Tíminn - 18.12.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.12.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. desember 1993 timlnn 3 S Ihýútkominni skýrslu landlækn- is kemur fram að legudögum á sjúkrahúsum hérlendis hefur fækkað verulega á undanfömum árum. Þetta hefur gerst vegna þess að hátækni og ný, flölvirkari og betri lyf hafa komið til sögunnar, sem heilbrigðisþjónustan hefur tileinkað sér, jafnt hér á landi sem erlendis. Sjúkdómamir em þeir sömu og hrellt hafa manninn um aldir. Það er því ófagleg og undarleg staðhæf- ing hjúkrunarforstjóra Borgarspítal- ans, Sigríðar Snæbjömsdóttur, í Tímanum fyrir skemmstu, »að mik- ið veikum sjúklingum hafi fjölgað' og af þeim sökum þ'urfi að fækka sjúkraliðum. Hátæknibúnaður og betri lyf stytta legutíma Tækninni fleygir fram; aðgerðir, sem áður þýddu að sjúklingur lá vikum saman fárveikur meðan hann jafnaði sig eftir stórar aðgerðir og þungar svæfingar, em í dag gerð- ar með hátæknibúnaði, kviðsjám, speglunar- og smásjártækni og höggbylgjum (steinbijót), svo eitt- hvað sé nefnt. Með tilkomu þessarar tækni em aðgerðir léttbærari og sjúklingar mun fljótari að jafna sig og fara fyrr heim af sjúkrahúsunum. Framfara á hátæknisviði njóta ekki aðeins sjúklingar, heldur ekki síður fagstéttimar sem starfa á sjúkrahúsunum: sjúkraliðar, hjúkr- unarfræðingar, röntgentæknar og annað starfsfólk. Það verður auk þess, á faglegum forsendum, að til- einka sér önnur vinnubrögð og fylgjast með nýjungum. Ummæli hjúkmnarforstjórans benda til, að henni sé ekki ljóst að sjúkraliðar em löggilt fagstétt af Alþingi, menntaðir til að starfa á hjúkrunarsviði og skylt samkvæmt lögum að viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýj- ungar er varða starfið. tímtnn Ritstjóri: Ágúst Pór Ámason Aðstodarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóri: Stefín Ásgrímsson Útgefandi: Mótvzgi hf Stjómarformalur: Gunnlaugur Sigmundsson Skrifstofustjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingastjóri: Guðni Geir Einarsson Ritstjóm og skrifstofur: Hverfisgötu 33, Reykjavík Póstfang: Pósthólf5210, 125 Rcykjavík Aialsími: 618300 Póstfax: 618303 Auglýsingasími.-618322 Auglýsingafax: 618321 Setning og umbrot: Tzknideild Tímans Prentun: Oddi hf. Minalariskrift 1400 kr. VerS í lausasölul25 kr. VETTVANGUR KRISTÍN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR formaður Sjúkraliðafélags íslands Eru sjúkraliðar ákveðin á sjúkrahúsum og hjúkrun- atfræðingar séu ekki ráðnir til starfa þegar hægt er að nýta sjúkraliða. “ Yfirlætið leynir sér ekki Yfirlætið leynir sér ekki, þegar forstjórinn víkur orði að stöðu sjúkraliða og hún lætur blaða- mann Tímans hafa það eftir sér að sjúkraliðar vilji gleyma þvi að þeir séu aðstoðarfólk hjúkrunarfræð- inga.“ Ennfremur segir forstjór- inn: „Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgðina og þess vegna er ekki um það að ræða að þeir gangi í störf sjúkraliða.“ Samkvæmt lögum starfa sjúkraliðar á hjúkmnarsviði og eiga að starfa á eigin ábyrgð, þótt störfin séu unnin undir stjóm sérfræðings. Af ummælunum má álykta að sjúkraliðar séu ábyrgðarlaust „jó- jó', sem hægt sé að reka eða skáka til á deildum að geðþótta stjómenda. Það er alvarlegur hlutur og umhugsunarefni fyrir þá, sem ábyrgð bera á heilbrigðis- þjónustunni, að skoða afleiðingar þess þegar ein fagstétt kemst upp með að reka alla sína félagsmála- pólitík í gegnum stjórnendur sjúkrahúsa og jafnvel með stuðn- ingi kollega í ráðuneyti undir fag- legu yfirskini. Fullyrðing hjúkrunarforstjórans segir allt um þekkingu hans. Sjúkraliðar starfa samkvæmt lögum, rétt eitis og hjúkrunarfræðingar sjúkraliða tekur þrjú ár og er sam- bærileg menntun hjúkmnarfræð- inga eins og hún var fyrir 15 árum, er hún var öll flutt á háskólastig. Um