Tíminn - 19.02.1994, Side 11

Tíminn - 19.02.1994, Side 11
Frá Þórshöfn í Fœreyjum. Hver verða ör- lög Færeyinga? Aótrúlega skömmum tíma hefur færeyskt samfélag breyst úr blómlegu búi í nánast gjaldþrota verstöö. Gíf- urleg þensla liöinna ára var meira og minna sjálfvirk og tók ekki miö af sveiflum í afkomu þjóöarinnar. Þegar ljóst varö aö hverju stefndi, hlupu Danir undir bagga meö Færeyingum, enda má meö sanni segja aö þeir eigi nokkum hlut aö máli. Dönsk stjómvöld hunsuðu skýrslur sérfræöinga, sem höföu lýst því í mörg ár hvert stefndi. Vilja ekki framseljan- legan kvóta í fyrrasumar samdi danska stjómin viö landsstjómina í Færeyjum um að komiö yröi á kvótakerfi í sjávarútvegi með framseljanlegum veiöiheimild- mn. Þessu hefur færeyska Þjóö- þingiö nýlega hafnaö og í fram- haldi af því neitaöi danska stjómin aö endurgreiða gjald- falliö lán Færeyinga, sem nam sem svaraöi tveimur milljörö- um íslenskra króna. Þjóöþingið gæti þó átt eftir að skipta um skoðun bráölega, því að lands- sjóöur er nánast tómur og ekki hægt aö greiöa opinbenun starfsmönnum laun, hvaö þá annaö. Það er því almennt taliö aö Færeyingar eigi ekki annarra kosta völ en aö samþykkja kvótakerfi að hætti íslendinga. En hver verður þjóöréttarleg staða Færeyinga í framtíöinni? Varla fer á milli mála að fuil- veldi þjóðarinnar er í hættu og rætt hefur verið um þaö á æðstu stöðum aö fóma því til að geta horfiö til baka í hlýjan faðm danska konungsveldisins. Það kann og að þykja sjálfgefið aö Danir innlimi eyjamar eftir að hafa mokað í þær peningum, sem aldrei fást til baka, og sennilega er fjárhagslegt sjálf- stæöi Færeyinga úr sögunni um sinn. Danska ríkib í bútum Þaö er því afar athyglisvert aö heyra hvaöa augum Daninn Frederik Harhoff lítur samskipti Dana og Færeyinga. Harhoff hefur undanfarin ár veriö lektor í Evrópurétti og þjóðarétti við Kaupmannahafnarháskóla. í fyrra varði hann doktorsritgerð við lagadeild skólans og bar hún heitið „Rigsfællesskabet". ÚTLÖNP {verkinu heldur hann því fram að staöa Færeyinga og Græn- lands innan danska ríkisins hafi breyst svo mikið aö ekki sé leng- ur hægt aö tala um danska ríkiö sem eina heild, heldur samband þriggja ríkishluta, sem hver um sig fari meö löggjafarvald og framkvæmdavald að nokkm, og hafi landfræöileg og málefna- lega aöskilin valdamörk. Valdfb ekki einhlfba afturkallab Höfundur gagnrýnir þá kenn- ingu í dönskum stjómskipunar- rétti að danska þjóöþingiö geti afturkallaö þær heimildir, sem heimastjómir Færeyja og Græn- lands hafa öðlast fyrir framsal frá danska ríkinu. Kenning Harhoffs er sú að heimastjómum hafi í raun veriö framselt slíkt vald, að þaö veröi ekki einhliða afturkallaö. Þessu til stuönings vísar höfundur til þeirrar framkvæmdar sem hefur veriö Iátin átölulaus, m.a. samninga sem geröir hafa veriö milli heimastjóma Færeyja og Grænlands og annarra ríkja og sem höfundur telur á ábyrgð heimastjómanna en ekki danska ríkisins. Til stuönings kenningu sinni vísar höfundur til sjónarmiöa þjóöaréttar um rétt innfæddra til ákvöröunar um eigin málefni. ísland sem fyrirmynd í verkinu er saga heimastjómar í Færeyjum og á Grænlandi rak- in ítarlega og gerö grein fyrir samningum landanna við önn- ur ríki og þeirri framkvæmd, sem höfundur vísar til sem und- irstööu þess aö Færeyjar og Grænland njóta nú sérstakrar stööu aö dönskum stjómskip- unarrétti. í bókinni er sjálfstæð- isbarátta íslendinga rakin að nokkm og gerö grein fyrir þeirri fyrirmynd sem Færeyingar sóttu í íslenska sögu. Ágúst Þór Ámason, Dóra Guðmundsdóttir Landsbanki íslands auglýsir nú fimmta árið í röð eftir umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 7 styrkir. 21 Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. @ Allir þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir 15. mars 1994 eiga rétt á að sækja um styrk vegna þessa námsárs. IH Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir verða afhentir í apríl 1994 og veittir NÁMU-félögum skv. eftirfarandi flokkun: 2 styrkir til háskólanáms á íslandi, 2 styrkir til náms við framhaldsskóla hérlendis, 2 styrkir til fram- haldsnáms erlendis og 1 styrkurtil listnáms. 31 Umsóknum ertilgreini námsferil, námsárangur, heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Lands- banka íslands eigi síðar en 15. mars næstkomandi. {H Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið b.t. Berglindar Þórhallsdóttur . Bankastræti 7, 155 Reykjavík L Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.