Tíminn - 19.02.1994, Page 7

Tíminn - 19.02.1994, Page 7
Laugardagur 19. febrúar 1994 7 Loftárásir eru eina lausnin Bosníumaburinn Davor Purusic er fæddur og uppalinn í Sarajevó. Hann hefur dvaliö á íslandi frá því á síöasta ári og hér vill hann setjast aö til frambúöar. Atlants- hafsbandalagiö hefur hótaö því aö hefja loftárásir á herbúöir Serba viö Sarajevóborg annaö kvöld, dragi þeir ekki umsáturs- sveitir sínar til baka og flytji öll þungavopn á brott fyrir þann tíma. Davor telur að loftárásir séu eina sjáanlega lausnin á stríöinu í Bosníu en hann hefur ekki trú á aö alvara veröi gerö úr hótuninni. „Eftir reynslu mína síðustu.tvö árin trúi ég því ekki aö loftárásim- ar veröi gerðar," segir Davor. Hann segir hins vegar löngu oröiö tímabært að gripiö veröi til aö- geröa. „Ef það er nauðsynlegt aö um hálf milljón óbreyttra borgara sé drepin til aö alþjóðastofnanir grípi í taumana þá er ekki mikið gagn af þeim. Aftur á móti get ég skilið aö aörar þjóöir hiki við aö blanda sér í átökin. Þaö er eðlilegt að þær séu tregar til að senda her- menn sína til ab taka þátt í átök- um sem þær eiga engra sérstakra hagsmuna aö gæta í, sérstaklega þar sem fólk á á hættu aö verða fyrir skoti á götum úti." Davor segist ekki sjá neina lausn á stríðinu, reynist hann sannspár varöandi loftárásimar. „Stríöið hefur núna staöiö í tvö ár og herir beggja aðila em famir aö Davor Purusic. þreytast. Her Bosníu skortir vopn og ég held að hann hafi ekki leng- ur styrk til aö vinna stríðið. Her Serba er líka oröinn veikari en hann var og þannig haldast átök- in í jafnvægi þar sem hvorugur abilinn getur sigrað og bundið þannig enda á stríbiö. Þess vegna held ég aö loftárásimar séu eina lausnin til aö stöðva stríöið." Foreldmm Davors tókst báöum aö flýja frá Sarajevó en hann á marga vini þar sem hann óttast um. „Mannfall óbreyttra borgara í Sarajevó hefur verið gífurlegt og miklu meira en meöal hermaxma. Fólk sem hefur misst vini eða ætt- ingja getur sjálft farist ef þab fer við útförina. Líf fólks í Sarajevó er algert brjálæöi en öllum virðist vera sama. Þaö hefur samt nóg veriö talað en þaö virðist alltaf vera aö þeir sem geta ekkert gert vilja gera allt en þeir sem hafa vald til aö taka ákvarðanir um aö- geröir, þeir vilja ekkert gera." Davor er ekki bjartsýnn um framtíð lands síns. Hann segist ekki búast við aö átökum muni linna í Bosníu næstu árin. „Þótt gripið veröi til loftárása verða þær bara til aö stöðva umsátrið um Sarajevó. Það veröur áfram barist í Bosníu þar til fólk áttar sig á því aö þaö er ekki hægt að skipta landinu nibur á milli þjóöarbrota. Stríöið snýst ekki um þjóöemi heldur hafa leiötogar Serba reynt aö telja fólki trú um það meö áróöri. Meö honum hefur þeim tekist aö ná til hluta fólksins og koma inn hjá þeim fjandskapi gagnvart löndum sínum af öörum þjóðemum. Ég er kaþólskur en ég vann fyrir stjóm Bosníu sem er kennd viö múslima. En um þaö bil 20%-30% af hermönnum í her Bosníustjómar em Serbar. Þannig aö þetta era ekki jafnskörp skil og menn halda. Ég hef aldrei hataö Serba, Króata né múslima og ég geri þaö ekki frekar nú." Davor hefur óskaö eftir leyfl til aö setjast aö á íslandi enda segir hann enga framtíö fyrix sig í Bosníu. Hann segir aö sér líði vel hér og vonast til hefja eölilegt líf hér á landi í sumar. -GBK Landbúnaöarmálin: Um hvab er deilt? Þaö hefur ekki farið fram hjá al- menningi í landinu ab harövít- ugar deilur eiga sér nú staö um landbúnabarmál milli Sjálf- stæöisflokksins og Alþýöu- flokksins. Þetta er framhald á deilum sem staöiö hafa meö hléum á milli flokkanna allt kjörtímabiliö. Deilumar viröast vera komnar á þaö stig aö þær séu famar ab snúast um fleira en bara breytingu á búvörulög- um. Þær fjalla m.a. um tiúnaö innan ríkisstjómar. Báöir flokk- amir saka hvor annan um aö rjúfa samkomulag sem gert var fyrr í mánuöinum um máliö. Grandvöllur átakanna er þrátt fyrir allt deila um hvemig eigi aö breyta búvöralögum. Hér veröur gerö tilraun til