Tíminn - 22.12.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.12.1993, Blaðsíða 6
6 tiiriinn Miðvikudagur 21. desember 1993 Framhald afbls. 5 Þetta er stórfenglegur kafli. En hvemig í ósköpunum á að liía eftir þessu? Jafnvel þótt menn afræki mammón og hafi ekki áhyggjur af þvi nákvæmlega hvað þeir borða eða hveiju þeir klæðast, sem virðist þó vera eitt helsta áhyggjuefni fólks í allsnægtasamfélaginu fyrir jólin, þá komast menn varla af án nokkurrar fyrirhyggju. Það kann að vera hægt á suðlægari slóðum, en hér á íslandi væru menn annaðhvort löngu falln- ir úr hor eða farnir í jólaköttinn ef þeir tækju þessi orð bókstaflega. En á að taka þau bókstaflega? Það fer eftir því hvemig þau em skiiin. Mér virðist þessi rimingarkafli snúast öðm fremur um viðhorf manna. Kristur er ekki að hvetja menn til fyrirhyggjuleysis, heldur að brýna fyrir þeim að hafa ekki áhyggjur. Nánar tiltekið eiga ,menn ekki að hafa áhyggjur af morgundeginum eða af þeim hlutum er litlu varða. Við höfum ekki nema einn dag til ráðstöfunar hveiju sinni, því gær- dagurinn er liðinn og morgundag- urinn er ekki runninn upp. Dagur- inn í dag er okkur gefinn til að njóta hans og nýta til góðra verka. Á- hyggjur af því óorðna em hiutskipti heiðingja, því í raun fela þær í sér eins konar oftrú á eigin mátt og van- trú á Guð. Og leiti menn ríkis Guðs og réttlætis, þá munu hversdagsleg áhyggjuefni þeirra leysast líkt og af sjálfu sér. Skyldi vera hægt að komast lengra í listínni að lifa en hér er lýst: að beina allri lífsorku sinni að líð- andi stund og gleðjast yfir henni. Ég held að meginböl nútímamanna sé fólgið í vanhæfninni til þess að láta hveijum degi nægja sína þjáningu. Þess vegna er líf manna jafn gleðis- nautt í miðjum allsnægtunum og raun ber vitni. Hraði, streita og tíma- skortur hijá okkur nútímafólk meira en nokkuð annað. Það gefst sjaldan tími til að staldra við, lifa í þvf sem er hér og nú, heldur reka er- indin okkur áfram og við missum stjóm á eigin lífi. í þessari hringrás atburða gælum við þó alltaf við þá tilhugsun að það verði nú allt í lagi þegar þetta verk sé búið eða þessi vika eða afborgun af þessu láni. Eða þá þegar ég er búinn að fá mér nýjan bíl, nýja vinnu, nýjan maka...; í öllu falli breyta því sem ég bý við hér og nú. Þegar það er búið þarf ég ekki lengur að hafa áhyggjur. Og þannig veltum við lífinu á undan okkur, innst inni óánægð. Og óánægjan gerir okkur viðskotaiU og vanþakk- lát. Þess vegna bindum við hka svo miklar vonir við jólin, því þótt allt annað bregðist þá verður allavega gaman þá. í skjóli þeirrar hugsunar leggur fólk á sig tvöfalt erfiði í des- ember, bætir jólastreitunni ofan á alla venjulega streitu og margfaldar áhyggjumar. Svo loksins þegar hin stóra gleðistund gengur í garð eru allir á nálum yfir því að jólin verði nú eins gleðileg og til stóð, því ann- ars er allt ónýtt. Þess vegna minnast margir erfiðustu stunda úr heimilis- lífinu í kringum hátíðir. Þetta er vonlaus viðleitni. Við leggjum allt of mikið á jólin með þessum hættí. Þau eiga að bæta upp ófullnægjuna í hversdagslegu lífi okkar, vera uppbót fyrir allar áhyggjumar hina daga ársins. Þetta viðhorf felur í sér eins konar tóm- hyggju um tilveruna, þar sem menn þrauka hversdaginn vegna þeirra fáu gleðistunda sem þeir fá um helg- ar og hátíðir. Þetta er eins fjarri því og hægt er að komast frá því að láta hveijum degi nægja sína þjáningu. Það er ekki hægt að finna sálarfrið um jólin með þessum hætti, því hugarástand manna um jóhn er ekki annað en uppskeran af því sem þeir hafa til sáð með lífi sfnu allan ársins