Tíminn - 18.12.1993, Side 2

Tíminn - 18.12.1993, Side 2
2 Laugardagur 18. desember 1993 LEIÐARI Tefít á tvœr hœttur THORP-endurviimslustöðin í Shellafield hefur fengið grænt ljós hjá breskum stjómvöldum til að vinna geislavirkan úrgang úr kjamorkuverum. Þessari furðulegu ráðstöfun er harðlega mót- mælt heima og heiman og er Alþingi meðal þeirra mörgu aðila sem mótmæla starfrækslu stöðvarinnar. fbúar Bretlandseyja og írlands biðjást undan því að atómstöðin verði starfrækt nánast í heimahögum og strandríkin við Norðursjó benda á að stöðin bjóði heim stóraukinni hættu á sjávarmengun, sem getur haft óbætanlegar afleiðingar fyrir lífríki sjávar og afkomu þeirra þjóða, sem byggja afkomu sína meira eða minna á sjávaríangi og allar eiga það sameiginlegt að fiskmeti er umtalsverður hluti af fæðuöfluninni. Breska rfldsstjómin hefur skellt skollaeyrum við öllum bænum og mótmælum og neitar að horfast í augu við þá augljósu hættu, sem af THORP- stöðinni stafar. Svokallaðir sérfræðingar og vísindamenn em beggja blands og dregur það ekki úr tortryggni andstæðinga end- urvinnslunnar. Það er óskemmtileg tilhugsun fyrir íslendinga að eiga hríkaleg mengunarslys yfir höfði sér, sem geta lagt allt efnahagskerfi þjóðar- innar í rúst ef illa fer. Kjamorkueldsneyti og atómvopn em að tærast upp á hafsbotni norður í höfum og geislavirkur úrgangur ógnar lífríki sjávarins fyrir sunnan. En það er svo langt frá því að þetta sé einkamál íslendinga, því mengunin varðar lö og heilsu margfalt fjölmennari þjóða og er meira í húfi en svo að óhætt sé að taka neina áhættu. En það er því miður gert af hrokafullum vísindamönnum og stjómvöldum, sem ekki horfa til annars en efnahagslegs ávinnings til skamms tíma. íslendingar hafa allar forsendur til að vera í fararbroddi meðal þeirra þjóða sem beijast gegn mengun og að sýna áþreifanlega við- leitni í þá vem að ofbjóða ekki náttúmnni, heldur hlúa að henni og nýta gjafir hennar og gæði. Umgangast verður endumýjanlegar auð- lindir með gát, því það er ekki hygginna manna háttur að murka lrfið úr gullgæsum sínum. Óspillt náttúra og hreinleiki lofts og lagar er ekkert síður auðs- uppspretta en rányrlga og ofveiði, sem á tiltölulega stuttum tíma- skeiðum er undirstaða eftirsóknarverðra lífsgæða. Margir eygja vaxtarbrodd afkomumöguleika í þjónustu við ferðamenn og ættu þeir að geta orðið drjúg tekjulind þegar fram í sækir. Túrismi er þegar orðinn talsverður atvinnuvegur og mildlvæg- ur. En það má gera enn betur og fátt er að verða efdrsóknarverðara en strjálbýl og ómenguð landsvæði. Heilsubrunnar heita vatnsins og hreina loftsins geta orðið allri stóriðju arðvænlegri, ef vel er á málum haldið. Ef hægt er að gera ís- land að ímynd hreinleika og heilsugjafa, getur það orðið öllum auð- lindum dýrmætara. En þá þarf líka að taka til hendi í byggð og óbyggð, bæta fyrir gamlar syndir og þrífa til svo um munar. Óþverri eins og geislavirkur úrgangur úr kjamorkuverum ógnar öllu lífi og er í hrópandi andstöðu við þá náttúruvemd og það um- hverfi sem flestir kjósa að lifa við. íslendingar mótmæla af öllum kröftum þeirri fyrirlitningu, sem breska ríkisstjómin sýnir eigin landsmönnum sem nágrannaþjóðunum með því að leyfa endur- vinnslustöðina í Sellafield. Hún er í andstöðu við alla okkar hags- muni og lífsskoðun. Staðgreiðslukort — lœgra vöruverð ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON starfsmaður Kennarasambands íslands Háværar umræður hafa að undanfömu staðið yfir í fjöl- miðlum um nýjung í greiðslumiðlun hér á landi, svokölluð debetkort sem hér verða nefnd stað- greiðslukort. Bankar og samtök kaup- manna deila hart um þessa nýbreytni og nú síðast hafa nokkur samtök launafólks blandað sér í deiluna. Greiðslukort — til hvers? í aldanna rás hafa viðgengist greiðslumiðlar af ýmsu tagi. Vöm- skipti voru á sínum tíma algengasti