Tíminn - 18.12.1993, Síða 5
Laugardagur 18. desember 1993
tímlnn
H-
Verkafólk dregist afturúr
öðru ASI-lólki í launum
Greitt tímakaup breyttist lítið
hjá ASÍ-fólki milli 3. ársfjórð-
ungs í fyrra og sama tímabils í ár,
eða aðeins um 1,4% að meðaltali.
Á sama tíma varð 5% haekkun á
framfærslukostnaði. Mánaðartekj-
ur fólks í fullu starfi hækkuðu
heldur meira að meðaltali, sem
skýrist af því að vinnuvika verka-
fólks lengdist um nærri því
klukkustund og litlu minna hjá
iðnaðarmönnum. Vinnutími
verkafólks var þá aftur orðinn jafn
langur og hann hafði verið á 3. árs-
fjórðungi 1991 — tæpar 50 stundir
hjá körlum og tæplega 45 stundir
hjá konum.
Heildartekjur verkafólks hafa
hins vegar hækkað mun minna en
hjá öðrum þessi tvö síðustu ár, eins
og glöggt kemur í Ijós við saman-
burð á mánaðartekjum 3. ársfjórð-
ungs 1991 og 3. ársfjórðungs 1993.
Verkakarl 103.400 107.400 3,9%
Verkakona 85.900 88.600 3,1%
Iðnaðarm. 136.300 144.400 5,9%
Afgr.karl 110.600 118.800 7,4%
Afgr.kona 76.400 82.500 8,0%
Skrst.karl. 127.900 139.400 9,0%
Skrst.kona 90.600 101.300 11,8%
Meðalt.: 104.900 111.000 5,8%
. Tekjur verkafólks hafa þannig
hækkað aðeins tæplega 3 til 4
þús.kr. á mánuði á sama tíma og
tekjur hinna stéttanna hafa hækk-
að frá 6.100 og upp í 11.500 kr. á
mánuði.
Á þessum tveim árum hækkaði
verðlag í landinu um 7,5%. Til að
halda í við þá hækkun hefðu mán-
aðartekjur verkafólks þurft að
hækka tæplega 4.000 kr. meira en
þær hafa gert.
Mánaðartekjur hinna stéttanna
hafa hins vegar nokkum veginn
haldið í við verðlagshækkanir og
meira en það hjá skrifstofufólki.
-HEI
Nýr dýralæknir í Mýrasýslu
Óánægja meðal bænda í
sýslunni
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra veitti í gær Rúnari Gísla-
syni, dýralækni f Stykkishólmi,
embætti héraðsdýralæknis í Mýra-
sýslu. Talsverð óánægja er meðal
bænda í Mýrasýslu með ákvörðun
landbúnaðarráðherra, en þorri
allra búfjáreigenda í sýslunni
höfðu skorað á ráðherra að skipa
Gunnar Gauta Gunnarsson dýra-
lækni í stöðuna.
Yfir 200 bú§áreigendur í Mýra-
sýslu skomðu á ráðherra að veita
Gunnari Gauta stöðuna, en hann
hefur gegnt störfum fráfarandi hér-
aðsdýralæknis í forföllum hans
undanfarin ár. Klemens Halldórs-
son, bóndi og einn af forsvars-
mönnum undirskriftasöfnunar-
innar, segir marga bændur
óánægða með ákvörðun ráðherra.
Hann tók fram að sú óánægja bein-
ist ekki að Rúnari Gíslasyni, heldur
hafi menn góða reynslu af störfum
Gunnars Gauta og því lagt áherslu
á að hann fengi stöðuna.
Sú hefð hefur skapast við emb-
ættisveitingar til dýralækna að
þeir, sem lengstan starfsaldur hafa,
fái þær stöður sem losna. Rúnar
hefur heldur lengri starfsaldur en
Gunnar Gauti. Klemens sagði að
þó nokkur dæmi séu um að þessi
starfsaldursregla sé sniðgengin við
embættisveitingar, auk þess sem
skiptar skoðanir séu um ágæti
herrnar innan Dýralæknafélagsins.
Klemens sagðist telja að stjóm-
málaskoðanir umsækjenda hafi
ráðið miklu um hver fékk þetta
starf.
-EÓ
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F
- góð bók um jólin
Fólkið hjá
Eimskip
Bókin Milli sterkra stafha - fólkið hjá Eimskip styður þau algildu sannindi að
þegar grannt er skoðað er fyrirtæki ekki skip, bókhaldsgögn eða húseignir,
heldur fólkið sem vinnur þar.
I bókinni segja sögu sína á lifandi og skemmtilegan hátt tólf manns úr mismunandi
starfsgreinum, meðal annarra bílstjóri, bókari, bryti, skipstjóri, verkstjóri og vélstjór
Tveir útlendingar sem verið hafa í samstarfi við Eimskip áratugum saman segja
tæpitungulaust frá viðskiptum sínum við Islendinga og skoðun sína á landi og þjóð.
Fjallað er um ástina og gleðina, sorg og sigra. Sögusviðið er meðal annars
menningarpláss vestur á fjörðum á öndverðri öldinni, Esbjerg í Danmörku á tímun
þýskrar hersetu og danskrar andspyrnuhreyfmgar, London á stríðsárunum,
farþegaskipið Gullfoss og ævintýrin þar, Palestína meðan Suezdeilan stóð sem
Kaupmannahöfn í stríði og friði og Reykjavík frá aldamótum til dagsins í dag.
Flestir sem segja sögu sína í þessari bók hafa starfað með þremur forstjórum á
starfsævi sinni og þeir greina frá því hvernig persónuleiki þeirra hvers um sig
hafði og hefur enn áhrif á starfsemina og andann í þessu stóra fyrirtæki.
Afar skemmtileg og óvenjuleg viðtalsbók - prýdd fjölda Ijósmynda.
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA