Tíminn - 12.03.1994, Blaðsíða 15
Laugardagur 12. mars 1994
15
Tryggvi Sigurðsson
frá Útnyrðingsstööum á Völlum
Fæddur 2. ágúst 1903
Dáinn 3. mars 1994
Vinur minn, Tryggvi Sigurðsson
frá Útnyrðingsstöðum á Völlum,
er látinn. Hann andaðist á sjúkra-
húsinu á Egilsstööum eftir stutta
legu.
Tryggvi hafði verið heilsutæpur
síðustu árin, en haföi þó oftast
fótavist og var jafnan hress og
glabur bæöi heima og aö heiman.
Viku áður en hann lést kom hann
ásamt öbmm kunningja okkar í
heimsókn til okkar hjónanna og
virtist hann þá vera vel hress.
Okkur þótti öllum gaman ab spila
lomber og spiluðum oftast í þrjár
klukkustundir. Þá spjölluðum við
oft saman og þá var oft glatt á
hjalla, enda vom þeir báðir létt-
lyndir og gamansamir.
Ekki datt mér í hug, þegar ég
kvaddi Tryggva þá, ab það yröi
okkar síðasta handtak. Mér fannst
hann þá vera með hressara móti.
Þessvegna kom andlátsfregnin
mér mjög á óvart.
En Tryggvi var ekki vanur að
kvarta þó hann væri eitthvað las-
inn. Svo er það líka þannig að
dauðinn gerir ekki alltaf bob á
undan sér.
Fyrst kynntist ég Tryggva þegar
ég var lítill drengur. Hann var þá
um tíma heimiliskennari bræðra
minna á Gilsá í Breiðdal og einn-
ig um tíma kaupamaöur hjá for-
eldrum mínum um sláttinn sum-
arið 1928. Tryggvi var ákaflega
bamgóður, þessvegna uröum við
fljótt góbir kunningjar og sá
kunningsskapur okkar entist alla
tíð síðan eða í 66 ár. Og það sem
meira er, aö aldrei bar skugga á
vináttu okkar.
Tryggvi var fæddur og uppalinn
á Völlum á Héraöi, en fluttist
ungur að Hóli í Breiödal meö for-
eldrum sínum. Elísabet systir
hans var þar lengi húsfreyja.
Maður hennar var lengi bóndi þar
og víðar.
A Hóli átti Tryggvi heimili þang-
að til ab hann fluttist aö Rand-
versstöbum í sömu sveit 1931 og
hóf þar búskap ásamt foreldrum
sínum. Faðir hans var þá orðinn
heilsutæpur og dó tveimur árum
seinna. Tryggvi var góður bóndi,
hann hirti Vel um allar sképnur
sínar. Hann átti góð reiðhross og
var góður hestamaöur.
—'-p-———————————————————
DAGBOK
71. dagur ársins - 294 dagar eftir.
10. vika
Sólris kl. 7.57
sólariag kl. 19.19
Dagurínn lengist
um 7 minútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sveitakeppni í brids kl. 13 og félags-
vist kl. 14 í dag í Risinu. Dansab í Goö-
heimum kl. 20 í kvöld.
Mánudagur: Opið hús í Risinu kl. 13-
17. Lesið úr Sturlungu kl. 17 í Risinu
og söngvaka kl. 20.30 um kvöldið.
Stjómandi Kári Ingvarsson og undir-
leikari Sigurbjörg Hóbngrímsdóttir.
Dansað í Kringlunni
Heimsmeistarakeppni í Ballroom
dönsum í aldurshópnum 16-18 ára
verður í Úkraínu í þessum mánuði og
heimsmeistarakeppnin í Latin döns-
Hann var líka góður fjármabur.
Ég heimsótti hann, einkum á
vetrin, og skoöabi þá alltaf sauð-
féö og hrossin hjá honum. Alltaf
var gaman aö heimsækja hann og
spjalla við hann, því hann var
alltaf glabur og spaugsamur.
Haustiö 1928 fór Tryggvi í
Bændaskólann á Hvanneyri og
t MINNING
lauk þaðan búfræðiprófi 1929 eft-
ir eins vetrar nám. Áður hafði
hann verið einn vetur í Alþýðu-
skólanum á Eibum. Það sýnir best
að Tryggvi var góður námsmaður,
enda var hann góðum gáfum
gæddur. En eins og kunnugt er
hefur verið tveggja vetra nám á
Hvanneyri til búfræðiprófs og fáir
nemendur sem hafa lokið bú-
fræðiprófi á einum vetri.