greiðslumátinn. Ákveðnar vörur urðu síðan algengar skiptimyntir, ekki síst gull og silfur. Síðar var farið að framleiða gull og silfur af ákveð- inni vigt og verðgildi. Peningamynt- irnar, sem þannig urðu til, tóku síð- an við smám saman og hafa um langt skeið verið fyrirferðarmesti greiðslumiðiUinn í viðskiptum með vöru og þjónustu. Seðlar komu til sögunnar löngu á eftir myntinni og er talið að fyrstu prentuðu peninga- seðlamir hafi komist í notkun seint á 17. öld. Víxlar og verðbréf eru að sjálf- sögðu greiðslumiðlar, en þeim fylgir sá böggull að þá pappíra þarf að greiða að lokum, oftast með pening- um. Fyrir allmörgum árum var farið að nota ávísanir sem ígildi seðla og myntar og hefur notkun þeirra vax- ið hröðum skrefum hér á landi og er nú svo komið að íslendingar eiga vafalítið heimsmet í ávísananotkun miðað við fólksfjölda, eins og reynd- ar á fleiri sviðum. Krítarkort vom tekin upp hér fyrir um áratug eða þar um bil og em frábmgðin ávísun- um og peningaseðlum og -myntum, en lík verðbréfum og víxlum, að því leyti að handhafi kortsins þarf ekki að eiga innstæðu fyrir viðskiptum sínum, heldur fær andvirði þeirra lánað hjá seljanda vörunnar/þjón- ustunnar. Debetkortin, sem nú er hvað mest rætt um, em á hinn bóg- inn staðgreiðslukort, þannig að not- andinn verður að eiga innstæðu fyi- ir viðskiptum sínum, líkt og þegar hann greiðir með ávísun. Þannig má segja að staðgreiðslukortin komi helst í stað ávísana og meginávinn- ingurinn við þessi kort sé sá að skrif- finnskan minnki, tími sparist í versl- unum, öryggi aukist, þar sem strax er gengið úr skugga um hvort inn- stæða sé fyrir hendi, pappfrsnotkun minnki, því kortin leysa ávísanir að mestu af hólmi, og svo mætti áfram telja. Staðgreiðslukortin em því fyrst og fremst hugsuð í sparnaðar- og hagræðingarskyni og með það að markmiði að neytendur, kaupmenn og bankar spari tíma, fé og fyrirhöfn. Út frá þessum forsendum getur varla nokkur maður dregjð nytsemd slíkra korta í efa. Um hvað er deilt? En er málið svona einfalt? Geta allir hagnast á kortunum góðu? Svarið við því getur auðvitað bæði verið já og nei — það fer allt eftir því út frá hvaða forsendum menn ganga við arðsemisútreikninginn. Sennilega er þó tiltölulega auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að allir þessir aðilar geti hagnast. Eins og að líkum lætur deila menn í þessu máli fyrst og fremst um það hver hagnaðurinn af kortunum er og hveijir eigi að njóta hans og í hvaða hlutföllum. Fyrir þá, sem ekki em á kafi í þessu kortamáli, virðist sem deilt sé um keisarans skegg. Greinarhöfundur er í hópi þeirra sem telja að nú verði karpinu að ljúka og semja þurfi um fyrirkomu- lag sem öllum getur hugnast. Því miður hefur málið hins vegar þróast þannig að bankamir segja að kaup- menn hagnist svo mikið að þeir verði að bera nokkurn kostnað af kortunum, sem kaupmenn segja að sé of mikill og nær væri að bankam- ir tækju á sig meiri kosmað vegna þess mikla hagnaðar sem þeir njóti af kortunum og svona heldur ballið áfram. Bankamir segja ekki ég, kaupmenn segja ekki ég, greiðslu- kortafyrirtækin segja ekki ég. Ef til vill hefur ekki verið tekið nógu mik- ið tillit til hagsmuna neytenda og sennilega fáir sem vilja segja að þeir eigi að borga brúsann. Hlutur samtaka launafólks Nú hafa Alþýðusambandið, BSRB og Neytendasamtökin bæst í hóp deiluaðila og krafist þess að Sam- keppnisstofnun gerist dómari í mál- inu, rannsaki það í krók og kring og kveði upp úrskurð sinn. Talað er um meint ólöglegt samráð bankanna um verðlagningu á þjónustunni og við að koma staðgreiðslukortum á markaðinn. Stundum getur það átt við að samtök launafólks beri hag neytenda fyrir bijósti. Sérstaklega þegar umræddir neytendur em fé- Iagsmenn í viðkomandi samtökum. Einhvem veginn finnst þó greinar- höfundi að það sé í raun hálfgerð sýndarmennska