Tíminn - 14.05.1994, Blaðsíða 13
Laugardagur 14. maí 1994
13
IVleð sínu nefi
í þættinum í dag verður enn eitt lag með Bubba Morthens og
er þetta lag af nýjustu plötu hans „Lífið er ljúft". Lag dagsins
er jafnframt óskaíag, en nokkuð margir hafa einmitt bebið rmi
þetta lag og greinilegt að Bubbi nýtur mikilla vinsælda um
land allt. Lagiö er „Þeir hafa trúðinn, en þá vantar trúbador",
og er bæði lag og texti eftir Bubba Morthens. Hér byrjum við
lagið á C-hljómi, en óhætt er að mæla með því ab þeir sem
eiga „cabo" noti það og þá gjaman á 4. bandi.
Það hefur nokkuð verib vitnað til þessa lags í deilum manna í
kosningabaráttunni og menn túlkað orðin hver með sínum
hætti. Nú er því upplagt að menn syngi lagið 1 kosningabarátt-
unni, hver með sínu nefi!
Góða söngskemmtun!
ÞEIR HAFA TRÚÐINN,
EN ÞÁ VANTAR TRÚBADOR C
C Dm
Ég er staddur á stað þar sem línan liggur
F C
og lífiö hjá fólkinu er svart og hvítt
C Dm
þar sem listamaðurinn glaður, þægur og þiggur
F C
í þriðja sinn sinn styrkinn til að gera eitthvað nýtt.
F C
Á fjögra ára fresti þeir ganga í gömul spor,
F C G7
gjaldið til baka er heldur ekkert slor.
C F G7 C
Þeir hafa trúðinn, en þá vantar trúbador.
Ég er staddur á stað þar sem línan liggur,
mér leiðist fólkið sem stjórnar þar.
Ef þú hefur þrælslund, ert duglegur og dyggur
og draumar þínir stangast ekki á við reglurnar,
þá skaltu ganga múlbundinn og máta þeirra spor
og merkja þig fuglinum fyrir næsta vor.
Þeir hafa trúðinn, en þá vantar trúbador.
F
< > <
< >
< > 4 >
X 3 « 2 1 1
G7
3 2 0 0 0 1
F C
Ungur ég heyrði að hugsjón væri dyggð
G7 F C
og hlustabi á flokkana tala um þessa tryggð
F C
og þeir, sem enga hugsjón hafa, halda kannski ab
G7 F C
hamingjan sé fólgin í að hreyfast ekki úr stab.
Ég er staddur á stað þar sem línan liggur
og loforbin vaxa á flokksins vör.
Smælinginn hann tínir upp loforðin tryggur
og tekur á sig skítverkin, en fær aldrei svör.
Þeir hringja og vilja kaupa kjarkinn þinn og þor,
kannski vantar flokkinn aðeins betra skor.
Þeir hafa trúðinn, en þá vantar trúbador.
Ég er staddur á stað þar sem lygin liggur
sem lína dregin og skilur að
hægri og vinstri og ég horfi á hryggur
hvernig þeir leiða fólkið á sinn merkta stað.
Og ég geng frá línunni og legg mín eigin spor,
lækurinn, sem rann svo tær, er orðinn drullufor.
Þeir hafa trúðinn, en þá vantar trúbador.
SÍGILD SÖNGLÖG
G C G
Sest-u hém - a hjá mér, ást - in mín,
TEXTAR NÓTUR ^ HLJÓMAR
GRIP
91-620317
Sæiíef'a-, e/fúir-
ríttur"
Einn af þessum
„gömlu og góðu".
3 eggjahvítur stífþeyttar.
150 gr sykur þeyttur saman
við í smáskömmtum.
Þeytt vel og lengi.
Marengsmassanum sprautað í
smátoppa á bökunarpappírs-
klædda plötu.
Bakað í ca. 45 mín. við 125”.
