Tíminn - 22.12.1993, Blaðsíða 24

Tíminn - 22.12.1993, Blaðsíða 24
24 timlrui Miðvikudagur 22. desember 1993 ÁRNAÐ HEILLA Bjöm Hjálmarsson bóndi MœlifeUsá, 90 ára Elsku Bjössi minn, það er mér sönn ánægja að senda þér nokkrar línur í tilefni af 90 ára afmælinu þínu þann 7. desem- ber. Öðlingsmaðurinn Bjöm Hjálm- arsson, fyrrverandi bóndi á Mæli- fellsá í Skagafirði, varð níræður þann 7. desember. Bjöm er fæddur að Breið í Lýtingsstaðahreppi 7. desember 1903. Foreldrar hans vom þau hjónin Rósa Bjömsdóttir og Hjálmar Pétursson. Hjálmar lést þegar Bjöm var 4 ára og stóð Rósa þá uppi ein méð bömin og það elsta aðeins 12 ára. Þegar Bjöm var 6 ára fór hann í fóstur til móður- bróður síns, Ófeigs Bjömssonar bónda í Svartárdal, og var þar fram á unglingsár. Bjöm steig mikið gæfuspor þegar hann giftist Þorbjörgu Ólafsdóttur, mikilli myndarkonu, frá Starra- stöðum. Þau Þorbjörg og Bjöm vom mjög ólík, en elskuðu og virtu hvort annað. Hún var mikill bú- forkur og bar yfirleitt áhyggjumar; Bjöm er einnig mjög duglegur og léttlyndur, en yfirleitt ekki með áhyggjur út af morgundeginum. Bjössi er sérstaklega ljúfur og elskulegur maður, enda vinsæll mjög og vinamargur. Ég tel mig mjög lánsama að hafa fengið að kynnast þessum góðu merkishjón- um. Fyrst bjó ég með þeim í gamla húsinu að Mælifellsá í 3 og síðan í næsta húsi í 5 ár eftir að það var byggt. Ég tel mig ekki halla á neinn, þó ég segi að fáa hefur mér fundist vænna um, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni, en hann Bjöss'a minn. Hann hefði svo sann- arlega ekki getað verið betri við mig þó hann hefði verið faðir minn. Mikið vom þau Bjössi og Þorbjörg góð við bömin mín, Hrafn og Þorbjörgu, meðan við bjuggum hjá þeim og ætíð síðan. Bjössi leit við oft á dag úti í húsi hjá okkur og sagði ævinlega við krakkana: „Haf- ið þið verið þekk í dag?" Ég efast Neskaupstað sendir starfsfólki sínu og viðskiptamönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsœlt komandi ár Þökkum gott samstarf á liðnum árum um að hægt sé að eiga betri afa, enda þykir þeim vænt um hann afa sinn. Þau Þorbjörg og Bjössi eignuðust 3 böm: Margeir bónda á Mæli- fellsá, Rósu húsfreyju á Hvíteyrum og Önnu kaupmann á Akranesi, allt mjög dugmikið fólk. Afkom- endumir em orðnir 17 talsins, þar af 3 lítil bamabamaböm. Árið 1977 bmgðu þau Þorbjörg og Bjöm búi og fluttu út á Sauðár- krók, en síðustu ár hafa þau verið vistmenn á Sjúkrahúsi Skagfirð- inga á Sauðárkróki. Þorbjörg lést síðastliðið sumar eftir nokkurra ára veikindi, en Bjöm er ennþá mjög em og heilsugóður, fer allra sinna ferða og keyrir meira að segja bíl- inn sinn ennþá; geri aðrir betur. Hann Bjössi minn var samt alveg ófáanlegur til að láta halda upp á níræðisafmælið sitt, þrátt fyrir nokkum þrýsting. Sennilega vill hann láta minninguna lifa um hina glæsilegu afmælisveislu, sem hald- in var í Árgarði fyrir 5 ámm, þegar hann varð 85 ára. Það var 200 manna veisla, sem stóð fram undir morgun að hættí Skagfirðinga, og vom þar haldnar ræður og sagðar fyndnar sögur af þessum heiðurs- manni, að ógleymdum öllum söngnum. En þegar Skagfirðingar koma saman til að skemmta sér, hljómar söngurinn svo um munar, og stundum allt í röddum, þar sem svo margir em þjálfaðir úr kórum. Hann Bjössi minn heimsóttí mig, þegar ég varð fimmtug fyrir tveim- ur árum, og þegar fólkinu var farið að fækka um 4-leytið mn nóttina, sagði þessi lífsglaði öldungur, að við ættum alveg eftír að dansa. Bjössi minn, margs er að minnast frá því ég kynntist þér fyrst fyrir tæpum 30 ámm. Alltaf mun þó góðvildin og þín létta lund bera þar hæst. Elsku Bjössi minn, ég og fjölskylda mín sendum þér okkar bestu ham- ingjuóskir