að ganga ítrekað til samninga við atvinnurekendur og ríkisvald um áframhaldandi kaup- máttarrýmun, en hlaupa svo til þeg- ar færi gefst og beija á bönkunum um afnotagjöld af staðgreiðslukort- um. Ekki svo að skilja að bankamir eigi einhveija samúð mína — þvert á móti. Mér finnst hins vegar að launþegahreyfingin sé á rangri hillu að þessu leytinu og það færi henni betur að beijast á þeim vígstöðvum sem henni er ætlað, t.d. gegn ítrek- uðum atlögum að kjömm og rétt- indum launafólks. Þannig mætti hugsa sér að Scmtök launafólks héldu uppi áróðri fyrir staðgreiðslu- kortum og gegn krítarkortum í þeim tílgangj að ná niður vömverði. Vita- skuld verða bankar og sparisjóðir að hafa samráð um að koma nýjung af þessu tagi á markaðinn, þ.e. tækni- hliðina. Hins vegar er rétt að bank- amir mega ekki hafa samráð um verðlagningu þjónustunnar. Hver er vandinn? Ef tíl vill er vandi okkar sá, að þeg- ar krítarkortin komu á markað á sínum tfrna fóm menn rangt í hlut- ina. Þá var valin sú leið að korthaf- inn þyrftí ekki að greiða fyrir notk- un á kortinu, aðeins árgjald og síðan útskriftargjald vegna úttektaryfirlits. Kaupmenn tóku á sig vemlegan kostnað (sem síðan hljóp út í verð- lagið) og nú finnst þeim nóg komið og vilja ekki meira. Lái þeim hver sem vill. Ef farin hefði verið sú eðli- lega leið á sínum tfrna að korthaf- amir greiddu þóknun fyrir hveija færslu á kortíð, í stað þess að velta kosmaðinum út í verðlagið, værum við sertnilega betur komin nú þegar staðgreiðslukortin halda innreið sína. Krítarkortafyrirkomulagið er í raun þannig að korthafinn tekur lán, greiðir enga vexti beint, heldur er vaxtakostnaðinum dreift á alla neytendur, hvort sem þeir taka lán- ið eða staðgreiða. Þessi aðferð er vitaskuld svívirðileg gagnvart þeim fjölmörgu, sem vilja eiga fyrir út- tektinni og notast nær eingöngu við staðgreiðslu. Ekki minnist ég þess að samtök launafólks, hvað þá Neyt- endasamtökin, hafi amast við þessu. Hvemig á að leysa málið? Þá hlýtur að vera komið að spum- ingunni hvort einhver leið sé út úr þeim ógöngum, sem menn virðast komnir í með þetta staðgreiðslu- kortamál. Að mínu mati er málið allt hið einfaldasta. Lítum á dæmið frá sjónarmiði korthafans. Stað- greiðslukortin spara honum aug- ljóslega bæði tíma og fyrirhöfn, hvort sem hann hefur hingað til notast við ávísanir eða beinharða peninga. Það tekur meiri tíma og er meiri fyrirhöfn að skrifa alitaf ávís- anir í stað þess að nota kortíð. Það sparar líka bankaráp að hafa kort í stað peninga. Sömuleiðis eykur það öryggi hans að hafa kort í stað pen- inga eða ávísana, því nær ógerlegt á að vera að annar en raunverulegur eigandi kortsins geti notað það, en eins og allir vita getur hver sem er notað peningaseðlana manns, því þeir em ekki merktír ákveðnum eig- anda, og ávísanafals færist stöðugt í aukana. Beinn peningalegur hagn- aður neytandans þarf því ekki að vera mikill til að kortin þjóni hags- munum hans. Ef kostnaður vegna staðgreiðslukortsins verður örlítíð minni en við ávísanir, er ávinningur neytandans augljós. Síðan ætti að taka upp sama kerfi við krítarkortin, þannig að korthafi greiði fyrir hveija færslu einhveija tiltekna upphæð, svo hægt sé að taka kostnaðinn út úr verðlaginu. Þetta er eitthvað fyrir Neytendasamtökin að skoða — og sennilega líka eitthvað fyrir bank- ana og kaupmennina. Bankamir og greiðslukortafyrirtækin verða að horfast í augu við þá staðreynd að með staðgreiðslukortum mun draga verulega úr ávísananotkun og þann ávinning verða bankamir að taka inn í sitt reikningsdæmi. Síðan ættu allir aðilar þessa máls að hefja áróðursherferð og hvetja fólk til þess að draga úr notkun krit- arkorta og flytja sig yfir á stað- greiðslukortin. Með því mótí skap- ast grundvöllur til að lækka vöm- verð — öllum tíl hagsbóta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.