Tíminn - 14.05.1994, Qupperneq 9
Laugardagur 14. maí 1994
9
Sirens *★*
Framleibandi: Sue Milliken.
Handrit og ieikstjórn: John Duigan.
Abalhlutverk: Hugh Crant, Sam Neill, Tara
Fitzgerald, Elle MacPherson, Kate Fischer
og Portia De Rossi.
Laugarásbíó.
Bönnub innan 12 ára.
Norman Lindsey (Neill) er ástr-
alskur listmálari, sem fær kirkj-
unnar menn til ab skjálfa meö
djörfum nektarmyndum sínum
og þá sérstaklega mynd af kross-
festri og nakinni konu. Þeir senda
ungan Englending og prest, Ant-
hony Campion (Grant), í heim-
sókn til Lindseys og ætla honum
aö fá hann til aö sleppa því aö
sýna málverkiö opinberlega.
Estelle (Fitzgerald), eiginkona
Anthonys, er meö honum í för og
heillast af frjálslyndum lífshátt-
um listamannsins, sem býr í húsi
á landsbyggöinni ásamt konu
sinni og þremur fyrirsætum. Þeg-
ar erótískir draumar taka aö sækja
á hana, fer hún aö endurmeta lífs-
skoöanir sínar og hjónaband sitt.
John Duigan er athyglisveröur
leikstjóri og honum tekst hér á-
gætlega upp. Eins og í fyrri mynd-
um hans, The Year My Voice
Broke og Flirting, er það frásagn-
argáfan, sem heldur þeim uppi.
Fiann tengir skemmtilega saman
goösögnina um sírenumar, sem
afvegaleiddu sjómenn með söng
sínum, við fyrirsætumar þrjár,
sem reyna hvaö þær geta til ab af-
vegaleiða Estelle. Anthony, prest-
urinn, er fyndinn persónuleiki;
skemmtilega hallærislegur í allri
siöavendni sinni.
Erótík, kynórar og langanir em
mjög vandmeðfarin fyrirbæri í
kvikmyndum, sérstaklega vegna
hættu á aö framsetning þeirra
verbi á lágu plani. Duigan sneiöir
mjög vel hjá þessu og nær aö gera
söguna enn áhugaverðari fyrir
vikiö.
Hugh Grant vinnur mikinn
leiksigur í hlutverki hins siöa-
vanda Anthonys. í Bitter Moon
eftir Roman Polanski lék hann að
mörgu leyti svipaða týpu og nær
hér aö fullkomna túlkun sína.
Tara Fitzgerald sýnir einnig af-
bragösleik í erfiöu hlutverki og
Sam Neill stendur sig vel sem list-
málarinn Lindsey.
Ögrun er vandvirknislega gerö
mynd, sú besta frá Duigan til
þessa.
■
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
Kali-
fornia
Kalifornia *
Handrit: Tlm Metcalfc.
Framleibendur: Steve Colin, Sigurjón Slg-
hvatsson og Aristldes McCarry.
Leikstjóri: Domlnic Sena.
Abalhlutverk: Brad Pitt, juliette Lewis, Dav-
id Duchovny og Michelle Forbes.
Regnboglnn.
Bönnub innan 16 ára.
Brian (Duchovny) og Carrie
(Forbes) em ungt par, sem
hyggur á feröalag til Kalifom-
íu. Á leiöinni ætla þau aö
koma viö á stööum þar sem
frægir fjöldamoröingjar
stunduöu iöju sína. Brian ætl-
ar síöan aö skrifa bók um þá
og Carrie aö taka myndir á
vettvangi moröanna. Til aö
spara bensínkostnaö auglýsa
þau eftir ööm pari til aö fara í
feröalagiö meö þeim. Aöeins
eitt par, Early (Pitt) og Ádele
(Lewis), svarar auglýsingunni
og síöan leggur hópurinn af
staö. Fljótlega í feröinni kem-
ur í ljós að Early er stórhættu-
legur morðingi og Adele, ein-
feldningsleg stúlka í meira
lagi, sér ekki í gegnum hann.
Það gerir hins vegar Carrie, en
loks þegar hún hefur sannfært
Brian um hvem mann Early
hefur aö geyma, þá er það of
seint. Viö tekur martröö hjá
þeim Brian og Carrie þar sem
þau reyna að losna úr klóm
Earlys.
Propaganda-fyrirtæki þeirra
félaga, Sigurjóns Sighvatsson-
ar og Steve Golins, viröist sér-
hæfa sig í vegamyndum, sbr.
Red Rock West, Wild at Heart
og fleiri myndir. Kalifomia er
engin undantekning. Sagan
gerist meira og minna öll á
vegum úti með tilheyrandi
landslagsmyndum af um-
hverfinu í kring. Hún sker sig
hins vegar úr aö því leyti að
gæöin em mun minni. Það
tekur myndina mjög langan
tíma að byrja og hún er því
lengsmm mjög langdregin.