á þessum merku tíma- mótum ævi þinnar. Vonandi átt þú mörg góð ár eftir enn. Megi þín létta lund og lífsgleði fylgja þér æv- ina á enda. Kær kveðja, Amfríður Helga Richardsdóttir SÍÐBÚIN AFMÆLISKVEÐJA Halldór Elíasson 80 ára Hann Halldór Elíasson frá Strönd í Vestur-Landeyjum varð 80 ára þann 2. desem- ber síðastliðinn. Halldór, eða Halli eins og hann var oftast kallaður, var fæddur á Strönd í Vestur-Land- eyjum. Hann var sonur Guðrúnar Jónsdóttur, sem þar var fædd og uppalin, og Elíasar Guðmundsson- ar bónda í Oddhól á Rangárvöll- um. Halldór ólst upp á Strönd með móður sinni og stjúpföður, Her- mundi Einarssyni. Hann ólst þar upp með íjórum systkinum, þeim Eiði Hermundssyni, Jóni Her- mundssyni, Kristínu Hermunds- dóttur og Ingu Hermundsdóttur, en hún lést fyrir nokkrum árum síðan. Halldór fór snemma að vinna, enda var hann elstur bamanna, svo ábyrgð var snemma á hann lögð. Hann var einstaklega dugleg- ur og hlífði sér lítið. Hann fór einn- ig á hveijum vetri á „vertíð í Eyj- um* í mörg ár meðan hann var yngri, eins og siður var í Landeyj- unum. Þar áttí hann góðar stundir og kynntíst mörgum mönnum og konum, og varð sumt af þessu fólki vel þekkt á íslandi seinna meir. Þegar Halli hættí að fara á ver- tíðir, féll búskapurinn á Strönd á hans ábyrgð, þar sem foreldramir vom orðnir eldri og liðu heilsu- brest. Hann gerði mikið til að stæk- ka túnið og slétta það. Einnig lét hann gera skurði um landareign Strandar til þess að þurrka láglend- ið, en vatn hefur alltaf verið í meira lagi í löndum Landeyinga. Þetta gerði það að verkum að búfénaði var hægt að fjölga, þar sem þurr- lendið gerði ræktun auðveldari. Hann var einn af þeim bændum, sem snemma fengu sér traktora til að gera ræktun og heyskap auð- veldari. Er það alveg furða hve einn lítill traktor, Massey-Fergu- son, sem ég man eftir, léttí undir við búskapinn. Halldór var einnig í félagsmál- um Landeyinga og í búnaðarfélag- inu. Hann hafði mjög glöggt auga fyrir skepnum og þeirra kyni og hæfileikum. Þetta sást á Strönd á þeim gæðaskepnum, sem þar vora, og ágætís kinda- og hrossa- kyni sem þar var og er enn. Halldór var einn af bændunum, sem fengnir vora til að ferðast vestur í Barðastrandarsýslu til að ná í fé fyrir Landeyinga snemma á fimm- ta áratugnum, eftír að allur fénað- ur Landeyinga hafði verið skorinn vegna mæðiveiki. Heppnaðist þetta svo vel að nú er fénaður Landeyinga með þeim besta í land- inu. Það má efalaust þakka mönn- um eins og Halldóri, sem vora fengnir til að endumýja stofninn fyrir um 40 árum síðan. Halldór bjó allan sinn aldur á Strönd, fyrst í sambýli við foreldra sína, en þegar þau féllu frá, með Ingu systur sinni. Á síðustu áram hans þar var hann með systursyni sínum, Gunnari Karlssyni, sem þar stýrir nú búskap með mikilli rausn. Fyrir nokkrum árum hætti Halli búskap og fluttíst að vistheimilinu Lundi á Hellu á RangárvöIIum. Þar fann hann sig í hópi margra gam- alla og góðra vina og kunningja. Hann unir sér þar vel, en ferðast mikið um nálægar sveitír og héröð og kemur stundum í Landeyjamar að fita á hlutina. Eitt, sem ég hefi tekið eftir með Halla, er að hann labbar um allar trissur. Einkum varð þetta auðveldara eftir að hann gekkst undir mjaðmaruppskurð vegna gigtar. Held ég að allar þess- ar göngur hafi haldið honum vel við og furðar fólk á hve em og sperrtur hann er á þessum aldri. Vissulega hefur Halldór Iært að hafa ánægju af „gullnu áranum", eins og elliárin era stundum köll- uð. Kæri Halli minn, ég óska þér hjartanlega til hamingju með þennan merkisáfanga fifs þíns og óska þér margra ára í viðbóL Lifðu heill! Númi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.