Sumarib 1929 réð Búnaðarfélag
Breiödæla Tryggva til jarðyrkju-
starfa í Breiðdal. Þá voru notuð
hestaverkfæri, aðallega plógur og
herfi, og fyrst og fremst unnið að
túnasléttun. Tryggvi var góöur
hestamaður og verklaginn og
gekk vinnan með hestunum mjög
vel.
Árið 1945 flutti hann frá Rand-
versstöðum að Útnyrðingsstöð-
um á Völlum og bjó þar þangað
til að hann fluttist í Egilsstaðabæ
ásamt eiginkonu sinni, Sigríbi
Sigurðardóttur frá Útnyrðings-
stöðum, en hann giftist henni
fljótlega eftir aö hann fluttist
þangað. Þau fluttust í Egilsstaða-
bæ 2. júlí 1988.
um verður í Slóveníu um miðjan apríl.
Dansparib Jóhanna Ella Jónsdóttir og
Scott Brandon Todd, íslandsmeistarar
í Baliroom dönsum í þessum aldurs-
flokki, hafa veriö valin til að keppa fyr-
ir íslands hönd á báðum mótunum. í
dag, laugardag, ætla þau ab dansa í
Kringlunni og munu þau taka sporib
af og til á afgreiöslutíma hússins, bæbi
í göngugötum og inni í nokkrum
verslunum. Verslanir í Kringlunni eru
opnar á laugardögum frá kl. 10 til 16.
Tónleikar í Óperunni
Styrktarfélag íslensku óperunnar býb-
ur styrktarfélögum sínum og styrktar-
fyrirtækjum til tvennra hátíbartón-
leika í ísl. óperunni um helgina. Á tón-
leikunum mun Óperukórinn undir
stjóm Garðars Cortes ásamt einsöngv-
urunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og
Ingveldi Ýr Jónsdóttur flytja mörg vin-
sæl atriði úr óperum, óperettum og
söngleikjum. Tónleikarnir verba
haldnir á laugardags- og sunnudags-
kvöld og hefjast kl. 20.
Tónleikar helgaðir minn-
ingu Páls Kr. Pálssonar
Sunnudaginn 13. mars kl. 17 veröa
haldnir tónleikar í Hafnarfjarðar-
kirkju, sem helgabir verða minningu
Páls Kr. Pálssonar, sem var organleik-
ari Hafnarfjaröarkirkju og fýrsti skóla-
stjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarbar.
Fram koma: Orgelleikarar á vegum Fé-
lags ísl. organleikara, einsöngvarar,
Karlakórinn Þrestir, Kór Öldutúnsskól-
Tryggvi var mikill félagsmála-
maður. Á meðan hann átti heima
í Breiðdal var hann lengi eiim af
framámönnum ungmennafélags-
ins þar og hann var lengi einn af
framámönnum Búnaðarfélags
Breiðdæla og átti lengi sæti í
stjórn þess. Hann var mikill sam-
vinnumabur og starfaöi einnig í
fleiri félögum í Breiðdal. Tryggvi
var ákaflega samvinnuþýður og
var mjög gott að vinna með hon-
um.
Eftir að Tryggvi flutti í Útnyrð-
ingsstaði bar fundum okkar
sjaldnar saman. Þó kom ég öðru
hverju þangað í heimsókn og
voru viðtökumar alltaf jafn hlý-
legar og góðar hjá þeim hjónun-
um og gaman að koma þangað.
Tryggvi kom líka oft subur í Breið-
dal.
Eftir aö Tryggvi flutti í Útnyrð-
ingsstaði tók hann mikinn þátt í
félagsmálum eins og áður. Meðal
annars var hann oft kjörinn á að-
alfundi fulltrúi Austur-Valla bæbi
á aðalfundi Búnaðarsambands
Austurlands og kjörmanna Múla-
sýslna sem kusu tvo menn úr
hvorri sýslu annab hvert ár til ab
sitja aðalfundi Stéttarsambands
bænda. Tryggvi sat einnig aðal-
fundi þess. Þab sýnir ásamt
mörgu öðm að hann naut al-
menns trausts bænda á Austur-
Iandi. Ýmsum fleiri trúnaðarstörf-
um gegndi hanri hér á Austur-
landi.
Síðan haustiö 1990, þegar við
hjónin fluttum í Egilsstaðabæ,
bar fundum okkar oft saman og
alltaf var Tryggvi jafn glaður og
kátur, hvort sem hann kom til
okkar eða við til þeirra hjónanna.
Ég undraðist hvað hann var
minnugur, ekki síst á löngu liðna
atburbi, þrátt fyrir ab hann var
háaldraður.
Tryggvi eignaðist tvær dætur,
Nönnu og Elínu.
