Tíminn - 19.02.1994, Síða 10

Tíminn - 19.02.1994, Síða 10
10 yftwiiw Laugardagur 19. febrúar 1994 Hagyrbingaþáttur Búl sendi eftirfarandi limm og er tilefniö þegar Ólafur Ragnar deildi á forsætisráöherra fyrir bréfaskriftir á Alþingi. Davíð kvaöst ekki sitja í skjóli Ólafs og þyrfti ekki leyfi til aö skrifa vinum sínum. Ég tróna í toppkrata skjóli á traustbyggðum landsföðurstóli, og leyfi ég hef að handskrifa bréf til Heimis — og þegiðu, Óli. Þ.D. orti eftirfarandi: Á kalkúnalöppunum labbar Langhala-Jón B. og rabbar við Pétur og Pál um EB og ál, til Kanans um meiri her kvabbar. Og Búi heldur sig viö sama heygaröshomiö: Dapur á sér enga von uppreis'nar hjá presti, Arthúr Björgvin Bollason, bcendavinur mesti. Örlög þung, en einnig grín íslandssagan geymir. Gcetum okkar, elskan mín, *■ ennþá rekur Heimir. Fleiri yrkja um brottreksturinn og er eftirfarandi eftir Aðal- stein Sigurösson: Útskúfunar var þar von frá virtum höfðingjunum, því Arthúr Björgvin Bollason beitti sannleikanum. Sama varö aö vísu, þegar hann heyrði þrjár ungar konur ræða um aö ómögulegt væri aö nota karlmenn til að gera nokkuð innanhúss. Langt hefég séð um lífsins hlaup og langar að segja sprundum, að karlagrobb og kvennaraup kann að líkjast stundum. Aðalsteinn Ólafsson sendir vísur: Mannlýsing Einn vill Jóninn öllu spilla, ill er frétt. Honum lýsa allir illa og allir rétt. Auglýsing Flestum verða augnayndi auglýsingar hér. Dásemd mesta, dömubindi, dag hvem birtist mér. Glaður margur gaeðin lítur, gaman þykir mér. Það, sem bindið hylja hlýtur, hugsar maður sér. Enn berast botnar við fyrriparta. Markús týndi milljarði og minnihlutinn fann hann. Margur gaur í gjaldþroti gceti þegið annan. Öld er köld með vaxtagjöld, veldur höldum tjóni. Eru gjöldin og margföld, ill er stjóm á Fróni. Þennan botn sendi K.S.M., Gautsdal. Annar botn: Þegar gjöldin þúsundföld þjaka öldnum fóni. Viö síöasta fyrripart var bætt: / tómri tunnu bylur hcest, tcemdur er orðaforðinn. Upphafið er ekki glcest, illt að gera sporðinn. Og hér trieð er lýst eftir fyrriparti fyrir hagyröinga aö spreyta sig á. Botnar og vísur sendist til Tímans Stakkholti 4. 105 Reykjavík. P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA! Símbréf: 16270 Góöa skemmtim! Forseti Alþjóbaráös Rauba krossins segir ab ekki eigi oð blanda saman abstob og árásum: Sameinuðu þjóöirnar ekki hlutlausar í Bosníustríðinu Scenskir lœknar finna einfalda lausn á iœknisfrœbi- legu vandamáli: Parkinsons-skjálfti læknaður með gangráði Cautaborg, Reuter Comelio Sommaruga, forseti Alþjóöaráös Rauöa krossins seg- ir að þaö hafi verið mikil mistök af hálfu Sameinuöu þjóöanna að senda vopnaö friöargæslulið til lýðvelda gömlu Júgóslavíu. Sommaruga sagöi í viðtali sem birtist nýlega við hann í Svenska Dagbladet aö þegar sama stofnunin hefði afskipti af hjálparstarfi, vopnabri friðar- gæslu og loftárásum væri lítið eftir af hlutleysinu. Hann sagö- ist heldur ekki sjá að nokkur stofnun gæti þóst vera hlutlaus þegar hún tæki pólitískar ákvaröanir á borö viö refsiað- gerðir og viðskiptabann á sama tíma og hún stýrbi friöarviöræö- um stríðandi fylkinga. Sommama segist ekki véfengja einlægan ásetning stofnana á borð viö Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóöanna og Friðar- gæsluliösins. Staöreyndin sé samt sú að íbúar á átakasvæðim- um, eins og í Bosníu, líti öðra- vísi á hlutina og það sé þaö sem máli skiptir. Heyrst hefur aö ýmsar hjálpar- stofnanir ætli aö kaUa starfsfólk sitt heim frá Bosníu ef til loft- árása kemur. Sommaraga segir að hjálparliöar Rauöa krossins verði áfram í landinu þó ab or- ustuþotur Atlantshafsbanda- lagsins geri árásir á stöðvar stríðandi fylkinga. Það muni þó hægja á hjálparstarfinu því aö tryggja veröi öryggi starfsfólks- ins eins og framast sé kostur. Tveir sænskir læknar, Bo Jonn- els og Lars-Erik Augustinsson, segjast hafa fundið einfalda að- ferö til aö koma í veg fyrir skjálfta sem fylgir Parkinsons- veikinni án þess aö skaöa heila sjúklingsins. Læknarnir segja ab meö því að nota gangráb til að „stuba" þær stöövar heilans sem valda skjálftanum geti sjúklingurinn boröað og drakkiö áhyggju- laust. ÍtSPRRISJÓÐURlHH í KEFLAVÍK gúmmIbátaþjónusta norðurlandssf. Akureyri Kjötvinnsla B. JENSEN Glæsibæjarhreppi 6UMMIVINNSLAN Réttarhvammi 1 - Akureyri Akureyri Iðjulundur Vemdaður vinnustaður

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.