hring. Jólin geta því ekki orð- ið okkur það hjálpræði og sú griða- stund sem við ætlumst til fyrr en við hættum að gera til þeirra jafn miklar kröfur og við höfum gert. Kröfun- um verðum við að beina að okkur sjálfum. Enginn staður, enginn tími, engin manneskja getur glatt hjarta manns sem ekki er móttækilegt fyrir gleðinni. Jólin gleðja engan mann sem ekki getur glaðst í hjarta sínu, því þar eru uppsprettur lífsins. KAUPFELAG Austur-Skaftfellinga HÖFN HORNAFIRÐI óskar öllu starfsfólki sínu og viðskiptavinum árs og friðar Þakkar gott samstarf og viðskipti á liðnum árum Markaðs- og neyslusamfélagið sem við byggjum setur okkur vissu- lega skorður, en hver einstaklingur getur ræktað með sér þættí sem eru undirstaða góðs mannlífs. Þótt við getum alið með okkur hugsýn um að bæta mannlegt samfélag, þá verður manneskjan öðru fremur að breyta eigin hugarfari. Til þess eru jólin raunar góður tími. Ég ætla að nefna eina leið sem menn geta reynt að fara í þessu skyni til að byija með. Það er að rækta með sér afstöðu sem kennd er við þakklæti. Vanþakklát- ur maður getur ekki glaðst því hann hefur hefur hart hjarta. Ef tíl vill vanrækjum við böm velferðarsam- félagsins þakklætið öllu öðru frem- ur. Þjóðfélagsumræðan hérlendis er gegnsýrð af vanþakklæti. Það virðist jaðra við heimsku að vera þakklát- ur, enda sé slíkur maður tilbúinn að sætta sig við hvað sem er. Heimtu- frekja og vanþakklæti eru hins vegar viðtekin viðhorf og þykja sjálfsögð, enda falla þau vel að þeirri kröfu manna að hafa allt eins og þeim sjálfum hentar. Allt á að lúta manns eigin vilja og skilyrðum, jafnvel Guð almáttugur sem á að vera ávallt til taks þegar mikið liggur við. Það er líka til marks um þessa heimtufrekju þegar jólin eiga að svara kröfum manna um gleði og sálarfrið án þess að þeir leggi sjálfir þakklæti af mörk- ✓ Ovæntur sannleikur Klukkan Kassíópeia og húsið í dalnum heitir nýútkomin bamabók eftir Þórunni Sigurðardóttur. Bókin er byggð á leikriti, sem flutt var f Ríkis- útvarpinu í haust og fjallar um böm sem fara að grafast fyíir um gamalt leyndarmál og komast þá að óvænt- um sannleika. Þegar farið er að grufla í fortíðinni kemur ýmislegt spenn- andi f Ijós og aðalpersónan, Halla, uppgötvar að lífið í sveitinni hefur ýmsa kosti sem ekki finnast í höfuð- borginni, þar sem kapphlaupið við tímann er allsráðandi. Katrín Sigurðardóttir, systir höfund- ar, myndskreytti bókina. Þómnn Sigurðardóttir er þekkt fyrir störf sín við leikhús borgarinnar. Hún hefur bæði leikið og leikstýrt mörgum verkum og eftir hana hafa verið flutt sex leikrit, m.a. „Haust- brúður" sem gefin var út af Menn- ingarsjóði árið 1989. Klukkan Kass- fópeia og húsið i dalnum er fyrsta bamabók Þórunnar. Bókin er 140 blaðsíður, prentuð f Prentsmiðjunni Odda hf. Verð út úr búð er 1390 krón- ur. Kennsluaðferð Lærum að lesa er ný lestrarbók handa byrjendum eftir Áma Áma- son. Efnið er ekki sniðið að ákveðinni kennsluaðferð, heldur miðað við að foreldrar jafnt og kennarar geti nýtt sér bókina til að hjálpa bömum að ná tökum á lestri. Anna Cynthia Leplar myndskreytti og er önnur hver síða með litmyndum. Viðfangsefni em fjölbreytt og hægt er að nota þau til að vekja áhuga bama á ýmsum mála- flokkum. Textar em misþungir og einnig er hægt að byrja á að skoða myndefnið og/eða stafi og stök orð. Bókin var prentuð í Hong Kong og kostar 1490 krónur út úr búð. Lestrarhestar Litlir Lestrarhestar er flokkur bóka fyrir böm sem farin em að lesa sjálf. Bækumar em prentaðar með stóm letri og breiðu lfnubili og misjafnar að lengd og þyngd. Mál og menning gefur