði fróður og
minnugur og gat tekið skoplegar
hliðar mannlífsins og málað þær
þeim sterku litum sem hæfðu
stund og stað. Fólk, sem kynntist
þessari hlið á Kristjáni, gleymir
áreiðanlega seint hans frásagnar-
gleði og græskulausu fyndni. Þess-
ir hæfileikar öfluðu honum vin-
sælda og kunningja- og vinahóp-
urinn varð stór. Kristján var um 4
ár á Kolviðarhóli og festi þar
nokkrar rætur, eins og sést á því
að honum féll mjög miður að ekki
skyldi fá að standa hið myndarlega
3ja hæða hús á Kolviðarhóli, þótt
starfsemi þar hætti, og honum
fannst að þar væri ærin ástæða til
þess að reisa minnismerki, enda
vel kunnugur hinu mikilvæga
hlutverki Kolviðarhóls í gegnum
árin.
Húsvörður hjá Kaupfélagi Árnes-
inga varð Kristján árið 1945. Þá
hafði kaupfélagið byggt upp nýtt
verslunarhús við Austurveg og
húsvarðaríbúð Kristjáns var þar á
rishæðinni. Egill kaupfélagsstjóri
mun strax hafa séð hvað í þessum
nýja starfsmanni bjó og trúað hon-
um fyrir fjölbreyttri umsýslu. Mót-
taka gesta í Sigtúnum urðu m.a.
verkefni hans undir beinni stjórn
kaupfélagsstjóra, þar sem afburða
hæfileikar hans sem bryta hafa
komið fram. Kristján varð í starfi
sínu ákaflega tengdur kaupfélags-
stjórunum og fjölskyldum þeirra í
Sigtúnum. Að einhveiju leyti kom
þetta til af því að Kristján var alla
tíð einhleypur, vildi lifa sínu lífi
fijáls og óháður; þurfti þá ekki að
taka tillit til eigin fjölskyldu og var
ákaflega ósínkur á sinn tíma fyrir
aðra. Maðurinn Kristján Guðna-
son verður mér alla tíð nokkur
fyrirmynd til þess að keppa að, þar
sem hæfileikar hans á nokkrum
mannlegum sviðum voru næsta
óvenjulegir og raunar einstæðir.
Þeir, sem þekktu Kristján vel,
munu lengi muna jafnlyndi Krist-
jáns og góðlyndi, strangleika hans
við sjálfan sig í heilsusamlegu líf-
erni, t.d. varðandi sundiðkun og
hófsamlegt mataræði. Kristján
hafði það fyrir reglu flesta daga að
fara á fætur 15 mínútur fyrir 7 og
þá fljótlega í sund. Hann hafði til
síðustu ára útlit hins sextuga
manns, en heilsuleysi var þó farið
að taka hann óblíðum tökum.
Kristján var fróður um málefni
Kaupfélags Árnesinga og jafnan
var fljótlegra að spyija hann hvar
ýmsir hlutir væru geymdir, fremur
en að hefja leit. Þá vissi Kristján
venjulega upp á hár um alla bygg-
ingarsögulega þætti varðandi hús-
eignir K.Á. á Selfossi, þekkti lagnir
og leiðslur neðan jarðar sem ofan
jarðar og hvort sem af þeim fund-
ust teikningar eður ei. Dugnaður-
inn, metnaðurinn og kappsemin
var með þeim hætti að Kristján
lagði sig fremur í lífshættu í lag-
færingum og viðgerðum heldur en
að gefast upp við sín verkefni. Hér
kom það til, að Kristján var svo
ráðagóður í hvers konar vanda að
hann var nánast aldrei ráðalaus.
Þessi eðlisgreind skapaði Kristjáni
sérstöðu og hann var mikilsmet-
inn leiðtogi eldra fólksins í þeirra
ferðalögum og í þeirra sambýli í
Grænumörk 1 á Selfossi. Þar sem
víðar er nú Kristjáns Guðnasonar
sárt saknað, en þegar frá líður
verður það fögur og dýrmæt
minning að hafa þekkt þennan
einstaka mann.
Kristján var bamgóður svo af bar
og var börnum mínum sem besti
afi og höfðu þau rnikla ást á hon-
um. Ekki var hann síður frábær
félagi minn og konu minnar, alltaf
hlýr og uppörvandi. Hann ferðað-
ist oft með okkur, bæði innan-
lands og erlendis, okkur til
ómældrar ánægju. Hann var okk-
ur hjónunum svo hjálpsamur og
raungóður að okkur fannst missir-
inn mikill. En hér em lögmál lífs-
ins að verki, og Kristján okkar
náði vissulega háum aldri og fékk
að kveðja þennan heim með þeim
hætti sem hann hefur örugglega
viljað helst. Við leiðarlok er það
söknuður og þakklæti sem skapa
hughrifin, sem ekki er einkenni-
legt, þar sem látinn er góður og
göfugur maður.
Guð blessi minningu hans.
Sigurður Kristjánsson
15
\
if
Alúöarþakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
Skafta Jósefssonar
garðyrkjumanns
Hclömörk 39, Hveragerði
Margrét Jónsdóttir
Jóhannes F. Skaftason Hulda Björg Sigurðardóttir
Jósef Skaftason Elin Guðmundsdóttir
Hólmfriður Skaftadóttir Gísli J. Gfslason
Auður Skaftadóttir Þröstur Sigurðsson
og bamaböm
_____________________J
LÍFIÐ ER TILVILJUN
Ævisaga Ellinor Kjartansson
Páll Lýðsson skráði
Bókin segir frá óvenjulegri lífsreynslu
Ellinor Kjartansson húsfreyju á Seli í
Grímsnesi.
ONNUMST ALLAR
ALMENNAR VIÐGERÐIR
Vetrarskoöun kr. 4.950,- m.vsk.
fyrír utan efni.
SÍÐUMÚLA 3-5 • SÍMI 681320
Reykrör - Loftræstingar
Smíöa og set upp reykrör, samþykkt af
brunamálastofnun frá 1983
Smíöa og sett upp loftræstingar
Er viðurkenndur af bygginga-
- ^ fulltrúa Reykjavikur frá 1983
BLIKKSMIÐJA skúlagötu 34
BENNA
O'
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Félagsvist á Hvolsvelli
Féiagsvist veröur I Hvolnum sunnudagskvöldiö 12. desember kl. 21.
Góö kvöldverölaun.
Framsóknarfélag Rangælnga
Jólaalmanak SUF
Eftirfarandi vinningsnúmer hafa verið dregin út:.
1. des. 4964 3563 10. des. 2018 372
2. des. 4743 1467
3. des. 1464 5509
4. des. 1217 3597
5. des. 1367 1363
6. des. 3983 1739
7. des. 3680 1064
8. des. 1225 5819 ,
9. des. 2724 2019
Vinninga ber aö vttja innan árs. Upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins I
sfma 91-624480.
Akranes — Bæjarmál
Bæjarmálafundur veröur haldinn laugardaginn 11. des. kl. 10.30 f Framsóknar-
húsinu.
Farið veröur yfir þau mál, sem efst eru á baugi I bæjarstjóm.
Allir velkomnir. Muniö morgunkaffiö.
Bæjarfulltnjamlr
Framsóknarmenn Keflavík
Framhaldsaöalfundurfulltrúaráösins veröur haldinn mánudaginn 13. desember
kl. 20.30 I Félagsheimilinu, Hafnargötu 62. Mætum öll.
Stjómln