Þegar svo lokauppgjörið nálg-
ast loksins, er þaö fremur
óspennandi þar sem Brian hef-
ur verið sögumaður okkar frá
byrjun. Þessi sögumaður gríp-
ur inn í öðm hvom og einhver
hjákátleg speki um fjölda- og
raðmoröingja fylgir meö.
Helsti gallinn við myndina
er aö aöalleikaramir fjórir
standa sig hreint og beint illa.
Karlmennimir em þó sýnu
verri. Þeim er þó e.t.v. öllum
vorkunn, því persónumar em
aö flestu leyti illa skrifaðar af
háim handritshömndar. Brad
Pitt er mjög takmarkaður leik-
ari. Hann nær engan veginn
aö vera trúverðugur í hlutverki
Earlys. David Duchovny er
glataöur leikari -og frammi-
staöa hans eftir því. Juliette
Lewis, sem þótt hefur fram-
bærilegasta leikkona, er ekki
nærri nógu góð heldur. Þaö er
helst að Michelle Forbes kom-
ist næst því að sýna frambæri-
legan leik.
Kalifornia er langdregin, illa
leikin og að mesmm hluta
óspennandi kvikmynd.
Yfirlýsing frá stjórn lœknaráös Landspítalans:
Nýr barnaspítali
Nokkur umræöa hefur orðið um
byggingamál Landspítalans aö
undanfömu og er þaö vel. Ný-
lega benti Ólamr Ólafsson land-
læknir á að þörf fyrir sjúkrarúm
færi síminnkandi vegna fram-
fara í læknisfræöi. Ef til vill mátti
skilja orö hans þannig að þörf
fyrir byggingaframkvæmdir við
stóm sérgreinasjúkrahúsin væri
ekki brýn eða jamvel óþörf.
Ábending landlæknis um sí-
minnkandi legutíma á sjúkra-
húsum er rétt og réttmæt. í því
sambandi má benda á að rúm-
um hemr ekki fjölgaö á Lyflækn-
ingadeild Landspítalans í yfir 20
ár, en á sama tíma hefur umsetn-
ing meira en þrefaldast. Meöal
legutími var rúmir 20 dagar, en
er nú um 6,6 dagar. Hliöstæð
þróun hemr átt sér staö á öðmm
deildum, svo sem handlækn-
ingadeild. Öllum má vera ljóst
að þörf fyrir sjúkrarúm minnk-
aði m.a. vegna bættrar nýtingar
meö fjölgun lækna og annars
starfsfólks og eflingar rann-
sóknastofa og ýmissa stoðdeilda,
en slík þróun krefst aukins hús-
næðis.
Því miöur virðast heilbrigöis-
og fjármálayfirvöld undangeng-
inna ára hafa litiö á sjúkrahús
sem staö fyrir sjúkrarúm og talið
að þar sem ekki vantaöi rúm
vantaöi ekki byggingar. Hús-
næöisvandinn á lóö Landspítal-
ans hemr því stöðugt vaxið á
undanfömum 20 ámm. Eina ný-
byggingin, sem framkvæmdir
hafa verið hamar viö, er K-bygg-
ing Landspítalans, sem aðeins
hefur veriö reist aö hluta og hýs-
ir nú m.a. geislameöferöarein-
ingu krabbameinslækninga-
deildar. Brýnt er að bygginga-
framkvæmdum verði hraðað
þannig aö leyst veröi úr brýn-
ustu húsnæðisvandræðum spít-
alans. Stærsm deildir hans, svo
sem lyflækningadeild, hand-
lækningadeild, bamalækninga-
deild og kvenlækningadeild,
hjfa ekki fengið nauðsynlegar
úrbæmr og rannsóknastomr
spítalans hafa aldrei fengiö við-
unandi framtíðarhúsnæöi. Nú er
svo komið aö hluti starfseminn-
ar hefur flust burt af lóðinni og
neyðarástand ríkir í húsnæöis-
málum lækna. Sérfræðingar þrí-
og fjórmenna í skrifstomkytmm,
sem em á engan hátt boölegar til
trúnaöarviötala við sjúklinga eöa
aöstandendur þeirra eöa annarra
starfa.
En nýlega dró til tíöinda. Tveir
stjórnmálamenn, hvor úr sínum
stjórnarflokknum, sem báöir em
forystumenn um heilbrigðismál,
tóku höndum saman um úrbæt-
ur. Hér er átt við heilbrigðisráö-
herra, Guömund Áma Stefáns-
son, sem nýlega lagöi fram áætl-
im um alútboð á byggingu fyrir
bamaspítala, og Áma Sigmsson
borgarstjóra í Reykjavík, sem
ekki aðeins veitti mikilsveröan
pólitískan smðning, heldur hét
einnig fjárstuðningi. Aödrag-
andinn ætti aö vera þeim, sem
fjær standa og ekki em öllum
hnúmm kunnugir, vísbending
um hve brýnt mál er um aö
ræöa. Ábending landlæknis var
rétt. Ekki er brýn þörf á fjölgun
sjúkrarúma fyrir böm. Hins veg-
ar hafa viðhorf til bamalækn-
inga breyst mikiö á síðusm ámm
og nú er talið að börn geti beðiö
skaða af langri vistun á sjúkra-
stofnunum. Þessi breyttu við-
horf kalla á úrbæhir í húsnæöis-
málum. Brýnt er aö koma upp
deildum þar sem böm geta veriö
daglangt til lækninga meö for-
eldri sínu, en fariö síðan heim aö
kvöldi. Ef þau em, einhverra
hluta vegna, ófær um aö fara til
síns heima, þarf ab vera aðstaöa
til dvalar foreldra með bami
sínu á sjúkrahúsinu. Böm em
ekki smækkuö mynd af fullorðn-
um sjúklingum. Báðar bama-
deildir borgarinnar hafa veriö í
húsnæði sem hannað var fyrir
miloröna sjúklinga og því
óhentugt til barnalækninga.