Marengskökumar sprautaðar
meb bræddu súkkulaði. Kök-
unum raðað upp í „pýramída"
á fallegan disk eða fat, rjóma-
toppum sprautað á milli og
skreytt með ávöxtum.
Fersfct áiHMÚasafat
2 greipaldin
1banani
1 avocado
1 kiwi
2 msk. sykur
Örlítill ávaxtasafi
Greipaldinin skorin í tvennt,
tekið innan úr berkinum og
skorið í smábita. Bananinn,
kiwi og avocado skorib í bita,
sykrinum stráð yfir og smá-
vegis ávaxtasafa. Allt sett í
greipaldinskálarnar. Borið
fram kalt og þeyttur rjómi
hafður með, ef hver og einn
kýs.
2egg
6 msk. mjólk
50 gr skinka
1 msk. smjör
(til steikingar)
1/4 tsk. pipar
1/2 tsk. salt
1 tómatur
8 ostsnúðar
2 sneiðar gróft brauð
Þeytið saman egg og mjólk í
skál. Bætið í skinkunni skor-
inni í strimla og kryddi saman
vib. Bræðið smjörið við vægan
hita og hellið hræmnni á
pönnuna. Þegar hræran byrjar
ab stífna er tómatsneiðum
raðað yfir og ostasneiöunum
þar yfir. Eggjakakan brotin
saman og borin fram með
brauðinu, þegar osturinn er
bráðnaður.
1 stór braubsneið gróft
brauð
Sinnep
2 sneibar skinka
1- 2 tómatar í sneibum
2- 3 sneiðar ostur
Smyrjið brauðsneiðina meö
sinnepi. Skinkusneiðar og
tómatsneiðar settar ofan á og
þar yfir ostsneiðamar. Sett inn
í heitan ofn eða undir „grill",
þar til osturinn er brábnaður.
/CóÚiíeÚÚar
ö^iuSKeiðm
áíarú-
4 svínakótilettur
Salt og pipar
4 sítrónusneiðar
4 msk. púðursykur
4 msk. tómatsósa
pönnu og kartöflumar brún-
aðar létt á öllum hliðum. Sett-
ar í eldfast mót og kryddaðar
með salti og pipar, soðinu
hellt út á. Mótið sett í ofn við
200° í ca. 30 mín. Kótilettun-
um raðab ofan á kartöflurnar,
1 sítrónusneið sett ofan á
hverja kótilettu, 1 msk. tómat-
sósa og 1 msk. púðursykur.
Mótið sett aftur í ofninn (200°
í 30 mín.). Salat borið með.
1 kg kartöflur
50 gr smjör
Ca. 3 dl kjötsob eba vatn
Brúnið kótilettumar á báðum
hliöum á heitri, þurri pönnu.
Kryddið með salti og pipar.
Kartöflumar skrældar og
skomar í þunnar sneiðar eða
ræmur. Smjörið brætt á
Vissir þú ...
Ab Móbir Teresa heitir Agnes Con-
axha Bojaxhiu, fædd í Skopje í
Makedóníu árið 1910, yngst af
þremur systkinum.
Að orðið „idjót" er komið úr grísku.
Að það em 20 ár síðan sænski sönghópurinn „Abba" vann
söngvakeppnina í Brighton í Englandi. Þab vom þau
Annifrid Lyngstad, Agneta Fáltskog, Bjöm Ulvaeus og
Benny Andersson, og lagið var auðvitað „Waterloo".
Ab þab var Adolphe Sax sem
fann upp saxófóninn. Hann
fæddist árib 1814 í Belgíu og
það em nú 100 ár frá dauða
hans. Mikið hátíðahöld til
minningar um hann verba
einmitt haldin í sumar. Þau
byrja 19. júní með stórsaxó-
fóntónleikum. Þangað verð-
ur mebal annarra boðið sjálf-
um forseta Bandaríkjanna,
Bill Clinton, en hann spilar
einmitt á saxófón.
Besta rábib:
Enginn getur hjálpað öll-
um. En allir geta hjálpað
einhverjum.