bækumar út og í ár bætast þrjár f safnið: Ailtaf gaman í Óláta- garði eftir Astrid Lindgren, þriðja um. En þakklæti kemur ekki af sjálfu sér, allra síst í samfélagi sem vanrækir það jafn mikið og okkar. Það þarf því að þjálfa þakklætis- kenndina, æfa sig í að þakka Guði og góðu fólki fyrir gæði þessa lífs. Það er til marks um mátt jólanna, að þrátt fyrir allt megna þau enn að draga fram í hjörtum manna þá bamslegu afstöðu sem er undirstaða gleði og þakklætis. Af þeirri ástæðu einni getum við enn tengt þessa há- tíð við Jesú Krist, því maðurinn tek- ur við Kristi eins og bam. Þetta sýnir fram á það að enn er von um að rannsóknardómaranum mikla hafi skjátlast um það hvers manneskjan er megnug. Að fylgja Kristi í fijáls- um kærleika felur það í sér sem hveijum manni er erfiðast að ná, að láta af þeirri eigingjömu kröfu að at- burðir lúti hans eigin vilja. Þakklæt- ið greiðir öðm fremur fyrir þessari afstöðu, því það losar hug manns og vilja úr viðjum eigin sjálfs og beinir honum að því sem okkur er gefið, því sem við þiggjum. Þegar allt kem- ur til alls á þetta við um nánast allt, því við erum ekkert af eigin ramm- leik. Þetta sjálf, sem hvert okkar er, og takmarkar alla okkar sýn á heim- inn, er ekki nema angi af öllu sköp- unarverkinu og þiggur aUt sitt af því. Lífið höfum við þegið að gjöf. Kristin kenning segir að Guð hafi með bókin um Ólátagarðsbömin hug- myndaríku í nýrri þýðingu Sigrúnar Árnadóttur með myndum eftir Ilon Wikland. Baun í nefi Betu, lflca eftir Astrid Lindgren, skreytt litmyndum eftir Ilon Wikland. Sigrún Ámadóttir íslenskaði. Sumarleyfissögur af Frans eftir Christine Nöstlinger er svo þriðja bókin í flokknum og fimmta bókin um hina hugmynda- ríku söguhetju sem nú fer í sumar- búðir. Jórunh"Sigurðardótfir þýddi og teikningar eru eftir Erhard Dietl. Verð hverrar bókar er 780 krónur. | Strákarnir okkar Útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur gef- ið út bókina Strákamir okkar eftir Sigmund Ó. Steinarsson blaðamarm. Bókin hefur að geyma sögu íslenska landsliðsins í handknattleik allt frá því það lék fyrstu landsleikina árið 1950 og fram á árið 1993. Verð bókarinnar er kr. 1.980 með vsk. Vegvísir Mál og menning hefur sent frá sér bókina Á slóðum Vilhjálms, sögur eftir leikritum Williams Shakespeare. Helgi Hálfdanarson skráði. í þessari snotru bók er rakinn gangur mála úr nokkmm þekktum leikritum eftir William Shakespeare með frásagnar sniði. Lesendur verða þess brátt áskynja að því fer fjarri að verk Shakespeares séu einhver torskilin háspeki. Reynt er að koma til skila sem mestu af aðalefni leikritanna og em frásagnimar nokkurs konar veg- vísir inn í Ieikritaheim meistarans. Bókin er 186 bls. Verð kr. 1985. Tilraunir f flokknum Skemmtilegar tilraunir koma nú út tvær bækur. Önnur um tilraunir til að kanna breytingar á eig- inleikum efna við mismunandi hita- stig, og hin um einfaldar tilraunir með ræktun. í bókunum em hug- myndir að fjölmörgum viðfangsefn- um og em allar leiðbeiningar skýrðar með ljósmyndum. Bækumar em ætl- aðar sex til tíu ára bömum. Hildur Hermóðsdóttir þýddi. Hvor bók er 30 blaðsíður og kostar 875 krónur. Mál og menning gefur út. Sull og bakstur Á bak við hús heitir nýútkomin myndabók fyrir yngstu bömin eftir Áslaugu Jónsdóttur. Þetta er rímuð saga um Önnu litlu, sem sullar og bakar drullukökur úti í garði. Þar eiga heima ýmis smádýr, sem gaman er að skoða og fræðast um. Þessi fjórða myndabók Áslaugar var prent- uð í Hong Kong og er 26 blaðsíður. Bókin kostar 990 krónur út úr búð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.