aö skýra hvaö hvor flokkurinn vill í þeim efnum'. Rétt er aö taka fram aö á málinu era margar hliöar og ekki er endan- lega ljóst hvaða breytingartillög- ur sjálfstæöismenn leggja fram í landbúnaðamefnd. Alþýðuflokkurinn vill... Alþýöuflokkurinn vill ab fram- varpið sem stjómarflokkamir náðu samkomulagi um 2. febrúar síöastliðinn verði samþykkt meö smávægilegum breytingum. Framvarpiö gerir ráö fyrir aö 52. grein búvöralaganna veröi breytt á þann hátt 'aö landbúnaöarráö- herra veröi fengnar skýrar heim- ildir til aö banna innflutning á tilteknum landbúnaöarvöram. Alþýöuflokkurinn lítur svo á að frumvarpib tryggi óbreytt ástand þessara mála fram að gildistöku GATT-samkomulagsins á miðju næsta ári, en um það höfðu flokk- amir náö samkomulagi. Alþýöuflokkurinn getur sætt sig viö nokkrar minni háttar breyt- ingar á framvarpinu sem miöa að því að gera 52. greinina skýrari en hún er í fyrirliggjandi framvarpi. Alþýöuflokkurinn viöurkennir að gera veröi frekari breytingar á búvöralögum áöur en GATT- samkomulagiö tekur gildi, en vill bíöa meö allar breytingar þangaö til nefnd, sem stjómarflokkamir hafa skipað og á aö gera tillögur um breytingar á íslenskri löggjöf í tengslum viö gildistöku GATT, hefur Iokið störfum. Alþýöuflokk- urinn telur því enga ástæðu til aö breyta 72. grein búvöralaganna sem fjallar um jöfnunargjöld á innfluttar búvörar. Alþýöuflokkurinn telur aö þær breytingar sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur lagt til aö geröar veröi á búvöralögum stórauki vald landbúnaöarráðimeytisins í þess- um málum og feli í sér brot á sam- komulagi flokkanna um aö hafa óbreytt ástand fram aö gildistöku GATT. Alþýöuflokkurinn telur ab tillögur Sjálfstæðisflokksins feli í sér að landbúnaðarráðuneytið fái að ráða meira um þaö hvaða vör- ur era fluttar inn til landsins og að hvaö miklu leyti lagöar skuli á þær jöfnimargjöld. Sjálfstæbis- flokkurinn vill... Sjálfstæðisflokkurinn vill aö viö breytingu á búvöralögum nú verði tekiö tillit til GATT-sam- komulagsins og ákvæðum í bú- vörulögum um jöfnunargjöld verði breytt. Sjálfstæðisflokkur- inn vill að við breytingamar fái landbúnaðarráöherra vald til aö leggja á jöfnunargjöld líkt og landbúnaöarrábherrar í flestum nágrannalöndum okkar hafa. Þess vegna telur Sjálfstæöisflokk- urinn ekki nægjanlegt aö breyta 52. grein búvöralaganna sem fjallar um innflutning búvara. Þaö veröi einnig aö breyta 72. greininni sem fjallar um álagn- ingu jöfnunargjalda. Flokkurinn telur einnig að dómurinn í skinkumálinu leiöi til þess ab óhjákvæmilegt sé aö breyta að einhverju leyti 72. greininni. Verði þaö ekki gert sé veriö aö brjóta samkomulag stjómarflokk- anna frá því í desember um aö halda óbreyttu ástandi innflutn- ingsmála fram aö gildistöku GATT. Tillögur Sjálfstæöisflokksins um breytingar á 72. greininni era flóknar, en í stuttu máli miðast þær viö að færa landbúnaðarráð- herra vald til að leggja á jöfmmar- gjöld og jafnframt aö seta viss mörk fyrix þvi hvab þessi gjöld mega vera há. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar því aö verið sé að fela landbúnaðar- rábherra vald til að ákveöa fyrir heimilin í landinu hvaö þau eigi aö boröa og á hvaöa veröi. Sjálf- stæöisflokkurinn telur aö með til- lögimum sé veriö aö tryggja aö landbúnaöurinn búi viö sömu starfskilyröi og löggjafinn ætlaö- ist til áður en dómurinn féll í skinkumálinu og jafnframt sé ver- iö að taka tillit til þeirra breytinga sem munu veröa með tiíkomu GATT. -EÓ Y.Í'j'A-M 94'J pLIS innifalið í verði: ábyrgðartrygging þjónustueftirlit skráning ryðvörn 1300cc þriggja dyra beinskiptur bein innspýting 16 ventla vél ath. vökva- og veltistýri hiti í sætum o.fl o.fl. o.fl. MlCiiÁ mest seldi smábíllinn 1993 Mhjfi) yr eíHHJ'j íjJ hj|ö EjjÍJíalijpíjnyu oy ÍJnifxj dyrri Bjóðum reynsluakstur á sýningu um helgina frá kl. 14-17 X INIISSAINI ingvar Heigason hf. 3ja ára ábyrgð Sævarhöföa 2 síml 91-674000

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.