Stjóm læknaráös Landspítalans
lýsir yfir milum smöningi viö
áætlun heilbrigöisráöherra meö
tilvísun til oröa hans um aö
verkiö muni ekki hægja á fram-
kvæmdum viö K-byggingu.
Landspítalinn á marga aðstand-
endur og vini og stjóm lækna-
ráös heitir á þá alla að veita mál-
um þessum brautargengi eftir
megni. ■
FÖSTUDAGS
PISTILL
ÁSGEIR
HANNES
ÁÞÖNDUM
NASAVÆNGJUM
Davíb Oddsson ræddi eitt sinn
um sambúö Sjálfstæðisflokks og
Morgunblabs á fundi hjá flokkn-
um og lýsti samförum þeirra á
þessa leið: „Ef formabur Sjálf-
stæbisflokksins kvefast, þá hnerr-
ar Morgunblabib!" Síban hafa
bæbi kvefpestir og abrir farand-
kvillar þrúgab formenn Sjallans
og Mogginn jafnan loftab vel út
um nasaholurnar fyrir þeirra
hönd.
Makalaus sambúb Sjálfstæbis-
flokks og Morgunblabs er því
engin ný bóla, en hefur breyst
umtalsvert á síbustu árum og
blabinu til sóma á margan hátt.
Mogginn hefur oft tekib afstöbu
meb þjóbinni gegn ýmsum
einkahagsmunum formanns
Sjálfstæðisflokksins og hirbsveina
hans. Blabib hefur jafnvel neitab
ab hnerra þrisvar ábur en haninn
gelur tvisvar, ef svo ber undir. En
nú er sambúbin ab falla aftur í
Ijúfa löb vegna kosninganna í vor
og tilefnib er líka ærib.
Skobanakannanir spá Sjálfstæb-
isflokknum rífandi gangi í Hafn-
arfirbi og ísafirbi jafnt sem Vest-
mannaeyjum og Keflavík. Á sama
tíma afþakka Reykvíkingar for-
ystu flokksins í borgarmálum og
hafa ekki gleymt rábhúsum og
perlum ásamt fleiri tívolíum frá
valdatíma núverandi flokksfor-
manns.
Davíb Oddsson ber nefnilega
ekki bara ábyrgb á pattstöbu
Sjálfstæbisflokksins í landsmál-
um, heldur líka á fortíðarvanda
Reykjavíkur. Þar meb er talin sér-
kennileg atburbarás D-listans á
síbasta kjörtímabili meb sundrab
lið og þrjá borgarstjóra. Enda
hnerrar blessab Morgunblabib
nú eins og blabib sé kvalib af
heymæbi.
Ar og dagar eru síban pistilhöf-
undur var síbast strangur vib
blessab Morgunblabib okkar fyrir
opnum tjöldum og áminnti blab-
ib fyrir agabrot. Enda hefur
Mogginn sama rétt og abrir ís-
lendingar til ab hafa sína skobun
á mönnum og málefnum og
þótt fyrr hefði verib. En nú er
mál ab rifja upp gamla heimsókn
til ab lesendurTímans velkist ekki
í vafa um hvernig Morgunblabib
mótar pólitíska ritstjórn blabsins:
Á sínum tíma var dr. Gunnar
Thoroddsen varaformabur Sjálf-
stæbisflokksins og þá heimsótti
pistilhöfundur Morgunblabib í
hópi sjálfstæbisfólks. Rætt var vib
pólitfskan ritstjóra blabsins um
sambúbina og hann túlkabi hana
svo ab Mogginn hefbi í stórum
dráttum sömu skobun og Sjálf-
stæbisflokkurinn og tæki því
undir málflutning flokksformanns
á hverjum tíma. Pistilhöfundur
spurbi þá hvort sama gilti ef dr.
Gunnaryrbi kosinn formabur, en
ritstjórinn svarabi um hæl ab svo
frjálslega væri ekki farib meb
trúnab blabsins.
Morgunblabib siglir nú þönd-
um nasavængjum um Ijósvakann
og hnerrar án afláts. Hnerraköst
blabsins eru hins vegar ekki
bundin vib Sjálfstæbisflokkinn
sjálfan og þarfir hans, heldur for-
mann flokksins eingöngu.
Óbreyttum flokksmönnum er
hollt að rifja þab upp tímanlega
fyrir kjördag.