það má hinsvegar deila, að margra mati, hvort breytingin hafi orðið hjúkmninni til framdráttar. Auk þess hefur fjöldi sjúkraliða aflað sér viðbótarmenntunar, svo sem í: handlæknishjúkrun, hjúkrun aldr- aðra, hjúkmn geðsjúkra, heilsu- gæsluhjúkrun og bamahjúkrun. Sjúkraliöum fækkar á Borgarspítalanum Við skoðun á ársskýrslum hjúkrun- arstjómar Borgarspítalans 1989- 1992 kemur í ljós að stöðuheimild- um sjúkraliða hefur fækkað á sama tíma og stöðugildum hjúkrunar- fræðinga hefur fjölgað verulega. Ef litið er til útgjalda sjúkrahússins, sem breytingunni er samfara, kemur í ljós að samkvæmt skýrslu Kjara- rannsóknamefndar opinberra starfs- manna em laun hjúkrunarfræðinga á Borgarspítalanum fiðlega 50% hæni en laun sjúkraliða. Sú spum- ing vaknar hvort stjómendur sjúkrahússins geti eða megi, út frá faglegum forsendum, án þess að sýna fram á þörfina auka útgjöld sjúkrahússins með þessum hætti, þegar allt skal sparað. ÁRBÆKIIR • ÁRIÐ 1992 • ÁRBÆKUR [ 28 ár hafa Árbækurnar varðveitt fyrir íslendinga í aðgengilegu bókarformi þá atburði, er efstir voru á baugi hverju sinni. Árið 1992 - stórviðburð- ir í myndum og máli með íslenskum sérkafla er ekki eftirbátur fyrri bóka í flokknum. Bókin er 344 blaðsíður í stóru broti og er vandað til frágangs hennar í hvívetna. í bókinni eru 417 myndir og þar af eru 255 litprentaðar. Sjö samfelldir árgangar eru fáanlegir hjá forlaginu. Afborgunarkjör bjóðast. Annáll ársins rekur helstu atburði hvers mánaðar í myndum og máli og hefst hver mánuður á stuttri fróttaskýringu. Sérfræðilegar greinar fjalla um alþjóðamál, umhverfismál, tækni, læknisfræði, myndlist, kvikmyndir, tísku, íþróttir og fleira. Litakort varpa Ijósi á lífslíkur manna í hinum ýmsu heimshlutum, matvæladreifingu á jörðinni, hernaðarútgjöld, börn jarðarinnar og regnskóga heimsins. islenskur sérkafli greinir frá því helsta, er gerðist á landinu í myndum og máli. Atburða-, staða- og nafnaskrá eykur heimildagildi verksins til muna. Fræðslu- og uppsláttarverk sem gleður fróðleiksfúst fólk á öllum aldri Bókhús Hafsteins Guömundssonar Holtsgötu 10,101 Reykjavik, sími 91-13510 «,ÖKH(ýy ábyrgðarlaust „jó—jó“? Stöðugildi hjúkr.fr. og sjúkral. B-spítali, alls 250 200 150 ri) w 100-M 50 1989 1990 1991 Ár 1992 I | Hjúkrunarfræðingar H Sjúkraliðar Menntun sjúkraliða betri á íslandi Hjúkrunarforstjórinn heldur því fram í viðtalinu að menntun qúkra- fiða á íslandi sé „styttra á veg kom- in' en annarstaðar í nágrannalönd- unum. Sannleikurinn er sá að ís- lendingar hafa verið í fararbroddi, ásamt Dönum, hvað varðar mennt- un sjúkraliða. Gmnnmenntun Súlurítið hér að ofan sýnir Ijóslega þá miklu og hröðu þróun sem átt hefur sér stað við mönnun hjúkrunarsviös Borgarspitalans, á árunum 1989 til 1992. Sjúkraliöum fækkar stöðugt á sama tima og stööugildum hjúkrunarfræðinga fjölgar. Starfssvið sjúkraliða er á hjúkrunarsviði Um starfssvið sjúkraliða segir hjúkr- unarforstjórinn að til sé starfslýsing sem sjúkraliðar uni illa við og „vilji gjaman fara út fyrir hana'. Fullyrð- ing forstjórans segir allt um þekk- ingu hennar. Sjúkraliðar starfa sam- kvæmt lögum, rétt eins og hjúkrun- arfræðingar. Hvorug stéttin hefur skilgreint verksvið samkvæmt reglugerð, þannig að starfssvið þeirra beggja hefur þau takmörk, sem tilgreind eru í lögum, að þær virma við hjúkrun eða á hjúkrun- arsviði. Meðal annars vegna þeirra við- horfa, sem svo Ijóslega koma fram í málflutningi hjúkrunarforstjóra Borgarspítalans, sendi heilbrigðis- ráðherra í nóvember á s.l. ári for- stöðumönnum allra sjúkrastofn- ana ábendingu, þar sem segir m.a.: „Þá vill ráðherra beina þeim ákveðnu tilmælum til hjúkrunarfor- stjóra að menntun sjúkraliða sé að fullu nýtt þegar verkaskipting er

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.