Aö leiöarlokum viljum við hjón-
in biöja góöan Guö að blessa eig-
inkonu hans, dætur og aðra nán-
ustu vandamenn.
Kæri vinur! Far þú í friði, friður
Gubs þig blessi, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Sigurður Lámsson
frá Gilsá
ans, Bamakór Hafnarfjaröarkirkju, Kór
Hafnarfjarðarkirkju og nemendur og
kennarar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Abgangur á tónleikana er ókeypis og
allir velkomnir.
Norræna húsið um
helgina
í dag, laugardaginn 12. mars, kl. 16,
verbur Jan Erik Vold, sem er einn af
þekktustu núlifandi ljóðskáldum
Norðmanna, kynntur á síðustu bóka-
kynningu vetrarins í Norræna húsinu.
Aögangur er ókeypis og allir velkomn-
ir.
Á morgun, sunnudaginn 13. mars, kl.
14 verbur norska kvikmyndin „Her-
man" sýnd í Norræna húsinu. Myndin
er frá árinu 1990 og gerð eftir sam-
nefndri sögu Lars Saabye Christiansen.
Hún er ætluð bömum frá 10 ára aidri
og er rúmlega ein og hálf klst. aö lengd
með norsku tali. Allir eru velkomnir
og er aðgangur ókeypis.
Úkraínsk kvikmynd í
bíósal MÍR
„Hvítur fugl meö svartan díl" nefn-
ist kvikmyndin, sem sýnd veröur í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnu-
dag 13. mars kl. 16. Myndin var
gerð í Úkraínu 1971. Sagan, sem
hún er byggð á, gerist í einu af fjalla-
héruðum Úkraínu og segir frá því
hvernig synir Lés Zvonar bregbast
misjafnlega viö innrás herja fasista í
föðurland þeirra sumarib 1941. Ab-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
|||| FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framsóknarmenn í
Reykjaneskjördæmi
Skrifstofan að Digranesvegi 12 er opin alla þriðjudaga frá kl. 17-19. Komið og fáið
ykkur kaffisopa og spjallið.
KJördæmissamband framsóknarmanna Reykjanesi
Félag framsóknarkvenna
í Árnessýslu
Skemmtiferð til Reykjavíkur verður farin þriðjudaginn 15. mars n.k. Lagt verður af
staðfrá Eyrarvegi 15. Selfossi, kl. 13.30.
Nánari upplýsingar og pantanir hjá Þóru Einarsdóttur I slma 98-22606 og Eygló
Gunnlaugsdóttur í sima 98- 21021. Stjómin
a
Guöni Jón Páll Aratunga Áriegur fundur þingmanna Framsóknarflokksins veröur haldinn I Aratungu þriöjudaginn 15. mars kl. 21.00. Gestur fundarins verður Páll Pétursson alþing- ismaður. Fundarboóendur
Haraldur Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 13. mars á Hótel Lind kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun karia og kvenna. Haraldur Ólafeson mun flytja stutt ávarp í kaffi- } hléi. Aðgangseyrir kr. 500,-, kaffiveitingar innifaldar. Framsóknarfélag Reykjavfkur í
lÍF ***; m 1 ' \ tKH
Ingibjörg Guðmundur Egill Heiðar
Stofnfundur á utanverðu
Snæfellsnesi
Stofnfundurframsóknarfélags á utanverðu Snæfellsnesi verður haldinn I Versöl-
um, Ólafevik, þriöjudaginn 15. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Stofnun félagsins.
2. Sveitarstjómarkosningamar I vor.
3. Stjómmálaviöhorfið.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður, Guðmundur Bjamason alþingismaður og
Egill Heiðar Glslason, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, mæta á fundinn.
Undirbúnlngsnefndin
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Aðalfundur Félags framsóknarkvenna I Reykjavik verður haldinn á skrifetofu
flokksins við Lækjartorg þriðjudaginn 15. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjómin
{*wrrytiin kmitt \
uos rZZ. uos'
I Uráð J
SKÁKÞRAUT
Andruet-Birminghain, Angers
1990.
Hvemig getur hvítur brotist í
gegn?
1. Rxb5, cxb5. 2. Dh8+, Bf8.
3. Bxb5+, Ke7, 4. Df6 mát.
--------------------------------s
Klippur fyrir sauðfé,
nautgripi og hesta.
•
Drykkjarker, drykkjarstútar,
hitalampar.
•
Úrval varahluta og aukahluta
ÁRÆÐIHF.
Höfðabakka 9,112 Reykjavík.
Sfml: (91)67 00 00. Fax: (91)67 43 00.
V______________________/